Þjóðviljinn - 10.02.1984, Blaðsíða 7
Föstudagur 10. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Settar verði reglur um takmörkun á umsvifum erlendra sendiráða
Fjölgar hjá stórveldum
Nema hjá Kínverjum sem hefur stórfœkkað
þessu tímabili (1982), en eitt nýtt
bæst í hópinn, þ.e. Finnland þann
1. mars 1983.
Tillaga sú til þingsályktunar um
takmörkun á umsvifum erlendra
sendiráða hérlendis sem Hjörleifur
Guttormsson hefur lagt fram á AI-
þingi styðst við heimildir í Vínar-
samningnum, sem ísland gerðist
aðili að með lagasetningu á Alþingi
1971. Tillagan snýst um það að Al-
þingi feli rfkisstjórninni að setja
reglur um takmarkanir á umsvif-
um erlendra sendiráða hérlendis,
m.a. varðandi fjölgun sendiráðs-
manna, byggingu og kaup fasteigna
og rekstur skrifstofa með tilliti til
smæðar islensks samfélags og hlið-
sjón af umfangi starfsemi íslensku
utanríkisþjónustunnar í löndum
sem ísland hefur stjórnmálasam-
band við.
ísland hefur nú stjórnmálasam-
band við 75 ríki, þar af eru sendi-
herrar tilnefndir gagnkvæmt í 53
löndum. Hér á landi eru starfandi
sendiráð Bandaríkjanna, Bret-
lands, Danmerkur, Finnlands,
Frakklands, Kína, Noregs, Sovét-
ríkjanna, Svíþjóðar, Tékkóslóvak-
íu, Sambandslýðveldisins Þýska-
lands og Þýska alþýðulýðveldisins.
í greinargerð með þingsályktun-
artillögunni er birt yfirlit um fjölda
erlendra starfsmanna við sendiráð-
in og fjölskyldur þeirra frá janúar
1979 og janúar 1984. Taflan frá
1984 er birt með fréttinni: „Af
j þessu yfirlit sést að Sovétríkin hafa
hér mestan fjölda erlendra starfs-
manna, eða 37 talsins, og hefur
þeim fjölgað um 2 frá því fyrir 5
árum. Næst koma Bandaríkin með
22 erlenda starfsmenn, einum fleiri
en 1979. Frakkland er hið þriðja í
röðinni með 10 starfsmenn, en
önnur ríki þaðan af færri. Hefur í
engu tilviki nema hjá Sovétríkjun-
um og Bandaríkjunum verið um að
ræða fjölgun erlendra starfs-
manna, og 6 sendiráð af alls 12 hafa
fækkað erlendu starfsfólki á þessu
tímabili. Sérstaka athygli vekur hin
mikla fækkun starfsmanna hjá kín-
verska sendiráðinu, eða úr 20 í 6
starfsmenn. Eitt sendiráð, hið
pólska, hefur hætt starfsemi á
1 Marshall Brement sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi: Hann
stjómar að sjálfum sér meðtöldum
41 starfsmanni, 22 Bandaríkja-
mönnum og 19 íslendingum. 33
tefjast og I fjölskylduliði banda-
ríska sendiráðsins, þannig að
heildarfjöldinn er 74.
19 íslendingar
hjá Bandaríkjamönnum
Fjöldi erlendra starfsmanna
segir þó engan veginn alla sögu um
starfsmannahald sendiráðanna,
því að hjá sumum þeirra starfa ís-
lendingar. Þannig störfuðu 19 ís-
lendingar í sendiráði Bandaríkj-
anna í ársbyrjun 1984, en enginn
íslendingur í sendiráði Sovétríkj-
anna. Að þeim meðtöldum var
svipaður heildarfjöldi starfsmanna
hjá sendiráðum þessara stórvelda.
Starfsmenn bandaríska sendiráðs-
ins töldust þá skv. upplýsingum
utanríkisráðuneytisins 22 - 19 - 41
talsins, en hjá sovéska sendiráðinu
37. Þegar fjölskyldulið er meðtalið
er fjöldi á vegum bandaríska send-
iráðsins 74 og á vegum sovéska
sendiráðsins 80 manns.
Ennfremur kemur fram að
nokkur aukning mun hafa orðið á
fasteignum sumra sendiráða á sl. 5
árum, og tvö sendiráð eiga lóðir
isem ekki hefur enn verið byggt á.
Bandaríska sendiráðið hefur feng-
ið úthlutað stórri lóð í nýja mið-
bænum í Reykjavík.
Skýr ákvæði
í Vínarsamningi
í greinargerðinni er vitnað m.a.
sérstaklega til 11. og 12. greinar
Vínarsamningsins um stjórnmála-
samband, en hann er birtur sem
heild meðal fylgiskjala. Þar segir í
11. grein:
„1. Þegar ekki er gerður sérstak-
ur samningur um stærð sendiráðs,
getur móttökuríkið krafist þess, að
stærð sendiráðsins verði sett tak-
mörk, er það telur hæfileg og eðli-
leg með hliðsjón af aðstæðum og
ástandi í móttökuríkinu og þörfum
hlutaðeigandi sendiráðs.
2. Einnig getur móttökuríkið,
innan sömu takmarka og þannig að
eigi sé um mismunun að ræða, neit-
að að taka við starfsmönnum í til-
teknum starfsflokki.“
Og í 12. grein segir:
„Sendiríkinu er ekki heimilt,
nema að fengnu ótvíræðu sam-
þykki móttökuríkisins, að setja á
stofn skrifstofur, sem eru hluti af
sendiráðinu, annars staðar en þar
sem sendiráðið er sjálft.“ _ekh
Fjöldi erlendra starfsmanna og fjölskyldna þeirra við
sendiráðin í Reykjavík.
Bandaríkin....................
Bretland......................
Danmörk.......................
Finnland......................
Frakkland.....................
Kína..........................
Noregur.......................
Pólland.......................
Sovétríkin....................
Svíþjóð.......................
Tékkóslóvakía.................
Sambandslýðveldið
Þýskaland.....................
Þýskaalþýðulýðveldið.......
Janúar1984
Starfsmenn Fjölskylda Alls
22 33 55
5 12 17
5 4 9
4 1 5
10 10 20
6 6
3 1 4
37 43 80
3 2 5
3 4 7
7 5 12
3 2 5
Mikhall Streltsov sendiherra Sovétrikjanna á íslandi: Hann stjórnar að
sjálfum sér meðtöldum 37 starfsmönnum, öllum sovéskum. í fjölsky Iduliði
Sovétríkjanna eru taldir 43 þannig að heildarfjöldinn er 80.
/i r\
MIKLABRAUT
1AN DSBANKINN OPNAR
IDAG AFGREIÐSUJ AÐ,
HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVIK
Öll bankaþjónusta verður veitt, innlend sem erlend.
Það er von bankans, að þessi afgreiðsla geti verið til mikils hagræðis fyrir
fjölmörg fyrirtæki og einstaklinga á Ártúnshöfða og nágrenni.
Verið velkomin í viðskipti
LANDSBANKINN
Banki allra landsmatma
Höfðabakka 9,110 Reykjavík
Sími 687822.