Þjóðviljinn - 22.05.1984, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 22. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Úr þingræðu Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur
Viljum ekki
frekari stóriðju
Vegna frétta í Þjóðviljanum á dög-
unum af umræðunum á þingi um
fyrirhugaða kísilmálmverksmiðju á
Reyðarfirði, hefur Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir þingmaður
Kvennalista óskað eftir því við blaðið
að birtur verði hluti ræðu hennar,
svo ekki fari milli mála hver afstaða
Samtaka um kvennalista er til stór-
iðju hérlendis.
Þriðja stefnan á
Alþingi
„Eins og ég sagöi í upphafi máls
míns þá hljóðar þessi þáltill. upp á
heimild til að hefja enn á ný stóriðj-
uframkvæmdir hér á Iandi. Það má
segja að hér á Alþingi íslendinga
megi finna þrjár megin stefnur í
stóriðjumálum svo sem ég hef áður
minnst hér á.
í fyrsta lagi er það sú stefna sem
hæstv. iðnaðarrh. túlkar og sem
felst í því að byggja hér upp stór-
iðju með meirihl. eignaraðild er-
lendra aðila, sú stefna sem hljóðar
upp á sölu úr landi með þessum
hætti, á íslensku vatns og vinnuafli,
er fyrir mér nánast það sama og að
selja sjálfstæði þessarar þjóðar í
hendur erlendra aðila. Af slíkum
viðskiptum höfum við ríkulega
neikvæða reynslu þar sem eru við-
skipti okkar við Alusuiesse og sem
alþjóð eru kunn.
I öðru lagi er sú stefna í stóriðj-
umálum sem þingmenn Alþb.
túlka hér og sem felur í sér að hér
skuli reyst stóriðja en með meirihl.
eignaraðild íslendinga. Ég er
hæstv. iðnaðarrh. hjartanlega sam-
mála eins og ég hef áður sagt um
það að þetta er afleit stefna, þótt
ekki sé það að öllu leyti á sömu
forsendum. Ég hygg að við séum
sama sinnis. ég og hæstv. ráðherra
um það að Islendingar hafi ekki og
muni ekki hafa, fjárhagslegt bol-
magn til þess að standa að slíkum
fyrirtækjum sjálfir. Né fái þeir
nokkru ráðið á þeim markaði þar
sem stóriðjuframleiðsla er seld,
eins og reyndar saga Járn-
blendiverksmiðjunnar á Grundar-
tanga tekur af öll tvímæli.
En svo skilja leiðir okkar hæstv.
ráðherra á meðan hann og þing-
menn Alþb. með honum reyndar,
vilja auka enn stóriðjurekstur hér á
landi, þá vil ég ekki sj á neinn þung-
aiðnað hér innanlands og er það
þriðja stefna í stóriðjumálum hér í
þinginu. Ég vil ekki frekari stóriðju
hér á landi vegna þess að það þýðir
í reynd aukin fjárhagsleg ítök er-
lendra aðila hér á landi sem sumir
hverjir eru voldugri á alþjóða vett-
vangi en smáríki á borð við Island.
Það höfum við séð á óyggjandi
máta í samskiptum okkar við Alu-
suiesse.
í öðru lagi þá hefur stóriðja hér
Sigríður Dúna Kristmundsdóttlr, þingmaður Samtaka um kvennalista.
löngum verið rekin með bókfærðu
tapi, samanber Járnblendiverk-
smiðjuna á Grundartanga og Ál-
verið í Straumsvík, þannig að ég sé
ekki hver er fjárhagslegur ávinn-
ingur af slíkum afvinnurekstri,
I þriðja lagi er hér um mengandi
og náttúruspillandi iðnað að ræða
og væri það fróðlegt í þessu sam-
bandi að fá að heyra frá hæstv. iðn-
aðarrh. hvernig ætlað er að hátta
mengunarvörnum við þessa kísil-
málmverksmiðju á Reyðarfirði.
Enn frekari lántökur
í fjórða lagi þýðir aukin stór-
iðja enn auknar virkjunarfram-
kvæmdir en eins og menn vita hef-
ur vegna stóriðjusjónarmiða verið
farið of hratt í slíkar framkvæmdir
á undanförnum árum eins og er-
lendar skuldir íslenska þjóðarbús-
ins sanna. Hlutdeild Landsvirkjun-
ar í erlendum skuldum íslendinga
nema nú þegar 60%. Og ef þessi
kísilmálmverksmiðja verður reist,
þýðir það enn auknar erlendar lán-
tökur til þess að hægt sé að byggja
nýjar virkjanir, sem síðan er allt
útlit fyrir að muni selja verksmiðj-
unni orkuna undir framleiðslu-
verði. Það er þessi fjárfestingar-
stefna sem leitt hefur okkur út á þá
Innilegar þakkir öllum þeim fjölmörgu sem vottað hafa okkur
samúð sína vegna fráfalls
Ólafar Járnbrár Þórarinsdóttur
Gunnlaug Einarsdóttir Þórarinn Magnússon
Rósalinda Reynisdóttir
Emil Þór Reynisson
Árni Arnason
Sigurður G. Þórarinsson
Ásmundur J. Þórarinsson
Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og tengdasonur
Aðalsteinn Ásgeirsson
heilsugæslulæknir, Þórshöfn
andaðist á heimili sínu að morgni 19. maí sl.
Marta Hildur Richter
Auður Aðalsteinsdóttir
Þórdís Aðalsteinsdóttir
Auður Aðalsteinsdóttir
Asgeir Valdimarsson
og fjölskylda
Margrét Richter
Ulrich Richter
og fjölskylda
heljarþröm sem fjárhagur íslenska
þjóðarbúsins er nú á, eins og víð-
fræg fjárlagagöt sýna og sanna.
Þessari fjárfestingarstefnu á greini-
lega að halda áfram og skiptir þá
engu hvaða ríkisstj. situr að völd-
um á íslandi. Og upp í götin á að
fylla með smámunum á borð við
tannlækningar skólabarna, smá-
munum við hliðina á því gífurlega
fjármagni sem um er að ræða í
stóriðju- og virkjanamálum.
Efnalegur hagur íslendinga
næstu áratugi mun sammarlega
fara eftir því hvað gert verður eða
látið ógert í stóriðju- og virkjana-
málum. Og er það uggvænlegt
hversu fáir þingmenn sjá ástæðu til
að sitja hér við þessa umræðu og
taka þátt í henni.
Rýrð atvinnu-
tœkifœri
í fimmta lagi er sérhvert atvinnu-
tækifæri í þungaiðnaði margfalt
dýrara en á öðrum atvinnusviðum
og vil ég nú fá upplýst frá hæstv.
iðnaðarrh. ef tök eru á, hvað áætl-j
að er að sérhvert atvinnutækifæri'
við kísilmálmverksmiðjuna á
Reyðarfirði komi til með að kosta.
I sjötta lagi þá eru allar líkur á að
aukin stóriðjuuppbygging leiði það
af sér að önnur atvinnuuppbygging
á íslandi verði látin sitja á hakan-
um og það með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum. Ég hef áður nefnt það
hér í þinginu að það viti þeir sem
vita vilja að stóriðja er gamaldags
og úreltur atvinnu- og fram-
leiðslukostur. Öll framsæknustu
iðnaðarmál heims eru nú að flytja
þungaiðnað sinn úr landi og þau
flytja hann til þróunarlandanna og
landa eins og Islands, sem reyndar
má færa rök fyrir að flokkast til
þróunarlanda frá efnahagslegu
sjónarmiði.
Innlendur léttiÖnaÖur
Ef við íslendingar ætlum að ná
okkur upp úr þeirri einhæfni sem i
dag einkennir efnahagslíf okkar þá
gerum við það ekki með því að taka
hér við erlendri stóriðju, heldur
með því að þróa hér innlendan iðn-
að, léttiðnað, byggðan á okkar
eigin vitsmunum og þekkingu og
helst okkar eigin hráefni lfka“.
(MiIIifyrirsagnir eru Þjóðviijans).
AUGLYSING
um starfslaun til listamanns
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um
starfslaun til listamanns í allt að 12 mánuði.
Þeir einir listamenn koma til greina við úthlutun
starfslauna, sem búsettir eru í Reykjavík. Það
skilyrði er sett, að listamaðurinn gegni ekki fast-
launuðu starfi meðan hann nýtur starfslauna.
Listamenn úr öllum listgreinum geta sótt um
starfslaunin.
Fjárhæð starfslauna fylgir mánaðarlaunum skv.
4. þrepi 105. Ifl. í kjarasamningi Bandalags há-
skólamanna og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Starfslaun eru greidd án oriofsgreiðslu eða ann-
arra launatengdra greiðslna.
Að loknu starfsári skal listamaðurinn gera grein
fyrir starfi sínu með greinargerð til stjómar Kjar-
valsstaða, framlagningu, flutningi eða upplestri á
verki í frumflutningi eða frumbirtingu, allt eftir
nánara samkomulagi við stjóm Kjarvalsstaða
hverju sinni og í tengslum við Listahátíð eða
Reykjavíkurviku. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri
greiðslu skv. þessari grein, en listamaðurinn
heldur höfundarrétti sínum óskertum.
í umsókn skal gerð grein fyrir viðfangsefni því,
sem umsækjandi hyggst vinna að, og veittar
aðrar nauðsynlegar upplýsingar.
Umsóknum skal komið til listráðunautar Kjar-
valsstaða fyrir 10. júní 1984.
Stjóm Kjarvalsstaða.
Laus staða
Skrifstofumaður óskast á aðalskrifstofu fjár-
málaráðuneytisins nú þegar. Framtíðarstarf.
Starfið felst í almennum skrifstofustörfum,
símavörslu o.fl. Málakunnátta æskileg. Um-
sóknir berist ráðuneytinu eigi síðar en föstu-
daginn 25. maí n.k.
Fjármálaráðuneytið, 21. maí 1984
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að fullgera handmenntaálmu
við barnaskóla Seyðisfjarðar. Grunnur er til-
búinn með steyptri plötu.
Útboðsgögn verða afhent á Bæjarskrifstof-
unni á Seyðisfirði, Hafnargötu 44, gegn
1.500 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opn-
uð á sama stað föstudaginn 1. júní kl. 10.00
íh- Seyðisfjarðarkaupstaður
LATIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐ
Sprungu-
Upplýsingar i limum
^ (91) 66709 & 24579
þétting
Tökum að okkur að
þétta sprungur
i steinvegjum,
iögum alkaliskemmdir,
þéttum og ryðverjum
gömul bárujárnsþök.
Höfum háþróuð
amerisk þéttiefni frá RPM
11 ára reynsla á efnunum
hér á landi.
•oim föst verðtilboð
' >> r að kostnaðarlausu
ai uidbindinga af
' ’iálfu.