Þjóðviljinn - 11.05.1984, Blaðsíða 16
ÞMVIUINN
Föstudagur 11. maí 1984,
Aðalsíml Þjóðvlljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er
hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl, 9 -12 er
hægt að ná í afgreiðslu blaðsins i síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348
og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími
81333
Kvöldsími
81348
Helgarsími
81663
900 bílar á uppboð
Búnaður frá fjölmörgum prentsmiðjum og veitinga-
húsum auglýstur á nauðungaruppboð í næstu viku.
Um 900 bifreiðir af öllum gerð-
um og staerðum og tugur prentvéia,
tréverkfæri og húsbúnaður og tæki
fjölda veitingahúsa verður boðinn
upp á nauðungaruppboði í Reykja-
vík á fímmtudaginn í næstu viku.
í auglýsingu frá Uppboðshaldar-
anum í Reykjavík í DV í gær er
tilkynnt uppboð á 250 bifreiðum að
kröfu tollstjórans, banka og lög-
manna og nærri 700 bifreiða að
kröfu gjaldheimtunnar í Reykja-
vík.
Þá er einnig að kröfu gjald-
heimtunnar, banka og lögmanna
boða til nauðungaruppboðs á vél-
um og vinnutækjum fjölda fyrir-
tækja. Athygli vekur hversu mikið
er af prentvélum og öðrum prent-
vinnslutækjum á uppboðinu, stór-
um trésmíðaverkfærum og alls
kyns búnaði frá veitingastöðum.
Sem dæmi um fyrirtæki í prent-
iðnaði sem talin eru eigendur tækja
á uppboðinu eru m.a. Alþýðu-
prentsmiðjan, Hagaprent, Ingólfs-
prent, Prentsmiðja Áma Valdi-
marssonar, Prentverki og fleimm.
Grétar Nikulásson fram-
kvæmdastjóri félags íslenska
prentiðnaðarins sagði í samtali í
gær að þessar uppboðsfregnir
kæmu sér nokkuð á óvart. Al-
mennt hefði staðan verið góð hjá
prentfyrirtækjum að undanfömu
en verið gæti að menn ættu enn í
greiðsluerfíðleikum frá fyrri tíð.
Borðbúnaður og eldhúsáhöld
fjölmargra veitingahúsa verða
einnig boðin upp í næstu viku og
má þar nefna fyrirtæki eins og Am-
arhól, Ask, Hlíðargrill, Hressing-
arskálann, Naustið og Skrínan.
-*g-
Uppboð á óskilamunum hjá
lögreglunni á laugardaginn
Hjól, úr og gleraugu
Reiðþjól, fatnaður, vettlingar, kvenveski, úr, og fleira verður selt á
uppboði lögreglunnar á óskilamunum sem haldið verður á laugardaginn
kl. 13.30 í bakgarðinum að Borgartúni 7.
Þjóðviljinn fékk upplýsingar um að uppboðið færi fram með hefðbund-
num hætti en þetta er árlegur viðburður á vorin. „Mest verður selt af
reiðhjólum en ýmislegt fleira verður boðið upp, t.d. fjöldi gleraugna, sem
áreiðanlega fara á enn lægra verði en ódýru gleraugun í Hagkaup“, sagði
lögreglan í gær. -jp
(gær var verlð að undlrbúa uppboð óskllamuna hjá lögreglunni sem verður á
laugardaginn. Meðal vamings sem boðinn verður upp eru sekkir af gler-
augum. Mynd-ATLI