Þjóðviljinn - 11.08.1984, Blaðsíða 5
SKAK
á svissneska meístaramótinu
Viktor Kortsnoj: Skákmeistari Sviss 1984.
Viktor Kortsnoj sigraði örugg-
lega á meistaramóti Sviss sem er
nýlega afstaðið. Hann tefldi mjög
áreynslulaust og uppskar í sam-
ræmi við það, hlaut 10 vinninga
af ellefu mögulegum og gerði að-
eins tvö jafntefli. Næstu menn
þeir Dieter Keller og Roland Ek-
ström fengu lVz vinning hvor og
segir það nokkuð um algjöra yfir-
burði Kortsnojs.
Þessi úrslit koma svo sem eng-
um á óvart, Kortsnoj var lang
stigahæsti maður mótsins og eini
stórmeistarinn en samtals voru
sjö titilhafar meðal þátttakenda,
þrír alþjóðlegir meistarar og þrír
Fide-meistarar. Mótið var þó
ekki eins sterkt og búast mætti
við t.d. vantaði menn eins og
Hug, Wirthensohn, Partos og
Franzoni. Með þessa menn
★ ★ ★ ★
Hvítt: Viktor Kortsnoj
Svart: Dieter Keller
Frönsk vörn.
1. e4-e6
og halda sér því fast. En á þessu
móti var hann einfaldlega of
sterkur til þess að nokkur gæti
veitt honum keppni.
LÁRUS
JÓHANNESSON
innanborðs, auk Kortsnojs, hafa
Svisslendingar mjög frambæri-
legt lið, voru t.d. hálfum vinningi
á eftir íslendingum á síðasta Ól-
ympíumóti, hlutu 30 vinninga.
Það verður að segja eins og er
að Kortsnoj er ekki alltaf fyrir-
fram bókaður sigurvegari í
mótum sem þessum. Satt að segja
tapar hann ósjaldan fyrir sér lak-
ari mönnum. Ástæðan kann að
vera sú að hann teflir ætíð til
vinnings og leggur mikið á stöð-
umar. Þetta getur oft leitt til glöt-
unar gegn mönnum sem hafa
ekkert á móti því að ná jafntefli
2. d4 - d5
(Það er óvanalegt að sjá Kortsnoj
stýra hvítu mönnunum í þessari
stöðu. Eins og menn vita er hann
sennilega einn af mestu sérfræð-
ingum Franskrar varnar og beitir
henni með mjög góðum árangri.
3. Rc3 - Rfó
(Þessi leikur sést nú æ oftar. 3. -
Bb4 hefur verið svo til einráður
undanfarin ár. Það er líka athygl-
isvert að fleiri em farnir að leyfa
þann leik nú. Það er eins og Tarr-
Atvinnuhúsnæði
Óska eftir að taka á leigu lítinn bílskúr eða ca. 20 m2
herbergi undir léttan og hreinlegan iðnað.
Hreinlætisaðstaða nauðsynleg.
Góðri umgengni heitið.
Vinsamlega hafið samband við auglýsingadeild Þjóð-
viljans sími 81333.
asch afbrigðið 3. Rd2 sé aðeins að
missa vinsældir og er það góðs
viti).
4. e5 - Rfd7
(4. - Rg8!?, hm).
5. f4 - c5
' 6. Rf3 - Rcó
7. Be3 - a6
(Algengari leikir em 7. - cxd4 og
7. - Db6. Næsti Ieikur Kortsnoj er
nýr en hugmyndin er gömul þ.e.
ná yfirráðum á d4 fyrir hvíta
liðsaflann, helst riddara).
8. a3 - Be7
9. dxc5 - Rxc5
10. b4- Rd7
11. Bd3 - Dc7
12. Re2 - Rb6
13. 0-0 - Bd7
14. Del - Ra4
15. Dg3 - g6
(Ekki gengur 15. - 0-0 vegna 16.
f5! og sókn hvíts er óstöðvandi).
16. Rg5 - Rd8
17. Rd4 - Rc3
18. Khl - Rb5?
19. Rb3 - Rc3
20. Bc5 - Bxc5
21. Rxc5
(Hvítum hefur tekist að veikja
svörtu reiti andstæðingsins vem-
lega við þessi uppskipti).
21. - Ra4
22. Rxd7
(Hvítreita biskup svarts er yfir-
leitt talinn mjög veikur hlekkur í
svörtu stöðunni ef hann er eins og
hér lokaður inni af sínum eigin
peðum. Það kann því að virðast
einkennilegt að hvítur taki þann
kostinn að skipta riddara sínum
fyrir hann en það sem Kortsnoj
hefur í huga er opnun stöðunnar,
þar sem biskupinn gæti losnað úr
prísundinni).
22. - Dxd7
(22. - Kxd7 var sterkara).
23. c4! - h6
24. Rxf7!
(Þessi skemmtilega fórn gerir út
um skákina).
24. - Rxf7
(Eins og sjá má gengur 24. - Kxf7
ekki 25. Dxg6+ Kf8 26. Df6+).
25. cxd5! - 0-0-0
26. Bxg6 - Hhg8
27. f5?!
(Hér gat Kortsnoj leikið 27. dxe6
Dxe6 28. f5 Dxe5 29. Db3 og
svartur getur lagt niður vopnin).
27. - Dxd5
28. Hacl+ - Kb8
29. fxe6 - Rh8
30. e7 - Rxg6
31. exd8+ - Dxd8
32. e6+ - Ka8
33. Dc7 - Dd5
34. Dc4 - Rf4?
(Betra var 34. - Dg5).
35. Dxd5 - Rxd5
36. IH7 - He8
37. Hel - Kb8
38. Hh7 - Rac3
39. Hxh6 - Rb5
40. g4! og svartur gafst upp
nokkrum leikjum síðar.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
LAUSAR STOÐUR HJA
REYKJAVÍKURBORG
Sérkennarar
Sérkennara vantar til starfa í Norðurlandskjördæmi
vestra. Mest þörf er fyrir kennara með sérmenntun í
talkennslu og kennslu barna með lestrarörðugleika.
Allar upplýsingar gefur fræðslustjóri Guðmundur Ingi
Leifsson í síma 95-4369 á skrifstofutíma og 95-4249
utan skrifstofutíma.
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og á Heilsu-
gæslustöðvarnar í Reykjavík. Starfskjör samkv. kjara-
samningum.
• Deildarstjóri við áfengisvarnadeild. Áskilið er að
umsækjandi hafi lokið háskólaprófi á heilbrigðis-
eða félagsvísindasviði eða hafi sambærilega
menntun. Reynsla í áfengisvarnastarfi mjög
æskileg.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 22400.
• Deildarmeinatæknir
- við heilsugæslustöðina í Árbæ, hálft starf.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 71500
eða framkvæmdastjóri í síma 22400.
- við Heilsuverndarstöðina í Reykjavík. Fullt starf
eða tvö hálf störf.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 22400.
• Félagsráðgjafi. Fyrirhugað er að hann starfi fyrst
og fremst á vegum þjónustuhóps aldraðra, sbr. lög
nr. 91/1982. Hópurinn starfar að velferðarmálum
aldraðra, fylgist með högum þeirra, sér um þjónustu
þeim til handa og metur vistunarþörf.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 22400.
• Hjúkrunarfræðingur
- við heilsugæslustöðina Asparfelli 12, barnadeild.
1 og 1/2 staða.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 75100.
- við barnadeild Heilsuverndarstöðvar.
- við heilsugæslu í skólum.
- við heimahjúkrun (vaktavinna kemur til greina).
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem jjar fást, fyrir kl. 16.00,
mánudaginn 20. ágúst 1984.
íslensk
setningarfræði
Endurmenntunarnefnd Háskóla íslands mun í sam-
vinnu við samtök móðurmálskennara gangast fyrir
námskeiði um íslenska setningarfræði, dagana 20. til
24. ágúst nk„ alls 24 klst.
Námskeiðið verður haldið í Árnagarði og fer skráning
á námskeiðið fram á aðalskrifstofu Háskóla íslands,
sími 25088.
Ekkert þátttökugjald. Farið verður vandlega í grund-
vallaratriði generatífrar setningarfræði (málmyndun-
arfræði, ummyndanamálfræði). Allar frekari upplýs-
ingar veitir Margrét S. Björnsdóttir HÍ, sími 23712.
ra
Dagvistamál - Störf
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir eftirtaldar
stöður lausar til umsóknar:
1. Staða matráðskonu/maður, við dagheimilið Furugrund.
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun eða reynslu á
þessu sviði. Umsóknarfrestur er til 27. ágúst n.k.
2. Staða fóstru á leikskólann Kópahvol. Upplýsingar veitir
forstöðumaður í síma 40120.
3. Staða fóstru á dagvistarheimilinu Grænatúni. Upplýsing-
ar veitir forstöðumaður í síma 46580.
4. Staða fóstru á skóladagheimilinu Dalbrekku. Upplýsingar
veitir forstöðumaður í síma 41750.
5. Staðafóstru ádagvistarheimilinu Efstahjalla. Upplýsingar
veitir forstöðumaður í síma 46150.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum
sem liggja frammi á félagsmálastofnun Kópavogs,
Digranesvegi 12, og veitir dagvistarfulltrúi nánari upp-
lýsingar um störfin í síma 41570.
Félagsmálastjóri.