Þjóðviljinn - 01.09.1984, Page 4

Þjóðviljinn - 01.09.1984, Page 4
LEIÐARI Lífskjör á Islandi: 600-700 kr. til ráðstöfunar á viku Þjóöviljinn hefur undanfariö greint frá nokkr- um raunverulegum dæmum um lífskjör venju- legs launafólks á íslandi. Þær staðreyndir sýna hvernig stefna ríkisstjórnar og atvinnu- rekenda hefur þjarmað aö högum fólks. Þegar skyldugreiðslur í skatta og húsaleigu og ýmsa aðra lögbundna liði hafa verið inntar af hendi þá á fólk ekki eftir nema 600-700 kr. á viku til að kaupa fyrir mat, föt og aðrar lífsnauðsynjar. Á fimmtudag birtist hér í blaðinu frásögn af kjörum einstæðrar iðnverkakonu á sextugs- aldri. Hún fær samtals í laun á mánuði 14.257 krónur sem er svipað og fjölmargt iðnverkafólk ber úr býtum. Þegar búið er að draga frá skatta, útsvar og önnur skyldugjöld fær hún útborgað á mánuði 12.266 kr. Þá er komið að því að greiða 1.406 kr. í húsgjald, 1.660 í raf- magn, 652 kr. í strætisvagnagjöld til og frá vinnu og síðan 6.000 kr. í húsaleigu. Þegar þessi iðnverkakona, sem er dæmi- gerð fyrir þúsundir launafólks, hefur greitt öll þessi óhjákvæmilegu gjöld á hún eftir 625 kr. á viku til að kaupa fyrir allan mat, fatnað og allt annað sem telst til lífsnauðsynja hjá venjulegu fólki. Hún hefur hvorki efni á að hafa útvarp eða síma. Þessi kona hefur unnið hörðum höndum alla ævi og nú leikur kjarastefna at- vinnurekenda og ríkisvalds hana svona grátt. Hvernig væri að Þorsteinn og Steingrímur prófuðu ásamt Magnúsi Gunnarssyni að lifa af 625 kr. á viku. Þjóðviljinn birti í vikunni einnig annað dæmi. Þar var lýst kjörum ungrar iðnverkakonu sem vinnur í sælgætisgerð. Hún fær einungis 12.913 kr. í mánaðarlaun eða mun minna en sú iðnverka kona sem áður var lýst. Þessi unga verkakona fær ekki nema 9.054 kr. út- borgaðar á mánuði. Þegar hún hefur greitt óhjákvæmileg gjöld til að komast með strætó í og úr vinnu, standa straum af sínum hluta húsaleigunnar og greiða rafmagn, þá á þessi unga stúlka ekki eftir nema 750 kr. á viku til að kaupa fyrir mat og föt og lyfta sér upp á hvíldar- dögum. Þessi dæmi eru ekki einstök. Þúsundir launafólks búa við svipuð kjör. Mikill fjöldi kennara sem býr sig nú til kjarabaráttu hefur ekki mikið betri laun en þær konur sem hér hafa verið nefndar. Hjá ríki og bæjarfélögum vinna einnig aðrir hópar launafólks á slíkum lágmarkslaunum. Þegar þessar staðreyndir eru hafðar í huga er skiljanlegt að samtök launafólks hafa sett fram kröfur um verulega leiðréttingu. Það er hins vegar furðulegt að Alþýðuflokksmenn sem eru í forystu verkalýðsfélaga á Vestfjörð- um séu að hugleiða að gera um þessa helgi kjarasamning sem einungis mun bæta 1 krónu og 25 aurum ofan á tímakaup fiskverkunar- fólks. Guðmundur J. Guðmundsson hefur eðlilega lýst mikilli furðu sinni yfir þessum vinnubrögðum Alþýðuflokksmanna í verka- lýðsforystunni á Vestfjörðum. Morgunblaðið og atvinnurekendur eru hins vegar mjög ánægðir með þennan undanslátt. Því verður ekki trúað að aðrir forystumenn Alþýðuflok- ksins styðji gerð slíkra kjarasamninga. Það verður rækilega gengið eftir afstöðu þeirra. Alþýðuflokkurinn gengur undir próf um þessa helgi. Ætlar hann að taka þátt í því að staðfesta þau hróplegu lífskjör sem hér hefur verið lýst? Forystumenn ríkisstjórnar og atvinnurek- enda ættu hins vegar að lýsa því opinberlega hvernig þeir telja að hægt sé að lifa á 600-700 kr. á viku. Ó-ÁLIT „Góði, þú hefur ekki efni á að tala við þennan. Það kostar 1200 kall orðið! DJÓÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Rltstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fréttastjórar: Óskar Guðmundsson, Valþór Hlöðversson. Blaöamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðrikssson Halldóra Sigur- dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Súsanna Svavarsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), össur Skarp- hóðinsson. Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson. Útlit og hönnun: Björn Brynjúlfur Björnsson,Svava Sveinsdóttir, Þröstur Haraldsson. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir. Auglýsíngastjóri: ólafur Þ. Jónsson. Auglýsingar: Margrót Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir, Anna Guðjónsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Sfmavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bflstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumaöur: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Sfðumúla 6, Reykjavfk, sfmi 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjoöviljans hf. Prontun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 22 kr. Sunnudagsverð: 25 kr. Áskriftarverð á mánuði: 275 kr. 4 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 1. september 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.