Þjóðviljinn - 23.02.1984, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 23.02.1984, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 23. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN SÍÐA 11 íþróttir Víðir Sigurðsson Ruslafötugolf? Eru kylfingar endanlega búnir að gefast upp á veðráttunnl og farnir að laga sig að innanhúss aðstæðum? Ekki er það svo slæmt, en i þessum dúr verður 18-holu púttkeppnl á sérstökum brautum i veitingahúsinu Broadway á sunnudaginn kemur. Hún verður liður i hátíðahöldum i tilefni af 20 ára afmæli Golfklúbbs Ness sem hefst kl. 15 þann helga dag. Hún er opin ölium kylfingum, svo og öðrum sem áhuga hafa. Glæsileg verðlaun eru í boði í púttkeppninni, fyrstu verðlaun eru t.d. utaniandsferð á vegum Samvinnuferða. Nýjar golfmyndir verða sýndar á tveimur til þremur stöðum i húsinu og fyrirtæki munu kynna golfvörur og annað. Hrókur alls fagnaðar verður án efa fréttamaðurinn og landsliðseinvald- urlnn góðkunni, -klp-, og svo oft sem hann hefur farið „holu-í-höggi“ utandyra verður honum varla skotaskuld úr því að fara „fötu-í-höggi“ innandyra í Breiðvangi. Skagamenn semja Knattspyrnuráð Akraness og Arnarflug hafa gert með sér samn- ing um að Islands- og bikarmeistar- ar IA beri merki og nafn Arnar- flugs á búningum sínum tvö næstu keppnistímabil. Báðir aðilar vænta sér góðs af samstarfinu sem tekur «1 ýmiSsa atriða varðandi flug og auglýsingastarfsemi. Arnarflugs- menn hyggjast taka þátt í barátt- unni með Akurnesingum í sumar á einn eða annan hátt, en aðfcrðirnar eru hernaðarleyndarmál enn sem komið er. í>á hefur Knattspyrnuráð Akra- ness einnig gert tveggja ára samn- ing við Adidas-umboðið á íslandi, heildverslun Björgvins Schram hf, um notkun á iþróttavörum á þess vegum. Slíkt samstarf hefur átt sér stað síðan árið 1977 og hefur gengið mjög vel, að sögn beggja aðila. -VS Undirbúningur landsliðsins: Everton mætir Liverpool: A-liðið mætir b-liði í kvöld Siggi Sveins ekki í Evrópuförinni í kvöld kl. 20 fer fram „úrvalsleikur“ í handknattleik í Laugardalshöll- inni. Þar mætast A og B-landslið karla og er þetta hluti undirbúnings landsliðsins fyrir keppnisferðina í byrjun mars þegar leikið verður í Frakk- landi og Sviss. Liðin sem mætast í kvöld verða þannig skipuð: A-liðið: B-liðið: Einar Þorvarðarson, Val Jens Einarsson, KR Atli Hilmarsson, FH Guðmundur Albertsson, KR Guðmundur Guðmundsson, Vík. Jakob Sigurðsson, Val Kristián Arason, FH Páll Olafsson, Þrótti Sigurður Gunnarss. Vík. Steinar Birgisson, Vík. Þorbjörn Jensson, Val Þorgils Ó. Mathiesen, FH Brynjar Kvaran, Stj. Ellert Vigfússon, Vík. Eyjólfur Bragason, Stj. Gunnar Gíslason, KR Hans Guðmundsson, FH Hilmar Sigurgíslason, Vík. Jóhannes Stefánsson, KR Júlíus Jónasson, Val Pálmi Jónsson, FH Sveinn Bragason, FH Valdimar Grímsson, Val Viggó Sigurðsson, Vík. Withe klúðraði færinu í lokin Pálmi Jónsson er meðal leikmanna b-liðsins sem mætir a-liðinu í Höll- inni í kvöid. Nágrannarnir á Merseyside, Everton og Liverpool, mætast í fyrsta skipti í úrslitaleik stórmóts í ensku knattspyrnunni þann 25. mars. Það verður í Mjólkurbikarn- um, Everton tryggði sér úrslitasæt- ið í gærkvöldi með því að tapa að- eins 1:0 fyrir Aston Villa á Villa Park í Birmingham. Everton vann fyrri ieikinn á heimavelli, 2:0 og mætir því nágrönnunum voldugu, m.a. frammi fyrir íslenskum knattspyrnuáhugamönnum í beinni sjónvarpsútsendingu. Everton hélt sínum hlut fyllilega Harðskeytt lið sem mætir A-landsliðinu en þeir 12 sem eru í því síðar- nefnda eru nokkuð öruggir með að fara í landsleikjaferðina. Síðan bætast við tveir, markvörður, sem sennilega verður Brynjar Kvaran, og útispil- ari, sem líkast til verður línumaður, og þá koma aðeins Hilmar Sigurgísla- son og Jóhannes Stefánsson til greina. Við þann 14 manna hóp bætast þeir Alfreð Gíslason og Bjarni Guð- mundsson frá Vestur-Þýskalandi sem verða lausir frá sínum liðum þar, en hins vegar er Sigurður Sveinsson bundinn hjá Lemgo og getur hvorki leikið í Frakklandi 3. og 4. mars, né í Sviss 9. og 10. mars. Milli þessara landsleikj a verður dvalið í æfingabúðum í Strasbourg í Frakklandi og m. a. leikið við frönsk 1. deildarlið. Síðan koma Sovétmenn hingað til lands og leika hér þrjá landsleiki 14.-16. mars. Þess má geta að ágóði af leiknum í kvöld fer í að greiða vinnutap landsliðsmannanna sem fara til Frakklands og Sviss. _VS Þróttur orð- inn meistari Þróttarar eru orðnir íslands- meistarar f blaki karla þrátt fyrir að þeir eigi eftir þrjá leiki f 1. deildinni. Meistaratitillinn féll í þeirra hendur eina ferðina enn í gærkvöldi er þeir unnu sinn skæð- asta keppinaut, HK, 3:2 í Haga- skóianum. Þróttur vann fyrstu Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknattleik: Valur og Haukar lang- líklegust í úrslitin tvær hrinurnar, 15:13 og 15:8 en HK tvær næstu, 7:15 og 14:16, þá síðari eftir að Þróttur hafði komist í 14:7. Þróttararnir leikreyndu höfðu síðan algera yfírburði í loka- hrinunni, komust í 14:0 og unnu 15:1. Bestir þeirra voru Jason ívarsson og Guðmundur Pálsson en Páll Ólafsson og Hreinn Þorkelsson voru atkvæðamestir hjá HK. Víkingur náði í dýrmæt fallbar- áttustig með því að sigra Fram 3:2 í gærkvöldi. Hrinurnar enduðu 15:10, 15:9, 8:15, 9:15 og 15:10. Sigurður Guðmundsson og Þröstur Sigurðsson voru bestir Víkinga en hjá Fram bar mest á Kristjáni Má Unnarssyni (KMU) og Finnboga. - VS Eftir leik ÍR og Keflvíkur í fyrra- kvöld er komin skýrari mynd á keppni úrvalsdeildarinnar í körfu- knattleik. Njarðvík og KR eru þeg- ar örugg í úrslitakeppnina, KR vegna hagstæðrar útkomu úr leikjunum við ÍR sem getur aðcins náð þeim að stigum. Staða Vals er einnig mjög góð, þótt úrslitasætið sé enn ekki tryggt. Liðið þarf að- eins að vinna einn leik af þremur, gegn KR, ÍR eða Keflavík. En hvert verður fjórða liðið? Þar standa Haukarnir með pálmann í höndunum þrátt fyrir fjóra ósigra í röð og fjóra í R-sigra í röð. í R getur mest náð.18 stigum og Haukar náð þeirri tölu með sigri í einum leik af þremur, gegn Njarðvík, Keflavík eða KR. Verði ÍR og Haukar jöfn í 4.-5. sæti með 18 stig komast Haukarnir áfram þar sem þeir unnu þrjá af fjórum leikjum lið- anna í deildinni. Tveir möguleikar eru á þremur liðum jöfnum með 18 stig í 3.-5. sæti. Valur, ÍR og Haukar geta endað þar og þá eru Haukar og Valsmenn komnir áfram á fleiri stigum en ÍR í innbyrðis leikjum þessara þriggja félaga. ÍR situr einnig eftir á sömu reglu ef liðið verður jafnt KR og Haukum á 18 stigum. KR er því komið áfram hvað sem á dynur. Möguleikar ÍR eru tvíþættir. Sá fyrri er að Haukar tapi sínum þremur leikjum og ÍR vinni bæði Njarðvík og Val. Þá fær ÍR 18 stig en Haukar 16. Sá seinni er að Haukar vinni tvo leiki og fari uppí þriðja sæti en Valur tapi öllum þremur, og fyrir ÍR með 9 stigum eða meira, og ÍR vinni Njarðvík að auki. Nái ÍR 9 stiga sigri á Val, hefur liðið þar með betri útkomu úr innbyrðis leikjum og getur þá skilið val eftir í 5. sæti deildarinnar. Margt getur að sjálfsögðu gerst en flest bendir til þess að Keflavík, sem fellur líklega, á enn veika von um að ná fjórða sæti. Það gerist ef liðinu tekst að vinna Hauka með 4 stigum eða meira f Hafnarfirði og síðan Valsmenn í Keflavík, og Haukar og ÍR tapa sínum leikjum. Margt getur að sjálfsögðu gerst en flest bendir til þess að Njarðvík, KR, Valur og Haukar leiki í 4-liða úrslitunum og þá er spurning um hvaða sæti þau raða sér í; efsta liðið mætir fjórða liði og lið númer 2 og 3 leika saman í undanúrslitum deildarinnar. ÍR hafnar líklega í 5. sæti og auðveldast er að veðja á fall Keflvíkinga, sem þó hafa bitið illi- lega frá sér þegar við minnstu hefur verið búist af þeim. -VS þar til Paul Rideout skoraði fyrir Villa hálftíma fyrir leikslok. Andy King átti þá misheppnaða sendingu til markvarðar Everton, Nevilles Southall, Rideout náði boltanum og skoraði auðveldlega. Villa sótti linnulaust eftir það og hefði átt að ná í framlengingu því Peter Withe klúðraði dauðafæri á lokasekúnd- unum. _ yg Casekœrður Geoff Nulty, fyrrum leikmað- ur með Everton í ensku knatt- spyrnunni, hefur kært Jimmy Case, sem áður var með Liver- pool en leikur nú með Brighton. Case braut gróflega á Nulty í leik Liverpool og Everton fyrir fjórum árum, Nulty meiddist illa á hné og varð að hætta að leika knattspyrnu. Lögfræðing- ar Liverpool hafa tekið að sér vörnina í máli Case. - VS ÍR sigraði ÍR vann öruggan sigur á KR í l.deild kvenna í körfuknattleik í fyrrakvöld, 45:29. Guðrún Gunnarsdóttir skoraði 11 stig fyrir ÍR en Erna Jónsdóttir 12 stig fyrir KR. Framstúlk- urnar enn nær Framstúlkurnar færðust enn nær Islandsmeistaratitlinum í handknattleik kvenna í gærkvöldi er þær sigruðu ÍA 18-14 frammi fyrir 150 fjörugum áhorfendum á Akranesi. Þær þurfa nú 3 stig úr leikjunum við KR og Fylki til að tfyggja sér tignina. Liðin voru yfir til skiptis í fyrri hálfleik og leikurinn þá spennandi. Kristín Brandsdóttir gerði Fram- stúlkunum þá gramt í geði, varði nokkur vítaköst og stóð sig frábær- lega í marki ÍA. Fram leiddi 8:7 í hléi en stakk síðan af í byrjun seinni hálfleiks, náði sex marka forystu og úrslitin ekki í vafa eftir það. Mörk Fram: Guðríóur 9(3), Sigrún 3, Arna 2, Oddný 2, Hanna 1 og Margrét 1. Mörk ÍA: Laufey 5, Hrefna 3, Karitas 2, Ragnhildur 2, Þórgunnur 1 og Raan- heiður 1. - vs

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.