Þjóðviljinn - 22.05.1984, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 22.05.1984, Blaðsíða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. maí 1984 Bandaríska herráðið ger&i víðtæka áætlun um það 1981 að breyta herstöðinni á islandl. Unnið er ettir þessari áætlun án þess að hún hafi nokkurntíma verið borin undir íslensk stjórnvöld. Myndin er frá bænastund yfir herna&artólum í herstö&lnni. Svavar Gestsson í umræðum á Alþingi - Hér á a<5 rísa stjórn- stöð í kj arnorkuhernaði Viðurkenning á því felst í skilaboðunum frá utan- ríkisráðherra „Ég vek athygli á því að yf- irstjórn herafla Bandaríkj- anna gerði áætlun um viða- miklar breytingar á herstöð- inni árið 1981. Frá þessu hef- ur verið greint opinberlega í blöðum hérlendis og er- iendis og rætt um það í þing- inu nokkrum sinnum“, sagði Svavar Gestsson í upphafi tölu er hann flutti á Alþingi sl. laugardag er Óiafur G. Ein- arsson hafði svarað fyrir- spurnum hans um stjórn- stöð og ratsjárstöðvar. Gelr Hallgrfmsson er farinn að gefa slg út í bollaleggingar um það hvern- Ig stjórna megl hernaðinum héðan frá íslandi i sjö daga eftir að hafin er kjarnorkustyrjöld, sagði Svavar Gestsson me&al annars á Alþingi. völdum eða hún borin undir Al- þingi. Hvorki fyrrverandi né nú- verandi utanríkisráðherra hafa tal- ið sig vita af þessari áætlun. í ljósi þess sem fram er komið er rétt fyrir stjórnvöld að athuga vandlega hvaða hugmyndir Banda- ríkjamenn hafa uppi um þróun her- stöðvarinnar hér og tengsl hennar við kjarnorkuvopnakerfið. Þetta eru ekki marklausar blaðafregnir eins og ráðherra hefur viljað vera láta heldur veruleikinn sjálfur. Nú liggur fyrir - yfirlýsing ráð- herra um að farið sé að undirbúa byggingu radarstöðva. Bandaríkin hafi viljað leggja fram formlega beiðni um byggingu stöðvanna en utanríkisráðherra Islands hafi beð- ið um að beiðnin yrði ekki formleg í bili meðan verið væri að rannsaka málið. Ráðherra vill kanna betur Svavar Gestsson: Svonalagað hefur aldrel nokkurn tima komist á dag- skrá á&ur hérlendis. Ólafur G. um ratsjárstöðvar og stjórnstöð Hafa beðið umfé hvernig hægt er að ná saman hern- aðarlegu hlutverki þessara stöðva og almennri starfsemi landhelgis- gæslunnar og Pósts og síma. Hin formlega beiðni Bandaríkjanna hefur legið fyrir þó að utanríkisráð- herra mótmælti því. Þetta eru at- hyglisverðar upplýsingar. Menn bera saman bækur sínar um það hvenær bréf skuli póstlögð. Það breytir engu á hvaða formlegu stigi þessi beiðni er. Það er þegar farið að undirbúa málið í smáatriðum. Kjarnorkuhernaði stjórnað frá Islandi? Það kemur og fram að ráðuneyt- inu er kunnugt um neðanjarðar- stjórnstöð. Þær upplýsingar hafa legið fyrir í dagblöðum um nokkurt skeið. En utanríkisráðherra minnt- ist hvergi á þetta mál í skýrslu sinni til Alþingis. En nú kemur þetta mál fram með eftirgangsmunum. Það er staðfest að stjórnstöð er á dag- skrá. Þetta er stöð sem á að geta stað- ist fullt stríð í sjö daga. Þetta er stöð sem á að geta haldið út í kjarn- orkustríði í sjö daga. Áœtlunin frá 1981 „Þessi meginatriði hafa komið fram varðandi þá áætlun sem hér um ræðir: 1. Ætlunin er að auka geyma- rými í herstöðinni margfaldlega frá því sem verið hefur. Þetta er nú f framkvæmd. 2. Koma upp fullkomnara rad- arkerfi en verið hefur í öllum lands- fjórðungum. Þetta er nú þegar í undirbúningi. 3. Byggja á neðanjarðarstjóm- stöð í Keflavikurherstöðinni sem gæti staðist fullt stríð í 7 daga. Þetta er nú á dagskrá. Ratsjármálið undirbúið í smáatriðum Áætlunin frá 1981 er nú óðum að koma fram en um hana hefur aldrei verið fjallað af íslenskum stjóm- i stjómstöðina ---------_____ en engjn beiðni borist um að fá að reisa hana hér Ólafur G. Einarsson formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins svar- aði á Alþingi sl. laugardag fyrirspurnum sem Svavar Gestsson formað- ur Alþýðubandalagsins hafði beint til Geirs Hallgrímssonar utanríkis- ráðherra, sem nú er fjarverandi í opinbemm erindagjörðum erlendis. Fyrirspumir Svavars voru svohljóðandi: 1. Hefur formleg beiðni komið fram um ratsjárstöðvar frá Banda- ríkjastjóm? 2. Hefur beiðni um stjórnstöð á Keflavíkurflugvelli komið fram frá Bandaríkjastjórir? Svör Ólafs G. Einarssonar vom efnislega á þessa leið: 1. Nei, en sú skýring á að fylgja með frá ráðherra að harín hefur tjáð sendiherra Bandaríkjanna hér að við séum ekki tilbúnir að taka við slíkri beiðni formlega. Við vildum ljúka okkar athugunum á málinu ______ __ áður en þessi beiðni kynni að verða sett fram. ÓlafUr G. Elnarsson: Bé&um 2. Nei. ÞaðerkunnugtumáhugaBandaríkjannaáþessumáliogþað Bandarlkjastjórn a& blða með hefur verið sótt um fjárveitingar til byggingar á slíkri stöð en engin bel&nlna. - beiðni hefði borist utanríkisráðuneytinu. Og utanríkisráðuneytið á íslandi er farið að gefa sig út í bollalegging- ar um það hvernig stiórna megi hemaðinum héðan frá íslandi í sjö daga eftir að hafin er kjarnorku- styrjöld. Svona lagað hefur aldrei nokkurn tíma komið á dagskrá hér- lendis. Þetta eru kaflaskipti í sögu her- stöðvarinnar. Þetta er viður- kenning á því að hér eigi að reisa stjórnstöð sem notuð er í kjamork- ustríði. Sjálfstœtt mat og íslensk afstaða Ég bið ríkisstjómina um að hug- leiða alvarlega hvort ekki sé kom- inn tími til að athuga sinn gang og leggja sjálfstætt mat á þessa hluti. Og ég legg til að við reynum að nálgast þetta alvarlega mál af hleypidómaleysi og taka ákvarðan- ir og afstöðu út frá því sem hentar íslensku þjóðinni“.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.