Þjóðviljinn - 01.09.1984, Síða 15
Útisýning
i
Mosfellssveit
Laugardaginn 1. sept kl. 14.00
opna 10 ungir myndlistamenn
útisýningu í landi Dallands í Mos-
fellssveit. Verkin eru flest unnin
með tilliti til þeirra möguleika sem
staðhættir leyfa, annaðhvort
beint í landið eða sem sjálfstæðir
skúlptúrar úr aðfengnum efnum.
Þeir sem sýna eru: Sigríður Ell-
iðadóttir, Nanna K. Skúladóttir,
Gunnar Arnason, Þórdís A. Sig-
urðardóttir, Ólafur Sveinn Gísla-
son, Anna Guðjónsdóttir, Krist-
inn E. Hrafnsson, Ragnhildur
Stefánsdóttir, Helga Júlíusdóttir
og Anna Sigríður Sigurjónsdótt-
ir.
Til að komast á sýningarsvæðið
er Suðurlandsvegur ekinn frá
Reykjavík, að afleggjaranum við
Geitháls. Þar er beygt til vinstri
og ekið sem leið liggur u.þ.b. 5
km. langan malarveg. Leiðin
mun þó verða merkt væntan-
legum gestum til leiðbeiningar.
Aðgangur er ókeypis. Sýning-
unni lýkur sunnudaginn 16. sept-
ember.
Þau sýna á Kjarvalsstöðum. Frá vinstri: Kristján, Guðmundur, Guðmunda, Valtýr og Jóhannes. Ljósm. eik.
„Úthaldið fyrir mestu“
„Úthaldið er fyrir mestu. Menn
skortir oft úthald og gleyma því
að ef þeir gefast ekki upp, þá
kemur að því að þeir uppskera.
Ég býst við að það sé einstakt,
ekki bara hér, heldur einnig þótt
víðar sé leitað, að finna hóp sem
hefur sýnt saman í nærri 40 ár.
Þetta sýnir hvað hægt er að gera
með úthaldinu" sagði Valtýr Pét-
ursson einn úr Septem-hópnum,
sem nú sýnir á Kjarvalsstöðum
og vantar aðeins 3 ár í aö þessi
hópur hafi sýnt saman í 40 ár.
„Við erum að verða stofnun í
þjóðfélaginu, en mér sýnist við
ekki hafa mikil áhrif á unga fólk-
ið, sem nú er að mála. Þegar gerð
var hvað höfðust atlaga að mál-
verkinu, þjöppuðumst við saman
og það hefúr sýnt sig að málverk-
ið er ódrepandi og lifir allt af“,
sagði Valtýr ennfremur.
A sýningunni eru eingöngu ný
olíumálverk, auk skúlptúra Guð-
mundar Benediktssonar, mynd-
höggvara sem sýnir sem gestur
með Septemhópnum. Málverkin
eru eftir þau Jóhannes Jóhannes-
son, Kristján Davíðsson, Valtý
Pétursson, Þorvald Skúlason og
Guðmundu Andrésdóttur, en
Steinþór Sigurðsson og Karl
Kvaran sem báðir tilheyra hópn-
um, sýna ekki með að þessu
sinni. Sýningunni lýkur 16. sept.
þs
Þrír
að norðan
i
Listasafni
ASÍ
„Viö viljum gjarnan sjá verk
okkar í öðru Ijósi en þau eru
sköpuð í og fá víðari umfjöllun um
þau“ sögðu norðlensku lista-
mennirnir Óli G. Jóhannsson,
Guðmundur Ármann og Kristinn
G. Jóhannsson sem opna í dag
sýningu í Listasafni ASÍ undir
heitinu „Exsept".
Þeir eru allir búsettir á Akur-
eyri og sögðu að salur af þessu
tagi fyrirfyndist ekki þar nyrðra
og væri sannarlega þess virði að
sjá eigin verk í sal eins og Lista-
safnið býður upp á.
„Annars er gott að mála fyrir
norðan, þótt okkur vanti bæði
betra sýningarhúsnæði og meiri
og faglegri umfjöllun.
Það er mikill myndlistaráhugi á
Akureyri og nú eru að koma
heim ungir, menntaðir mynd-
listarmenn, sem mikils má vænta
af“, sögðu þeir þremenningarnir.
Á sýningu þeirra eru um 60 verk,
grafík, akrílverk, olíumálverk og
teikningar.
þs
Nú gerir Samvinnubankinn þér mögulegt
aö f ú 26% úrsúvöxtun af sparifé þínu
Hin nýju vaxtakjör Samvinnubankans hafa í för með sér betri ávöxtun sparifjár en áður.
Hér eru nokkur dæmi um breytingar á innlánsvöxtum frá 1. september 1984:
ÁÐUR NÚ
SPARIREIKNINGAR, MEÐ 3 MÁNAÐA UPPSÖGN: 19,9% 21.0%
ÁVÍSANAREIKNINGAR 7,0% 12,0%
HLAUPAREIKNINGAR 7,0% 9,0%
SPARIVELTUREIKNINGAR 17,0% 20%
NÝJUNG: SPARIREIKNINGAR, MEÐ 6 MANAÐA UPPSÖGN 26%
Samvmnubankinn
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15