Þjóðviljinn - 11.08.1984, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 11.08.1984, Blaðsíða 9
Sumir segja að betra sé að vera kóngur í litlu ríki heldur en næst æðstur í stóru ríki, sagði Jó- hanna Leópoldsdóttir þegar Þjóðviljinn hitti hana að Vega- mótum á sunnanverðu Snæfells- nesi. Hún var hress að venju þrátt fyrir miklar annir. Er útibús- stjóri kaupfélags Borgfirðinga að Vegamótum, móðir Leópolds sem er nýlega ársgamall og bar- áttukona á sviði stjórnmála og jafnréttismála. „Það er gott að vera hér á Vegamótum. Fyrst ætlaði ég að gera stuttan stans, tvö ár eða svo, en svo hef ég bara flenst hér í næstum 7 ár. Það er kannski hræðslan við að fara að vinna undir einhverjum hundleiðin- legum karli sem heldur mér hér“ sagði Jóhanna. „Reyndar hafði ég áhuga á sveitarstjórastarfi eftir síðustu kosningar. Ég var samt vöruð við því. Vantraust á konum í það starf speglar mjög ríkjandi við- horf í þjóðfélaginu. Enda fékk ég ekki það sveitarstjórastarf sem ég sóttist eftir.“ Jóhanna segist hafa mjög mikla ánægju af að fylgja eftir framkvæmdum sem hún hef- ur unnið við að koma á. „Nú er til dæmis verið að ganga vel frá gatnamótunum hérna á Vega- mótum fyrir framan Kaupfé- lagið. Ég hef barist fyrir því að þetta yrði gert og nýt þess að sjá mín hugðarefni framkvæmd. Þess vegna tel ég að skemmtilegt geti verið að takast á við starf sveitarstjóra í bæjarfélagi þar sem margt þarf að framkvæma." „Þetta var hörku-púl í vetur. Jóhanna Leópoldsdóttir á Vegamótum með soninn Leópold í vagni. Mynd-eik. Kónaur í litlu ríki Jóhanna Leópoldsdóttir ó Vegamótum í spjalii við Þjöðviljann. Leópold fæddist í júnTTÉg hafði þyngslin urðu sem mest smíðaði hússins og kaupfélagsins. Þetta barnarúm á skrifstofunni og lét pabbi hans sleða undir vagninn var á stundum þrælerfitt en hann sofa úti í vagni. Þegar snjó- og svo dró ég þetta milli íbúðar- endurminningin dálítið kostuleg. Eftir að Leópold fór að stækka og verða fjörugri varð ég að koma honum í gæslu. Hann þurfti að hafa svigrúm til að vera víðar en í rúminu á skrifstofunni eða vagninum. Hér eru vegalengdir það miklar að ekki var alltaf auðvelt að koma honum milli bæja. Urðum við stundum að ferðast með hann á snjósleða. Þetta er samt allt saman hægt og ósanngjarnt er að konur sem eiga börn komist ekki í toppstöður. Þær hafa alls ekki sömu mögu- leika og karlar. Meiri kröfur eru gerðar til kvenna.“ „Fólk býr við ofsalegt misrétti í landinu. Éitt af því eru fjallháir rafmagnsreikningar víða á lands- byggðinni. Bændur hér um slóðir fá reikninga yfir 30.000 fyrir 609 daga þegar súgþurrkun er notuð, en hún er mjög orkufrek. Al- gengir reikningar eru allt að 20.000 krónur. Fólk hér segir að það hafi ekki haft úr svona litlu að spila árum saman. Og svo er ekki einu sinni hægt að komast út á túnin núna fyrir bleytu. Fólk horfir á grasið spretta úr sér og getur ekkert gert, því það er meira að segja of blautt til að verka vothey. Bændur þola betur erfiða vetur en vond sumur.“ Jóhanna hyggur á vetursetu í Miklaholtshreppi. Hún sagðist vonast eftir minni snjó en í fyrra. „Bóndi hér um slóðir var þó að hræða mig með að snjóþungir vetur verði í 5 ár í röð. Það hentar ekki vel ef koma þarf barninu í gæslu!“ sagði atnafnakonan á Vegamótum. -jP Stærsta listahátíö í sögu Bandaríkjanna Mikið hefur verið sagt frá Ól- ympíuleikunum í Los Angeles og ítarlega, en minna hefur farið fyrir frásögnum af stær- stu listahátíð í sögu Bandaríkj- anna, sem haldinn er í Los Angeles samhliða ólympíu- leikunum, og byrjaði raunar tveimur mánuðum áður, eða 29. maí. Hér er um að ræða 10 vikna alþjóðlega listahátíð, „Olympic Arts Festival", þar sem sýndar voru yfir 400 leiksýningar, og auk tónlist- arflutnings og myndlistar. Hátíðinni lýkur nú um helgina og hefur hún verið geysilega vel sótt og vakið mikla athygli. 14 stærstu og virtustu leikhús í heimi, þar á meðal Royal Shakespeare Company í Bretlandi, Sólarleikhúsið í París, Piccoló leikhúsið í Mí- lanó auk Coventgarden óper- unnar og fremstu leikhúsa Austurlanda fjær sýndu á há- tíðinni, sem mun ekki hafa verið síður dýr og íburðamikil en Ólympíuleikar íþrótta- manna. Gífurlegur kostnaður er af hátíð sem þessari, en auglýsingafyrirtæki sjá um nánast allt fjármagn, en blöð og fjölmiðlar leggja stóran skerf af mörkum. Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem stóru topparnir í leikhús- heiminum, Sólarleikhúsið, Piccololeikhúsið og Royal Shakespeare mæta á einn og sama staðinn með sýningar sínar.B Sunnudagur 12. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Þér bjóðast betri kjör betri en þú hyggur Nú er lœkkandi útborgun því bjóðum við eignir með hagkvœmari greiðslutilhögun en verið hefur. Hringdu því strax - og lóttu okkur leita Símar 687520 687521 39424 Fasteignasaia.K Leitarþjonusta Bolholti 6 4 hæð

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.