Þjóðviljinn - 22.03.1984, Side 6
AlmAnno aualvftinaAfttnfan hf
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. mars 1984
BLAÐAUKI
á lægra verði
en áður hefur þekkst
Seljum stálgrindahús tilbúin til
uppsetningarágrind (boltuð saman), eftir
teikningu frá Landnámi ríkisins.
Breidd 9,8 m, lengd eftir pöntun.
Seljum einnig niðurskorið efni tilbúið
til samsuðu.
seifdír
Smiðjuvegi 28 - Sími 78600
ÓDÝRARI
barnaföt
bleyjur
leikföng
lOfl'
,VCav9'
,sV«Px'
Dúllci
Snorrabraut
New Holland rúllubindlvél að verki.
Glóbus hf.:
óyggjandi upplýsingar um þessa
verkunaraðferð við íslenskar að-
stæður.
New Holland
rúllubindivélar
Glóbus hf. mun í ár hefja
innflutning á rúllubindivélum.
Erlendis hefur notkun þessara
véla aukist verulega með
tilkomu nýrra
heyverkunaraðferða.
Rúllubaggarnir hafa reynst
mjög vel í sambandi við
forþurrkunáheyi.
Verkunin fer þannig fram að
grasið er þurrkað á velli þar til um
það bil 40-50% þurrefnisinnihaldi
er náð. Síðan er heyið bundið og
sett í loftþétta plastpoka. Við þess-
ar aðstæður fer fram gerjun í hey-
inu, sem stöðvast eftir stuttan tíma
þegar súrefni, sem var í pokanum
þegar honum var lokað, er urið
upp. Heyverkun við þessar aðstæð-
ur hefur verið athuguð hjá Bú-
tæknideild í sumar til þess að fá
New Holland bindivélin hefur
orðið fyrir valinu hjá Glóbus hf.
aðallega vegna eftirtalinna kosta:
Bindivélin hefur þá sérstöðu að
hún bindur svokallaðan harðan
kjarna, en það þýðir að kjarni
baggans er þétt pressður, svo og
ytri hluti hans. Þetta gerir það að
verrkum að minna loft, „súrefni",
verður eftir í plastpokanum þegar
honum er lokað. Bagginn heldur
betur lögun sinni við stöflun og ver
sig betur á valli. Veigamikið atriði
við New Holland bindivélina er að
þvermál baggans er stillanlegt frá
91 sm. til 168 sm. Þyngd baggans
ræðst af þvermáli hans og þurrefn-
ismagni.
Þess skal að lokum getið að New
Holland 841 rúllubindivélin er til
sýnis í sýningarsal Glóbus hf. að
Lágmúla 5. -mhg
Búnaðarþing
Breytt verði regl-
um um snjómokstur
Fyrir Búnaðarþingi lá erindi frá
Össuri Guðbjartssyni á Lága-
núþi um snjómokstur á þjóð-
vegum. Var það afgreitt með
eftirfarandi ályktun:
Búnaðarþing vekur athygli á
þeim gífurlega mismun sem er milli
íbúa einstakra sveitarfélaga að not-
færa sér almenna, lögboðna þjón-
ustu, sem ætlað er að ná til allra
þegna þjóðfélagsins. Má þar nefna
heilbrigðisþjónustu, póstþjónustu,
flutning skólabarna o.fl. Jafnframt
er verulegur munur á aðstöðu ein-
stakra bænda innan sama samlags-
svæðis til þess að koma mjólk á
vinnslustað. Ein megin orsök fyrir
þessum mismun eru þær reglur,
sem gilda um snjómokstur á þjóð-
vegum landsins.
Því beinir Búnaðarþing þeirri
eindregnu áskorun til samgöngu-
ráðherra að hlutast til um endur-
skoðun á gildandi reglum um snjó-
mokstur á þjóðvegum landsins.
Við þá endurskoðun verði lögð
áhersla á að leiðrétta það misræmi
sem nú ríkir svo sem frekast er
unnt. í því sambandi bendir þingið
á eftirfarandi:
1. Gerð verði nokkur tilfærsla á
því fjármagni, sem nú fer til
snjómoksturs á þeim Ieiðum,
sem oftast eru opnaðar og því
varið til að auka snjómokstur á
vegum í afskekktari byggðum.
2. Settar verði reglur um snjó-
mokstur á þjóðbrautum og sýsl-
uvegum, þar sem Vegagerð
ríkisins greiðir aðeins hluta af
kostnaði við moksturinn. Þær
reglur verði fyrst og fremst
mótaðar af þeim aðila; sem
kostar snjómoksturinn á móti
Vegagerðinni, þ.e. sýslunefnd-
um eða sveitarstjórnum.
3. Kostnaður heimaaðila við snjó-
mokstur greiðist af stærri heild
en einstökum sveitarfélögum,
t.d. sýslufélagi eða samtökum,
sem sérstaklega kunna að verða
stofnuð vegna þessa verkefnis.
Þá skorar Búnaðarþing á sam-
gönguráðherra að hlutast auk þess
til um eftirfarandi:
1. Að hækkuð verði fjárframlög á
fjárlögum til styrktar sam-
göngum í einstökum landshlut-
um, sérstaklega þar sem um af-
skekktar og snjóþungar sveitir
er að ræða.
2. Sýslu- og/eða sveitarfélögum
verði veitt lánafyrirgreiðsla til
kaupa á dráttarvélum og snjó-
blásurum, þar sem hægt er að
leysa snjómokstur með þessum
tækjum á hagkvæman hátt,
miðað við annað fyrirkomulag.
Jafnframt að felld verði niður
aðflutningsgjöld og söluskattur
af þessum tækjum. -mhg
ÁLVERKPALLAR
Eigum nú fyrirliggjandi til sölu afar hentuga álverkpalla í 2 gerðum, til
notkunar úti sem inni.
Alu-Quick 80. Vinnu-
hæð alit að 4 m. Lengd
1,80 m. Breidd 0,80 m.
Höfum einnig
til sölu og leigu:
álverkpalla,
stálverkpalla,
loftastoðir
og álstiga.
Alu-Quick 200. Vinnu-
hæð allt að 3,75 m.
Lengd 1,80 m. Breidd 2
m.
Vesturvör 7 Kópavogi •
Sími 42322