Þjóðviljinn - 11.04.1984, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 11. aprfl 1984
Friðarpáskar
1984 í
Norræna húsinu
„Friðarpáskar 1984“ er yfir-
skrift samfelldrar menning-
ördagskrár sem 16 friðar-
samtök á íslandi standa fyrir
í Norræna húsinu í Reykja-
vík frá laugardeginum 14.
apríl til mánudagsins 23.
apríl (2. í páskum). Á laugar-
daginn munu friðarsinnar
safnast saman á Lækjartorgi
og ganga saman að Norræna
húsinu við undirleik Horna-
flokks Kópavogs en við Nor-
ræna húsið leikur Skóla-
1 hljómsveit Kópavogs.
Þessa daga verða málverkasýn-
ingar í Norræna húsinu og á hverj-
um degi verða þar dagskrár frá því
um nónbil og fram á kvöld. Dag-
skrárnar eru mjög fjölbreyttar;
leikrænar, sungnar , fræðandi og
pólitískar. Daglega verður efni sér-
staklega fyrir börn. Listamenn sem
fram koma á dagskrám friðar-
páskanna skipta hundruðum og
samtökin sem að standa eru fulltrú-
ar nær allrar þjóðarinnar.
Málverkasýning verður opnuð í
sýningarsölum Norræna hússins kl.
15.00 á laugardaginn. Friðarvikan
verður opnuð af Jóhönnu Boga-
dóttur og Sr. Gunnar Kristjánsson
mun flytja ávarp.
Þá syngja þrjár stúlkur; Marta
Halldórsdóttir, Hildigunnur Hall-
dórsdóttir og Hildigunnur Rúnars-
dóttir. Að því loknu munu þau
Andri ísaksson og Margrét Pála
Ólafsdóttir flytja erindi um friðar-
uppeldi og sitja fyrir svörum.
Að loknu hléi mun Þorsteinn Ö.
Stephensen lesa bréf indíánahöfð-
ingjans Seattle til Washington for-
seta. Edda Þórarinsdóttir syngur
við undirleik Bjarna Jónatans-
sonar.
Þá verður leiklestur úr Alman-
aki Jóðvinafélagsins eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Flytjendur: Er-
lingur Gíslason, Guðbjörg Thor-
oddsen, Kristbjörg Kjeld og Krist-
ján Franklín Magnús. Bernard
Wilkinson leikur undir á flautu,
leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir
en kynnir Steinunn Sigurðardóttir.
Kl. 16.00 til 19.00 sama dag
veður opin myndsmiðja fyrir börn
og fullorðna undir handleiðslu
myndlistarmanna. Á sama tíma
sitja fulltrúar hinna ýmsu hreyfinga
fyrir svörum og gefa upplýsingar.
Um kvöldið kl. 20.30 leika og
syngja þau Arnþór Helgason og
Guðrún Hólmgeirsdóttir. Flutt
verður leikrit „Eg læt sem ég sofi“
eftir Raymonds Briggs í þýðingu
Bergþóru Gísladóttur og Kenevu
Kunz. Guðrún Stephensen og Ró-
bert Arnfinnsson flytja en Jill Bro-
oke Árnason leikstýrir.
Hér hefur verið rakin dagskrá
laugardagsins en slík fjölbreytni
verður í Norræna húsinu til annars í
páskum.
-óg
Hefjast á laugardag
Fulltrúar fri&arhreyfinganna kynntu dagskrá friðarvikunnar á páskum fyrir bla&amönnum í gær. Ljósm eik.
KRON
lækkar
vöruverð
um 10%
„Langstærsta verkefnið hjá
KRON um þessar mundir er að
koma Miklagarði á öruggan
rekstrargrundvöll. Það leikur
ekki tveim tungum að Mikli-
garður hefur leitt til lækunar á
almennu vöruverði og við sem
eigendur meirihlutans í versl-
uninni höfum starfað heil og
óskipt að því verkefni enda er
það fyllilega í samræmi við til-
gang KRON“, sagði Ingólfur
Olafsson kaupfélagsstjóri í
KRON í samtali við blaðið.
„Hitt er svo annað mál að þessi
stóra og mikla verslun hefur haft
meiri áhrif á rekstur KRON en
Tökum þátt í
verð stríðinu
segir Ingólfur Óskarsson kaupfélagsstjóri
annarra verslana því félagsmenn í
KRON líta eðlilega á Miklagarð
sem sína búð og gera þar viðskipti í
allmiklum mæli“, sagði Ingólfur
ennfremur.
KRON verslanir hafa auglýst
10% afslátt á öllum vörum hjá sér
fram að páskum. Við spurðum Ing-
ólf hvort þetta væru viðbrögð við
slæmri útreið KRON verslana í ný-
afstöðnum könnunum Verðlags-
stofnunar.
„Með þessu erum við fyrst og
fremst að gera okkur gildandi í því
verðstríði sem nú er háð hér á
Reykjavíkursvæðinu. Hitt er svo
annað mál að þessar kannanir
segja alls ekki alla söguna. Þar má
nefna að þar var alls ekki um að
ræða athugun á verðinu almennt
heldur á einstökum afmörkuðum
vörutegundum. Við hefðum ef-
laust komið betur út ef allir vöru-
flokkar hefðu verið kannaðir. Þá er
ekki síður mikilvægt að gera sér
grein fyrir því að til þess að vöru-
tegund yrði samanburðarhæf í
könnuninni á verði stórmarkað-
anna, varð hún að vera til í öllum
versiununum í úttektinni. Þetta
gerði það að verkum að mikið af
okkar vörumerkjum, sem við telj-
um ódýr eins og t.d. Juvel hveiti og
eru eícki í öllum verslununum,
komu ekki til álita í athugun Verð-
lagsstofnunar".
„Þetta verðstríð sem nú hefur
blossað upp hygg ég að stafi af
þeim meginþáttum. Annars vegar
tilkomu Miklagarðs eins og ég
sagði áðan en hin ástæðan er hinn
almenni samdráttur kaupgetunnar
og minnkandi verslun af þeim
sökum. Allar verslanir reyna að
halda sínum hlut eftir sem áður og
okkar lækkun á álagningu er til-
raun til þess“, sagði Ingólfur Ólafs-
son kaupfélagsstjóri KRON. -v
Æskulýðsfylking á hljómgrunn
Stofnun tveggja
deilda í bígerð
Lára Jóna Þorsteinsdóttir frá ÆskulýðsfyIkingunni er vel kunnug fiskverkun
og deilir hér reynslu sinni með einni af stúlkunum í Hraðfrystihúsi Fá-
skrúðsfjarðar. Ljósm Jón Ingi
í síðustu viku voru haldnir fundir á
Austurlandi á vegum Æskulýðsfylking-
ar Alþýðubandalagsins og tókust svo vel
að nú er í bígerð að stofna deildir á
tveimur stóðum. Víða annars staðar
varð vart við mikinn áhuga á starfi fylk-
ingarinnar og lögð drög að stuðnings-
mannakerfí.
Að sögn Láru Jónu Þorsteinsdóttur
sem ásamt öðru fylkingarfólki var drif-
fjöður fundanna er nú fyrirhugað að
stofna deildir bæði á Egilsstöðum og í
Neskaupsstað, og í kjölfar fundanna
fyrir heigi voru settir á laggir hópar til
að undirbúa deildarstofnunina sem er
fyrirhuguð í júnfbyrjun, ef guð lofar.
Lára Jóna var feyki hress með þann
áhuga sem víða var sýndur á starfsemi
fylkingarinnar og taldi að margt yngra
fólk kysi fremur að starfa innan hennar
fyrst í stað, fremur en verða fullgildir
meðlimir Alþýðubandalagsins. Með
því að fylgja þessu eftir taldi Lára að
áreiðanlega væri hægt að koma upp
öflugu starfi á Austurlandi, en þar hafa
ekki verið starfandi deildir á vegum
Æskulýðsfylkingarinnar fram til þessa.
-ÖS
Starfsmenn Arnarflugs bjartsýnir
Sækja fast í kaup
á hlut Flugleiða
„Við hljótum að vona að Flug-
leiðamenn séu tilbúnir að selja
okkur hlut sinn í Arnarflugi eftir
að hafa gefið út opinbera yfirlýs-
ingu um að þar sé um glatað fé að
ræða því vart hefur fyrirtækið
mikinn áhuga á að halda í slíka
smámuni", sagði Stefán Bjarna-
son formaður Starfsmannafélags
Arnarflugs á blaðamannafundi í
gær en þá átti fyrirtækið 8 ára
afmæli.
Starfsfólk Arnarflugs á 23.7%
eignarhlut í fyrirtækinu en Flug-
leiðir eiga stærsta hlutann eða
40.1%. Starfsmenn eru tilbúnir
að kaupa hlut Flugleiða og hafa
lýst þeirri skoðun sinni en ekki
fengið svör unt þá málaleitan
ennþá.
Forsvarsmenn Starfsmannafé-
lags Arnarflugs sögðu á fundin-
um með fréttamönnum í gær að
hlutabréf í fyrirtækinu væru
hvorki verðlaus né glatað fé. Fé-
lagið væri að rétta úr kútnum eftir
nokkurt erfiðleikatímabil ag
rekstur þess á árinu 1984 lofaði
mjög góðu. Verðmætasta eign
Arnarflugs væri velþjálfað starfs-
fólk með mikla reynslu á sviði
flugrekstrar og það hefði mikla
trú á fyrirtækinu sem lýsti sér í
áhuga á kaupum hlutabréfa.
Sumaráætlun Arnarflugs gekk
í gildi 1. aprt'l sl. Verða farnar
tvær ferðir í viku til Amsterdam í
apríl og maí auk fjöj>urra auka-
ferða á föstudögum.I byrjun júní
hefjast svo vikulegar ferðir til
Zúrich í Sviss og Ðússeldorf ,í
Þýskalandi. Síðar í suniar flýgur
svo Arnarflug fjórum sinnum í
viku til Amsterdam og tvisvar í
viku til Zúrich.
Arnarflug hefur einnig gengið
frá leiguflugssamningum fyrir
sumarið og má nefna sem dæmi
að flogið verður með allt leigu-
flug fyrir Útsýn til Spánar óg ftal-
íu og allt leiguflug fyrir
Samvinnuferðir Landsýn til ftal-
íu.
Starfsmenn Arnarflugs eru nú
105 en verða um 130 í sumar.