Þjóðviljinn - 16.08.1984, Page 4
fTlaxam
JbCampflir
Hafnir
Grænt fyrir laxa
Þriggja kílóa laxar eftir rúmt ár í
fiskeldisstöðinni. Seldirferskir með
flugi til útlanda. Hvorki verslun né
skólií Höfnum.
I Höfnum er fiskeldisstöð
sem heitir Sjóeldi hf. Þangað
eru 15-20 gramma laxaseiði
keypt á 'sumrin frá Hólum í
Hjaltadal og Kollafirði. Þau
eru síðan alin í kerjum fram á
næsta vor og þá látin í girð-
ingu niður við sjó fram í októ-
ber. Miðað er við að laxarnir
nái þremur kílóum og fæst þá
gott verð fyrir þá á markaði í
Bandaríkjunum, sagði Jó-
hann Sigurbergsson starfs-
maður í Sjóeldi hf. þegar Þjóð-
viljinn kom við í Höfnum.
Jóhann sagði að nú væri annað
heila árið sem fiskeldisstöðin er
rekin markvisst, áður var starf-
semin fremur sem tómstunda-
gaman. í fyrra voru ferskir laxar
seldir til Bandaríkjanna með
flugi. Fékkst þokkalegt verð fyrir
þá, að sögn Jóhanns, þrátt fyrir
að meðalþyngd þeirra var ein-
ungis 2 kg sem þýðir 40% lægra
verð en fyrir fiska sem vega 3 kg.
„Við fóðrum þá með loðnu og
bindimjöli sem lýsi, loðnumjöli
og rækjuskel er blandað í. Seiðin
sem verið er að ala í húsi fá ein-
ungis þurrfóður."
Hvorki verslun
né skóli
Jóhann Sigurbergsson hefur
búið í Höfnum í 7 ár. Hann er úr
Keflavík en konan hans er alin
upp í Höfnum. Þar búa um 130
manns og sagði Jóhann að þau
yrðu að versla í Keflavík og börn-
in stunda Njarðvíkurskóla, því
hvorki er verslun né skóli á staðn-
um. „Mér finnst gott að búa
hérna, það er alveg eins og að
vera úti í sveit og því fylgja gallar
en einnig fjölmargir kostir."
- jp-
Jóhann Sigurbergsson gefur seiðunum sem eru í húsi þurr
fóður á þriggja tíma fresti. Seiðin eru í grænum kerjum o(
sagði Jóhann litinn skipta miklu máli. „Þau eru síður stress
uð í grænu umhverfi. Kerin voru blá og rauð og þá fældus
seiðin við minnsta hávaða eða hreyfingu". Mynd: eik.
Elsa Kristjánsdóttir kann tökin á orfi
og Ijá eins og sjá má. Mynd: eik.
Fjöltækni sf.
Eyjargötu 9 Síml 27580
Oddvitinn
Bóndi en ekki bóndakona
Rakasíur, þrýstijafnarar og smurglös
Loftventlar
Rafstýrðir
Handstýrðir
Fótstignir
Membra ventlar
Lofttakkar
Ryðfríir tjakkar
Loftverkfæri
Nylonleiðslur
Leiðslutengi
Útiverkin skemmtileg. Skynsamtfólk á Austfjörðum.
Fjallaferðir, þingstörfog kennaraskortur.
Elsa Kristjánsdóttir heitir
kona sem skipaöi annað sæti
á lista Alþýðubandalagsins í
Reykjaneskjördæmi fyrir síð-
ustu Alþingiskosningar. Hún
hefur búið í Sandgerði í 10 ár,
unnið í Landsbankanum, alið
upp börnin tvö sem nú eru
uppkomin og tekið virkan þátt
í pólitík. Hún er oddviti sinnar
sveitar og í stjórn Iðnþróun-
arfélags Suðurnesja. Þegar
Þjóðviljann bar að garði Elsu í
síðustu viku var hún önnum
kafin við að slá grasflötina við
heimili sitt með orfi og Ijá. Bar
sig fagmannlega að verki
enda kunnug störfum
bóndans, alin upp í Hólkoti í
Staðasveit.
„Ég hef ekki snert á orfi og ljá í
25 ár svo þetta er hreint ekki
glæsilega unnið hjá mér. Gras-
flötin var orðin svo loðin að ég
varð að slá með þessari aðferð.
Við höfum verið í fríi síðan í júní
og sprettan hefur verið góð á
meðan. Svo ég fékk áhöldin lán-
uð hjá bónda hér í nágrenninu og
rifjaði upp gamla kunnáttu",
sagði Elsa.
Langar þig að búa í sveit?
- Ég vildi gjarnan vera bóndi í
sveit en ails ekki bóndakona. Ég
var svo heppin að vera alltaf í
útiverkunum með pabba og slapp
því við húsverkin. Þau eru mjög
mikil á stórum bæjum og konurn-
ar komast oft lítið út.
Það væri ef til vill gott að vera
bóndi á Austurlandi vegna þess
að þar er veðrið oft hagstætt og
Alþýðubandalagið sterkara en
annars staðar á landsbyggðinni.
Það bendir til þess að kannski sé
skynsamara fólk á því lands-
horni.
Hvers vegna Alþýðubandalag-
ið?
- Það er sá flokkur sem kemst
næst minni lífsskoðun. Til dæmis
kemur svo greinilega í ljós um
þessar mundir að ekki er sama
hvaða flokkur er við stjórnvöl-
inn. Stjórnarflokkarnir eru að
reyta af öllum félagslegum um-
bótum sem komið var á af síðustu
ríkisstjórn.
Hvernig fannst þér að vera á
þingi í vor?
- Ég var í hálfan mánuð inni
fyrir Geir Gunnarsson. Mér
fannst mjög skemmtilegt að
koma þarna inn og kynnast starf-
inu. En ef maður vill standa sig
vel kostar það óhemju vinnu,
bara það að komast inn í kerfið,
þó ekki nema sé fundasköp og
þess háttar.
Mér fannst sláandi hvað vinnu-
aðstaðan er slæm á Alþingi. Hún
er satt að segja hörmuleg og með-
al annars er skortur á tölvuvæð-
ingu tilfinnanlegur. Aðstaðan er
ekki bjóðandi á vinnustað þar
sem málefni þjóðarinnar eiga að
ráðast.
Vissar ranghugmyndir ríkja
um störf Alþingis. Oft er tekið til
þess hversu fáir sitja í þingsal.
Aðalvinnan fer fram í nefndum
og þar eru ákvarðanir teknar.
Tvískipting deilda held ég að sé
alveg út í hött.
Hvað er helst á dagskrá
hreppsnefndar um þessar mund-
ir?
- Fyrirsjáanlegur kennara-
skortur í haust er það sem við
glímum við þessa dagana. Okkur
vantar kennara hingað. Einnig
vantar okkur stærra skólahús-
næði. Við starfrækjum grunn-
skóla fram að 9. bekk. Vildum
hafa hann með en ekkert pláss er
fyrir hendi. Fjárveiting hefur
ekki fengist til að stækka skólann
sem þegar er um það bil helmingi
of lítill.
Hvað gerir þú í frístundum?
- Daglega eru þær ekki marg-
ar. Vinnan og heimilið taka tím-
ann og nefndarstörfin einnig. En
í sumarfríum fer ég í fjallaferðir.
Var núna að koma af Lónsöræf-
um. Mér finnst nauðsynlegt að
komast út í náttúruna með reglu-
legu millibili. -JP
Lofttjakkar
Háþrýsti tengi
Bjóðum tryggingar eins
og fyrir:
Aimenning: Heimilistryggingar, húseigenda-
tryggingar, bifreiðatryggingar,
ábyrgðartryggingar og bruna-,
vatns- og þjófnaðartryggingar.
Fyrirtæki: Ábyrgðartryggingar, launþega-
trygginar, slysatryggingar,
foktryggingar, bifreiðatryggingar
og miklu meira.
Brunabótafélag íslands
Umboð, Keflavík - Njarðvík
Hafnargötu 58, Keflavík
Símar 3510 og 3511
12 SÍÐA - ÞJv ÐVILJINN Fimmtudagur 16. ágúst 1984
ÞJÓÐVILJINN -
Sandgerði
Spilasalur
og sund
Við erum í hreppsvinnunni,
sögðu stúlkurnar sem Þjóð-
viljinn hitti við fegrun gang-
stétta í Sandgerði. „Þetta er
fín vinna. í sumar höfum við
verið að sópa götur, raka á
íþróttavellinum og hreinsa
arfa í bænum. Við fáum 74,50
á tímann og erum ánægðar
með það. Vinnum frá 7,45 til
18, oftast sex stelpur í hóp.“
Þær eru á sínu árinu hver stúlk-
urnar þrjár úr Sandgerði: Þór-
hildur Sigurðardóttir er 15 ára og
fer í vetur í 9. bekk í Gagnfræða-
skólann í Keflavík, því í Sand-
gerði er ekki kennt lengra en 8.
bekk. Guðbjörg Finnsdóttir er að
verða 17 ára og stundar nám í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja í vet-
ur. Sigríður Pétursdóttirer 16 ára
og hefur lokið 8. bekk í Sand-
gerði. Hún segist ekki hafa efni á
að fara í skóla í vetur og ætlar að
vinna í frystihúsinu. Guðbjörg
æfir handbolta og frjálsar í fríst-
Þórhildur, Guðbjörg og Sigríður hreinsa mosann milli gangstéttarhellna í Sand-
gerði. Eftir vinnu sögðust þær oft fara í nýju sundlaugina sem „er æðislega fín“.
Mynd: eik.
undum. Segir hún enga aðstöðu , hildur og Sigríður sögðust aðal-
til þess í Sandgerði og því húkkar lega fara í spilasal staðarins á
hún sér ávallt far í Keflavík á kvöldin.
kvöldin þar sem hún æfir. Þór- -jp.
ESSO BENSIN
-kemur þér lengra
Bensín bætiefnið es frá hinu virta
vesturþýska efnafyrirtæki BASF er nú
komið á tankana hjá ESSO um nær
allt land.
Es heldur blöndungnum, ventlunum
og sogkerfmu hreinu, tryggir hámarks
aksturseiginleika og endingu vélarinnar
og lágmarks gangtruflanir.
Es er besta bætiefnið sem rannsókna-
stofur ESSO mæla með í dag, eftir
margra ára rannsóknir.
Es vemdar bensínkerfi bílsins gegn
ryði og tæringu.
Es bætiefnið sparar bensín og kemur þér lengra
13