Þjóðviljinn - 21.02.1984, Page 5
Þriðjudagur 21. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Minning
Agnar Klemens Jónsson
Kveðja frá Sögufélagi
Mér er ljúft og skylt að kveðja
Agnar Kl. Jónsson hinztu kveðju
af hálfu Sögufélags nú við leiðar-
lok.
Agnar Kl. Jónsson hafði sterkar
taugar til Sögufélags, en faðir hans
Klemens Jónsson landritari og síð-
ar ráðherra átti sæti í stjórn félags-
ins frá 1906 til dauðadags 1930,
lengstum gjaldkeri þess. Og sjálfur
átti Agnar samskipti við félagið,
þegar hann á sínum tíma tók saman
Lögfræðingatal, stórt og vandað
rit, sem Sögufélag gaf út árið 1950.
Fetaði hann þar í fótspor föður
síns, sem árið 1910 gaf einnig út
Lögfræðingatal á vegum félagsins.
Löngu síðar, þegar Agnar hafði
flutzt til íslands eftir langan og gift-
uríkan feril í utanríkisþjónustunni,
bar fundum hans og Sögufélags að
nýju saman. Á aðalfundi félagsins
árið 1965 léði hann máls á því að
taka sæti í stjórn þess. Það var
stjórn Sögufélags óblandið fagn-
aðarefni, að þessi virti og vamm-
lausi embættismaður skyidi koma í
okkar hóp, sem þá vorum í stjórn
félagsins og taka enn upp þráð
föður síns. Agnar var ljúfur sam-
starfsmaður og ráðhollur, sem
hafði ríkan áhuga á starfsemi
þeirri, sem félagið fékkst við, og
vildi efla gengi þess. Bar öll fram-
ganga hans því vitni, að þar fór
maður, sem hafði sökum upplags
og uppeldis inngróinn áhuga á
þjóðlegum fræðum, svo sem hann
átti kyn til, - sonur Klemensar
Minning
Emil Fenger
Emil vinur okkar er horfinn,
veruleiki sem við eigum engin
orð yfir. Hann sem hafði svo
mikið að gefa mannfélagi, þar
sem grimmdin ber kærleikann oft
ofurliði.
Kæri vinur, þú sem skilur eftir
fjölda minninga sem líða í gegn-
um hugann og varpa ljósi á dag-
inn í dag.
Sumir dagar
Sumir dagar eru hús
sem við læsum vandlega
áður en við kveðjum
og hverfum út á vettváng áranna
en ef við síðar förum þar hjá
af tilviljun
sjáum við allar dyr opnar -
börn dvelja þar að leik
og það sem mest er um vert:
sólin skín ótrúlega glatt á húsið.
(Þorsteinn frá Hamri)
Vinir.
Myndlist í Kaupmannahöfn
Nú stendur yfir málverkasýning
Filips W. Frankssonar í Jónshúsi í
Kaupmannahöfn. Filip er Þjóðvilj-
afólki ekki með öllu ókunnur því
hann starfaði við blaðið um árabil.
Filip stundaði nám í Myndlistar-
skólanum í Reykjavík og við Ny
Carlsberg Glyptotek í Kaup-
mannahöfn, hjá Askov Jensen.
Sýning hans í Jónshúsi nú er hans
önnur einkasýning í Kaupmanna-
höfn. Hún hófst 9. febrúar sl. og
stendur yfir til 3. mars nk.
Filip Franksson
myndlistarmaður
landritara, höfundar ýmissa sögu-
legra rita, og sonarsonur Jóns Bor-
gfirðings, alkunns áhugamanns um
þjóðlegan fróðleik á fyrri öld og
fram yfir síðustu aldamót.
Á þessum árum, sem Agnar Kle-
mens sat í stjórn Sögufélags, vann
hann að samningu mikils rits, sögu
Stjórnarráðs íslands frá því heima-
stjórn komst á 1904 og til 1964 eða
60 ára sögu þess. Hafði honum ver-
ið falið það verk af Bjarna Bene-
diktssyni forsætisráðherra, og þeg-
ar handritið var tilbúið til prentun-
ar um áramótin 1968-69, var það
sammæli þeirra að óska þess, að
Sögufélag gæfi ritið út. Að sjálf-
sögðu tók stjórn Sögufélags þessu
tilboði með mikilli ánægju, og var
ritið gefið út í tveimur bindum árið
1969, rúmlega eitt þúsund bls. að
lengd. Þetta var stærsta frumsamda
verk sinnar tegundar, sem félagið
hafði þá gefið út á nær sjö áratuga
ferli sínum. Stjórnarráðssaga Agn-
ars Klemens er mikið stórvirki og
algert undirstöðurit um sögu ís-
lands á 20. öld, og höfundur vand-
aður fræðimaður, sem gjörþekkir
þann efnivið, sem hann fjallaði
um. Voru stjórnarmenn Sögufé-
lags ekki í neinum vafa um, að út-
gáfa þessa rits yrði félaginu mikil
lyftistöng, sem yki hróður þess í
hvívetna, enda varð sú raunin á.
Þegar Agnar Kl. Jónsson hvarf
að nýju til starfa erlendis í utan-
ríkisþjónustunni á árinu 1969, varð
hann því miður að láta af stjórnar-
störfum í Sögufélagi, og þótti okk-
ur, sem eftir sátum, að þar væri
vissulega skarð fyrir skildi. En ég
þykist vita, að hann fylgdist með
félaginu úr fjarlægð og lét sig við-
gang þess varða; og það hefur
áreiðanlega glatt hann, þegar dótt-
ir hans, Anna Agnarsdóttir sagn-
fræðingur, tók sæti í stjórn félags-
ins fyrir tveimur árum, og sjá þann-
ig, að þráðurinn var óslitinn í gegn-
um þrjár kynslóðir.
Fyrir störf Agnars Kl. Jónssonar
í þágu Sögufélags vil ég tjá þakk-
læti okkar í stjórn þess, nú þegar
hann er allur, og vona, að við
megum bera gæfu til að vinna f
anda hans að framgangi Sögufélags
og íslenzkrar sagnfræði. Um leið
vil ég þakka vinsemd hans og hlýtt
viðmót í minn garð, ekki sízt frá
sumrinu 1978, þegar ég átti þess
kost að njóta gestrisni hans og
þeirra hjóna í Kaupmannahöfn, er
hann var þar sendiherra.
Ég sendi eftirlifandi konu hans,
frú Olöfu Bjarnadóttur, og börn-
um þeirra innilegar samúðarkveðj-
ur við fráfall hans, frá mér og stjórn
Sögufélags.
Einar Laxness
TEPPIN
Við erum
í takt
við verðbóiguna!
LÆKKA
LÆKKA
LÆKKA
LÆKKA
LÆKKA
TEPPABUÐIN
SiÐUMÚLA 31 SiMI 84850
/Áttu við
GOLF eöa
ÞAKVANDAMÁL að strída?
Filip Franksson
með einkasýningu
Betokem SUM gólfílögn
Betokem gólílögnin harðnar svo fljótt að þú getur gengið
eða lagt teppið á gólfið eftir 24 tíma. SUM gólfílögn hefur
verið i þróun í Þyskalandi, Svíþjóð og Noregi sl. 15 ár og
hefur sýnt að hún stenst fyllilega allar þær gæða-, þol- og
styrkleikakröfur, sem settar voru í upphafi og síðar hafa
komið fram.
Pað hefur enda sýnt sig á söluþróuninni sl. 7 ár að þarna er á
ferðinni algjör bylting í gólfílögn, salan hefur nánast þotið
upp og ekki hefur verið hægt að anna eftirspurn fyrr en nú.
FILLC0AT
gúmmiteygjanleg samfelld húð fyrir málm-
þök.
Er vatnshelld.
Inniheldur cinkromat og hindrar ryðmyndun.
Ódýr lausn fyrir vandamálaþök.
Ábyrgð - greiðslukjör.
LAUSN ER ENDIST ÓTRÚLEGA VEL:
f'
h
: &
Við erum með f jölmargar gerðir af gólf-
ílagningarefnum sem þola ótrúlegt
álag. Það er sama hvort um er að ræða
gólfið í sturtuklefanum, matsalnum
eða á bílaverkstæðinu. Vandamálið
leysum við á fljótan og öruggan hátt.
' a i v
EP0XY - GÓLF
HAFNARFIRÐI SIMI 50538