Þjóðviljinn - 01.09.1984, Blaðsíða 1
SUNNUDAGS-
BLAÐIÐ
MENNING
Heimsókn Friedmans
Hver fær ágóðann?
- „Klippið þáttinn!“
Hannes Hólmsteinn óð inn ísjónvarpssal og heimtaði ritskoðun og klippingar á
viðrœðuþœttinum með Friedman. Milton segist ekkertfá. Háskólinn borgar 2-3000$.
Aðgangseyririnn gefur um 250.000 ísl. kr. Hannesfer úr landi.
Að lokinni upptöku á viðræðu-
þættinum við Friedman sem
sýndur var í sjónvarpi í gærkvöldi
bar það til tíðinda að Hannes
Hólmsteinn Gissurarson rauk
inní upptökusalinn og krafðist
þess að klippt yrði úr þættinum.
Það sem einkum fór fyrir brjóst
Hannesi voru umræður um
fjármál kringum heimsókn Fried-
mans, en hagspekingurinn lýsti
því yfir í þættinum að hann fengi
ekkert fyrir framlag sitt hér-
lendis.
Þorvaldur
Skúlason
látinn
Þorvaldur Skúlason listmálari
er látinn. Með honum er genginn
einn áhrifamesti listamaður þjóð-
arinnar. Þorvaldur var fæddur á
Borðeyri við Hrútafjörð, 30. apr-
íl 1906. Hann var sonur hjónanna
Elínar Theódórsdóttur og Skúla
Jónssonar kaupfélagsstjóra. Pau
hjónin fluttust skömmu síðar til
Blönduóss þar sem Þorvaldur
ólst upp. Eftir störf sem farmaður
á Gullfossi, settist Þorvaldur að í
Reykjavík í byrjun 3. áratugarins
og naut leiðsagnar þeirra Ríkarðs
Jónssonar, Þórarins B. Þorláks-
sonar og Asgríms Jónssonar.
Árið 1928 hóf Þorvaldur nám
hjá Axel Revold við Listahá-
skólann í Ósló og 1931 hélt hann
til Parísar þar sem hann nam hjá
Marcel Gromaire við Académie
Scandinave. Tveimur árum síðar
settist hann að í Kaupmannahöfn
og dvaldi þar til ársins 1938. Eftir
að hafa verið sumarlangt í Ta-
ormínu á Sikiley, hélt hann aftur
til Parísar og bjó þar uns Þjóð-
verjar hernámu borgina.
Arið 1940 kom Þorvaldur aftur
út til íslands. Það leið ekki á
löngu þar til hann var orðinn ein-
hver atkvæðamesti umbrotamað-
ur í íslenskri myndlist. Hvert stíl-
brigðið rak annað og ávallt var
Þorvaldur í fararbroddi nýrra
hreyfinga, jafnt sem listamaður
og kenningasmiður.
Leyfum Steini Steinarr að hafa
síðasta orðið um Þorvald:
„Hann gengur að starfi sínu
vitandi vits, tj áning hans er mark-
viss og upprunaleg. Hann reynir
aldrei að komast létt frá viðfangs-
efnum sínum. Út úr myndum
hans geislar sterkur, örlögþrung-
inn persónuleiki, þróttur lifandi
manns, hamingja lifandi manns.
Hann er ævintýri nútímans á sviði
íslenzkra lista.“
HBR
Sé reiknað með að 300 gestir
borgi 1200 krónur í aðgang að
fyrirlestrinum verður ágóðinn,
að frádregnum matarkostnaði,
um 250 þúsund krónur. Ferð frá
New York til Evrópu um Kefla-
vík kostar rúmlega 11.000 krón-
ur. Sé gert ráð fyrir að íslenskir
gestgjafar Friedmans borgi ferð
fram og til baka fyrir hjónin
verða eftir rúmlega 200.000 krón-
ur. Að auki leggur Háskóli ís-
lands til 2-3000 dollara. Er ein-
hver að reyna að græða á heim-
sókn hagfræðingsins?
Þetta dæmi var borið undir
háskólarektor, Guðmund
Magnússon. Hann sagðist ekki
vita meira en að Háskólinn borg-
aði sína tvö til þrjú þúsund doll-
ara. Háskólarektor sagði að
Friedman fengi greitt fyrir heim-
sókn sína þrátt fyrir yfirlýsingar
hagfræðingsins í sjónvarpinu um
hið gagnstæða. Hvað það yrði
mikið vissi Guðmundur ekki.
Greinilegt er að Friedman og
háskólarektor ber ekki saman um
greiðslur fyrir fyrirlesturinn og
krafa Hannesar Hólmsteins um
ritskoðun á þættinum vekur einn-
ig margvíslegar spurningar.
Fram kom í samtalinu við rekt-
or að 2-3000 dollarar væri algeng
upphæð til fyrirlesara af þessu
tæi. Hann var þá spurður hvort
eðlilegt væri að borga slíka upp-
hæð þegar háskólamenn og stúd-
entar þyrftu að auki að greiða
1200 krónur fyrir að hlusta. Guð-
mundur sagði: Þetta er hugsað
sem almennur fyrirlestur. Ekki
Kmbbameinsfélagið flytur
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, viö komuna til vígslu hins nýja húss Krabbameinsfélagsins. Forsetinn
heilsar hér Drífu og Sunnu Snædal Jónsdætrum, sonardætrum dr. Gunnlaugs Snædai formanns Krabbameins-
félag íslands. Sagt er frá þessum merka áfanga í sögu Krabbameinsfélagsins, tölvugjöf sem afhent var í gær og
rætt við dr. Snorra Ingimarsson á bis. 3 í blaðinu í dag. Mynd -ATLI.
hugsað þannig að háskólamenn
hafi neinn forgang.
Þess má geta að Guðmundur
Magnússon er í stjórn Stofnunar
Jóns Þorlákssonar.
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son sagði við blaðamann Þjóð-
viljans að hann færi úr landi í dag.
Guðmundur Magnússon há-
skólarektor sagði hins vegar í við-
tali við blaðið: „Við verðum að
gefa okkur tíma til að ræða þetta
mál í heild“. -m
Stjórnarsáttmálinn
Engar
breyt-
ingar
Aðeins árleg út-
fœrsla á al-
mennu orðalagi
segir forsœtis-
ráðherra
Þrátt fyrir hástemmdar yfirlýs-
ingar framámanna Sjálfstæðis-
flokksins um að nýr stjórnarsátt-
máli sé í burðarliðnum, heldur
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sig enn við þann
gamla.
„Nei, stjórnarsáttmálinn er
óbreyttur. Það verða engar
breytingar gerðar á honum, en
það þarf að útfæra hann hvert
ár“, sagði forsætisráðherra í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
„Stjórnarsáttmálinn er almennt
orðaður og það þarf að útfæra
hann á hverju ári“.
Þess má geta að „nýr“, „endur-
skoðaður“ eða „útfærður"
stjórnarsáttmáli verður kynntur
fyrir þingflokkum stjórnarflokk-
anna á mánudag, en á ríkis-
stjórnarfundi í gær var ekkert um
þetta rætt. Þar voru fjárlögin ein
á dagskrá. ÁI
Hver er staða
kennara í dag?
Sjá leiðaraopnu