Þjóðviljinn - 01.09.1984, Qupperneq 3
FRETTIR________________
Sjálfsgagnrýni:
NT ræðst á stjórnina
- segir ráðherra algjörlega hafa brugðist á verðinum.
- Viðskiptahallinn aukist meira en ætlað var þrátt fyrir minni kaup-
mátt almennings segir forsœtisráðherra.
Ætli Hannes hafi farið hopp-
andi ...?
Ráðherrar Sjálfstæðisflokks-
ins, fjármálaráðherra og við-
skiptamálaráðherra, hafa hér
algerlega brugðist á verðinum,
segir í leiðara NT, málgagns for-
sætisráðherra í gær. Þar er fjall-
að um misheppnaðar efnahags-
aðgerðir ríkisstjórnarinnar nú í
ágúst og viðurkennt að hinn mikli
viðskiptahalli við útlönd sé
„mikið áfall fyrir rikisstjórnina“
misvægi sé orðið mikið milli at-
vinnuveganna. „Milliliðirnir hafa
bæði safnað miklum gróða, sem
settur hefur verið í fjárfestingu,
eða varið til yfirborgana“, segir
þar. Jafnframt viðurkennir NT
að efnahagsskák ríkisstjórnar-
innar háfi þrengt svo að tckju-
lægri launastéttum eins og opin-
berum starfsmönnum að „það
hafi aukist hraðbyri að hér væru
að myndast tvær stéttir, sem
skiptust eftir tekjum og efnahag.“
„Ég get tekið undir að við-
skiptahallinn hefur reynst meiri
en ætlað var“, sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra,
þegar Þjóðviljinn bar undir hann
þessa gagnrýni í hans eigin mál-
gagni á störf stjórnarinnar.
„Þetta er eitt af þeim vandamál-
um, sem við er að glíma. Það
bendir til þess að það sé meira
fjármagn í gangi en æskilegt væri
iþrátt fyrir minni kaupmátt al-
mennings“, sagði forsætisráð-
herra, sem kvaðst hins vegar ekki
vera búinn að lesa þessa hispurs-
lausu játningu á villuráfi ríkis-
stjórnarinnar, og því ekki tilbú-
inn að svara nánar ásökunum
leiðarahöfundar málgagnsins. En
hann klikkir út með því að þjóðin
sé að glata efnalegu sjálfstæði
sínu undir forystu formanns
Framsóknarflokksins!
ÁI/JH.
Tölvubúnaðinum nýja hefur verið komið fyrir í kjallaranum að Skógarhlíð. Sigurjón Guðmundsson er forstöðumaður
tölvudeildarinnar. Mynd-ATLI.
Krabbameinsfélagið
Nýtt hús og
fullkomin tölva
Píanótónleikar
„... Það var eins og Beethoven
sjálfur væri að spila“, ku hrifinn
gagnrýnandi hafa sagt einhverju
sinni um píanóleik Edith Picht-
Axenfeld, en hún er nú stödd hér
á landi og hefur í æði mörgu að
snúast, - hún hefur að undan-
förnu haldið námskeið fyrir
píanókennara, hún mun flytja
fyrirlestur um Schubert og spila
að honum loknum og hún heldur
tvenna tónleika á vegum Tónlist-
arfélagsins og Musica Nova.
Við hittum hana á dögunum og
hún er ekki vitund lík Beethoven
í framan. Á andliti hennar er ekki
þessi brúnaþungi ólundarsvipur
heldur er þetta góðleg kona um
Prófessor Edith Picht-Axenfeld spilar
á sunnudag og þriðjudagskvöld.
sjötugt. Hún lék dálítið fyrir okk-
ur og sagði okkur frá ferðalagi
sínu um norðurland og veður-
blíðunni þar. Hún er fædd 1914 í
Freiburg og lærði á píanó hjá
Anna Hirzel-Langenhan og Ru-
dolf Serkin og á orgel hjá Wolf-
gang Auler og Albert
Schweitzer. Hún leikur jöfnum
höndum á píanó og sembal - spil-
ar jafnt barokk sem harðvítuga
nútímatónlist og hefur verið pró-
fessor í Freiburg síðan 1947.
Edith Picht-Axenfeld heldur á
sunnudaginn tónleika á vegum
Musica Nova í Menntaskólanum
við Hamrahlíð klukkan 17.00 og
þar spilar hún eingöngu tónlist
frá 20. öld eftir Schönberg og
þrjú núlifandi tónskáld, Helmut
Lachenmann, Heinz Holliger og
Luigi Nono, en í verki þess síð-
astnefnda leikur hún á móti tón-
bandi.
En hún mun ekki síst þekkt
fyrir túlkanir sínar á klassískum
og rómantískum tónskáldum og á
þriðjudagskvöldið verður hún á
þeim brautum á tónleikum á veg-
um Tónlistarfélagsins sem verða í
Austurbæjarbíói klukkan 19.15.
Á þeim tónleikum leikur hún
verk eftir Mozart, Beethoven og
Schubert.
-gat.
Blönduvirkjun
Reist
af Júgóslövum?
Fyrir mér er þetta félag hugsjón
og ekkert er því of gott, sagði
Snorri Ingimarsson sérfræðingur
í krabbameinslækningum við
Þjóðviljann í gær. Hann var við-
staddur vígslu nýja hússins, ný-
ráðinn forstjóri Krabbameinsfé-
lags íslands til eins árs.
Nýja húsnæði Krabbameinsfé-
lagsins að Skógarhlíð 8 er um
1800 m2. Kostnaður við byggingu
þess er á milli 46-48 miljónir
króna. Eldri hús félagsins við
Suðurgötu hafa verið seld og
flytur félagið skuldlaust inn í nýja
húsnæðið.
Krabbameinsfélaginu hefur
verið færður tölvubúnaður sem
er með þeim fullkomnustu á
landinu. 23 aðilar, allir helstu
seljendur tölvubúnaðar hér á
landi ásamt nokkrum stærstu not-
endum tölva á landinu, tóku
Dr. Snorri Ingimarsson forstjóri
Krabbameinsfélagsins fyrir framan
anddyri nýja hússins að Skógarhlíð 8.
Mynd-ATLI.
höndum saman og færðu félaginu
þessa gjöf sem er að andvirði á
annan tug miljóna.
Dr. Snorri Ingimarsson sagði í
gær að sín biði að samræma það
starf sem þegar er í gangi hjá
Krabbameinsfélaginu og því sem
bíður þess í framtíðinni. „Mögu-
leikarnir eru ótakmarkaðir.
Þessa félags bíður það mikið starf
að ekki er hægt að sjá fyrir
endann á því. Við erum nú að
uppskera það sem sáð var um
1950. Ætlunin er að rækta þá
uppskeru vel“. Snorri sagði mjög
mikilvægt við nýja húsið að nú
yrði aðstaða til að veita þeim
húsnæði og aðstoð sem þegar
hafa fengið krabbamein og stofn-
að með sér samtök. Einnig sagði
hann tölvubúnaðinn auðvelda
starfsemina gífurlega mikið.
- jP-
Júgóslavneska fyrirtækið Ingra
Group mun að öllum líkindum
hreppa það hnoss að sjá um sex
verkhluta véla- og rafbúnaðar
Blönduvirkjunar, en tilboð voru
opnuð hjá Landsvirkjun á
fimmtudag.
Ingra Group bauð í alla verk-
hlutana sex og bauð auk þess 5%
afslátt ef öllum tilboðum þeirra
yrði tekið. Með þeim afslætti er
heildartilboðsfjárhæð júgóslavn-
eska fyrirtækisins um 465 miljón-
ir króna en ráðunautar Lands-
virkjunar töldu kostnað geta orð-
ið um 680 miljónir króna. Stærsti
verkþátturinn er hverflar, rafalar
og fylgibúnaður í virkjunina og
nam tilboð Ingra Group aðeins
66.8% af kostnaðaráætlun.
Landsvirkjun á eftir að taka af-
stöðu til útboðanna en niður-
staða liggur fyrir innan tíðar.
-v.
Hvalvertíðin
Sandreyðarveiðin hafin
Veiði á sandreyði er nú hafin,
en sandreyðurin gengur yfir-
leitt á veiðislóð við landið upp úr
miðjum ágúst. Að sögn Péturs
Andréssonar hjá Hval hf. er búið
að veiða 39 sandreyðar, þar af
hafa 12 náðst í þessari viku. AIls
mega íslendingar veiða 100 á ár-
inu.
Búið að veiða 39 dýr
„Sandreyðurin heldur sig
svona 50 mílur beint suður af
Reykjanesi, og það er svona 15
tíma stím fyrir bátana", sagði
Pétur. „Stundum gengur hún þó
norðar, og er þá beint útaf Faxa-
flóanum".
Sandreyðurin er miklu minni
skepna en langreyðurin sem við
veiðum lt'ka mikið af, eða um 40
fet og 20 til 23 tonn að þyngd.
Miklu minna er vitað um ferðir
hennar og stofna en langreyðar-
innar.
Þess má geta að enn á eftir að
veiða tvær langreyðar af kvóta
okkar fyrir árið, sem var 167 dýr.
-ÓS
Á 5. hundrað
nemendur
IMenntaskólanum í Kópavogi
eru á 5. hundrað nemendur en
ekki 240 eins og kom fram í Þjóð-
viljanum í síðustu viku og
leiðréttist nú.
Mikil aðsókn er að mennta-
skólabraut en lítil að tveggja ára
brautum, nema viðskiptabraut.
Aðrar tveggja ára brautir við MK
eru: heilsugæslubraut, uppeld-
isbraut og íþróttabraut.
Leiðrétting
Prentvillupúkinn réð sig á mála
hjá stjórnarflokkunum í frétt
Þjóðviljans af kjördæmisráð-
stefnu Alþýðubandalagsins á
Vestfjörðum í Þjóðviljanum sl.
fimmtudag. Þar stóð að
kaupránsstefna stjórnvalda hafi
staðið í nokkur ár. í ályktun AB
um verkalýðsmál var þetta hins
vegar orðað þannig að
kaupránsstefnan hafi staðið
„nokkuð á annað ár“. Leiðréttist
þetta hér með. -v.
Laugardagur 11. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3