Þjóðviljinn - 11.05.1984, Síða 2
2 SÍÐA’ - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. maí 1984
Þjóðviljakönnun á gleraugnaverði í þremur löndum
Gleraugu á líku verði
Silhouette gleraugnaumgjörð er ódýrari í Svíþjóð en á íslandi en dýrari í
Þýskalandi. Glerin eru aftur á móti dýrust í Svíþjóð og ódýrust hjá okkur.
Þetta kom fram i athugun sem ÞjóðvUjinn gerði í gær. Athugað var verð á
nákvæmlega eins gleraugum i tveimur verslunum í Reykjavík og einnig í
verslunum í Sviþjóð og Þýskalandi, sem Þjóðviljinn hafði samband við.
Verð á Silhouette umgjörð sem
kostar í Gleraugnasölunni, Lauga-
vegi 65,2.200 krónur kostar í versl-
un í Hannover í Þýskalandi 2.700
krónur. í gleraugnaverslun í Lundi
Elsa Kristjánsdóttir varaþing-
maður AB. á Reykjanesi lagði í gær
fram fyrirspurn til utanrikisráð-
herra þar sem spurt er hvers vegna
ekki hafi verið greidd byggingar-
leyfisgjöld tU Miðneshrepps af
nýrri flugstöð á Keflavíkurflugvelli
þar sem flugstöðin er skv. yfirlýs-
í Svíþjóð kostar hún 1.752. Við
greiðum því 500 krónum minna
fyrir umgjörðina í Svíþjóð en hér
og 500 krónum meira fyrir hana í
Þýskalandi. Silhouette umgjörð
ingum ríkisstjórnarinnar talin ís-
lensk eign.
Samkvæmt upplýsingum Þjóð-
viljans nemur fjárhæð byggingar-
leyfísgjalds fyrir flugstöðina um
3Ó0þús. krónum, en Miðneshrepp-
ur hefur ekki fengið að sjá krónu
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til
innheimtu á gjaldinu. -Ig.
sem hér kostaði í gær 2.960 krónur
kostaði 3.456 í Hannover en 2.803 í
Lundi.
Plastgler að styrkleika -3 kostar
hér á landi frá 471 kr. til 710 kr. en
nákvæmlega eins gler eru enn dýr-
ari úti, eða 507 kr. til 886,68 kr. í
Hannover og 704 kr. til 1.047 kr. í
Lundi.
Við könnuðum einnig verð á
fleiri tegundum af umgjörðum þar
sem útkoman varð sú að þær eru
ódýrari hér, Atrio kosta 1850 kr.
og Elitte sem kosta 2.195 kr. voru á
2.592 kr. í Hannover. Barn-
aumgjarðir sem fást í Linsunni í
Aðalstræti, Lamy, kostuðu hér kr.
1.190 en í Lundi 1.707. Ungling-
aumgjarðir í sama merki kostuðu
kr. 1.195 en 1.569 í Lundi.
Umgjarðirnar sem við athuguð-
um voru í hærri kantinum í verði
enda vandaðar að því er okkur var
sagt. Walter Lentz formaður Fé-
lags gleraugnaverslana og Berg-
steinn Stefánsson formaður Optik-
erafélagsins sögðu okkur að hér á
landi væri 24% vörugjald og flutn-
ingsgjald að auki en ofan á verðið
leggst einnig 24% söluskattur.
Tollar hafa aftur ámóti verið felldir
niður af gleraugum. Gjöld í Þýska-
landi eru aðeins 14%, en þau eru
hærri í Svíþjóð.
Nýja Flugstöðin í Keflavík
Ekki greidd
leyfisgjöld
Jóhann Hansen komat að raun um það f gær að töluverður vandi er að vélja
sér gleraugu þvf margvíslegar umgjarðlr er um að ræða. Mynd-ATLI
Hvaða
svæði eru
„varnar-
svæði“?
í gær var lögð fram á al-
þingi fyrirspurn frá þeim Elsu
Kristjánsdóttur og Svavari
Gestssyni til utanríkisráð-
herra þar sem spurt er hvaða
svæði á íslandi séu talin
„varnarsvæði".
Þá er einnig spurt hver
taki ákvörðun um hvaða
svæði verða „varnarsvæði“ að
mati utanríkisráðuneytisins,
hverjir eigi svonefnd „varnar-
svæði“ og hvort greidd séu
gjöld af þessum svæðum.
Oskað er skríflegs svars ráð-
herra.
Rœkju-
verð
lœkkar
um 6%
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjá-
varútvegs hefur ákveðið að
lækka verð á stórrækju um
6% en engar breytingar voru
ákveðnar á verði smárækj-
unnar. Hið nýja verð gildir út
maímánuð.
Verðið var ákveðið af
oddamanni, Rósmundi
Guðnasyni og fulltrúum
kaupenda, þeim Maríasi Þ.
Guðmundssyni og Óttari
Yngvasyni. Fulltrúar seljenda
þeir Ágúst Einarsson og Ing-
ólfur Stefánsson mótmæltu
verðlækkuninni harðlega og
segja með þeirri ákvörðun sé
afkomu útgerðarfyrirtækj-
anna stefnt í mikla hættu en
vegna minnkandi þorskafla
hafí verið lagt í miklar fjár-
festingar til að veiö„ ækjuna.
Þá lýsa þeir furðu sinni á af-
stöðu fulltrúa Þjóðhagsstofn-
unar sem hafi lagt til lækkun á
rækjuverðinu og að það geti
haft þær afleiðingar að öll
helstu'rækjuveiðiskipin kom-
ist í hendur rækjuverkenda.
-v,
Sjómannafélagið Jötunn Vestmannaeyjum:
Hafnar nýju samningunum
„Það þýðir ekki að bjóða okkur 5% hœkkun þegar
kjaraskerðingin er orðin 50% segir Elías Björnsson formaður
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Sjómannafélagsins Jötuns í
Vestmannaeyjum hefur hafnað
samningsuppkasti því sem Sjó-
mannasamband lslands hafði gert
við LÍU. Var þetta gert á fundi í
síðasta mánuði en í gær var þessi
afstaða félagsins enn ítrekuð. Elías
Björnsson sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær, að það þýddi ekki að
sýna sjómönnum 5% kauphækk-
un, þegar viðurkennt væri að kjar-
askerðing þeirra væri orðin 50%.
Á fundinum í gær var samþykkt
ályktun, sem er efnislega á þessa
leið.
Fundur í stjóm og trúnaðar-
mannaráði Sjómannafélagsins
Jötuns í Vestmannaeyjum haldinn
10. maí 1984 lýsir furðu sinni yfír
því samningsuppkasti sem Sjó-
mannasamband íslands og LÍÚ
hafa undirritað með fyrirvara.
Fundurinri lítur svo á að Sjómann-
asambandið hafi ekkert umboð til
að undirrita kjarasamning uppá
5% hækkun þegar það hefur viður-
kennt að kjaraskerðing sjómanna
sé orðir.n 40-50%. Fundurinn í-
trekar það sem samþykkt var á
fundi félagsins 21. apríl sl. að hafna
þessu samningsuppkasti. Skorar
fundurinn á stjóm Sjómannasam-
bandsins að hrista nú af sér slenið
og taka til við að vinna að
hagsriiunamálum sjómanna.
Elías sagði að fundarsókn í gær
hefði verið mjög góð og menn ein-
huga í þessu máli.
-S.dór.
Borgarstarfsmenn í Verkakvennafélaginu Framsókn:_
Ekki fengið 5% kaup-
hækkunina sína enn!
Þrátt fyrír að almennir kjara-
samningar í landinu hafi veríð frá-
gengnir 21. febrúar sl. hafa starfs-
menn Reykjavíkurborgar sem eru í
Verkakvennafélaginu Framsókn
ekki fengið eina einustu krónu í
launaumslagið sitt af þeim kjara-
bótum sem þá var samið um.
Hjá launadeild borgarskrifstof-
anna fengust þær skýringar að
Verkakvennafélagið Framsókn
hafi ekki skrifað undir sína samn-
inga fyrr en eftir páska vegna þess
að forráðamenn þess hefðu verið
að bíða eftir Dagsbrúnar-
samkomulaginu. Eftir að samning-
arnir voru loks frágengnir hefði
starfsmönnum launadeildarinnar
ekki gefíst tími fyrr en nú til að
reikna starfsfólkinu launaaukann.
Mikið hefur verið um kvartanir
af hálfu starfsfólks vegna þessa
seinagangs og sögðu starfsmenn á
launadeild borgarskrifstofanna í
gær að nú sæist fyrir endann á
vandanum. Uppbót á laun Fram-
sóknarkvennanna frá 21. febrúar
yrði greidd út í dag, en flestir starfs-
mannanna eru á vikukaupi. Svo
mikið var að gera hjá launadeildar-
starfsmönnum að þeir urðu að
vinna til kl. 2 í fyrrinótt til að
launaútreikningar yrðu tilbúnir í
tölvuvinnslu. Hjá Skýrsluvélum
ríkisins og Reykjavíkurborgar
„sprakk" tölvan vegna álagsins af
þessum sökum.
Eins og áður sagði munu Fram-
sóknarkonurnar loks fá 5% launa-
aukann sinn í dag. Vextir munu
ekki greiddir af því fé sem borgar-
sjóður hefur haft til umráða af
þessum launum.