Þjóðviljinn - 16.08.1984, Blaðsíða 8
Garðurinn
Verslunin
SKIPHÓLL
Sandgerði
Við höfum opið eins og
stórmarkaðirnir.
Aðeins þjónustan
er betri.
Sérhæfum okkur í þjónustu
við bátaflotann.
Sími 7480
Frystihúsamenn
Þið þekkið jaxlinn
frá SCANIA.
Það er engin tilviljun að SCANIA-
vörubílarnir eru algengastir á Suð-
urnesjum. Lágmarks rekstrarkostn-
aður og hámarks ending gerir það að
verkum að fleiri og fleiri fá sér jaxlinn
frá Svíþjóð.
ISARN HF.
SÍMI 20720
Verð ekki lengi
Borgir bjóða upp á meira enpláss.
Knattspyrna og körfubolti.
Rœkjupillun leiðinlegust aföllu leiðinlegu.
Þóra Björg Magnúsdóttir
heitir 16 ára íþróttakona úr
Garðinum sem Þjóðviljinn
heimsótti í síðustu viku. Hún
æfir knattspyrnu með Víði á
sumrin og körfubolta með
menntskælingum á Akureyri
yfir veturinn. Þóra Björg skrif-
ar á stundum íþróttapistla af
Suðurnesjum í Þjóðviljann.
Við spurðum hana um hvað á
daga hennar drífi í Garðinum.
„Það er ágætt að vera hérna en
ég verð ekki lengi“, sagði Þóra
Björg. „Ég vil ekki eiga heima í
svona litlu plássi, borgir bjóða
upp á meira. Reyndar er ég ekki
búin að gera upp við mig hvað ég
geri í framtíðinni, hef áhuga á
teiknun og það getur verið að ég
stefni á arkitektúr. Líffræðin
heillar mig líka.“ Þóra var í
Menntaskólanum á Akureyri í
vetur og á þremur árum ólokið
Þar íþróttir
Hún er í kvennaliði Víðis í
knattspyrnu sem keppir í 2. deild.
Æft er oft í viku hverri. Um helg-
in átti að fara norður á Akureyri
þar sem öll kvennalið landsins
keppa á hraðmóti. „Hér er ekk-
ert nema fótbolti. Reynt hefur
verið að koma upp frjálsum en
það hefur ekki gengið“ sagði
Þóra. Hún hefur verið í körfu-
boltanum fyrir norðan og sagði
að þeim krökkunum hefði verið
boðið að taka þátt í 1. deildar-
keppninni næsta vetur. „Verst
hvað það er dýrt, því við verðum
þá að fara þrisvar suður. Ekki
dugar annað en nota allar leiðir
til fjáröflunar."
Rœkjupillun
„Rækjupillun er það leiðinleg-
asta af öllu leiðinlegu,“sagði
Þóra Björg. Hún vinnur í ísstöð-
inni í sumar, fjórða sumarið í röð.
Áður var hún í unglingavinnu og
árin þar á undan vann hún við
barnapössun. „Mér finnst skárra
að vera á borði en í rækjunni. Ég
vinn frá hálf átta til fimm eða sjö.
Fæ að meðaltali um 3000 kr. á
viku, ekki veitir af. Það er dýrt að
vera að heiman í skóla. Það er
bara ekki þægilegt að stunda
Fjölbrautaskólann á Suðurnesj-
um vegna þess að rútur eru að-
eins á tveggja tíma fresti frá
Garðinum til Keflavíkur og tím-
amirískólanum ekki samfelldir.“
Rúnturinn til
Keflavíkur
Þóra Björg sagðist ekki gera
margt annað í sumar en að vinna
og sparka bolta. Sagðist þó stöku
sinnum fara á rúntinn með vin-
konum sínum til Keflavíkur.
„Ég fer eiginlega aldrei á böll,
finnst það ekkert gaman því þar
er svo mikið fyllerí. í fyrra voru
böll í samkomuhúsinu hér tvisvar
í viku. Þá var ég oft að vinna í
henginu fyrir Víði svo ég sá
hvemig þetta fór fram. Nú eru
böllin sjaldnar og ég fer eiginlega
aldrei.“
-JP
Hvaó er
gagnvarið timbur?
Á vegum norræna timburvarnarráösins - NTR - hafa verið
samræmdir staðlar um flokkun gagnvarins timburs.
Flokkur M
Fyrir timbur sem nota á í sjó
og vötnum, bryggjur og brýr,
burðarvirki í jörö t.d. undir-
stööur húsa og trévirki í
vatnsyfirboröio.fl.
j i/
/ m
Flokkur A
Ætlaðurtrévirki í snertingu við
jörð og burðarvirki sem verð-
ur fyrir miklum raka utanhúss.
Hentarvel íallagrófasmíði,
svo sem girðingar, skýli, ver-
andardekk, gróðurkassa og fl.
Flokkur B
Notist á fullunnið timbur sem
ætlað ertil almennra nota
utanhúss og sem er ekki í
snertingu við jörð, svo sem
glugga, dyrabúnað og
klæðningar.
Hversvegna allir þessir gagnvarnarflokkar?
Gagnvörn er ekki aöeins gerö í þeim tilgangi aö koma i
veg fyrir fúa. Kostir hverrar aöferðar eru metnir með tilliti
til væntanlegrar notkunar.
Timbur í girðingarstaura og bryggjugólf þarfnast aö sjálf-
sögöu annarrar gagnvarnar en viður I glugga og dyra-
búnað. Þegar um fínni smíði er að ræða skiptir stöðug-
leiki svo og yfirborðsáferð miklu máli. Vatnsupþleysan-
leg gagnvarnarefni veita vörn gegn fúa en vatn gengur
eftir sem áður inn I viðinn. Breytilegt rakastig orsakar
rúmmálsbreytingar og sprungur þegar viðurinn þornar.
Yfirborð viðarins verður hrjúft.
Sé krafist hámarks stöðugleika efnis eru notuð lífræn
efnasambönd í olíuupplausn. Þar sem viðurinn mettast
af oliunni varnar hún vatni leið inn i viðinn og stuðlar
þannig að stöðugu, jöfnu rakastigi í viðnum sem erfor-
senda stöðugleika efnisins. Þetta er mikilvægur eiginleiki
timburs sem nota skal í glugga og hurðabúnað.
Hjá Ramma hf. gagnverjum við með olíuupplausn sam-
kvæmt flokki B. Þessi aðferð gerir okkur mögulegt að
fullvinna viðinn fyrir gagnvörnina. Þessi gagnvörn ver
ekki aðeins gegn fúa, heldur tryggir hún stöðugleika
efnis og 1. flokks yfirborðsáferð.
Miil hf &
ga-
uiðaverksmiöja
NJARÐVÍK, Sími: 92-1601. Skrifstofa í Reykjavík: Iðnverk hf, Nóatúni 17. Símar: 91-25930 og 91-25945.