Þjóðviljinn - 21.02.1984, Síða 7
Þriðjudagur 21. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — .öA 7
11. Reykjavíkurskákmótið - Texti S.dör. Skákskýringar Heigi Ólafsson
Dagur íslendinganna í gœr:
Helgi gaf tóninn
og síðan tóku þeir undirJóhann, Margeir og Karl sem allir unnu sínar skákir
Það má með sanni segja að dag-
urinn í gær hafí verið dagur Islend-
inganna í toppbaráttunni, þegar 6.
umferð Reykjavíkurmótsins var
tefld. Helgi Olafsson gaf tóninn
þegar hann „rúllaði“ breska stór-
meistaranum Chandler upp og lauk
skák þeirra á miðju kvöldi. Slíkir
voru yfírburðir Helga að hann gat
'valið um vinningsleiðir í lokin. Þeir
tóku svo undir hver á fætur öðrum
íslendingarnir í toppbaráttunni.
Jóhann Hjartarson hreinlega mát-
aði Jón L. Árnason, eftir að hafa
unnið af honum drottninguna. Þá
kom Karl Þorsteins og sigraði
bandaríska alþjóðameistarann
Burger mjög glæsilega og loks
Margeir Pétursson, sem sigraði
bandaríska stórmeistarann Christ-
iansen. Skák þeirra fór að vísu í
bið, en eftir smá umhugsun gafst
Bandaríkjamaðurinn upp, enda
engin vörn til í stöðunni.
Þessi frammistaða íslensku
„strákanna“ eins og þeir eru
gjarnan nefndir af gömlu skák-
mönnunum okkar sem fylgjast
með hverri umferð, er sérlega
glæsileg og þeir eru líka allir með í
toppbaráttunni nú þegar mótið er
hálfnað.
Þá gerðist það í gærkveldi að Sví-
inn Schneider, sem hafði svart,
sigraði Sovétmannainn Geller í
skemmtilegri skák. Hinn Sovét-
maðurinn Balashov er ósköp ró-
legur í tíðinni og hefur gert eintóm
jafntefli til þessa.
Stórmeistararnir okkar, Friðrik
Ólafsson og Guðmundur Sigur-
jónsson voru friðsamir í gær. Frið-
rik gerði jafntefli við Shamkovic og
Guðmundur gerði jafntefli við El-
var Guðmundsson. Að öðru leyti
vísast til úrslitatöflunnar annars-
staðar á síðunni.
í dag kl. 17.00 hefst svo 7. um-
ferðin en á morgun miðvikudag er
frídagur hjá keppendum.
Margar stórskemmtilegar skákir
voru tefldar í 4. og 5. urrtferð
Reykjavíkurskákmótsins en þessar
umferðir fóru fram um helgina. í
gærkveldi var einnig barist af
feiknarkrafti og mikla athygli vakti
þá gott gengi íslensku titilhafanna
gegn þeim erlendu stórmeisturum
Staðan
Staða efstu manna á
Reykjavíkurskákmótinu eftir
6 umferðir er sem hér segir:
1. deFirmian 5,5 vinn-
ingar
2. Jóhann Hjartarson
5,0
3.- 6. Helgi Ólafsson 4,5
3.- 6. Margeir Pétursson
4.5
3.- 6. Hans Ree 4,5
3.- 6. Ornstein 4,5
7.-12. Jón L. Árnason 4,0
7.-12. Wedberg 4,0
7.-12. Reshevsky 4,0
7.-12. Schneider 4,0
7.-12. King 4,0
7.-12. Zaltsmann 4,0
13.-27. Christiansen 3,5
13.-27. Balashov 3,5
13.-27. Byrn 3,5
13.-27. Alburt 3,5
13.-27. Chandler 3,5
13.-27. Friðrik Ólafsson 3,5
13.-27. Guðmundur Sigur-
jónsson 3,5
13.-27. Ostermeyer 3,5
13.-27. Knezevic 3,5
13.-27. Shamkovic 3,5
13.-27. Schússler 3,5
13.-27. Pia Cramling 3,5
13.-27. Höi 3,5
13.-27. Karl Þorsteinss. 3,5
13.-27. Elvar Guðmundss.
3.5
sem hér keppá. Það þykir ekki um-
talsvert þótt skákmaður með þessa
æðstu heiðursgráðu skákarinnar sé
lagður að velli í þessu móti og jafn-
tefli er nokkuð sem vart þarf að
minnast á, nema þá helst þegar Be-
nóný á í hlut enda rifjar það upp
gamla daga þegar gamli meistarinn
var upp á sitt besta og veitti hinum
sterkustu skákmönnum harðvítugt
viðnám þó ekki væri fræðiþekk-
ingu fyrir að fara. í gærkveldi féllu
stórmeistararnir Larry Christian-
sen sem er í hópi sterkustu skák-
meistara Bandaríkjanna og ástr-
alski stórmeistarinn Murray
Chandler. Skákir þessar fara hér á
eftir:
Hvítt: Murray Chandler
Svart: Helgi Ölafsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5
2. RO d6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6
6. Be3 e6
7. f4 b5
8. DO Bb7
9. Bd3 Rbd7
10. g4 b4
11. Rce2 Rc5
12. Rg3 Dc7
(Þetta hefur allt saman sést áður
m.a. í skák Roberts Húbners og
Lajos Portisch á Olympíuskákmót-
inu í Luzern 1982.).
13. 0-0
(Húbner lék 13. g5 en textaleikur-
inn er ekki síðri.)
13. .. Rfd7
(Nauðsynleg varúðarráðstöfun.
Eftir 13. - g6 14. f5! nær hvítur
sterkari sókn,).
14. a3!
(Skarpasta svar hvíts. Hann rekur
mikla útþenslustefnu, hyggst ná
frumkvæðinu á báðum vængjum.).
14. .. bxa3 15. b4
(Annar möguleiki var 15. Hxa3
ásamt 16. Hc3 o.s.frv.)
15. .. Rxd3 17. Hfcl Db8
16. cxd3 Be7 18. Hxa3 0-0
(Byrjuninni er lokið og miðtafl
hefst. Hvítur virðist hafa hinna
mestu sómastöðu en dulinn kraftur
leynist í liðsmönnum svarts.)
19. g5
(Annar möguleiki var 19. Hab3
sem svartur getur svarað með 19. -
d5 20. Hc7 Hd8 o.s.frv.)
19. .. Hc8 20. Hfl Bf8!
(A f8 gegnir biskupinn mikilvægu
varnarhlutverki.)
21. h4 d5 22- Hb3?!
(Sársaukaskyn Chandlers segir til
sín; honum er annt um fótgöngu-
liðann á b4, sem m.a. heldur niðri
Najdorf-peðinu á a6. En skarpara
var 22. e5 Bxb4 23. Hb3 Bc5 með
flókinni stöðu þar sem svartur hef-
ur allgóða möguleika.)
22. .. dxe4 23. Rxe4
(Eftir 23. dxe4 Hc4! stendur svart-
ur betur.)
23. .. Bd5 24. Hb2
(Hrókurinn hyggst smella sér til
S2.)
abcdefgh
24. .. Rc5!
(Öflugur leikur sem setur hvítan í
mikinn vanda.)
25. f5!?
(Skarpasti leikur. Eftir 25. Bf2
Rxe4 26. dxe4 Bc4 27. Hel e5! hef-
ur svartur alla þræði í hendi sér.)
25. .. Rxd3 26. Hg2
(26. fxeó er einfaldlega svarað með
26. - fxe6.)
26. .. De5!
(Svörtu mennirnir hella sér út í
hina stórpólitísku baráttu á mið-
borðinu.)
■ XI '
tarson
Jóhann Hjartarson vann enn einn glæsisigurinn í gærkveldi þegar hann mátaði Jón L. Arnason (Ljósm. -eik-)
27. Hg4 exf5! 28. Rxf5 Hc2
(Með hótuninni 29. - Dh2 mát!)
29. Bf2
(Hvað annað?)
29. .. Rxf2 31. Kxf2 He8
30. Hxf2 Hxf2 32. Rh6+
(Þrátt fyrir mikið tímahrak finnur
Chandler skemmtilega ,,vörn“)
32. .. Kh8
(Að sjálfsögðu ekki 32. - gxh6??
33. gxh6- Kh8 34. Df6-! Dxf6 35.
Rxf6 sem hótar máti á g8 og hrókn-
um á e8.)
33. Rxf7+ Bxf7 35. Hf4
34. Dxf7 Bxb4
(Svartur hótaði 35. - Hf8.)
35. .. Db8!
- Lokahnykkurinn. Svartur hótar
36. - Hf8 og við þeirri hótun finnst
engin viðunandi vörn. Chandler
átti u.þ.b. tvær mínútur eftir á
klukkunni þegar hann fékk þennan
leik á sig, en leit að því sem ekki
fannst tók þessar mínútur og hann
féll síðan á tíma.
Sigur Margeirs Péturssonar yfir
Larry Christiansen frá Bandaríkj-
unum var um margt athyglisverð-
ur. Margeir tefldi þessa skák afar
markvisst og bættist í hóp þeirra
fjölmörgu íslenskra skákmanna
sem lagt hafa Christiansen að velli.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Larry Christansen
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rf3 b6
4. g3 Bb4+
5. Bd2 a5
6. Bg2Bb7
7. 0-0 0-0
8. Bf4 Be7
9. Rc3 Re4
10. Dc2 Rxc3
11. Dxc3 d6
12. Hfdl Rd7
13. Hacl Rf6
14. Dd3 Be4
15. De3 Hb8
16. Bg5 Bg6
17. h4 De8
18. b3
(Margeir handleikur stöður af
þessari tegund yfirleitt vel. Á yfir-
borðinu er allt með kyrrum kjörum
en yfirburðir hvíts í rými gefa hon-
um færi á að tefla til vinnings.)
18. .. Rg4 22. dxc5 e5
19. Df4 f5 23. cxd6 cxd6
20. c5! bxc5 24. Dc4+ Bf7
21. Bxe7 Dxe7 25. Dc7!
(Drottningaruppskipti eru hvítum í
hag einfaldlega vegna þess að
hrókar hans ráða yfir c- og d- lín-
unni.)
25. .. Dxc7
26. Hxc7 Hfc8
27. Ha7 h6
(111 nauðsyn, hvítur hótaði 28.
Rg5.)
28. Hxa5 Hc2 30. Bfl! Hb2
29. Hxd6 Hxe2
(Ekki 30. - Hxf2 31. Rxe5!
o.s.frv.)
31. Hd2! Hxd2 34. Be2 Bxc4
32. Rxd2 Hd8 35. Bxc4+ Kf8
33. Rc4 Bd5 36. Be2!
(Þvingar fram unnið hróksenda-
tafl. Christiansen þráaðist við fram
að því er skákin átti að fara í bið en
gafst þá upp.)
36. .. Hd2
37. Bxg4 fxg4
38. Ha7 Hb2
39. h5 e4
40. Kfl Kg8
47. Kfl Kf6
48. Kg2 Ke6
49. g4 Kf6
50. Kg3 Hbl
51. Kf4 Hdl
41. Kel Kf8
42. Ha4 Kf7
43. Hxe4 Hax2
52. Hb6+ Kf7
53. f3 Hd3
54. b4 Ke7
44. Hxg4 Hb2 55. Ke4 Hb3
45. Hb4 Kf6 56. f4 Hg3
46. Hb5 Ke6
- og Christiansen gafst upp án þess
að tefla frekar.
Úrslit úr 6. umferú
í gærkveldi var tefld 6. umferð á Reykjavíkurskákmótinu og urðu
úrslit þessi:
N. deFirmian - V. Zaltsman 1-0
Jóhann Hjartarson - Jón L. Árnason 1-0
T. Wedberg - S. Reshevsky Bið
Margeir Pétursson - L. Christiansen 1-0
A. Ornstein - L. Alburt 1-0
M. Chandler - Helgi Ólafsson 0-1
H. Ree - C. Höi - 1-0
E. Geller - L.A. Schneider 0-1
H. Schússler - Y. Balashov 'h-'h
L. Shamkovic - Friðrik Ólafsson 'h-'h
Guðm. Sigurjónss. - Elvar Guðmundsson 'h-'h
V. Cambridge - D. King 0-1
G. Taylor - R. Byrne 0-1
H. Meyer - E. Lobron Bið
Róbert Harðarson - L. Gutman Bið
P. Ostermeyer - Dan Hansson 1-0
Magnús Sólmundars. - M. Knezevic 0-1
Pálmi Pétursson - P. Cramling 0-1
Karl Þorsteins - K. Burger 1-0
K. Tielemann - Haukur Angantýss. 1-0
J. Hector - Lárus Jóhannesson 1-0
Bragi Kristjánsson - Björgvin Jónsson 1-0
Halldór G. Einarsson - Leifur Jósteinsson 1-0
Benóný Benediktsson - Hilmar S. Karlsson 0-1
J.M.Nykopp - Bragi Halldórsson Bið
Ásgeir Þór Árnason - Benedikt Jónasson Bið
Guðmundur Halldórsson — Þröstur Bergmann 'h-'h
Andri Áss Grétarsson - Sævar Bjarnason 0-1
Ágúst Karlsson - Gylfi Þórhallsson Bið
Haraldur Haraldsson - Arnór Björnsson 1-0