Þjóðviljinn - 28.07.1984, Blaðsíða 6
IÞROTTIR
MUNIÐ
FEBÐA
VA$A
BOKINA
Handhægt uppsláttarrit sem veitir fleiri almennar
upplýsingar um ferðalög og ferðamöguleika
innanlands og utan en nokkur önnur íslensk bók.
Meðal efnis eru 48 litprentuð kort, vegalengdatöflur,
upplýsingar um gististaði og aðra
ferðamannaþjónustu, um sendiráð og ræðismenn
erlendis, vegaþjónustu, veðurfar á ýmsum stöðum og
margt fleira. Fæst í bókabúðum og
söluturnum um allt land.
Ferðavasabókin; ómissandi ferðafélagi!
FJÖLVÍS
Síðumúla 6 Reykjavík
Sírni 91-81290
Héraðsskólinn að Núpi
Höfum tekið upp þá nýbreytni að bjóða upp á
fornám eða hægferð skólaárið 1984 -1985 í
fíórum námsgreinum:
íslensku, ensku, dönsku og stærðfræði.
Hafið samband í síma 94-8236 eða 94-8235.
Skólastjóri
SAMTÖK PSORIASIS-
OG EXEMSJÚKLINGA
Baðhúsið við Bláa lónið hefur verið opnað
aftur, eftir viðgerðir og endurbætur. Þeir fé-
lagsmenn sem vilja notfæra sér aðstöðu í
húsinu hafi samband við skrifstofu félagsins
Síðumúla 27, sími 83920, mánudaga og
fimmtudaga milli 14.00-16.00.
Stjórnin.
NÁMSGAGNASTOFNUN
Bifreiðastjóri
Námsgagnastofnun auglýsir eftir bifreiða-
stjóra.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Launakjör samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist Námsgagnastofnun
merkt „Bifreiðastjóri“ fyrir 3ja ágúst.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Uugardagur 28. júlf 1984
1. deild
Valur á flugi
4-1 sieur á KA fvrir norðan
Valsmenn lyftu sér vel frá
botnsvæðinu í gærkvöldi í fímm
marka ieik gegn KA og ekki að efa
að stuðningsmannarútan hefur
verið hátt uppi eftir leikinn.
Skemmtileg knattspyrna allan
tímann þótt umtalsverð færi
væru ekki til muna fleiri en mörk-
in.
Það voru liðnar 83 sekúndur af
leiknum þegar akureyringurinn
Jóhann Jakobsson sem nú er
kominn í rauðu peysuna gefur
fyrir markið á Hilmar Sighvats-
son óvaldaðan á markteigshorni.
Þrumuskot í hornið nær og óverj-
andi mark.
KA svaraði fyrir sig þremur og
hálfri mínútu síðar: Hafþór Kol-
beinsson fær boltann utarléga í
teignum, þvælir af sér varnar-
mann og skorar útvið stöng. 1-1,
og þannig er staðan í hálfleik.
4-1 sigur á KA fyrir norðan
Um miðjan seinni hálfleik gef-
ur Örn Guðmundsson fyrir KA-
markið, Ingvar Guðmundsson
nýkominn inná fær boltann við
vítapunkt og skorar örugglega.
Fjórum mínútum síðar fær Berg-
þór Magnússon boltann útúr
þvögu við KA-markið og skorar
af markteigshorni 3-1.
KA pressaði stíft eftir mörkin,
en þegar allt er lagt í sókn veikist
vörnin og slíka veilu notfærðu
Valsarar sér í fjórða markið:
Guðni Bergsson fær boltann við
miðju, hann og Valur Valsson
hlaupa saman gegnum KA-vörn;
Guðni á vítateigshorni og rennir
fyrir fætur Vals við punktinn og
talan 4 á töfluna Valsmegin.
KA-menn börðust allan tím-
ann og sigur Vals var fullstór.
Bergþór Ásgrímsson, annars-
flokksmaður, var sýnu bestur
heimamanna, Hafþór Kolbeins-
son átti góða spretti. Valsliðið
var jafnt; Hilmar Sighvatsson at-
hyglisverðastur.
Dómari var Helgi Kristjánsson
og ekki alveg í essinu sínu.
K&H-Akureyri/m
Staðan
í fyrstu deild eftir leik Vals og
KA
&
234
29/
-0
ÍA..........
ÍBK...............13 7 3 3 16-12 24
Þróttur...........13 4 6 3 14-12 18
Valur..............13 4 5 4 15-11 17
Víkingur...........12 4 4 4 21-20 16
KA................13 3 4 6 19-27 13
Fram...............12 3 3 6 13-15 12
Brelðablik........12 2 6 4 10-12 12
KR................12 2 6 4 11-19 12
Þór................12 3 2 7 14-19 11
Landinn marði sigur
Norðmenn unnu svía, - og þarmeð mótið?
^assá^
Daufur leikur og bleklítill á Húsa-
víkurvelli, - en íslendingar áttu öllu
meira í honum og Alexander Högna-
son fullnægði réttlætinu tveim mínút-
um fyrir leikslok með góðum lágbolta
eftir unnið einvígi við finnskan varn-
armann. Fylginn sér og duglegur, Al-
exander, - skarpasti maður íslending-
anna.
íslenska liðið var öllu betra en finn-
amir á miðjunni og uppvið markið.
Góðir framlínumenn finna nýttu sér
ekki færin.
Jiri Lallimo skaut yfir snemma í
leiknum; þegar skammt var eftir að
hléi áttu íslendingar skemmtilega
sókn, Heimir skýtur en bjargað í
hornspyrnu sem Arnljótur Davíðsson
fær fyrir markið en skýtur í borgar-
manninn (=markvörður skv. upplýs-
ingum roskinna húsvíkinga). Um
síðari hálfleik miðjan var varið gott.
skot Ramis Rantanen. Arnljótur
komst í gott færi þegar tíu mínútur
vom eftir en framhjá, sömuleiðis
naumlega Páll Guðmundsson
skömmu síðar. f Ieikslok grípur Alex-
ander svo til sinna ráða.
Bestu menn íslands: Alexander,
Þorsteinn Guðjónsson í vörninni,
Páll Guðmundsson, Rúnar Kristins-
son.
Dómgæsla feykigóð, sem húsvík-
ingar eiga víst ekki að venjast: Esten
Larsen, Noregi.
Danir möluðu færeyinga á Krókn-
um, 6-1. Danir voru mjög sterkir en
færeyingar áttu þó sínar sóknir og
skomðu mark í fyrri hálfleik sem
dæmt var af vegna hæpinnar rang-
stöðu. f hálfleik var 2-0 eftir mörk
Johnny Mölby og Jan Rasmussen. f
seinni hálfleik bætir Brian Laudrup
(bróðir Michaels!) við fyrir Dani, en
færeyingar laga stöðuna í bili (Magni
Jarnskord). Erik Madsen tekur bolt-
ann viðstöðulaust á lofti og skorar
annað skömmu síðar. Johnny á svo
sjötta markið.
Norðmenn unnu svía og þarmeð
mótið að öllum líkindum, eiga aðeins
færeyinga eftir. Baráttuleikur og
spennandi en ekki mikill fótbolti. Per
Morten Haugen skorar eina mark
fyrri hálfleiks fyrir nojara, Jan Ove
Pedersen bætir við í síðari hálfleik
eftir stungusendingu. Norðmenn
skora svo sjálfsmark síðast í leiknum í
mikilli svíapressu. Norðmenn sterk-
ari, ágengari, betri í návígjum. Bestu
menn: Erik Langholm, Orjan Berg
og Hans Kjetil Henriksen markmað-
ur.
Staðan fyrir síðustu umferð:
Noregur............4 3 1 0 7-4 7
Svíþjóð............4 2 1 2 11-3 5
Island.............4 2 11 7-3 5
Danmörk............4 2 0 2 11-9 4
Finnland...........4 112 8-5 3
Færeyjar..........4 0 0 4 2-22 0
Síðasta umferð verður á sunnudag
á Akureyri: Færeyjar-Noregur á
Þórsvelli kl. 10.30, Svíþjóð-Finnland
á aðalvelli kl. 12.00, Ísland-Dan-
mörk á aðalvelli kl. 13.45.
AB/ÓHJ/m
Ólympíuleikarnir
Settir í kvöld
Þrátt fyrir skróp austantjaldsmanna í leikunum í Los Angeles er
þátttaka meiri en nokkrusinni.
23. Ólympíuleikar að nýjum
sið verða settir í kvöld í Los
Angeles í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum. Um allan heim setja
íþróttaáhugamenn sig í stelling-
ar, fylgjast með afreksmönnum
og „sínu“ Ólympíuliði. Tvennt
skyggir á leikana að þessu sinni.
Annarsvegar ' fjarvera austan-
tjaldsmanna sem eru í fýlu vegna
þess að kanar tóku pólitíkina
frammyfir hinn fræga íþrótta-
anda þegar leikarnir voru í Mos-
kvu fyrir fjórum árum. Hinsvegar
miskunnarlaus sala á íþrótta-
mönnum og leikunum í heild til
fyrirtækja í auglýsingaskyni:
Fuji-filmur eru hinar opinberu
filmur leikanna, Coca-Cola hinn
opinberi gosdrykkur þeirra og
svo framvegis.
Okkar menn verða í eldlínunni
strax á sunnudag. Þá keppa þeir
Tryggvi Helgason og Árni Sig-
urðsson í undanriðlum í 100 m
bringusundi og Ingi Þór Jónsson í
200 m skriðsundi. Á mánudag
syndir Ingi Þór 100 m flug og
Guðrún Fema Ágústsdóttir 200
m bringusund. Fyrsti leikur
handknattleiksliðsins er á þriðju-
dag gegn Júgóslövum, en önnur
lið í riðlinum eru Rúmenía, Jap-
an, Alsír og Sviss.
Helsti vonarpeningur íslend-
inga á leikunum, Einar Vil-
hjálmsson, kastar spjótinu í
fyrsta sinn á laugardag eftir viku.
Sjónvarp frá setningarathöfn-
inni er á sunnudagskvöld klukk-
an 21.55 og mánudag klukkan
sex. _ m
Ólympíuliðið íslenska við brottförina til Los Angeles í fyrradag. Á myndina vantar að sjálfsögðu þá menn okkar sem eru
við nám í Bandaríkjunum. Sómi íslands... - eða tíu litlir negrastrákar? Mynd Loftur.