Þjóðviljinn - 23.02.1984, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 23.02.1984, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 23. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 RUV 1 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Karl Matthíasson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Leikur í laufi“ eftir Kenneth Grahame Björg Árna- dóttir les þýðingu sína (17j. 9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Pingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.30 Gægst i fylgsni Finnlands Hugrún skáldkona flytur ferðaþátt. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning- ar. Tónleikar: 14.0Q „Klstísrnir hjá Brighton" eftir Gra- ham Greene Haukur Sigurðsson les þýð- ingu sína (7). 14.30 Á frivaktinni Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Béla Kovács og Ti- bor Fúlemile leika „Dúó fyrir klarinettu og tagott" eftir Ludwig van Beethoven/Gunilla von Bahr og Diego Blanco leika „Serenöðu í D-dúr“ oþ. 109 fyrir flautu og gítar eftir Ferd- inando Carulli/Adrian Ruiz leikur Pianósón- ötu i f-moll op. 8 eftir Norbert Burgmúller. 17.10 Síðdegisvakan 18.00 Af stað með Tryggva Jakobssyni. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt mál. Erlingur Sigurðarson talar. 19.50 Við stokkinn Stjórnandi: Heiðdís Norð- fjörð (RÚVAK). 20.00 Leikrit: „Stundum koma þeir aftur“ eftir Stephen King Nemendaverkefni Leiklistarskóla Islands 1983-84. Leikgerð: Karl Ágúst Úlfsson. Leikstjóri: Hallmar Sig- urðsson. Leikendur: Einar Jón Briem, Þór Thuliníus, Kolbrún Erna Pétursdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Alda Arnardóttir, Barði Guðmundsson, Jakob Þór Einarsson, Karl Ágúst Úlfsson, Rósa Þórsdóttir og Jón Sigurbjðrnsson. 21.15 Gestir i útvarpssal: Verdehr-tríóið Walter Verdehr, Elsa Ludewig-Verdehr og Gary Kirkpatrick leika saman á fiðlu, klarin- ettu og píanó. a. Trió í B-dúr eftir Dieter Einfeldt. b. Tríósónata eftir Karel Husa. 21.50 „Þinghelgi" Gissur Ó. Erlingsson les fyrri hluta þýðingar sinnar á smásögu eftir Frederick Forsyth. Seinni hlutinn verður fluttur á morgun, föstudaginn 24. febrúar kl. 11.15. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Lestur Passíusálma. (4). 22.40 Spor frá Gautaborg Umsjón: Adolf H. Emilsson. 23.05 Siðkvöld meö Gylfa Baldurssyni. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Ekkert sjónvarp í dag RUV Föstudagur 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. Kynnir Bima Hrólfsdóttir. 20.50 Skonrokk Dægurlagaþáttur í umsjón Eddu Andrésdóttur. 21.20 Kastljós Þáttur um innlend og erlend málefni. Úmsjónarmenn: Einar Sigurðsson og Helgi E. Helgason. 22.25 Sallý og frelsið (Sally och friheten) Sænsk bíómynd frá 1981. Leikstjóri Gunnel Lindblom. Aðalhlutverk: Ewa Fröling, Hans Wigren, Leif Ahrie og Gunnel Lindblom. Myndin er um unga konu, sem leggur mikið í sölumar til að fá hjónaskilnað, en kemst að raun að það að frelsið sem hún þráði er engan veginn áhyggjulaust heldur. Þýðandi Hallveig Thorfacius. 00.10 Fréttir í dagskrárlok „Getur mettað grilluð ull/garnir Mývetninga?“ spyr Jón Adolf í Ijóði sínu til Þorgríms Starra í Garði, en sá síðarnefndi hefur lýst því yfir í Þjóðviljanum, að betra sé að brenna ullina en selja hana á óviðunandi verði. Ull og grautur í tilefni af því að fyrir nokkru bírtist grein í Þjóðviljanum eftir Porgrím Starra í Garði, þar sem höfundurinn telur að eigi fáist nægjanlegt verð fyrir ullina frá bændum, betra sé að brenna hana en selja. M urðu þessar stökur til. frá lesendum skop Til að auðga eigið bú og arð hjá Þingeyingum á að brenna alla nú ull af Mývetningum. Bœndur kveina og berja sér ■ bágum yfir kjörum. Verðið lágt á ullu er en ekki á neysluvörum. Bregðast vonir, bágt er því baslið Mývetninga. Gaula tómar garnir í Görðum Þingeyinga. Iðrin vola eigi full, aumar kenndir þvinga. Getur mettað, grilluð ull garnir Mývetninga. Neyðin fremur víl og vol er vantar neyslu forðann, ef að líka þingeyskt þol þrýtur fyrir norðan. Spá Ef ei þagnar þeirra raus um þrot í matar skrínum, þá mun Denni Dœmalaus deila grauti sínum. Ekki verður ullin brennd eða neitt þar kringum. Kemur hjálp af himnum send handa Þingeyingum. Jón Adolf. Útvarp á Rás 2 kl. 14.00: Jónar og Pétrar eftir klukkan 2 Eftir tvö heiti vinsæll útvarps- þáttur, sem er varpað út af Rás 2 eftir klukkan tvö á fimmtudög- um. Umsjónarmenn hans eru þeir félagarnir Jón Axel Ólafsson og Pétur Steinn Guðmundsson, sem báðir vinna hjá Fálkanum, Jón Axel í hljómtækjum og Pétur í skíðadeildinni. Jón er að auki plötusnúður í Broadway. „Við höfum verið með allskyns uppákomur í þáttunum“, sagði Jón Axel í stuttu spjalli. „Maður ársins var valinn hjá okkur um daginn, en þá kusu hlustendur fjármálaráðherra, Albert Guð- mundsson. Síðan höfum við beð- ið hlustendur að velja leiðinleg- asta lag ársins, en þá vildi svo til að þeir völdu sama lag og hlust- endur höfðu kjörið skemmtileg- asta lag ársins í Morgunþættinum á Rás 2. Lagið heitir „Carma Camillion" með Boy George“. Þeir Jón Axel og Pétur munu byrja á því að spila popp og blandaða músík í þætti sínum í dag, en síðan fá þeir í heimsókn tvo menn, sem gegndu svipuðu starfi fyrir tæpum tveimur ára- tugum og þeir Jón Axel og Pétur gegna nú. Það eru þeir Jón Þór Hannesson og Pétur Steingríms- son. Þeir Jón Þór og Pétur voru með poppþáttinn „Á nótum æskunnar“ á árunum 1966-67 og þeir munu mæta í stúdíóið og rabba við nafna sína og spila lög frá þessum árum. Útvarp á Rás 1 kl. 20.00: Hrollvekj uleikrit Þriðja árs nemendur Leik- listarskóla íslands munu flytja leikritið „Stundum koma þeir aft- ur“ í kvöld kl. 20.00. Það er byggt á samnefndri smásögu eftir bandaríska rithöfundinn Stephen King sem er einn þekktasti höf- undur hryllingssagna á Vestur- iöndum. Útvarpsleikgerðin er eftir Karl Ágúst Úlfsson en leik- stjóri er Hallmar Sigurðsson. Efni leiksins er í stuttu máli þetta: Jim Norman hefur nýlokið námi við kennaraskóla. Þrátt fyrir taugaáfall sem hann fékk þegar hann var við æfinga- kennslu, sækir hann um stöðu við gagnfræðaskóla þar sem hann fær erfiðan bekk að glíma við. Á nóttunni sækja á henn erfiðir draumar þar sem hann upplifir aftur og aftur óhungnanlegan at- burð frá bernskuárum sínum er hópur afbrotaunglinga drap bróður hans. Fyrr en varir hefur martröð næturinnar færst yfir á daglegt líf hans og hrollvekjandi atburðir fara að gerast. Leikendur eru: Einar Jón Briem, Þór Thuliníus, Kolbrún Erna Pétursdóttir, Alda Arnar- dóttir, Barði Guðmundsson, Jak- ob Þór Einarsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Rósa Þórsdóttir, Jón Sigurbjörnsson og Karl Ág- úst Úlfsson. -Aahhf! bridge Hér er annað spil frá leik Ólafs við sveit Urvals í úrslitum Reykjavíkurmótsins: ÁK XX KG9xxx XXX xxxxx XXX Áx X Áxx KDxxxxx Áxx DG108 KDGIOxx D10x Suður (Ólafur Lár.) brá aðeins á leik í þessu spili og opnaði í 1. hendi á 2 hjört- um (sem er Flannery, þýðir 5 hjörtu og 4 spaðar og 12-16 hp.) Vestur (Karl) sá enga ástæðu til að koma inná þessa opnun og sagði pass, sama gerði Norður og Austur (Asmundur) vomaði aðeins yfir þessu en sagði svo pass... Einsog sjá má, standa alltaf 6 lauf í A/V, en á hinu borðinu létu Hrólfur Hjaltason og Jónas P. Erlingsson sér nægja 3 grönd, sem að sjálfsögðu unn- ust. Já, og Ólafur vann sitt spil að sjálf- sögðu, fékk raunar 9 slagi eftir frekar báglega vörn (sem stafaði af opnuninni) því vörnin gerði ráð fyrir fimmlit í hjarta hjá sagnhafa. Það voru 11 impar til Ólafs. Tikkanen Þegar hún lærði að þekkja sjálfa sig missti ég þá sem ég þekkti. Gœtum tungunnar Sagt var: Helmingur þeirra sem sótti um átti íbúðir. Rétt væri: Helmingur þeirra sem sóttu um átti íbúðir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.