Þjóðviljinn - 16.08.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 16.08.1984, Blaðsíða 1
Sigurbjörn Reynir Sigurbjörnsson eigandi Bílapartasölunnar Heiði hjá hluta af eignunum. Mynd: eik. Bílapartasala Bílhræ á Suðurnesjum Bílapartasala og viðgerðaverkstœði í nágrenni sorpeyðingarstöðvar Ég hef veriö áhugamaður um bílaviögerðir frá stráks- aldri, sagöi Sigurbjörn Reynir Sigurbjörnsson sem Þjóðvilj- inn hitti skammt frá Höfnum þar sem hann hefur lagt nokkra hektara undir mis- munandi ónýt bílhræ. „Hafnarhreppur á staðinn og ég fékk aðstöðu hérna fyrir rúmu ári. Ég safna bflhræjum af öllum Suðurnesjum og Reykjavík. Síð- an er ég með bílapartasölu auk þess sem ég geri við bíla“. Sigur- björn sagði staðinn góðan því sorpeyðingarstöð er í næsta ná- grenni og þangað fer hann með þá hluta af bílunum sem ekki er hægt að nýta. „Mig dreymir um að koma hér á fót bifreiðaverkstæði. Gallinn er sá að hér er hvorki rafmagn né sími. Ég notast við díselmótor eins og er.“ „Hvort ég er bifvélavirki? - Nei, en ég ætti að vita eitthvað um bíla því ég byrjaði að gera við þá þegar ég var 9 ára gamall.“ Sigurbjörn Reynir býr í Garð- inum og yfir nóttina sagði hann að hundarnir hans gættu staðar- ins. Hann er með 3 fullorðna Collí hunda sem heita Kóngur, Lady og Dúlla. Þeir eiga nú 14 hvolpa og sagði Sigurbjörn þá ánægða með heimili sitt, Bflap- artasöluna Heiði við Hafnir. -jP- UMSJÓN: JÓNA PÁLSDÓTTIR Fimmtudagur 16. ágúst 1984 þjÓÐVILJINN - SÍÐA 9 I rigningu á Suðurnesjum Ólík viðfangsefni og fjölbreytni í mannlífi Mannlífiö á Suðurnesjum einkenndist fremur af inniveru en útivist þegar Þjóöviljinn var þar á ferð í síðustu viku. Rigningin helltist úr háloftunum og virtist okkur sem hún gerði engan greinarmun á réttlátum og ranglátum. Ólíkt hafast þeir aö Suðurnesjabúar. Þar ríkir fjölbreytni í mannlífi. Viö náum aðeins að birta brot af því sem er aö gerast á tánni á stígvéli landakorts- ins. Viðmælendur okkar eiga þaö sameiginlegt að búa á tánni en viðfangsefni þeirra eru hin ólíkustu. í Njarðvíkum hittum við smiði að máli. Þeir hafa sérhæft sig í fúavörn glugga. Vélakostur þeirra er hinn fullkomnasti á landinu og hefur starfsemin þanist út á síðustu árum. Keflavík státar af fullkomnu sjúkrahúsi. Þar er fæðingardeild sem annast yngstu Suðurnesjabúa og mæður þeirra. Við ræddum við „yfir-ljósuna“ sem ber hag ungra sem aldraðra Suðurnesjabúa fyrir brjósti. í Garðinum fræddumst við um lífsháttu unglinga staðarins. Þeirstunda íþróttirá kvöldin og um helg- ar og fara stundum á rúntinn til Keflavíkur. Sumir fara vikulega á ball í samkomuhúsinu. Flestir vinna þeir í frystihúsinu. Við hittum einnig unglinga í Sandgerði. Þar var verið að vinna að fegrun bæjarins. í votviðri sum- arsins hefur safnast mosi milli gangstéttarhellna og var unnið við að fjarlægja ósómann. Stúlkurnar sem við hittum státuðu sig af nýrri og glæsilegri sundlaug sem þær sögðust stunda dyggilega. í Sandgerði hittum við einnig vaska konu sem sló grasflötina sína að fornum sið, með orfi og Ijá. Hún var í hópi alþingiskvenna í vor og sagði okkur með- al annars af þeirri lífsreynslu. Ekki þótti Þjóðviljanum hægt að láta fiskeldi vanta í umfjöllun um mannlíf Suðurnesja. Fjölmarg- ar tilraunir í fiskeldi eru viðhafðar á þessu lands- horni. í Höfnum er lax alinn til útflutnings. Við rædd- um við einn af uppeldisfeðrunum sem er ásamt fjölskyldu sinni búsettur á staðnum. Á leiðinni í Hafnir ókum við framhjá sorpeyðing- arstöðinni sem Suðurnes státa sig af. Skammt frá henni komum við að bílapartasölunni Heiði sem dreifði úr sér á stóru svæði. Þótti okkur fyrirbærið merkilegt og ræddum við eigandann. í rigningunni þótti Þjóðviljamönnum ekki saka að gæða sér á gómsætum kökum með kaffinu. Við fengum eina slíka í Garðinum og til að kóróna mannlífsþáttinn fylgir uppskrift af kókostertu sem frómar konur kenna okkur að baka. -ÍP-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.