Þjóðviljinn - 22.03.1984, Síða 7
Fimmtudagur 22. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
BLAÐAUKI'
Laxveibin 1983:
58.223
laxar
á land
Laxveiðin 1983 varð alls 58.223
laxar að heildarþunga 198.431
kg. samkvæmt upplýsingum
Veiðimálastofnunar. Erþað
15% lakari veiði en árlegt
meðaltal 10 ára þar áður. Hins
vegarvarð veiðin 12% betrien
meðaltal síðustu 20 ára. Árið
1983 var 9. í röð bestu veiðiára
hér á landi. Meðalþungi laxins
var 3,4 kg., sem er nálægt
meðallagi. Til viðbótar villta
laxinum var framleiðsla á
eldislaxi á árinu 1983 50 þús.
kíló.
Laxgengd var treg í upphafi
veiðitímans, en það breyttist fljót-
lega á Suður- og Vesturlandi og
laxgöngur urðu góðar þar. Hins
vegar var ekki sömu sögu að segja
af laxgengd á Norður- og Austur-
landi. Flóð á Suður- og Vesturlandi
trufluðu laxveiði, sérstaklega neta-
veiði, kalt tíðarfar olli erfiðleikum
við veiði á Norður- og Austurlandi.
Hlutur stangveiði í heildarveiði
var 52%, netaveiði 29% og haf-
beitarlax gerði 19% af heildinni,
sem er hæsta hlutfall til þessa, enda
tvöfaldaðist hafbeitarlaxinn frá ár-
inu áður.
Laxveiði í heild var 42% betri en
1982, sem var lakasta veiðiárið í
þeirri lægð sem verið hafði í lax-
veiði 1980,1981 og 1982. Veiði var
ágæt á Suður- og Vesturlandi, en í
ám á Norðurlandi kom lítill bati í
veiðina frá árinu áður. Á Austur-
landi lyfti laxveiði sér upp úr mestu
lægðinni frá því árið áður. Neta-
veiði í Hvítá í Borgarfirði var ágæt
og á Ölfusár-Hvítársvæðinu var
góð laxveiði og sömuleiðis í Þjórsá.
Að tiltölu var netaveiðin best í
Hvítá í Borgarfirði og voru um-
skiptin frá árinu áður ákaflega góð
eða rúml. 100% betri.
Hæsta stangveiðiáin 1983 var
Laxá í Kjós ásamt Bugðu með
1.995 laxa, næst kom Þverá í Borg-
arfirði, en þar veiddust 1.901 lax.
Þriðja hæsta áin var Norðurá í
Borgarfirði, en þar fengust 1.643
laxar og fjórða í röðinni voru Ellið-
aár með 1.508 laxa. Fimmta áin var
Grímsá og Tunguá í Borgarfirði,
en þar komu á land 1.382 laxar.
Sjötta árin var Laxá í Aðaldal með
1.109 laxa og sjöunda Víðidalsá og
Fitjaá í Húnavatnssýslu, en þar
veiddust 1.082 laxar og áttunda
laxveiðiáin með hæstu tölu veiddra
laxa var Laxá á Ásum með 1.050
laxa.
Á vatnasvæði Hvítár í Borgar-
firði veiddust alls 12.702 laxar, þar
af 6.891 í net, en 5.811 á stöng.
Veiðin á Ölfusár-Hvítársvæðinu
var 9.082 laxar. f Þjórsá veiddust í
net 1.950 laxar. Netveiðin í Borg-
arfirði var 13% betri en árlegt með-
altal seinustu 10 ára, en á Ólfusár-
Hvítársvæðinu var veiðin um 15%
lægri en nefnt meðaltalstímabil. í
Þjórsá var veiðin í meðallagi.
Hafbeitarstöðvar áttu að þessu
sinni 19% í laxveiði, sem fyrr grein-
ir. Flestir laxar komu í laxeldisstöð
ríkisins í Kollafirði eða 5.324 laxar.
Hjá Pólarlaxi hf. í Sraumsvík feng-
ust um 2.500 laxar. í Lárós á Snæ-
fellsnesi skiluðu sér 2.200 laxar og
hjá ísnó hf. í Lóni í Kelduhverfi
voru hafbeitarlaxarnir 553 talsins.
Aðrar stöðvar fengu færri laxa.
Framleiðsla á eldislaxi 1983 var
um 50 tonn hjá þremur eldisstöðv-
um.
eh/mhg
Haugsugurnar frá [|
þekkja allir bændur
Eigum fáeinar haugsugur fyrirliggjandi á
sérstöku afsláttarverði og á sérstökum
greiðslukjörum.
Guðbjörn
Guðjónsson
Heildverslun Korngarði 5
sími 85677
NU SAUMUM VID
SAMAN LOFT OG VEGGI
Þeir sem hafa kynnt sér klæðningar innanhúss,
þekkja vel þiljur með nót og lausri fjöður.
Þessi hugmynd hefur nú verið einfölduð, þannig að
þiljurnar eru með áfastri fjöður, auk nótar að sjálfsögðu.
Uppsetning verður því bæði fljótleg og þægileg.Þú límir
og neglir með smáum saum og sníður af endum þar
sem við á, - einfaldara getur það varla verið.
■ Auk þess er verðið stærsti vinningur húsbyggjenda.
Þessar þiljur eru framleiddar tilbúnar undir málningu.
Stærðir: Veggplötur 38x253 cm 58x253 cm m jmSSSm 1S££SSS2%k
— n — Loftplötur 58x120 cm 28x120 cm 28x250 cm =EE _
HEILDSALA - SMÁSALA in
TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR Iðavöllum 6 Keflavík SÍMI: 92-3320