Þjóðviljinn - 11.04.1984, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 11. aprfl 1984jWÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir
Víðir Sigurðsson
Frábær varnarleikur
og Island sigraði Frakkland öðru sinni
Geysiöflugur varnarleikur ís-
lenska kvennalandsliðsins i hand-
knattleik tryggði því sinn annan
sigur á Frökkum á tveimur dögum,
22-18 á Akranesi í gærkvöldi. Fyrri
hluta síðari hálfleiks fékk liðið að-
eins á sig eitt mark en skoraði sjö á
meðan og gerði þar með útum
leikinn.
Fyrri hálfleikur var hnífjafn,
Skellur
Víkinga!
3. deildarlið Fylkis skellti 1.
deildarliði Víkings, 3-2, á Reykja-
víkurmótinu í knattspyrnu á Mela-
vcllinum í gærkvöldi. Hafþór Aðal-
steinsson skoraði fyrst fyrir Víking
en Fylkir svaraði þrívegis á 5 mín-
útum undir lok fyrri hálfleiks, Ant-
on Jakobsson, Hilmar Árnason og
Óskar Theódórsson. Heimir Karls-
son lagaði síðan stöðuna fyrir Vík-
ing í síðari hálfleik.
Alfreð
meistari?
Frakkland þó oftast yfir en staðan
var 11-11 í hálfleik. Síðan stóðu
frönsku stúlkurnar uppi ráðþrota
gegn íslensku vörninni, staðan
breyttist í 18-12 og 20-13, síðan 22-
15, en Frakkland gerði þrjú síðustu
mörkin.
Ingunn Bernótusdóttir var burð-
arás íslenska liðsins, gífurlega
kraftmikil, Kristjana Aradóttir og
Guðríður Guðjónsdóttir gerðu
einnig góða hluti og markverðirnir,
Kolbrún Jóhannsdóttir og Kristín
Þrjú ensku liðanna sem leik í undan-
úrslitum Evrópumótanna í knattspyrnu
í kvöld verða veikari en vant er vegna
meiðsla sterkari leikmanna. Arnold
Muhren er meiddur hjá Man. Utd. og
Ray Wilkins verður í leikbanni þegar
félagið mætir Juventus á Old Trafford.
Reiknað er með að Alan Davies leiki
með Man. Utd., sinn fyrsta leik frá
bikarúrslitunum í fyrravor.
Vésteinn og
Einar Vilhjálmsson var ekki einn
um að ná góðum árangri á frjáls-
íþróttamótinu í Austin í Texas um
helgina þótt hans frammistaða
skyggði nánast á allt annað. Vé-
steinn Hafsteinsson og Þórdís Gísl-
adóttir sigruðu einnig í sínum
greinum, Vésteinn með 62,24
metra í kringlukasti og Þórdís með
Brandsdóttir, skiluðu sínum hlut-
verkum vel.
Ingunn og Kristjana skoruðu 6
mörk hvor, Guðríður 5, Sigrún
Blomsterberg 4 og Erla Rafnsdótt-
ir 1. Pascale var best þeirra frön-
sku, góður leikmaður sem stjórnar
leik liðsins. Hún skoraði 5 mörk og
hin grimma Saudose 4.
Þjóðirnar leika þriðja og síðasta
leik sinn í þessari íslandsreisu
þeirra frönsku í Vestmannaeyjum
kl. 19.30 í kvöld. - SG/VS.
Tottenham leikur við Hajduk Split í
Júgóslavíu og verður án landsliðsmann-
anna Rays Clemence og Glenns Ho-
ddle sem eru meiddir. Hoddle var
skorinn upp við meiðslum í gær og
leikur ekki knattspyrnu næstu 5 vikurn-
ar. Nottingham Forest mætir Arnóri
Guðjohnsen og félögum í Anderlecht
og leikur án Garry Birtles og Franz
Thijssen sem báðir eru meiddir í baki.
Þórdís unnu
1,84 m í hástökki kvenna. Þráinn
Hafsteinsson kastaði kringlunni
54,14 metra. Þá varð íris Grönfeldt
önnur í spjótkasti kvenna með
53,32 metra. Oddur Sigurðsson
keppti í boðhlaupi en sveit hans
komst ekki í úrslit og Óskar
Jakobsson gerði köst sín í kúlu-
varpi ógild.
Meiðsli hrjá ensku liðin
Lyfjanotkun íþróttamanna:
Lést 26 ára
af völdum
„Bolans“!
Nýlega var skýrt frá fyrsta dauðsfallinu sem rekja má með vissu til
notkunar íþróttamanna á vaxtarhvetjandi hormónum, sem á erlendum
tungum ganga undir samheitinu „anabolic steroids“. í læknaritinu
Annals og Internal Medicine var í janúarhefti skýrt frá því að ónafn-
grcindur 26 ára lyftingamaður frá Pennsylvaníu hafi látist sökum
ólæknandi krabbameins í lifur, sem stafaði að öllum líkindum af neyslu
vaxtarhvetjandi hormóna, sem iyftingamaðurinn hafi neytt um fjög-
urra ára skeið.
Þegar krabbanmeinið var uppgötvað í manninum var hann níutíu
kfló en hafði fallið niður fyrir fimmtiu þegar hann lést, fjórum mánuð-
um síðar. Þess má geta að um talsverðan tíma hafa læknar tengt
lifrarkrabba við neyslu vaxtarhvetjandi hormóna.
Þrátt fyrir þetta er ekki líklegt að íþróttamenn muni i framtíðinni
nota slík hormónalyf í minna mæli, megi marka könnun sem gcrð var
nýlega af Kalifomíuháskóia. íþróttamenn voru spurðir, hvort þeir
myndu taka hormónalyf ef það myndi tryggja þeim gullverðlaun á
Olympiuleikunum, en hefðu eigi að síður 50% möguieika á að valda
þeim krabbameini. Meira en helmingur kvaðst fús til að taka áhætt-
una.
Þess má geta að nú tíðkast í auknum mæli að nota vaxtarhormón,
sem framleitt er að öðru jöfnu í mannslíkamanum, til að auka vöxt
vöðva. Hingað til hefur verið mikill skortur á slíkum hormón, sem
hefur verið einangraður úr heiladinglum látins fólks og fyrst og fremst
notaður til að aðstoða börn sem eru hrjáð af dvergvexti. En vísinda-
menn í Kaliforníu hafa nú náð að láta bakteríu framleiða vaxtarhorm-
ón manna og líklegt er að það muni innan tíðar fást á svörtum markaði
fyrir íþróttafólk. Nánar verður síðar sagt frá hættum sem fylgja of-
notkun þessa. -ÖS
Alfreð Gíslason og félagar í Ess-
en tóku um helgina forystuna í
vestur-þýsku Bundesligunni í
handknattleik er þeir burstuðu
Hofweier 24-14. Alfreð skoraði 5
mörk í leiknum og gæti hæglega
orðið meistari með liði sínu þar
sem einungis þrjár umferðir eru
eftir í deildinni.
Afram í
3. deild
Island náði ekki að vinna sér sæti
í 2. deild Evrópukeppninnar í bad-
minton sem nú stendur yfir í Prest-
on í Englandi. Seint í fyrrakvöld
mætti íslenska liðið Belgum í úrs-
litaleik um 2. deildarsætið og Belg-
ar unnu nauman sigur, 3-2.
Frammistaða íslands er þó með
ágætum, glæsisigrar unnust á
Norðmönnum, Frökkum og ítölum
í undankeppni 3. deildarinnar.
• •
Oruggur sig-
ur hjá ÍBK
íslandsmeistarar í 5. flokki karla í handknattleik 1984- Valsmenn. Mynd: -eik
Stórmót í körfuknattleik í Keflavík:
Fjögur úrvalslið taka þátt
Litla bikarkeppnin í knattspyrnu
hófst í fyrrakvöld með því að ÍBK
sigraði Breiðablik 3-1 í Keflavík.
ÍBK komst í 3-0, Helgi Bentsson ,
fyrrum Breiðabliksmaður, skoraði
tvívegis og Einar Ásbjörn Ólafsson
einu sinni en Jón Einarsson svaraði
fyrir Breiðablik úr vítaspyrnu.
Sheff. Wed. á
toppinn
Sheff. Wed. tók forystuna í 2.
deild ensku knattspyrnunnar í gær-
kvöldi með því að sigra Dcrby 3-1 í
Sheffield. Grimsby vann Barnsley
1-0 og á enn von um 1. deildarsæti.
Ccltic vann Motherwell 4-2 í skosku
úrvalsdeildinni. í fyrrakvöld gerðu
Everton og Arsenal markalaust
jafntefli í 1. deildinni ensku.
Mikið körfuknattleiksmót, Stór-
mót Sparisjóðs Keflavíkur, verður
haldið í Keflavík á fimmtudags- og
sunnudagskvöld. Fjögur lið taka
þátt í mótinu, A- og B- landslið
karla, unglingalandsliðið og
Suðurnesjaúrval, skipað leik-
mönnum úr Njarðvík, Keflavík,
Sandgerði og Grindavík.
Fyrri umferðin fer fram annað
kvöld. Kl. 20 ieikur B-landsliðið
gegn unglingalandsliðinu og síðan
A-landsliðið gegn Suðurnesja-
mönnum. Á sunnudagskvöld kl. 20
berjast tapliðin úr ofangreindum
leikjum um þriðja sætið og kl.
21.30 leika sigurliðin tvö um efsta
sætið. Sparisjóðurinn í Keflavík
hefur styrkt mótið mjög veglega og
gefið til þess verðlaunagrip, og er
stefnan sú að mótið verði að ár-
legum viðburði í körfuknatt-
leikslífinu hérlendis.
Flestir bestu körfuknattleiks-
menn landsins taka þátt í mótinu
en liðin eru þannig skipuð:
A-landsliðið: Torfi Magnússon,
Kristján Ágústsson, Tómas Holton
og Jón Steingrímsson, Val, Jón
Sigurðsson og Garðar Jóhannsson,
KR, Hreinn Þorkelsson og Gylfi
Þorkelsson, ÍR, Valur Ingimund-
arson og Sturla Örlygsson, Njarð-
vík, Pálmar Sigurðsson, Haukum,
Jón Kr. Gíslason, Keflavík, og
Flosi Sigurðsson, University of
Washington.
B-landsliðið: Hálfdán Markús-
son, Kristinn Kristinsson, Ólafur
Rafnsson, Sveinn Sigurbergsson
og Dacarsta Webster, Haukum,
Árni Guðmundsson og Guðmund-
ur Jóhannsson, ÍS, Hjörtur Odd-
son, ÍR, Leifur Gústafsson, Val,
Páll Kolbeinsson, KR, Unnar Vil-
hjálmsson, Laugdælum og Þor-
valdur Geirsson, Fram.
Suðurnesjaúrval: Gunnar Þor-
varðarson, Árni Lárusson, Ástþór
Ingason, ísak Tómasson og Ingim-
ar Jónsson, Njarðvík, Eyjólfur
Guðlaugsson, Hjálmar Hallgríms-
son og Ólafur Jóhannesson,
Grindavík, Óskar Nikulásson og
Þorsteinn Bjarnason, Keflavík, og
Jónas Jóhannesson, Reyni.
Unglingalandsliðið: Jóhannes
Kristbjörnsson, Matthías Einars-
son, Guðni Guðnason og Birgir
Mikaelsson, KR, Kristinn Einars-
son, Hreiðar Hreiðarsson og
Teitur Örlygsson, Njarðvík, Sig-
urður Ingimundarson og Guðjón
Skúlason, Keflavík, Björn Stef-
fensen og Karl Guðlaugsson, ÍR og
Henning Henningsson, Haukum.
-VS