Þjóðviljinn - 23.02.1984, Side 16

Þjóðviljinn - 23.02.1984, Side 16
MOÐVIUINN Fimmtudagur 23. febrúar 1984 Aðalsími Þjúðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaöamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefursíma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 BENSINN FUNDINN! Fœrður úr hlöðu á Bessa- stöðum að Borgarskála Eimskips Nú geta allir fengið að líta á nýja Bensinn hans Tómasar Árnasonar þar sem hann stendur ónotaður og númerslaus fyrir utan skála Eimskips í Sigtúni. Ljósm. Ölg. Mikið pukur og leynimakk hefur verið yfir dvalarstað hinnar nýju og ónotuðu Bens-bifreiðar Tómas- ar Árnasonar fyrrverandi ráð- herra. Tilraunir aiþingismannsins og félaga hans Þorvalds Ragnars- sonar, sem var bOstjóri Tómasar í ráðherratíð hans, til að fela bílinn hefur engan árangur borið þrátt fyrir tilfærslur með bflinn fram og aftur um Stór-Reykjavíkursvæðið. Þjóðviljinn hefur einatt haft hendur í hári bílsins enda menn ósparir á að gefa okkur upplýsingar í von um að hljóta verðlaun þau er lofað var. Þó hafa erfiðleikar verið varðandi myndatökur því bíllinn hefur verið í læstum geymslum. Nú hefur ágæt húsmóðir í Vesturbæn- um hlotið Matsboxbílinn sem var vinningurinn í getraunasamkeppni Þjóðviljans. Bensinn er nefnilega fundinn fyrir utan Borgarskála Eimskips við Sigtún og var mynd- aður þar. í síðustu viku kom sá kvittur upp að Bensinn væri geymdur í hlöð- unni á Bessastöðum. Þjóðviljinn hafði þá samband við Tómas Árna- son forstjóra Framkvæmdastofn- unar og spurðist fyrir um hvort rétt væri. Hann sagði þá: „Ég hef bara beðið ákveðinn mann um að sjá um bílinn fyrir mig og ég er meira að segja ekki alveg viss um hvar hann er.“ Þjóðviljinn fékk þó upplýsing- arnar staðfestar og það jafnframt að bílinn var í mesta skyndi fluttur úr hlöðunni vegna þess að ekki hafði fengist leyfi réttra aðila til að geyma hann þar. Að lokum hafðist upp á „hinum ákveðna manni“ sem Tómas fól bílinn í hendur og reyndist það vera Þorvaldur Ragnarsson bflstjóri. Þorvaldur var bflstjóri Tómasar í ráðherratíð hans og hefur í vetur annast feluleikinn með Bensinn. „Ég hef annast geymslu bflsins og tók hann upphaflega þegar Ræsir afgreiddi hann. Bfllinn hefur síðan verið í minni vörslu og verður það þangað til hann kemur á götuna. Þess verður trúlega ekki langt að bíða, en það er Tómasar að gefa grænt ljós með það,“ sagði hinn „ákveðni maður“. Þorvaldur Ragnarsson féilst á að sýna Þjóðviljamönnum bflinn, enda stendur hann.nú utan dyra í Borgarskálanum við Sigtún. Bíl- linn er fagurblár að lit, Mercedes Bens 280 SL árgerð 1984. Reyndar eru ekki komnir hjólkoppar á bí- linn og ekki númer, en hann er undurfagur á að líta, enda kostar hann meira en 8 árslaun verkafólks þrátt fyrir hina nýju kjarasamn- inga. -jP I Grœnlandstil- lagan samþykkt Mistök ríkis- stjórnar- innar „í trausti þess að ríkis- stjórnin geri ekki fleiri mistök í meðferð þessa máls en henni hafa þegar orðið á, segi ég já“. Svo mælti Ólafur Ragnar Grímsson er hann gerði grein fyrir atkvæði sínu í atkvæða- greiðslu um þingsályktunar- tillögu um sameiginleg hagsmunamál íslendinga og Grænlendinga í sameinuðu þingi í gær. Olafur Ragnar taldi að ríkisstjórnin og þó einkum forsætisráðherra og utanríkis- ráðherra hefðu ekki notað þann tíma sem gáfst til við- ræðna við Grænlendinga áður en þeir undirrituðu samning- inn við Efnahagsbandalagið. Hefðu þeir þó einhvern tfma lagt land undir fót af minna tilefni. En nú hefði verið sofið áverðinum. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra báru af sér allar sakir. Geir sagði svona umræðu vera brot á þingsköpum og til þess fallnar að rjúfa einingu þingmanna. Þingsáiyktunartillagan var samþykkt samhijóða með at- kvæðum allra viðstaddra þingmanna. mhg Lágtekjumaður fær sömu hækkun og sá sem hefur 33.000 kr. í tekjur Ekki sammngar láglaunafólksins segir Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður „Þeir sem standa að þessum nýja kjarasamningi guma af því að hann sé sigur fyrir láglaunafólkið. Mér finnst það því kaldhæðin niður- staða að þegar upp er staðið fær láglaunamaðurinn í beinum launa- greiðslum sömu upphæð og sá sem hefur 33.000 krónur í tekjur á mán- uði“, sagði Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður og einn félaga í framkvæmdanefnd um launamál kvenna. „Þeir sem hafa yfir 33.000 krón- ur í tekjur fá auðvitað þaðan af meira því 5% launahækkunin er upp allan stigann. Mín skoðun er því sú að krónutölureglan hefði verið rétt í þeirri stöðu sem við erum nú,“ sagði Jóhanna ennfrem- ur. „Annað varðandi láglaunahóp- ana er að nú á að taka um 330 milj- ónir úr ríkissjóði með einhverjum tekjutilfærslum innan fjárlagaram- mans, til að greiða m.a. barnabóta- auka, mæðralaun og annað þess háttar. Hins vegar veit enginn hvort þær kjarabætur verða ekki sóttar að einhverju leyti aftur í vasa launþega, t.d. með því að minnka niðurgreiðslur á landbúnaðarvörur sem þýðir hækkað vöruverð í landinu". „Annar láglaunahópur hefur gleymst við þessa samningagerð og það eru ellilífeyrisþegarnir. Þeirra tekjur hafa að undanförnu hrapað um 27-28%. Grunnlífeyrir al- mannatrygginga er það lágur að EUilífeyrisþegar hafa „gleymst“ segir Jóhanna Sigurðardóttir. 5% hækkun á honum nemur aðeins um 170 krónum á mánuði. Aðilar þessa samnings hafa að vísu talað um 10% hækkun á tekjutryggingu en það þýðir aðeins um 350-400 krónur á mánuði í vasa þeirra sem hana hafa“, sagði Jóhanna Sigurð- ardóttir ennfremur. „Ég vil að lokum segja það að í þessum samningum kemur ekki fram nein viðleitni til að stíga skref í þá átt að koma á launajafnrétti kynjanna í þessu landi. Það stað- festir auðvitað að konur hafa mikið verk að vinna í þeim efnum á næst- unni.“ -v. Beðið eftir Albert Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra var væntanlegur til lands- ins frá London í gærkvöldi og hafa allir samningafundir BSRB og ríkisins frestast vegna fjarveru hans undanfarna daga. 10 manna samninganefnd BSRB kemur sam- an til fundar kl. 10 í dag með samn- inganefnd ríkisins. í kvöld munu svo viðræður halda áfram og þá með þátttöku 60 manna nefndar bandalagsins. Hjá ríkissáttasemjara komu full- trúar Félags bókagerðarmanna og viðsemjenda þeirra til fundar í gær. Hefur annar fundur í þeirri deilu verið boðaður kl. 13.30 á mánu- dag. -v. Rabbu blessaði verk- smiðj- urnar Á dögunum kom hingað til lands rabbíi frá Bandaríkjun- um á vegum Sölustofnunar lagmetisins til að leggja bless- un sína yfir nokkrar af lag- metisverksmiðjum hérlendis. Rabbíinn kom við í 4 verk- smiðjum og blcssaði tvær þeirra. Heimir Hannesson forstjóri Sölustofnunar lagmetisins staðfesti þetta ferðalag rabb- ísins hingað, en forsaga þess væri sú að Sölustofnunin hyggst nú ná fótfestu fyrir lag- metisvörur héðan í gyðinga- verslunum í Bandaríkjunum. Til að svo megi verða, en hér er um geysistóran markað að ræða, þarf að merkja vöruna með sérstökum táknum auk þess sem forráðamenn einnar verslunarsamsteypunnar óskuðu eftir því að hingað til lands kæmi rabbíi á þeirra vegum til að leggja blessun sína á framleiðslufyrirtækin áður en varan væri tekin til sölu héðan, og mun sá háttur vera á víða hjá gyðingakaup- mönnum. -Jg-

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.