Þjóðviljinn - 23.02.1984, Síða 1

Þjóðviljinn - 23.02.1984, Síða 1
DIOOVIUINN Bfllinn sem Tómas Árnason hefur ver- ið að fela síðan í haust fannst í gær og hafði komið víða við síðustu dagana Sjábls. 16 febrúar fimmtudagur 49. árgangur 45. tbl. Svavar Gestsson um g^mniriga Ekki ennþá reynt samtakamáttinn ■a Ekki hróflað við kjaraskerðingunni Parf að knýja fram ný samningsúrslit • Það hefur ekki reynt á vilja launa- fólks við þessa samningagerð forystu- manna, segir Svavar Gestsson formað- ur Alþýðubandalagsins í viðtali við Þjóðviljann í gær. Verkalýðshreyfingin sem heild hefur ekki verið spurð um afstöðu til þessa. „Fyrir þessa samninga hefur ekkert reynt á áhuga verkafólks til þess að beita afli samtakanna til að ná fram skárri kostum; því segir samkomulagið ekkert til eða frá um mátt eða máttleysi verkalýðshreyfmg- arinnar í heild.“ • Svavar segir að samningurinn sé til alltof langs tíma, þarsem ekki er gert ráð fyrir því að hrófla við kjaraskerðingunni frá síðari hluta ársins 1983. í raun feli samningurinn í sér skerðingu á yfirvinnuálagi úr 40% í 17%. • Þá bendir formaður Alþýðubandalags- ins sérstaklega á hvemig þrengt er að ungu fólki í þessum samningum, með því að hafa sérstök lágmarkslaun fyrir neðan almenn lágmarkslaun fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 18 ára. Ennfremur séu námsmenn settir á bekk með atvinnurekendum þarsem þeir eigi ekki að fá bamabótaaukann einsog annað fólk. • Þá bendir Svavar á að hin takmarkaða kauphækkun sé ekki tryggð í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þarsem ekki sé orð um að kauphækkunin megi ekki fara út í almennt verðlag í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. • Hér er teflt á ystu brún með kjör launa- fólks og einingu verkalýðssamtakanna. Það er athyglisvert að fjöldi fulltrúa á formann- aráðstefnu ASÍ treysti sér ekki til að standa að samkomulaginu. Það þarf að hefja nú þegar undirbúning þess að nýir og skárri kostir náist, sem tryggja betur einingu launafólks. • Svavar bendir einnig á sérstöðu Dagsb- rúnar. „Ég er sannfærður um það að Dagsb- rún á víðar stuðning þessa dagana en marg- an grunar - sá stuðningur getur fyrr en varir breyst í afl sem knýr fram ný samningaúrs- lit“, segir Svavar Gestsson formaður Al- þýðubandalagsins í viðtali inni í blaðinu. -óg Sjá bls. 5 Samningar kvenna í frystihúsum: Viku að vinna sig í bónus Hinir nýju samningar ASÍ og VSI koma þannig út gagnvart verkakonum í fiskvinnu sem vinna samkvæmt bónuskerfi, að þær þurfa að vinna að meðaltali 40 stundir til þess að komast upp í lág- markslaun þannig að bónusinn fari að mæla þeim tekjuauka umfram lágmarkslaunin, sem eru 12.660.- krónur á mánuði. Eftir 5% hækkunina fá konur sem unnið hafa í 3 ár í fiskvinnu í 10. launaflokki 11.313.- krónur samkvæmt taxta, en það er 1.347,- krónum undir lágmarkstekjum. Vinni þær samkvæmt bónuskerfinu tekur það að meðaltali um 40 klukkustunda bónusvinnu að vinna Albert hættur? Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra ítrekaði í gær þá skoðun sína að ef nýgerðir kjarasamningar sprengdu launaramma fjárlaga bæri honum og ríkisstjórninni í heild að segja af sér. Hann hefði hins vegar ekki kynnt sér samning- ana nógu vel til að kveða upp dóm strax. „Ég get fullvissað Ólaf Ragnar Grímsson um það, að þrátt fyrir það að ráðherrastólar kunni að vera heitir og mjúkir einsog hann orðar það, mun ég standa við mín orð,“ sagði Albert Guðmundsson. „Og bið ég virðulegan þingmann að bíða þangað til að á reynir en vera ekki með fullyrðingar sem eru hreinar ágiskanir frá hans hálfu um vilja minn og getu til að standa hér eftir sem hingað til við allt það sem ég ætla mér að standa við og hef lofað. Ég endurtek það og bið hann um að rifja upp hvenær hann hefur reynt mig að því að bregðast því sem ég hef lofað. Þessu hef ég lofað sjálfum mér“. -óg. upp þennan mismun, og þá fyrst fara umframafköstin að gefa um- framtekjur. Samkvæmt hinum nýju samningum koma því um- framafköst bónuskerfisins ein- göngu vinnuveitandanum til góða fjórðu hverja viku. Ragna Berg- mann formaður Verkakvennafé- lagsins Framsóknar sagði í viðtali við Þjóðviljann í gær að til greina kæmi að konur í fiskvinnu hættu að vinna samkvæmt bónuskerfi, en bónusinn hefur hingað til gefið um þriðjung heildarlauna kvenna í fiskvinnu. ólg Sjá bls. 3 Verkakonur í Bæjarútgerðinni: Umframafköstin renna óskipt til atvinnurekandans 4. hverja viku samkvæmt nýju samningunum. - Ljósm. ólg. Starfsmenn álverksmiðju ÍSAL gáfu 2ja daga frest:_ 2-3% ber ennþá í milli deiluaðila í Straumsvík >9 Vona að frestur okkar verði vel nýttur“ segir Örn Friðriksson Starfsmenn í álverksmiðjunni í Straumsvík ákváðu í gær að veita stjórnendum verksmiðjunnar tveggja daga viðbótarfrest til að semja við þá um kaup og kjör. Verksmiðjunni átti að loka á miðnætti í kvöld. Gefa starfs- mennirnir frest til miðnættis á laugardag. Samkvæmt upplýs- ingum Þjóðviljans ber um 2'h- 3% á milli samningsaðila en full- trúar ÍSAL hafa þegar boðið sömu hækkanir og Vinnuveitend- asambandið bauð ASÍ. Örn Friðriksson aðaltrúnaðar- maður starfsmanna í Straumsvík sagði að beiðni ÍSAL um frestun á lokun verksmiðjunnar hefði verið samþykkt af starfsmönnum í gær en allmargir starfsmanna hafa verið andvígir frestun og viljað láta sverfa til stáls strax. „Við höfum gefið eigendum verksmiðjunnar undanþágur sl. 4 vikur til að koma í veg fyrir tjón á framleiðslunni og framleiðslu- tækjunum. Við treystum því á að þessi tveggja daga frestur til við- bótar verði notaður til að semja við okkar starfsmenn", sagði Örn í samtali við Þjóðviljann í gær. „Fulitrúar ISAL hafa boðið það sama og VSf bauð Alþýðu- sambandinu og samningur verka- lýðsfélaganna kveður á um. Auk þess segjast þeir hafa samið við okkur um framleiðnibónus en við viljum undirstrika að hann er ekki hluti af samningunum nú heldur aðeins hlutur sem átti að vera fyrir löngu búið að ganga frá. Auk þess hafa stjórnendur verksmiðjunnar ónýtt þann kaupauka starfsmanna verulega með því að draga niður straum síðustu vikur“. „Samstaða starfsmanna um að standa fast við okkar kröfur hefur verið órofa og hún mun verða það áfram. Ef einhver skynsemi fær að ráða hjá fulltrúum verk- smiðjueigenda ættu þeiráð semja strax um þær fáu prósentur sem ber í milli sent ekki eru háar upp- hæðir miðað við þau gífurlegu verðmæti í framleiðslutækjunum sem annars eru í veði“, sagði Örn Friðriksson fulltrúi starfsmanna að lokum. Ríkissáttasemjari sagði í sam- tali síðdegis í gær að þar sem tals- vert bæri í milli deiluaðila hefði hann ekki séð ástæðu til að halda áfram viðræðum að sinni og því slitið þeim í fyrrinótt. Hins vegar yrðu menn kallaðir saman til fundar um leið og hann eða annar hvor aðila óskuðu eftir. -v./lg..

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.