Þjóðviljinn - 11.08.1984, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 11.08.1984, Blaðsíða 16
LEÐARAOPISIA Úr Jónsbók UM SKRÚÐKLÆÐA BURÐ. KAP. 35 (13). Þat er öllum mönnum kunnigt um þann mikla úsið, er menn hafa hér meirr í venju tekit í þvísa landi en í engu öðru fátæku, um skrúðklæða búnað, svá sem margir hafa raun af með stórum skuldum, ok missa þar fyrir þarfligra hluta margra, en hinn fátæki þarnaz sinna hjálpa, ok liggr fyrir slíkt margr til dauðs úti frosinn; ok því gerum vér öllum mönnum kunnigt, at hverr sá sem á til .xx. hundraða ok eigi minna, hvárt sem hann er kvángaðr eða eigi, má bera eina treyju með kaprúni af skrúði; en sá er á til .xl. hundraða, má þar með bera skrúðkyrtil einn; sá er á tii .lxxx. hundraða, má þar með bera ólpu eða kápu tvídregna utan gráskinn; en sá er á til hundrað hundraða, hann má at frjálsu bera þessi öll klæði; utan lærðir menn beri klæði sem þeir vilja, ok handgengnir menn þeir sem sér eigu öll skyldarvápn. Þeim mönnum ok, sem utan hafa farit, er lofat at bera þau klæði er þeir fiytja sjálfir út, meðan þau vinnaz, þó at þeir eigi minna fé en fyrr segir, en eigi skulu þeir kaupa til framarr en fyrr skilr. En ef nokkurr berr sá skrúðklæði er minna fé á, eða öðruvíss en hér váttar, sé klæði upptæk konungs umboðsmanni, nema konur beri. Bakgrunnur „Ég veit að einn asni verður þó aldrei hestur, þó menn setji gullsöðul á hann. Og svo verður einn dári aldrei vís, hvernig sem hann málar sig utan. Þessi siður fer mjög í vöxt í landi voru smám saman nú nokkur ár. Ambáttin vill eins klædd vera og húsmóðirin, þénarinn eins og herrann, sonur- inn betur en hans gamli faðir." Svo segir meistari Jón í einni af predikunum sínum í Vídalíns- postillu og geta víst margir tekið undir upphafsorðin, þótt niður- lagið kunni að orka tvímælis, enda gerir meistari Jón sannar- lega ráð fyrir að til sé bæði Jón og séra Jón og gera skuli skýran mun á þeim. Alla tíð hefur það fylgt mann- inum að sýna vald sitt og virðing- arstöðu með ýmsum ytri táknum, klæðaburði, skrauti og siðvenj- um. Þetta má sjá í vanþróuðum þjóðélögum og háþróuðum og nánast allir menn undirgangast einhverjar slíkar siðvenjur, hversu miklir stjórnleysingjar sem þeir annars telja sig vera. Byltingarþjóðfélög, sem koilvarpa borgaralegum hefðum, taka óðast upp nýja siði og sagt er að hvergi sé annað eins safn heiðursmerkja og embættisklæða við lýði og í ýmsum austantjalds- rílqum. Ymsar andófsstefnur sem upp hafa komið á síðustu áratugum, stjórnleysingjahópar og hippar hafa gengið hvað rækilegast fram í afnámi borgaralegra siða og síð- an samið sig að öðrum siðum, eignast sín eigin einkennismerki, sem merkja þá þeim hópi sem þeir hafa valið sér. Ennisband og sítt hár varð tákn ekki síður en dökk föt og stuttklippt hár. Og þá vaknar spurningin: Er manninum eðlilegt og sjálfsagt að merkja sig á einhvern hátt í samræmi við stétt og stöðu, skoðanir og lífsmynstur? Er það lífsmynstur og vald kjólfataherranna sem hipparnir vildu mótmæla, eða bara birtingarmynd þess, orðurn- ar og kjólfötin? Og ef svo er, af hverju urðu þessir hópar þá ekki sjálfstæðari og persónulegri í vali á sínum eigin merkjum? Þegar litið er aftur í sögu ís- lands má sjá óteljandi dæmi um hvernig ríkjandi stéttaskiptingu var viðhaldið með reglum í klæðnaði. Skarlatsrautt var til dæmis litur sem aðeins heldri menn máttu klæðast, og merki um að menn væru sigldir, því ekki var hægt að ná hinum sterka rauða lit með jurtalitum alþýð- unnar. í Jónsbók er kafli um Skrúðklæðaburð, þar sem mönnum er bannað að bera dýr- ari skrúðklæði en þeir voru borg- unarmenn fyrir. I rannsókn sem Fríður Ólafsdóttir, fatahönnuð- ur, vinnur að sem rannsóknar- verkefni í Kennaraháskólanum á karlmannsfatnaði á íslandi á ár- unum 1780-1850, kemur greini- lega fram að hefðir í klæðaburði hafa verið mjög hliðstæðar hér á landi og í nágrannalöndunum. Bændur sýndu digurleika sinn með silfurhnöppum og klæði kvenna og skart sýndu einnig vald og eignir eiginmannsins. Gátu menn þannig sýnt stöðu sína með skarti eiginkvennanna, en eins og segir í Jónsbók, voru konur undanskildar í lögum þess- um, þótt vissulega hafi ekki þótt æskilegt að „ambáttir klæddust sem húsmæður“ (sbr. Jón Víd- alín). Sem sagt: Menn skyldu ekki villa á sér heimildir með því að klæðast betur en stétt og staða sögðu til um. En stór maður þarf ekki að stækka sig með stássklæð- um og heiðursmerkjum, segir einn viðmælenda okkar hér í opn- unni. Hann þarf ekki að sýnast í annarra augum. En valdið vill sýnast. Sterkar valdaklíkur eins og t.d. Frímúrarar hafa komið sér upp flóknum metorðastiga sem er sýndur með ýmiss konar við- hafnarklæðum, athöfnum og heiðursmerkjum sem verka hlægileg á allt venjulegt fólk sem veit eins og Jón Vídalín, að innri maður breytist ekki, hvernig sem hann reynir að merkja sig því „einn asni verður þó aldrei hest- ur, þótt menn setji gullsöðul á hann“. -ÞS. / Tákn valds og virðulelka _______________________LEIÐARI____________________ Einn asni verður aldrei hestur... Öðru hvoru hafa komið upp umræður í okkar þjóðfélagi um orðurnar og þá hvort ekki ætti að leggja þær niður, því eins og meistari Jón sagði, einn asni verður þó aldrei hestur þótt menn setji gullsöðul á hann. Að stærstum hiuta eru orðuhafar valdsmenn - og m.a. þess vegna eru orð- urnar tákn valdsins. Og einmitt þess vegna líta sósíalistar orðurnar hornauga og vilja þær úr sögunni. Auðvitað skiptir innihaldið meira máli en táknið. En þar sem táknið er talandi vald - hljótum við að hafna því. Þeir sem vilja jafna rétt manna til lífsins gæða vilja því orðurnar hallar úr heimi. Hins vegar segir á bókum að íslenskir hafi gengið á litklæðum til forna. Og síst vildi maður að fólk yrði af litadýrðinni í því ríki glaðværðarinnar og jafnréttisins, sem við stefnum að. Oft hefur verið fjallað um það að sagan sýni að eftir þjóðfélagsbyltingar taki sú stétt sem kollvarpar valdastéttinni upp siðu, klæðnað, prjál og bílífi þeirrar stéttar sem hrundið er frá völdum. Mörgum finnst þannig valdsmenn og virðingarmenn austan járntjalds vera „borgaralegri" í klæðnaði og framkomu heldur en jafnvel borgararnir sjálfir á Vesturlöndum. Hvort það sé hins vegar tákn þess að borgara- stéttirnar og aðallinn hafi verið (Dannig til fyrirmyndar eða þá hitt að „byltingarnar" hafi verið misheppnaðar, skal hér ósagt látið. Hið síðarnefnda er engu að síður freistandi niðurstaða slíkra hugleiðinga. Margir halda því einnig fram, að þegar vinstri menn gerast valdsmenn og virðingar- í nútíma þjóðfélögum Vestur- landa eigi þeir það til að „klæða sig upp til“ valdsins. M.a. af þeim ástæðum má sjá greinilegan mun á klæðaburði frjálslyndra þingmanna á Vesturlöndum og hægri þingmanna hins vegar. Eitthvað virðist fara minna fyrir þessum mun á alþingi ís- lendinga heldur en í nágrannalöndunum, en þó má merkja vissar breytingar í frjáls- ræðisátt. Og bindin eru víkjandi frá hálsum hæstvirtra alþingismanna. Um klæðaburð eftir stéttum og valdi er þó erfiðara að alhæfa heldur en um orð- urnar. Langflestir á vinstri væng stjórnmál- anna eru þeirrar skoðunar, að orður og heiðursmerki séu einfaldlega prjál, í skársta falli hégómi. Orðuhafar eru í vel- flestum tilfellum embættismenn sem fá heiðursmerki fyrir að sinna sínu starfi. Því gerist sú spurning áleitin hvort ekki ætti að veita öllum þeim sem ekki hafa svikist um í starfi svo sem eins og eina orðu. Það virðist vera sjálfgefið að embættis- menn ríkiskerfisins fái svoddan skraut. Hvers vegna? Ef það á að vera til þess að gefa orðu fyrir vel unnin störf - hvers vegna fá þá ekki sjómenn og verkafólk sem eytt hafa allri ævi sinni í „vel unnin störf“ að njóta þess með sama hætti og t.d. ráðuneytis- karlar? 16 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Sunnudagur 12. ágúst 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.