Þjóðviljinn - 20.01.1984, Page 19
Helgin 21.-22. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
íþróttir
Víðir Sigurösson
Helgar-
sportið
Knattspyrna
Kl. 10 í fyrramálið hefst íslands-
mótið í innanhússknattspyrnu
1984 í Laugardalshöllinni. Eins og
áður hefur komið fram, verður það
tvískipt í þetta skiptið. Nú um helg-
ina verður leikið í 2. og 4. deild og
að auki í einum riðli af þremur í
kvennaflokki. Síðari hlutinn fer
fram í endaðan febrúar.
í fyrramálið hefst keppni kl. 10
með tveimur kvennaleikjum, Víðir-
Víkingurog síðan Breiðablik-Fram.
Morgundagurinn verður síðan
nánast eingöngu helgaður 4.
deildinni og verður hún kláruð eins
og hún leggur sig. Síðasti leikurinn
þar, milli Arvakurs og Tálknafjarð-
ar, verður flautaður á stundvíslega
kl. 19.36 annað kvöld.
Á sunnudagsmorgun verður ein-
nig byrjað kl. 10 en nú er það 2.
deildin sem situr í fyrirrúmi þó
kvennaleikjum sé skotið inná milli.
Fyrsti leikurinn er milli Léttis og
Fteynis Sandgerði, þá taka við
Víðir og Austri, og síðan koll af kolli.
Keppni 2. deildar verður lokið á
sunnudagskvöldið og þar er einnig
stefnt að því að síðasti leikur hefjist
kl. 19.36. Þar eigast við Eyjafjarð-
arliðin Árroðinn og Þór Akureyri.
Sextán lið leika í 2. deild, sem og í
hinum deildunum þremur og alls
staðar er leikið í fjórum riðlum.
Efsta liðið í hverjum riðli leikur í
næstu deild fyrir ofan árið 1985 en
það neðsta fellur. Við greindum frá
því í síðustu viku hvernig riðlarnir í
hinum einstöku deildum eru skip-
aðir.
Handbolti
Alls staðar frí nema í 2. flokki
karla. Þar hefst keppni í kvöld á
þremur stöðum, kl. 19 í Seljaskóla í
Reykjavík og á Seltjarnarnesi og
kl. 20 í Vestmannaeyjum. Leikið
verður áfram á morgun og sunnu-
dag.
Körfubolti
Frí verður í úrvalsdeildinni en í 1.
deild kvenna leika Snæfell-
Njarðvík í Borgarnesi kl. 20.30 í
kvöld, Snæfell-IR á sama stað kl.
14 á morgun, KR-Haukar í Haga-
skóla kl. 21.30 á sunnudag og IS-
Njarðvík í Kennaraháskólanum kl.
20 á mánudagskvöld. Skallagrím-
ur mætir ÍS í 1. deild karla í Borg-
arnesi kl. 19 í kvöld og Fram leikur
við Grindavík í Hagaskólanum kl.
20 á sunnudagskvöldið. f yngri
flokkum verður um helgina leikið í
Borgarnesi, Sandgerði, Haga-
skóla, Hafnarfirði og Njarðvík.
Blak
Víkingsstúlkurnar leika 2 leiki í 1.
deild kvenna norðan heiða. Gegn
Völsungi að Ýdölum kl. 20 í kvöld
og gegn KA í Glerárskóla á Akur-
eyri kl. 15 á morgun. Á morgun
verða svo þrír leikir í Digranesi í
Kópavogi, HK-Þróttur í 1. deild
karla kl. 14, HK.2-Breiðablik í 2.
deild karla kl. 15.20 og Breiðablik-
ÍS í 1. deild kvenna kl. 16.40.
Badminton
Meistaramót ÍA í unglingaflokki
verður haldið í íþróttahúsinu á Akr-
anesi á morgun og á sunnudag. Á
sunnudag fer fram í TBR-húsinu í
Reykjavík meistaramót TBR í
öðlinga- og æðstaflokki.
Júdó
Einstaklingskeppni drengja
verður haldin í íþróttahúsi
Kennaraháskólans á morgun,
laugardag, og hefst kl. 15.
Sund
Unglingameistaramót Reykja-
víkur verður haldið í Sundhöll
Reykjavíkur á sunnudaginn.
Þrjár umferðir eftir af forkeppni 1. deildarinnar:
Hörkukeppni fjögurra liða
um tvö sæti er framundan
Nú er einungis þremur umferð-
um ólokið af forkeppni 1. deildar
karla í handknattleik. Þessari
keppni er hægt að finna flest til for-
áttu, en það breytir engu um að í
vændum er gífurleg keppni fjögu-
rra liða um tvö sæti í úrslitakeppn-
inni um meistaratitilinn. Þessi félög
eru Víkingur, Þróttur, KR og Stjarn-
an. Víkingar eru með 12 stig, Þrótt-
ur 11, KR 10 og Stjarnan 9. FH
með 22 stig og Valur með 17 eru
þegar komin í úrslitin en Haukar
með 3 stig og KA með 2 stefna
beint niður í 2. deild á ný.
Lítum á hvaða leiki þessi fjögur
eldlínulið eiga eftir:
Sigurjón Guðmundsson úr Stjömunni
skorar gegn KR. Lið hans virðist eiga
betri möguleika en KR þrátt fyrir að
vera stigi neðar.
Víkingur: KA (úti), KR og Val.
Þróttur: Val, Hauka (úti) og
Stjörnuna (heima).
KR: FH (úti), Víking og KA (úti).
Stjarnan: Hauka (heima), KA
(heima), og Þrótt (úti).
Þegar þetta er skoðað nánar
kemur í ljós að Stjarnan á mjög
góða möguleika, gæti verið komin
með 13 stig fyrir síðasta leikinn
gegn Þrótti. Víkingur ætti að fara í
14 stig með sigri á KA, Þróttur í 13
með sigri á Haukum og KR í 12
með sigri á KA. Þá er komið að
innbyrðis leikjunum sem ráða
væntanlega úrslitum. KR á erfið-
ustu leikina framundan, verður
a.m.k. að fá tvö stig útúr leikjunum
eins í 12. sæti, en hann er reyndar
að ná sér á strik eftir veikindi sem
hindruðu hann í að keppa á síðasta
ári.
við FH og Víking til að eiga mögu-
leika. Valsmenn koma til með að
verða miklir örlagavaldar, þeir I
eiga eftir að mæta bæði Þrótti og |
Víkingi. En leikirnir sem mest
kémur til með að byggjast á eru j
KR-Víkingur í 13. umferðinni :
þann 12. febrúar og Þróttur-
Stjarnan í lokaumferðinni 19. fe-
brúar.
Á það skal síðan minnt, að verði
lið jöfn, t.d. í 4.-5. sæti deildarinn-
ar, ræður markatalan ekki úrslit-
um, heldur innbyrðis leikir við-
komandi liða. f því efni er nú þegar
ljóst að KR hefur vinninginn fram
yfir Þrótt (20-14 og 17-17), Stjarn-
an yrði ofan við KR (15-15 og 22-
18), Þróttur yrði ofar Víkingi (19-
20 og 28-25) og Víkingur yrði ofar
Stjömunni (21-22 og 30-21). Þrótt-
ur vann Stjörnuna 22-18 í fyrri leik
liðanna og Víkingar sigruðu KR
21-19 í fyrri umferðinni. Það verð-
ur því hart bitist um mörk og stig í
þessum leikjum sem eftir eru.
Margir af fremstu frjálsíþrótta-
mönnum Breta dvelja um þessar
mundir í Ástralíu vegna hentugra
aðstæðna þar á þessum árstíma.
Auk þessara tveggja heldur Steve
Cram, 1500 m hlauparinn frægi,
þar til og verður þar framá vorið.
Hlaupagikkirnir eru að sjálfsögðu
allir að stefna á sem bestan árangur
á Ólympíuleikunum í Los Angeles
í sumar.
Pupko og félagar í Maccabi El-
Zion glíma við Spánverjana í
Barcelona í undarúrslitunum.
Maccabi
mœtir
Barcelona
Maccabi El-Zion, ísraelska liðið
sem sló KR útúr Evrópukeppni
bikarhafa í handknattleik síðustu
helgi, mœtir Barcelona frá Spáni í
undanúrslitum keppninnar. Liðfrá
Ungverjalandi og Júgóslavíu mœt-
ast í hinum undanúrslitaleiknum.
Tatabanya, FH-banarnir í
IHF-keppninni, leikur við Gross-
wallstadt frá V. Þýskalandi í unda-
núrslitum, og hin viðureignin þarer
Gladsaxe/HG frá Danmörku gegn
Trnava frá Tékkóslóvakíu.
Þróttarar
á toppinn
Þrótturfrá Neskaupstað tókfory-
stuna í suð-austurriðli 2. deildar
karla í blaki um síðustu helgi. Þá
kom Samhygð í heimsókn og lék
tvo leiki, Þróttur vann þann fyrri
3-0 og þann síðari 3-1.
Hængsmót
á Akureyri
íþróttafélag fatlaðra vill koma
því áframfœri til sinna félagsmanna
að þeir sem œtla að taka þátt í
Hœngsmótinu á Akureyri 10. mars
skuli láta skrá sig fyrir 31. janúar
hjá þjálfurum. Keppnisgreinar eru
bogfimi, borðtennis, lyftingar og
boccia.
Spánn tap-
aði heima
Ungverjar unnu óvœntan en góð-
an sigur á Spánverjum í landsleik í
knattspyrnu í fyrrakvöld. Leikið
var í Cadiz á Spáni og Ungverjar
unnu 1-0 með marki Garaba um
miðjan síðari hálfleik. Spánverjar
byrja því ekki glœsilega undirbún-
inginn fyrir úrslit Evrópukeppni
landsliða nœsta sumar.
Áhugamaður um ensku knatt-
spyrnuna sem gaukaði að okkur
nokkrum „molum“ fyrir
skömmu, hefur sent annan
skammt sem vafalítið endist fyrst
um sinn. Hér kemur sýnishorn:
Negrar hafa sett mikinn svip á
ensku knattspyrnuna undanfarin
ár og rutt sér inní enska landslið-
ið. En hvernig skyldi úrvalslið
negra þar í landi líta út? Hér er
ein hugmynd:
1. Alex Williams, Man. City
2. Vlv Anderson, Nottm.For.
3. Danny Thomas, Tottenham
4. Bob Hazell, Leicester
5. Chris Whyte, Arsenal
6. Paul Davis, Arsenal
7. John Chiedozie, Notts Co
8. Mark Chamberlain, Stoke
9. John Barnes, Watford
10. Danny Wallace, South.ton
11. Cyrille Regis, WBA
Þann 18. september 1948
enduðu 9 af 11 leikjum 1. deildar-
innar ensku með jafntefli. Slíkt
hafði ekki gerst fyrr, og reyndar
ekki síðar, og því vænlegra fyrir
getraunaspámenn að spara x-in.
FIFA, alþjóða knattspyrnu-
sambandið, var formlega stofnað
í París 21. maf 1904. Stofnþjóð-
irnar voru aðeins 7, þ.e. Dan-
mörk, Svíþjóð, Spánn, Holland,
Belgía, Frakkland og Sviss. Árið
1982 voru hinsvegar komnar 152
þjóðir í sambandið.
Derek Dooley hét markama-
skína ein á 6. áratugnum. Hann
Enskir
punktar
Bobby Charlton skoraði mark í
sínum fyrsta leik - gegn Charlton!
lék með Sheff.Wed. í 2. deild og
náði þeim merka áfanga að skora
62 mrök í 61 leik. Þar af gerði
hann 40 mörk í fyrstu 30 leikjun-
um. Meiðsli bundu enda á
atvinnumennsku hans eftir 62
leiki.
Keppnistímabilið 1966-67
vann Celtic öll þau mót sem liðið
tók þátt í. Evrópukeppni
meistaraliða, skosku 1. deildina,
skoska bikarinn, skoska deilda-
bikarinn og Glasgow-bikarinn.
Aston Villa á markametið í en-
sku 1. deildinni, skoraði 128
mörk keppnistímabilið 1930-31.
Bobby Charlton skoraði sitt
fyrsta deildamark í sínum fyrsta
leik með Manchester United árið
1956. Að sjálfsögðu var markið
gert gegn Charlton!
Keppnistímabilið 1957-58 varð
Manch. City í 5. sæti í 1. deild.
Liðið skoraði 104 mörk en fékk á
sig 100. Það var aðeins í einum
leik sem City náði ekki að skora
og tókst aðeins að „halda hreinu“
í fjórum leikjum. Þeir hljóta að
hafa spilað sóknarfótbolta...
Dave Watson, fyrrum leik-
maður Rotherham, Sunderland,
Manch.City, Werder Bremen,
Southampton, Stoke og enska
landsliðsins, leikur nú með Der-
by County. Hann er orðinn rúm-
lega 37 ára og er enn í framför að
sögn kunnugra, enda er áhuginn
svo mikill hjá kappanum að fram-
kvæmdastjóri Derby, Peter Tayl-
or, hefur lýst því yfir að eina
leiðin til að fá Watson til að hætta
að leika knattspyrnu væri að
skjóta hann...
-VS
Bretarnir undirbúa
s
sig í Astralíu
Alan Wells, sá snjalli sprett-
hlaupari, vann tvö örugga sigra, í
100 og 200 m hlaupi, á frjálsíþrótta-
móti í Melbourne í Ástralíu fyrr í
þessari viku. Landi hans,
heimsmethafinn í 5000 m hlaupi,
David Moorcroft, olli hins vegar
vonbrigðum í sinni grein, varð að-
-VS