Þjóðviljinn - 22.05.1984, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 22.05.1984, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 22. maí 1984 Aðalsimi Þjó&viljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum simum: Ritstjórn Aöalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81603 Bjarnfríður Leósdóttir segir sig úr varastjórn ASÍ: Þarna er ekki vært lengur Varðar heiður verkalýðshreyfingarinnar að svona málflutningur sé ekki liðinn Á formannafundi ASÍ í gær sagði Bjarn- fríður Leósdóttir sig úr miðstjórn Alþýðu- sambands ísiands, þar sem hún er vara- maður. Aðdragandi þessa eru orð sem Sig- finnur Karlsson, forseti Alþýðusambands Austurlands lét falla f kennar garð á fundi með forystumönnum verkalýðshreyfingar- innar fyrir hálfum mánuði, en Bjarnfríður hafði bréflega farið framá að þau yrðu lýst ómerk á sama vettvangi og stjórn fundarins vítt fyrir að átelja ekki málflutning Sigfínns. Fundarstjóri var Ásmundur Stefánsson forseti ASI. Þegar sýnt var í gær að kröfum hennar yrði ekki sinnt lýsti hún því yfir að hún segði sig úr miðstjórninni. „Þaö hefur allt of lengi viðgengist að drukknir dónar fái að sitja þing og fundi verkalýðshreyfingarinnar og halda þar uppi úr ræðustól árásum og klámi athugasemda- laust af hálfu fundarstjórna eða annarra", sagði Bjarnfríður. „Ég tel það varða heiður verkalýðshreyfingarinnar að málflutningur af þessu tagi sé ekki liðinn“. Bjarnfríður sagði að á fyrrnefndum fundi hefði Sigfinnur Karlsson tvisvar farið í ræðustól þar sem aðalefni ræðnanna hefði beinst að sér með klámi og svívirðingum um stöðu sína í verkalýðshreyfingunni. í fram- haldi af þessu skrifaði Bjarnfríður ASI og fór fram á að miðstjórnin fjallaði um málið. í bréfinu benti hún m.a. á að samkvæmt handbók verkalýðshreyfingarinnar ber fundarstjóra að taka orðið af mönnum eða ávíta þá við slík tilefni en hvorugt var gert. Óskaði hún eftir því að fundarstjórnin yrði „í upphafi fundar í gærmorgun sagði Ás- mundur Stefánsson, forseti ASÍ að það bæri að harma að þau orð hefðu fallið á síðasta fundi sem valdið hefðu reiði en sneri sér síðan að öðrum málum“, sagði Bjarn- fríður. „Hann las einnig upp bréf frá Sig- finni Karlssyni sem ekki var mættur, þar sem hann skoraði á fundarmenn að eyða ekki dýrmætum tíma sínum í að ræða at- hugasemdir mínar og að hann myndi gera upp okkar sakir á öðrum vettvangi. Það var greinilegt að mönnum þótti þetta harla gott, varaforseti Bjöm Þórhallsson fór út áður en fundur hófst og lögfræðingur ASÍ, sem var fundarritari á áðurnefndum fundi, var heldur ekki mættur. Ég kynnti þá ákvörðun mína um að segja mig úr mið- stjórninni svo og aðdragandann og gekk síðan af fundi. Þarna er ekki vært lengur", sagði Bjamfríður Leósdóttir að lokum. -ÁI Nýtt útspil í bjórmálinu Vönduð skoðana- könnun! „ Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að íáta fara fram vand- aða og marktæka skoðanakönnun á viðhorfum landsmanna til fram- leiðslu og sölu áfengs öls hérlendis“ segir í þingályktunartiilögu sem lögð hefur verið fram á alþingi frá Hjörleifl Guttormssyni. Hér er komin fram málamiðlun í bjór- málinu á alþingi. Síðan segir í tillögu Hjörleifs: „Við undirbúning þeirrar skoðan- akönnunar verði haft samráð við stjórnskipaða nefnd sem nú fjallar um stefnumörkun í áfengismálum samkvæmt samþykkt alþingis". Einsog kunnugt er situr stjórn- skipuð nefnd að störfum til að sam- ræma og breyta áfengislöggjöfinni með það að markmiði að draga úr áfengisneyslu hér á landi. Nefndin hefur ekki lokið störfum, en á sama tíma hafa alþingismenn sett fram ýmsar tillögur í tillögu og frum- varpsformi á alþingi, se.n ganga beint á starfssvið þeirrar nefndar sem þeir sjálfir skipuðu til verka. -ög Haförninn ekki í hættu Árni G. Pétursson hlunnindaráðu- nautur hefur sent Þjóðviljanum til- skrif vegna frétta frá Fuglavernd- arfélaginu þess efnis að Haförninn væri í hættu hér á landi vegna notk- unar eiturefna við eyðingu svart- baks. Árni mótmælir þessu og segir að samkvæmt talningu Náttúrufr- æðistofnunarinnar hafl hafarnarp- örum ijölgað um 33% á síðustu þremur árum. Einnig segir hann engar sannanir liggja fyrir um að dauðir sjóreknir ernir hafi farist af eitrinu fenemali. Þá segir hann ennfremur að engar rannsóknir liggi fyrir um að fækk- unaraðgerðir gegn veiðbjöllu séu ganglausar eða hafi neikvæð áhrif. Árni G. Pétursson telur að fækk- unaraðgerðir gegn veiðibjöllu hafi borið sýnilegan árangur víða um land og nefnir sérstaklega Húsavík í því sambandi. —S.dór. Þorvaldur Jónsson markvörður KA ver glæsilega frá Þórsurum í lelk Akureyrallðanna í 1. deildlnnl í knattspyrnu á sunnudaglnn. Þór vann leikinn 2-1. Mynd: -GSv. Sjá 9-12 Óvíst að þingi ljúki á morgun Mikið ósamkomulag um afgreiðslu mála Framsóknarflokkur fengið öll sín mál í gegn, meðan Sjálfstœðisflokkurinn situr uppi með málafjöld Miklar deilur urðu milli forsæt- isráðherra og forseta sameinaðs þings í gær um umræður á Alþingi nú í lok þings. Vildi Steingrímur Hermannsson knýja á um þingslit áður en hann hélt utan í morgun en Þorvaldur Garðar Krisjánsson taldi ófært að Ijúka þingstörfum fyrr en búið væri að afgreiða ýmis mál sem flokkar hafa orðið ásáttir um að hljóti afgreiðslu. Framsóknarmenn hafa fengið afgreidd flest þau mál sem til þeirra könnu heyrir og lögðu því áherslu á að gærdagurinn yrði lokadagur þingsins. Þetta hafa aðrir flokkar ekki fallist á. Friðrik Sophusson varaformað- ur Sjálfstæðisflokksins sagði í sam- tali í gær að illa gengi að ná samkomulagi um afgreiðslu mála og varlegast væri að segja að þingi lyki í vikunni. Þingmenn stjómarandstöðu hafa verið ósáttir með afgreiðslu mála nú síðustu daga þingsins og ásaka stjórnarflokkanna um að keyra yfir þau mál sem stjórnar- andstaðan hefur lagt áherslu á að verði afgreidd. Vegna þessa hefur verið haft uppi nokkurt málþóf í báðum deildum þingsins og því allsendis óvíst að takist að ljúka þingstörfum á morgun eins og von- ir manna standa þó til. -•g- Símvirkjar vilja jöfn laun á starfsbræður sína Ætla í 3 daga „frí Fjöldi númera úr sambandi um helgina 44 samninga en ekki aðrir starfsmen'n Pósts og síma. Með því að taka sér frí í þrjá daga segjast símvirkjar vera að uppfylla sömu launuðu vinnuskylduna og BHM starfs- Símvirkjar munu ekki mæta til vinnu í dag og næstu tvo daga til að leggja áherslu á kröfur sínar í sér- kjaraviðræðum og þann mismun sem gildir milli starfsmanna BHM hjá Pósti og síma og annara. BHM starfsmenn fá greidda 20 Þjóðviljanum er kunnugt um að eftirvinnutíma á mánuði utan við símvirkjar hafa neitað að taka menmrmr. aukavinnuvaktir síðustu daga. Þannig var fjöldi númera úr Breiðholtsstöð sem tengd eru til Hafnarfjarðar dauð alla helgina og voru komin í lag strax í gærmorg- un. Einnig varð ekkert úr að vinnu- flokkur símvirkja færi til Hólma- víkur um helgina eins og til stóð. -Ig- Innflytjendur í kartöflustríðinu Hafna hugmynd stjórnar- innar Neita „hálfgildings einokunar- fyrirkomulagi “ „Undirritaðir eru ekki reiðubún- ir til þátttöku í hálfgildings einok- unarfyrirkomulagi við hlið þess gamla“, segja innflytjendur í bréfl til Jóns Helgasonar landsbúnaðar- ráðherra og kynnt var á blaða- mannafundt hjá Verslunarráðinu í gær. Segja innflytjendurnir að til- lögur landbúnaðarráðherra séu ekki framkvæmanlegar án kvót- askiptingar. „Slíkt haftafyrirkomu- lag stríðir algerlega gegn heilbrigð- um viðskiptaháttum og er vanvirð- ing við neytendur með hliðsjón af þeirri áskorun sem rúmlega 20 þús- und neytendur skrifuðu undir nú nýverið". Á blaðamannafundinum sögðu talsmenn innflytjenda að boltinn væri nú hjá landabúnaðarráðherra en þeir leggja til að innflutningur verði gefinn frjáls „en ráðuneytið hafi á hendi að stöðva þann inn- flutning með eðlilegum fyrirvara, þegar innlend framleiðsla kemur á markaðinrí*. -6g Forsœtisráðherra ekki við þingslit Steingrímur farinn utan Steingrfmur Hermannsson for- sætisráðherra hélt utan til Got- lands á Efta-fund í morgun og verð- ur því ekki viðstaddur þingslit. Venja er sú að forsætisráðherra lesi upp forsetabréf um þingslit. Friðjón Sigurðsson skrifstofustjóri Alþingis sagði í gær að fordæmi væri fyrir því að staðgengill forsæt- isráðherra tilkynnti þingslit. Það mun því koma í hlut Halldórs Ás- grímssonar sjávarútvegsráðherra að lesa upp forsetabréfið, þar sem forsætisráðherra sá sér ekki unnt að dvelja hérlendis framyfir þing- slit. _,g>

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.