Þjóðviljinn - 28.07.1984, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 28.07.1984, Qupperneq 9
MYNDLIST Norrænn sexkantur Farandsýning sex nor- rcenna textfllistamanna verðuropnuðídag. Þar sýna tveir Svíar,tveir Norð- menn og 1veir íslendingar I dag, laugardag, hefst nor- ræn textílsýning í Norræna húsinu og stendur hún til 12. ágúst. Nefnist hún Hexagon og erfarandsýning sem fyrst var opnuð í Nolhaga höllinni í Allingsás í Svíþjóð í janúar. Á sýningunni eru textílverk, vefnaður, tauþrykk og verk unnin með blandaðri tækni. Sex listakonur eiga verk á Hexagon og eru þær frá Sví- þjóð, Noregi og íslandi, tvær frá hverju landi. Listakonurnar eru Wenche Kvalstad Eckhoff og Inger- Johanne Brautaset frá Noregi, Maj-Britt Engström og Eva Stephenson-Möller frá Svíþjóð og Guðrún Gunnarsdóttir og Porbjörg Þórðardóttir frá ís- landi. Peter Anker listfræðingur frá Listiðnaðarsambandinu í Bergen er staddur hér á landi og mun flytja ávarp við opnunina á laug- ardag. Hexagon merkir sexkantur, listamennirnir sex mynda saman fast form. En það má leysa sex- kantinn upp í sex þríhyrninga - hver listamaður hefur sín sér- kenni, segir í fréttatilkynningu. Ástæðan fyrir að einmitt þessir sex listamenn sýna saman er sú að þeir hafa áður tekið þátt í nor- rænum textílsamsýningum og kynnst þannig. Hexagon hefur fengið styrk frá Norræna menn- ingarsjóðnum til sýningarhald- sins en auk sýningarinnar í Allingsás sem fyrr var frá greint hefur sýningin verið í Gallerí F15 í Moss og Listiðnaðarsafninu í Bergen. Norræna húsið er síðasti viðkomustaður sýningarinnar. Falíeg og frumieg sýningarskrá hefur verið gefin út í tilefni af Hexagon og þar eru nánari upp- lýsingar um listakonurnar. Inger Johanne Brautaset gerir myndir sem sýna eitthvað úr raunveruleikanum svo sem fjall, himin, stein, vatn eða gras. Ljós- ið gegnir miklu hlutverk í mynd- um hennar. Það gefur myndum hennar óendanlega vídd og hæð, lyftir sér yfir fjallstinda og brattar hlíðar, yfir sléttuna og hafið og baráttu og leik manneskjunnar. Wenche Kvalstad Eckhoff tjáir sig með textíl og litirnir sem hún notar skipta höfðumáli. Myndir hennar minna á graffk en tækni hennar gefur möguleika til að þrykkja mjög stórar myndir. Maj-Britt Engström hefur þró- ast frá fígúratífum vef til hins ab- strakta og lóðréttar og láréttar línur eru einkennandi fyrir verk hennar. Myndir hennar væru dá- lítið flatar ef ekki kæmi til innskot með rýjatækni sem gefa teppi hennar þrívídd. Guðrún Gunnarsdóttir vinnur tauþrykk og míni-myndir. Lita- notkun hennar er mjög dempuð og myndir hennar einkennast af geometrískum flötum með inn- skoti af rýja og öðru slíku. Hún er skyld Maj-Britt í list sinni. Eva Stephenson-Möller dýrk- ar einfaldleikann og myndir hennar eru strangar abstrakt- myndir.Þær eru eins konar lita- spil með rétthyrndum flötum. Þorbjörg Þórðardóttir sýnir vefnað unninn með ull, líni og hampi. Hún spinnur sjálf og fær þannig oft ójafnan þráð sem gef- ur myndum hennar lifandi yfir- borð. Sýningin í Norræna húsinu verður opin daglega kl. 14-19. - GFr Laugardagur 28. júlí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.