Þjóðviljinn - 21.02.1984, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 21. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Skúlagötumálið
Greinargerð
íbúasamtaka
Á þriðjudag boðuðu íbúa-
samtök Skuggahverfis, íbúa-
samtök Vesturbæjar, íbúa-
samtök Þingholtanna og Torfu-
samtökin til fréttamannafundar
til að lýsa samskiptum sínum
við Davíð Oddsson borgar-
stjóra, Pórð Þorbjarnarson
borgarverkfræðing og aðrafull-
trúa meirihlutans í borgarstjórn
Reykjavíkur í sambandi við nýj-
ar skipulagsforsendur á svo-
kölluðu Skúlagötusvæði. Þar
hafa tillögur og mótmæli íbúa
verið hundsuð í einu og öllu.
Samkvæmt breytingum á
skipulagsákvæðum þessa
svæðis á nú að leyfa þarna
aukningu íbúabyggðar en áður
hafði verið gert ráð fyrir að iðn-
aður og stofnanir leystu af
hólmi gamla og gróna íbúa-
byggð. Hitt er það sem hefur
aðallega verið gagnrýnt að
leyfa á mikla aukningu húsrým-
is miðað við flatareiningu lands
eða allt að tvöföldun miðað við
það sem áður hafði verið leyft.
Hér á eftir fer frásögn ofan-
greindra samtaka.
Hallgrímur Guðmundsson frá Torfusamtökunum og Gerður Pálmadóttir, Geirharður Þorsteinsson, Guð-
mundur Gunnarsson og Freyja Kristjánsdóttir frá íbúasamtökum Skuggahverfis fyrir framan þá skipu-
lagstillögu sem Borgarskipulagið gerði á sínum tíma. I henni er gert ráð fyrir mun eðlilegri byggð á þessu
svæði en í þeim tillögum sem borgarstjóri ætlar nú að þrýsta í gegn og hundsa með því vilja íbúa svæðisins.
Ljósm.: -eik.
s
Alit þeirra
hundsað að fullu
Borgarverkfræðingur hefur nú
svarað athugasemdum íbúa og
komist að þeirri niðurstöðu að þær
séu að engu hafandi. Því leggur
hann nú til, með samþykki skipu-
lagsnefndar, frá 6. febr. s.l., að
borgarráð og borgarstjórn hundsi
að fullu þá Reykvíkinga sem sett
hafa fram álit sitt í þessu sambandi.
Athygli er vakin á því að hér er
einn af höfundum skipulagsbreyt-
ingarinnar að svara þolendum
þessarar breytingar.
Að svo komnu máli hefur stjórn
íbúasamtaka Skuggahverfis ritað
borgarstjórn áskorun um að fresta
afgreiðslu þessara skipulags-
breytinga, efna til borgarafundar
og leyfa um málið almenna um-
ræðu áður en hrapað verður að því
óráði, sem við teljum hér vera
stefnt í.
Hvaðan kemur
réttur yfírvalda?
Að lokum vill stjóm íbúasam-
taka Skuggahverfis varpa fram
eftirfarandi:
Hvaðan kemur réttur yfirvalda
til að lýsa þá menn samþykka yfir-
vofandi skipulagsbreytingum, sem
ekki auglýsa sig andvíga henni með
sérstökum ritsmiðum?
Hvenær hefðast réttur til um-
hverfisatriða s.s. sólar, útsýnis og
næðis?
Er það ekki tilfærsla á verð-
mætum úr hendi eins í hendur ann-
ars, að taka hlunnindi eins og t.d.
útsýni af einum til þess að bæta því
við í söluvöru hjá öðrum þcgar vit-
að er að einmitt útsýni hefur áhrif á
Syndaregistur Davíðs og Þórðar
í byrjun september á síðasta ári
boðuðu borgarstjóri Davíð Odds-
son og formaður skipulagsnefndar
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson vænt-
anlegar skipulagsbreytingar með
kynningu tveggja tillagna sem
borgaryfirvöld höfðu falið tvenn-
um völdum arkitektum að setja
fram, því til sönnunar, að sú
aukning yfirbyggingar, sem nú vai
unnið að, væri verjandi.
Tilmælum
ekki svarað
íbúar í Skuggahverfi brugðust
skjótt við og settu á fót undirbún-
ingsnefnd til stofnunar íbúasam-
taka. Undirbúningsnefnd vann það
fyrsta verk að rita borgaryfirvöld-
um bréf þar sem óskað var eftir því
að íbúum yrðu kynntar skipulags-
breytingar, og þeim gefinn kostur á
að segja álit sitt áður en til sam-
þykkta kæmi. Leitað var stuðnings
íbúanna í Skuggahverfi við þessi
tilmæli, og rituðu um 150 manns
undir þau nöfn sín. Þessum tilmæl-
um hefur ekki verið svarað ennþá.
Borgarverk-
fræðingur - ekki
borgarskipulag
Hinn 15. sept. 1983 samþykktu
borgaryfirvöld breytingar skipu-
lagsákvæða á þá lund sem áður
hafði verið kynnt, og sendu síðan
skipulagsstjórn til þess að afla þar
leyfis til auglýsingar á breyting-
unni.
Meðan þessu fór fram voru íbúa-
samtök Skuggahverfis lögformlega
stofnuð, nánara sagt í Þjóðleikhús-
kjallaranum 1. október að við-
stöddum 70 fundarmönnum.
Fyrsta verk stjórnar þessara sam-
taka var að tilkynna borgaryfir-
völdum um tilvist félagsins, og
bjóða þá hverskonar samvinnu
sem hugsanleg væri í málefnum
hverfisins. Næsta verk stjórnar var
að rita skipulagsstjórn ríkisins
bréf, þar sem hún hafði erindi
borgaryfirvalda undir höndum
ásamt greinargerðum þeirra, og
kynna fyrir æðstu stjórn skipulags-
mála í landinu þær áhyggjur er íbú-
ar í Skuggahverfi hafa af hótunum
borgaryfirvalda um að nú eigi að
leyfa byggingu á næstum samfelldu
stórhúsi við Skúlagötu allt frá út-
varpshúsinu að lögreglustöðinni og
mundi það, ef nýtingarhlutfall yrði
nýtt til fullnustu, hvergi vera lægra
en útvarpshúsið sjálft, en víða
hærra. Skipulagsstjórn tók ekki af-
stöðu til skipulagsbreytingarinnar,
en leyfði auglýsingu. Borgarverk-
fræðingi var falin umsjá auglýsing-
ar og var frestur íbúanna til að skila
athugasemdum ákveðinn til 18.
janúar 1984. Var tekið fram í aug-
lýsingu að þeir sem ekki gerðu at-
hugasemd fyrir þennan tíma teld-
ust breytingunum samþykkir.
Nokkurri furðu sætti að borgar-
verkfræðingi væri falin umsjá
formsatriða, sem til þessa hafa ver-
ið í verkahring stpfnunar er heitir
Borgarskipulag. Á þessu kann þó
að vera skýring, þar sem skipu-
lagsstofnun borgarinnar, áskipuð
vandvirkum arkitektum, hafði
unnið um nokkra hríð að skipulagi
í Skuggahverfi og gert tillögu um
að íbúðabyggð yrði innleidd aftur,
en byggingamagn ekki aukið svo
neinu næmi. Fyrir þessa tillögu hef-
ur forstöðumaður borgarskipulags
og starfsfólk hans mátt þola ýmsa
lítilsvirðingu af hálfu borgaryfir-
valda.
Mótmæli frá
350 einstaklingum
Um miðjan nóvember berst
samtökunum bréf frá borgarstjóra
þar sem hann vekur athygli á að
gerð fjárhagsáætlunar standi yfir
og að íbúasamtökum gefist kostur
á að gera tiilögur og ábendingar um
forgangsmál og úrbætur í hverfinu.
Þetta bréf hefur stundum verið
kallað fæðingarvottorð samtak-
anna, og kunnum við borgarstjóra
bestu þakkir fyrir. Um líkt leyti og
þessu fór fram komst hreyfing á
umræður um breytingar á
stjórnkerfi borgarinnar. í því sam-
bandi, voru íbúasamtök hvött til að
gera tillögu um það með hvaða
móti samvinna mætti fara fram í
milli þeirra og borgaryfirvalda.
Starfsnefnd á vegum þeirra íbúa-
samtaka, er til náðist, gerði álykt-
un til bráðabirgða, og óskaði eftir
viðræðum við stjórnsýslunefnd.
í lok nóvember boðuðu íbúa-
samtök Skuggahverfis til fundar í
Vörðuskóla í samstarfi við for-
mann Skipulagsnefndar, en þar
kynnti hann röksemdir borgaryfir-
valda fyrir umræddri skipulags-
breytingu og svaraði fyrirspurnum
fundarmanna. Gestur fundarins
var ennfremur Salvör Jónsdóttir,
er sagði frá athugunum sínum á
sögu Skuggahverfisins í lok síðustu
aldar. Á þessum fundi kom m.a.
fram að íbúar óskuðu margir hverj-
ir eftir einhverskonar aðstoð
stjórnar samtakanna við þá er vildu
gera skriflegar athugasemdir við
skipulagsbreytinguna.
I byrjun janúar ’84 ákvað stjórn
samtakanna að bregðast við
auglýsingu borgarverkfræðings
með tvennum hætti: annarsvegar
með ritun bréfs í nafni stjórnar, og
leita stuðnings við það með undir-
skriftum, og hinsvegar með minn-
isblaði fyrir þá, er óskuðu eftir að-
stoð stjórnar við bréfritun sína.
Bréf stjórnar til borgarverkfræð-
ings var stuttorð athugasemd, með
stuttorðum rökstuðningi, þar sem
mótmælt er hækkun nýtingar, en
lýst yfir stuðningi við íbúðabyggð.
Bréf þetta var kynnt íbúum og
starfandi fólki í hverfinu og boðið
til áritunar. Undirtektir við bréf
stjórnar voru almennar og góðar
og rituðu 347 manns nöfn sín undir
það því til staðfestingar.
Alls bárust borgarverkfræðingi
38 bréf frá einstaklingum og sam-
tökum, margir þeir er rituðu sér-
stakt bréf höfðu einnig -undirritað
bréf stjórnar. Efleggjaámatágildi
þeirra mótmæla, sem nú hafa kom-
ið fram með undirskriftum, vill
stjórn samtakanna benda á að lög-
fróður maður tjáði henni að undir-
skriftir hafa sama gildi fyrir lögum
eins og sjálfstæð bréf, þótt ekki
beri að neita því að málflutnings-
legur þungi sjálfstæðra bréfa sé
annar. Með þetta í huga vill stjórn-
in líta svo á að mótmæli við skipu-
lagsbreytingunni komi frá a.m.k.
350 einstaklingum, þótt þau berist
með 38 bréfum.
verðlagningu vörunnar, í þessu til-
felli smáíbúðir við Skúlagötu?
Eiga borgarbúar að trúa því, að
samstarfsvilji borgaryfirvalda við
íbúa sé yfirleitt fyrir hendi þegar
samskipti eru eins og hér hefur ver-
ið lýst?
íbúasamtökin hafa trúað á sam-
starf við borgaryfirvöld til þessa,
en hafa nú látið sér skiljast að
meira þarf til en auðmýktina eina
saman.
Við snúum okkur nú til fjölmiðla
beint, til umræðu um þetta mál.
Næsta verkefni íbúasamtaka
hljýtur að verða að kanna lögmæti
vinnubragða er borgaryfirvöld
hafa nú sveigt inná, að kanna rétt
þeirra er telja sig órétti beitta og að
kynna málavexti öllum almenningi
og leita stuðnings þar við málstað
samtakanna.
0/ðmu/m
Fréttímar sem fólk talar um
Hugmyndasamkeppni
um miðbæ
í Mosfellssveit
Mosfellshreppur og Skipulagsstjórn ríkisins
auglýsa hér meö hugmyndasamkeppni um
uppbyggingu miðbæjar í Mosfellshreppi.
Keppnin fer fram eftir samkeppnisreglum
Arkitektafélags íslands. Þátttökurétthafaallir
íslenskir ríkisborgarar og erlendir ríkisborg-
arar búsettir hér á landi.
Tilgangur með hugmyndasamkeppninni er
að fá fram hugmyndir um uppbyggingu mið-
bæjar, sem yrði sameiginlegur þjónustu-
kjarni fyriröll byggðasvæði í Mosfellssveit og
gæti um leið boðið upp á aðlaðandi umhverfi.
Skilafrestur er til 16. apríl 1984.
Trúnaðarmaður dómnefndar er Þórhallur
Þórhallsson, starfsmaður A.Í., Freyjugötu
41, 101 Rvk., sími 11465 og afhendir hann
keppnisgögn.