Þjóðviljinn - 28.07.1984, Síða 7

Þjóðviljinn - 28.07.1984, Síða 7
Þetta lá eitthvað svo vel fyrir mér Viðtal við Ingibjörgu Eggerz sem á að baki sér langan listferil erlendis „ Það hafa aðeins tvær myndir verið sýndar eftir mig hér heima, það var á einhverri samsýningu fyrir löngu síðan. Hún fékk ekki góða dóma“. Það er Ingibjörg Pálsdóttir Eggerz sem hefur orðið. Nú í vikunni var opnuð yfir- litssýning á málverkum henn- ar allt frá árinu 1955 í Gallerí Borg og er það fy rsta sýning hennar hér heima en hún hef- ur um langt árabil tekið þátt í og haldið sýningar víðs vegar um Evrópu og Ameríku, feng- ið verðlaun og góða dóma. Að góðum og gömlum sið er rétt að segja nokkur deili á Ingi- björgu en hún er systir mynd- höggvaranna Þorbjargarog Ólafar Pálsdætra svo að en sýnir nú í fyrsta sinn hér heima segja má að sterk listæð sé í þessarifjölskyldu. Ég hitti hana í íbúð hennar á efstu hæð í húsi við Laugaveginn en hún sagöist hafa verið veik að undanförnu og aftók með öllu að tekin væri mynd af henni. „Ég hef kunnað vel við mig í öllum löndum en þegar ég kem heim er ég alltaf hrædd um að vera eins og útlendingur. Og svo þoli ég ekki þetta veður, þessa bölvaða rign- ingu“, segir hún. - Varstu ung þegar þú byrjaðir að mála? - Ég var mjög ung, hef alltaf verið leitandi og leitað að ein- hverjum sem gæti kennt mér. f barnaskóla var ég í teikningu hjá Gvendi tvinna og það hataði ég, hann lét mig teikna eitt strik eftir tvinna. Svo kom hér sænsk mynd- listarkona, sem hét Lillienquist. Svei mér þá ef ég var ekki 10 ára þá og ég fékk tilsögn hjá henni ásamt nokkrum konum sem allar voru fullorðnar. Þessi sænska kona var svo listræn og elskuleg og ég málaði það sem mér datt í hug. Ég málaði á silki og öll möguleg efni og prófaði líka að sauma í stramma. öllum þóttu þessar æskumyndir fallegar nema mér. Svo kenndi Elín mér í bamaskóla og ég fékk 8 - það var hæsta einkunn þá og hún hvíslaði í eyrað á mér: „Það hefur aldrei neinn fengið svona hátt“. - Voru foreldrar þínir listræn- ir? - Móðir mín, Hildur Stefáns- dóttir,saumaði mikið oghúnsaum- aði allt upp úr sér, aldrei eftir teikningu. Faðir minn var sonur sr. Ólafs Ólafssonar í Hjarðar- holti og þegar prestur afi minn, var kominn á eftirlaun og fluttur til Reykjavíkur fór hann að mála í laumi og geymdi myndirnar í skúffu undir dívan. Hann fór svona leynt með þetta - hvað heldurðu? Myndimar vom dá- lítið fmmstæðar, hann málaði líkt og amma Móses. En hann brenndi þeim flestum áður en hann dó. Þó em nokkrar til hér og þar og þeir em eitthvað að hugsa um að halda sýningu á þeim. - En hvenær ferðu svo að læra fyrir alvöru? - Þá var ég komin til Washing- ton með manninum mínum, Pétri Eggerz. Ég byrjaði þar í tísku- teikningu og þótti það voðalega leiðinlegt. Þá snéri ég mér að vatnslitunum hjá manni sem heitir Voltaire og mér gekk ágæt- Iega, hann var ósköp ánægður með mig. En ég sagði: „Nei, nei, ’ þetta er samt ekki fyrir mig“. Jæja. Svo kynntist ég minni ynd- islegu vinkonu Ragnheiði Ream. Hún hafði ætlað sér að verða pí- anisti en fékk eitthvað í hendurn- ar og gat ekki haldið áfram. Einn góðan veðurdag segir hún svo: „Komdu, við skulum koma að mála“. „Ég kann það ekki“, sagði ég. „Við skulum samt prófa“, sagði hún. Og við settumst niður og máluðum báðar dúfuna eftir Guðmund frá Miðdal. Og mér gekk svo andskoti vel, við systkinin höfum alltaf haft liprar' hendur. Ég fór að fá áhuga og á endanum drifum við Ragnheiður okkur báðar í skóla, hún í listahá- skólann en ég fór í Corroran lista- skólann. - Og þá hefur skriðan farið af stað? UMSJÓN: GUÐJÓN FRIÐRIKSSON ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.