Þjóðviljinn - 21.02.1984, Blaðsíða 12
16 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 21. febrúar 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Spilakvöld
Muniðspilakvöldiöað Hverfisgötu 105 n.k. þriðjudagskvöld, 21. febrú-
ar kl. 20 stundvíslega. Þetta er annað kvöldið f þriggja kvölda keppnj
en allir geta verið með þó þeir hafi ekki mætt á fyrsta kvöldið. - í
kaffihléi kemur Adda Bára Sigfúsdóttir og segir fréttir úr borgarstjórn-
inni.
Alþýðubandalagið
Vestmannaeyjum
Viðtalstímar
Framvegis verður Garðar Sigurðsson alþingis-
maður með viðtalstíma að Bárugötu 9, síðasta
laugardag í mánuði kl. 16-19. Næsti viðtalstími
verður laugardaginn 25. febrúar. Kaffi á könnunni.
- AB Vestmannaeyjum.
Garðar
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Ðæjarmálaráð
heldur fund miðvikudaginn 22. febrúar kl. 20.30 í Þinghóli. Dagskrá: 1)
Stofnfjáráætlun Kópavogskaupstaðar. 2) Önnur mál. Athugið að
fundurinn hefst kl. 20.30. - ABK.
Húsvíkingar -Þingeyingar
Alþýðubandalagið á Húsavík auglýsir árshátíð sína sem haldin verður
laugardaginn 25. febrúar í Félagsheimili Húsavíkur.
Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.00. Húsið opnaö kl. 19.30.
Steingrímur og Stefán koma og verða með ef færð og veður leyfa.
Skemmtiatriði við allra hæfi. Látið skrá ykkur sem allra fyrst í símum
41813 og 41397.
Athugið: Hátíðin er ætluð öllum Allaböllum í Þingeyjarþingi. Hafið
samband. - Nefndin.
Alþýðubandalag
Selfoss og nágrennis
Almennur félagsfundur verður haldinn laugardaginn 25. febrúar í Al-
þýðubandalagi Selfoss og nágrennis. Fundurinn verður haldinn að
Kirkjuvegi 7, Selfossi og hefst kl. 14. Dagskrá auglýst síðar. - Stjórn-
in.
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Fundur
í starfshópi um húsnæðismál, skipulagsmál og umferðarmál verður
haldinn miðvikudaginn 22. febrúar kl. 20.30 í Skálanum Strandgötu
41. - ABH.
Æsku lýðsfyl king Al þýðubanda lagsins
Félagsfundur
Fimmtudaginn 23. febrúar höldum við félagsfund í
Æskulýðsfylkingunni að Hverfisgötu 105 kl.
21.30.
Dagskrá:
Kjaramálin. Framsögumaður Óttarr Magni Jó-
hannsson.
Skýrsla stjórnar og verkefni næstu daga.
Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta. - Stjórn-
in.
Óttarr Magni.
Auglýsing
um styrki Evrópuráðsins á sviði læknisfræði
og heilbrigðisþjónustu fyrir árið 1985.
Evrópuráðið mun á árinu 1985 veita starfs-
fólki í heilbrigðisþjónustu styrki til námsferða
í þeim tilgangi að styrkþegar kynni sér nýj-
ungar í starfsgreinum sínum í löndum Evróp-
uráðsins og Finnlandi.
Styrktímabilið hefst 1. janúar 1985 og lýkur
31. desember 1985. Um er að ræða greiðslu
ferðakostnaðarsamkvæmt nánari reglum og
dagpeninga, sem nema 178 frönskum
frönkum á dag.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu land-
læknis og í heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu og eru þar veittar nánari upplýs-
ingar um styrkina.
Umsóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir
17. mars n.k.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
17. febrúar 1984.
Skiptimarkaður
með barnaföt
Dúlla
í nýtt
húsnæði
Skiptimarkaðurinn Dúlla hefur
flust af Laugaveginum, þar sem
hún aflaði sér mikilla vinsælda, á
Snorrabraut 22, (þar sem áður var
sængurbúðin Kristín). Þar er opið ,
frá kl. 13.00 til 18.00 virka daga en
frá kl. 11.00 til 13.00 á laugar-
dögum.
I Dúllu getur fólk keypt og selt
eða skipt á vel með förnum barn-
Nú er taekifæri að kaupa ódýr barnaföt.
afötum, bleyjum, leikföngum og
fleiru. Þetta mæitist vel fyrir, enda
ekki furða á þessum þrengingar-
tímum. —io.
Eftirsótt
Sæluhús“
Eftirspurn eftir dvöl í „Sæluhús-
um“ Samvinnuferða-Landsýnar í
Hollandi er nú geysimikil. Er búið,
að selja 1000 manns kvöld í húsun-1
um næsta sumar og stöðugt berast
fleiri pantanir. |
Athygli vekur að ýmsar af ferð-'
um félagsins eru 3-13% ódýrari en
sömu ferðir í júní í fyrra. Auk þess
hækkar nú aðildarfélagsafsláttur úr
kr, 1200 í kr. 1600. Stóraukin verð-
ur þjónusta við fólk, sem fer utan á
eigin vegum, því að bækur með!
upplýsingum um gististaði og hag-
kvæmar ferðaleiðir verða framveg-
is innifaldar í verðinu.
-mhgj
Málningar
vörur til
Sovét
Efnaverksmiðjan Sjöfn á Akur-
eyri hefur nokkur undanfarin ár
selt hvíta lakkmálningu til Sovét-
ríkjanna, þetta frá 400 og upp í
2000 tonn á ári. Sl. ár voru seld 500
tonn fyrir rúmar 20 milj. kr.
Viðskipti þessi eru samkvæmt
viðskiptasamningi milli íslands og
Sovétríkjanna og skiptist fram-
leiðslan að jöfnu milli Sjafnar og
Málningaverksmiðjunnar Hörpu.
Ekki hefur verið gengið frá samn-
ingum í ár en búist er við að Sovét-
menn kaupi svipað magn og í fyrra.
Þá hefur Sjöfn selt dálítið af
málningarefnum til Færeyja sl. 5-6
ár, fyrir svona 1-lVi milj. kr. á ári.
Mest eru þetta gólfefni: Met-
viðarlakk, gólftex, E-21 gólfhúð,
silikon- og olíukítti og fúavarnar-
efni.
Sjöfn hefur nú gefið út upplýs-
ingarit um hreinlætisvörur sem hún
framleiðir, með lýsingu á hverri
þeirra fyrir sig. Ritið er sent öllum,
sem versla með þessar vörur. Út
eru einnig að koma tvö önnur slík
rit um málningarvörur, annað um
utanhúss-efni, hitt um innanhúss.
Gerð er grein fyrir öllum málning-
arvörum verksmiðjunnar með
vörulýsingum og leiðbeiningum
um notkun. Verða ritin send versl-
unum, arkitektum, byggingafé-
lögum og öðrum, sem þess óska.
-mhg
' UMFERÐARMENNING '
------------------------/■
Ökum jafnan á hægri rein
á akreinaskiptum vegum.
HUDSON’S Bay London,
Uppboð á refaskinnum o.fl.
12. til 17. febr. 1984
Frá London Fur Group:
Tegund: fjöldi: selt %:Toppverð: Skýringar:
Blárefur 170.755 100 3.753,- Hækkun 30-70%
frá des. 1983.
í þessum blárefaskinnum voru um 7000 skinn frá
íslandi, um 1000 skinn voru seld í London í des. 1983,
og eftir er að selja um 2000 skinn héðan, en alls hafa
um 65 loðdýrabændur sent um 11.000 refaskinn til
London í vetur frá íslandi.
Aðal kaupendur blárefaskinnanna voru Austurlönd
fjær í stærri og betri skinnunum en Ítalía í stærð 1 og
lélegri gæðum.
Uppboðsmeðalverð í „1670“, „London
Label“, og l.flokk kr. 1360.-.
Shadow refur 33.663 100 3.584,-
Verð óbreytt frá
Helsingfors,
jan. 1984
í þessum shadowrefaskinnum voru um 1000 skinn frá
íslandi.
Aðal kauþendur: Italía:
Silfurblár
Siffurrefur
Platinurefur
3.249
2.305
137
85 7.380,-
88
80
9.909,-
7.590.-
Sama verð og í
Helsingfors
í jan. 1984
Sama verð og
í Helsingfors
í jan. 1984
í heild voru boðin upp 354.500 refaskinn frá ýmsum
löndum og um 500.000 lambskinn auk fjölda annarra
loðskinnategunda.
Loðskinnamarkaðurinn hefur styrkst mjög mikið frá
því í desember og reiknað er með enn frekari hækkun-
um í mars.
Um 1.000.000 minkaskinna verða boðin upp hjá Hu-
dson’s Bay í London dagana 23. til 28. febrúar 1984.
Sýningin hefst þann 17. febr.
Kjörbær hf.,/Skúli Skúlason
Kópavogi
Fréttimar
semfólk
talar um