Þjóðviljinn - 10.02.1984, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 10.02.1984, Qupperneq 15
Föstudagur ÍÖ. febrúar 1984 WÓÐVILJINN — SÍÐA 15 RUV 1 FÖSTUDAGUR 10. febrúar 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt þáttur Erlings Sigurðarsonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Sveinbjörg Pálsdóttir, Þykkva- bæ talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Leikur i laufi“ eftir Kenneth Grahame Björg Árna- dóttir les þýðingu sína (8). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Pingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli sér um þátt- inn (RÚVAK). 11.15 „Ali Schar og Zummerud“, persneskt ævintýri; seinni hluti Séra Sigurjón Guð- jónsson les þýðingu sína. 11.45 Tónleikar 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning- ar. Tónleikar. 14.00 „lllur fengur“ eftir Anders Bodelsen Guðmundur Ólafsson les þýðingu sína (14). 14.30 Miðdegistónleikar Gidon Kremer og félagar I Sintóníuhljómsveit Lundúna leika Rondó í A-dúr fyrir fiðlu og strengjasveit eftir Franz Schubert; Emil Tsjakarov stj. 14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Eiriksdóttir kynnir nýútkomnar hljómplötur. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar John Williams og Enska kammersveitin leika Fantasíu fyrir gítar og hljómsveit eftir Joaquin Rodrigo; Charles Groves stj. / Osian Ellis og Sinfóniu- hljómsveit Lundúna leika Konsert op. 74 fyrir hörpu og hljómsveit eftir Reinhold Gliere; Richard Bonynge stj. 17.10 Síðdegistónleikar 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfrétfir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn Stjórnandi: Heiðdís Norðf- jörð (RÚVAK). 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor- oddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka a. Gröndal og Djunki Þor- steinn frá Hamri tekur saman frásöguþátt og flytur. b. Kammerkórinn syngur Stjórn- andi: Ruth L. Magnússon. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.10 Hljómskálamúsík Guðmundur Gilsson kynnir. 21.40 Fósturlandsins Freyja Umsjón: Hösk- uldur Skagfjörð. Lesari með honum: Birgir Stefánsson. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Traðir Umsjón: Gunnlaugur Yngvi Sig- fússon. 23.15 Kvöldgestir - þáttur Jónasar Jónas- sonar 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvaq) frá RÁS 2 hefst með veðurfregnum kl.01.00 til kl.03.00. RUV 2 10-12 Morgunþáttur. Stjórnendur Páli Þorsteinsson, Asgeir Tómasson og Jón Ólafsson. 14-16 Pósthólfið. Stjómendur Valdís Gunnarsdóttir og Flróbjartur Jónatans- son. 16-18 Helgin framundan. Stjórnandi Jó- hanna Flarðardóttir. 23.15 - 3 e.m. Næturvaktin á Rás 2. Stjórnandi Ólafur Þórðarson. Rás 1 kemur inn kl. 01 með veðurfregnir. RUV Föstudagur 10. febrúar 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Á döfinni. Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 20.50 Skonrokk. Umsjónarmaður Edda And- résdóttir. 21.20 Kastljós. Þáttur um innlend og erlend málefni. Umsjónarmenn: Bogi Ágústsson og Hermann Sveinbjömsson. 21.25 ída lltla. (Liten Ida) Norsk sjónvarps- mynd gerð eftir skáldsögu Marit Paulsen. Handrit og leikstjóm: Laila Mikkelsen. Leikendur: Sunneva Lindekleiv (7 ára), Lise Fjeldstad, Howard Halvorsen, Ellen West- erfjell o.fl. Myndin gerist á hernámsárunum i Noregi. Ida litla flyst til smábæjar eins með móður sinni sem hefur fengið vinnu hjá þýska setuliðinu. Ida hyggur gott til vista- skiptanna en bæði böm og fullorðnir snúa við henni baki vegna þess að móðir hennar er í tygjum við þýskan liðsforingja. En Ida litla er staðráðin í að eignast hlutdeild f sam- félaginu með tíð og tíma. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 23.40 Fréttlr f dagskrárlok. fr Af hverju ekki gervigras? Það er undarleg stefna, sem hefur verið flutt af Al- þýðubandalaginu og Kvenna- framboðinu. Sú stefna er að áðurgreindir flokkar vilja að hætt verði við að láta gervi- gras í Laugardalinn. Það er varla hægt að segja að aðstæður í Reykjavík fyrir knattspyrnumenn séu boðlegar. En samt vilja áðurgreindir flokk- ar stoppa þessa framkvæmd. Ég er hissa á því að Alþýðubanda- lagið skuli flytja þessa tillögu, en ekki hissa á því að Kvennafram- boðið skuli gera það, því sá flokk- ur hefur að mínu áliti ekki mikinn ■ Queens Park Rangers og Blackburn að spila á gervigrasi á Loftus Road á takkalausum skóm. áhuga á að styrkja heilbrigt og gott íþróttastarf. Maður hlýtur að spyrja sjálfan sig hvort maður krossi við G aftur í um. næstu borgarstjómarkosning- Þakka birtinguna, 6013-7226. Páll Hildiþórs: Lognið á undan storminum Það fer ekkert á milli mála, að hvar sem maður hittir mann þá eru það áform ríkis- stjórnarinnar sem þar eru efst á baugi. Hvað ætlar stjórnin að gera í efnahagsmálum? Um þetta er spurt. Nú þegar hátíðarnar eru gengnar um garð og fólk horfir í gáupnir sér og veit ekki sitt rjúkandi ráð hvernig það á að láta endana ná saman á kom- andi ári. Auðstéttin í þessu landi þarf ekki að kvarta. Það er sagt að útkoman hjá kaupmönnum hafi verið með besta móti. En einn galli kann að vera á þessu, ef jóla- bisnesinn hefur farið mest fram á lánum, kretitkortum og víxlum, þá kemur að skuldadögunum, það skyldi fólk muna, og þá gæti farið svo að fjandinn hitti ömmu sína. í þeirri miklu og hættulegu verðbólgu sem almenningur hef- ur mátt þola á undanförnum árum, hefur auðstéttin matað krókinn, og læst rándýrsklóm sín- um í efnahagsmál þjóðarinnar og telur nú öllu óhætt. Á meðan þegir verkalýðsforustan. En kvað lengi? Ætlar A.S.Í. að láta sér lynda að einstök félög skeri sig úr og reyni að ná mannsæmandi samningum á eigin spýtur? Er ekki kominn tími til að foringj- arnir fari að rumska, og láti auðstéttina vita hvar Davíð keypti ölið. Hér þýða engar hvítflibba að- gerðir. Fólkið mun rísa upp, sam- ræmdar aðgerðir er það eina sem gildir ef á að velta þessum íhalds- gaurum af stalli sem sí og æ hafa staðið í vegi fyrir því að láglauna- fólkið í þessu þjóðfélagi hafi sómasamleg laun fyrir vinnu sína. Nú þegar er farið að bera á miklu atvinnuleysi og er það al- varlegur hlutur í okkar þjóðfé- lagi. Það fólk sem nú er yfír fer- tugt þekkir ekki þennan vágest, sem er eitthvað það mest niður- lægjandi er nokkur maður getur lent í. Þeir sem muna kreppuárin milli 1930-1940 minnast þess með hryllingi þegar fóik þurfti að koma skríðandi til atvinuveitand- ans til að biðja um vinnu sér og sínum til lífsviðurværis. Það er þetta sem íhaldið er að bíða eftir, það skyldu verkalýðsforingjar muna, þegar þeir fara að semja. Vellukkað harðræði eins og segir í frægri bók. Launastéttirnar eiga að spara, hætta þessu lífsþæginda kapphlaupi og eilífa peninga- kvabbi, atvinnuveitendur geta ekki endalaust borgað hærra kaup, það verður að spara. Þetta sagði Jón vinur minn hjá íhaldinu um daginn þegar ég rakst á hann á förnum vegi, og hann veit hvað hann syngur, þó kjaftaglamrari sé. Verkalýðsforustan verður að grípa til aðgerða segir Óskar Gar- inbaldason gamall verkalýðsfor- ingi á Siglufirði í viðtali við Þjóð- viljann um daginn. Þessum reynda og harða foringja er farið að blöskra aðgerðarleysið, og lái honum hver sem vill. Það eina sem íhaldið skilur og óttast er að verkfallsvopninu sé beitt í órofa samstöðu. Vinnu- stéttirnar eiga að hætta að láta pína sig með alls konar brellum og hundakúnstum, heldur að knýja atvinnurekendur að samn- ingsborðinu þar sem gert verði samkomulag um kaup og kjör á heiðarlegan og afdráttarlausan hátt. Sigþrúður Pálsdóttir myndlistar- maður. Myndina tók -eik- í fyrstu einkasýningu hennar í september í fyrra. Kristinn Sigmundsson óperusöngv- ari. Útvarp kl. 23.15 Kristinn og Sigþrúður kvöldgestir Jónasar Kvöldgestir - þáttur Jónasar Jónassonar er á dagskrá kl. 23.15 í kvöld. Gestir Jónasar að þessu sinni eru Kristinn Sigmundsson óperusöngvari og Sigþrúður Páls- dóttir myndlistarmaður. Ef að líkum lætur tekst Jónasi að fá þau til þess að segja í trúnaði allt af létta um sitt lífshlaup. bridge Eitt skæðasta vopn bridge- mannsins, er „fórnin". Að segja einni sögn hærri en andstæð- ingurinn í þeirri von að sleppa með minnstum hugsanlegum mun útúr þeirri viðureign, til að „fómin" borgi sig. Við skulum líta á eitt dæmi um hugsanlega „fórn“: Gx KDIOxx G109x XXX ÁKGxx KG10 9 xx ÁKDxx X XXX XXX Áxx X D109x ÁDxxx XX Sagnir gætu gengið eitthvað á þessa leið: Suður VesturNorðurAustur 1 tfgull 1 spaði 2 tíglar 2 hjörtu 3 lauf 3 hjörtu4 lauf 4 hjörtu 4 spaðarPass 5 lauf 5 hjörtu 6 tfglar Pass Pass 6 hjörtu eða pass Eftir svona sagnir, ættu A/V líklega að „taka“ fómina, því 6 tíglar virðast þéttir, eftir sagnir, sem þeir eru einsog sjá má. En til að hindra pör í að „ná“ slemmu-úttekt, hefði komið til greina í þessu spili hjá Vestri að stökkva beint í 4 eða 5 hjörtu og leyfa N/S að ráða fram úr vand- amálinu sem þá biasir við. Fyrir mestu er (oft) að gefa andstæð- ingunum ekki tíma til að skýra hendur sínar. í þeim stöðum nýtast „fómarsagnir" best. Tikkanen ísland má aldrei verða land tveggja tungumála. Never! Gœtum tungunnar Sagt var: Hann lúskraði dug- lega á karlinum. Rétt væri: Hann lúskraði karl- inum duglega. Eða: Hann lumbraði duglega á karlinum. Vllduð þér vera svo vænar að taka ofan hattinnl?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.