Þjóðviljinn - 22.03.1984, Qupperneq 2
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. mars 1984
BLAÐAUKI
Háþrýstihreinsitæki,
ný og endurbætt gerð
Aflmeiri og hljóðlátari
teg. 131K 1x220 v.
90 bar
teg. 153K 3x220/380 v.
160 bar
teg. 173K 3x220/380 v,
180 bar
teg. 781 f. aflúrtak
dráttarv., 150 bar
Mjög hagstætt verð
Allar gerðir með tank fyrir hreinsiefni og
möguleika á sandþvotti
Guðbjörn Guðjónsson
heildverslun
Korngaröi 5 - sími 85677.
Nýtt á íslandi!
mnó
stigum
skreffld
ff11 fulls
og bjóðum nýja og ennþá
fullkomnari
framleiðsluábyrgð
í kjölfar frábærrar reynslu af tvöfáldri límingu
einangrunarglers hefurGlerborg nú ákveðið að
taka ísetningu með í framleiðsluábyrgðina. í
þeim undantekningartilfellum sem samsetning-
argalli kemur fram gerum við því meira en að
útvega nýtt gler. Við ökum því beint á staðinn,
setjum rúðuna í og fjarlægjum þá gömlu - við-
skiþtavininum algerlega að kostnaðarlausu.
Og hjá okkur þarf enginn að hafa áhyggjur
þótt hann glati reikningum eða kvittunum eftir
öll þessi ár - ábyrgðin er eftir sem áður í fullu
gildi því tölvan okkar man allt um einangrunar-
glerið mörg ár aftur í tímann.
Oft reynist ísetning mun dýrari en rúðan sjálf.
Hér er því loks komin örugg og fullkomin fram-
leiðsluábyrgð sem undirstrikar ótvíræða yfir-
burði tvöfaldrar límingareinangrunarlgers.
Tefldu ekki í tvísýnu
tvöfalda límingin margfaldar
öryggið, endinguna og ábyrgöina
Kynntu þér nýju ábyrgðarskilmálana okkar
GLERBORG HE
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI53333
„Ánægjan af
öllum skfn “
Nokkra undanfarna vetur hafa bændasamtökin staðið fyrir
orlofsvikum bændafólks og annarra dreifbýlisbúa. Hafa or-
lofin staðið yfir viku í senn, 2-3 á vetri. Oftast hafa 30-40
manns verið í þessum hópum.
Gestirnir hafa gist á Hótel Sögu en stðan farið kynnisferðir
til ýmissa stofnana og fyrirtækja í borginni og nágrenni henn-
ar, einkum þeirra sem með einhverjum hætti eru tengd land-
búnaði. Þá hafa og verið skipulagðar ferðir í ieikhús og óper-
ur og yfirleitt reynt að koma til móts við óskir gestanna í öllum
greinum. Reynt hefur verið að standa þannig að þessum
orlofsdögum að þeir veittu þátttakendum allt í senn: hvíld,
skemmtun og fræðslu.
Undanfarna 'daga hefur staðið
yfir eitt slíkt bændaorlof. Og síð-
astliðinn föstudag var farið út fyrir
borgarmörkin. Agnar Guðnason,
blaðafulltrúi bændasamtakanna og
Oddný Björgvinsdóttir, forstöðu-
maður Ferðaþjónustu bænda, voru
svo vinsamleg að bjóða blaða-
manni Þjóðviljans að slást í förina,
kannski að einhverju leyti vegna
þess, að nokkrir Skagfirðingar
voru með í hópnum. Guð blessi
þau fyrir hugulsemina.
Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins
Farið var frá Hótel Sögu Iaust
eftir hádegið, undir stjórn Oddnýj-
ar Björgvinsdóttur og ekið sem leið
lá til Rannsóknarstofnunar land-
búnaðarins á Keldnaholti. Þor-
steinn Tómasson, erfðafræðingur
stóð fyrir dyrum úti og fagnaði
komumönnum. Byrjaði hann ferð-
ina með hópinn um hið víðlenda
ríki RALA með því að sýna kort
mikið sem hangir uppi á vegg í and-
dyrinu hvar á eru merktar allar til-
raunastöðvar landbúnaðarins, vítt
og breitt um landið. Greindi Þor-
steinn skilmerkilega frá því hvaða
starfsemi fer fram á hverjum stað.
Ógerlegt er með öllu fyrir fólk í
skyndiheimsókn að setja sig að
nokkru marki inn í þá margbrotnu
og umfangsmiklu rannsóknarstarf-
semi sem fram fer þar á RALA. Þó
munu allir hafa verið nokkru nær
um hana en áður eftir að hafa hlýtt
á Þorstein Tómasson, Hólmgeir
Björnsson, Halldór Pálsson, Sig-
urgeir Ólafsson, Guðmund Guð-
jónsson og Sturlu Friðriksson.
Kynnisförinni í RALA lauk svo í
fundasal stofnunarinnar þar sem
Þorsteinn Tómasson sýndi lit-
skuggamyndir.
Krœkiberjalíkjör á
Stuðlahálsi
Næst lá leiðin í Vörugeymslu og
verksmiðju Afengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins á Stuðlahálsi.
Eftir að hafa gengið þar um garða
bauð Jón Kjartansson forstjóri
ferðalöngum upp á kaffi og kræki-
berjalíkjör í kaffistofu starfsfólks-
ins, og sagði nokkuð frá fyrirtæk-
inu.
Þessi dropadrjúga peningalind
íslenska ríkisins var stofnuð árið
1922. Tóbakseinkasalan var sam-
einuð henni 1961. Verslunin rekur
10 útibú utan Reykjavíkur, öll
þannig til komin, áð meiri hluti at-
kvæðisbærra kjósenda á viðkom-
andi stöðum hefur óskað eftir að
þau yrðu sett upp. En við töpum
bara á þessu, sagði Jón - því það
kostar miljónir króna að koma upp
hverju útibúi, en salan bara
dreifist. Sala á sterkum vínum hef-
ur heldur farið minnkandi upp á
síðkastið en aukist á léttum vínum.
Jón Kjartansson sagði að þarna í
húsinu ynnu 20 manns og væri það
ótrúlega fámennt lið miðað við þau
afköst, sem innt væru af hendi. Og
þeir, sem séð hafa flöskurnar á fær-
ibandinu eiga ekki erfitt með. að
trúa því. Mikið hefði nú verið þægi-
Á ferð
með
bændaorlofs
fólki
legt að hafa svoleiðis tæki til þess
að flytja vatnið í fjárhúsin í Eyhild-
arholti í gamla daga.
Álafoss
Þriðji staðurinn, sem hugmynd-
in var að heimsækja í þessari ferð
var ullarverksmiðjan á Álafossi.
Þar voru í móttökunefndinni þeir
Arnaldur Þór og Guðjón Hjglta-
son. Hófst nú mikil ganga undir
leiðsögn þeirra um hina mörgu og
víðáttumiklu vélasali verksmiðj-
unnar. Við fylgdumst með ferli
ullarinnar frá því henni er veitt
móttaka, flokkun, þvotti og áfram
og áfram þar til unnar hafa verið úr
henni margvíslegar flíkur, álita-
fagrar og eflaust ekki síðri að gæð-
um. En samtal verður slitrótt á
þessari leið því vélagnýrinn gerir
stundum erfitt að heyra jafnvel í
næsta manni. Athafnasemin
gengur ekki alltaf hávaðalaust fyrir
sig.
Þegar lokið var ferðinni um
verksmiðjuna buðu þeir Arnaldur
Þór og Guðjón Hjaltason hópnum
til kaffidrykkju í Hlégarði. Þar
gafst loks aðstaða til þess að
fræðast af þeim að einhverju
marki.
Verksmiðjan á Álafossi var
stofnuð af Birni Þorlákssyni árið
1896 og er elsta starfandi iðnfyrir-
tækið á íslandi. Trúlega hefur
ástæðan fyrir því að Verksmiðjan
var reist þar verið sú að á Álafossi
var vatnsaflið auðfengið. Síðar tók
Sigurjón Pétursson við rekstri
verksmiðjunnar og rak lengi.
Sumir litu jafnvel svo á að Sigurjón
og verksmiðjan væru eitt og hið
sama. Að minnsta kosti er það víst
að ef annað var nefnt kom manni
hitt í hug.