Þjóðviljinn - 05.09.1984, Page 6
KORSTARF
Laus störf í
feS menntamálaráðuneytinu
Menntamálaráöuneytið óskar að ráða
ritara og
aðstoðarmann í skjalasafni.
Æskilegt er, að umsækjandi um síðarnefnda starfið hafi þekkingu á
skjalavörslu og tölvunotkun.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og störf skulu hafa borist
menntamálaráðuneytinu. Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 20.
september n.k.
Menntamálaráðuneytið,
3. september 1984.
Sjóefnavinnslan hf.
Hlutafjárútboð
Sjóefnavinnslan hf. auglýsir hér með hlutafjárútboð af
nafnverði kr. 15.000.000.- með útboðsgengi 2,47.
Hluthafar hafa forkaupsrétt að öllum aukningarhlutum
í hlutfalli við hlutafjáreign sína til 31. október ’84. Eftir
þann tíma eru kaup hlutabréfa heimil öllum innlendum
aðilum, en útboðið stendur til 28. febrúar ’85. Nánari
upplýsingar og gögn eru til staðar á skrifstofu félags-
ins, Vatnsnesvegi 14, Keflavík sími 92-3885.
Stjórn Sjóefnavinnslunnar hf.
fJ&J ísafjarðar-
rí|F kaupstaður
Itafjörður
Staða félagsmálafulltrúa
Auglýst er laus til umsóknar staða félagsmálafulltrúa
hjá kaupstaðnum.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 94-3722
eða á skrifstofu.
Umsóknarfrestur er til 14. sept. n.k.
Umsóknum skal skila til bæjarstjórans að Austurveqi
2 ísafirði.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
Listasafn íslands
Tilboð óskast í einangrun útveggja, múrverk, lagnir
hita-, hreinlætis-, loftræsi- og raflagna ásamt uppsetn-
ingu loftræsitækja fyrir byggingu Listasafn íslands við
Fríkirkjuveg í Reykjavík. Húsið er tvær hæðir og kjall-
ari, alls um 2830 m3.
Verkinu skal að fullu lokið 1. júní 1985. Útboðsgögn
verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykja-
vík, gegn 5.000 kr.skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 25.
september 1984 kl. 11:00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
ÓDÝRARI
barnaföt
bleyjur
leikföng
,eV\^
• S'
.s^P1
Dúlla
Snorrabraut 22
Hafnarfjarðarhöfn
Verðbúðir við smábátahöfn.
Hafnarstjórn Hafnarfjarðar auglýsir lausar til umsókn-
ar lóðir undir verðbúðir við smábátahöfnina í Hafnar-
firði.
Upplýsingar um teikningar, fyrirkomulag, skilmála og
umsóknareyðublöð er að fá á hafnarskrifstofunni
Strandgötu 4, sími 53444 og 50492.
Umsóknarfrestur um þessar lóðir er til 14. september
1984 og skal umsóknum skilað á hafnarskrifstofuna.
Hafnarstjórnin.
Kór Langholtskirkju
hefur vetrarstarfið
Kór Langholtskirkju byrjar nýtt
starfsár sitt í septemberbyrjun
n.k. Fyrst á verkefnaskrá vetrar-
ins er vígsla nýrrar kirkju, sem er
hið fegursta guðshús um leið og
hún er frábært tónleikahús. Öll
aðstaða er hin besta til tónleika
og hljómburður kirkjunnar er
þegar þekktur meðal tónlistarað-
dáenda. Kirkjan mun rúma um
500 manns í sæti.
Þá verður tekið til við þættina
„Tökum lagið“ og verða fluttir
þrír þættir í sjónvarpi fram til ára-
móta.
Um jólaleytið verður 4.-6.
hluti Jólaóratóríunnar fluttur í
Langholtskirkju.
Eftir áramótin verður byrjað á
undirbúningi fyrir söngför kórs-
Jón Stefánsson söngstjóri.
ins til Austurríkís, Ítaiíu og
Þýskalands. Verður sú ferð farin í
lok maí og sungið í mörgum
helstu tónlistarborgum þessara
landa, s.s. Vín, Munchen og Fen-
eyjum. Mun síðari hluti starfsárs-
ins að mestu leyti fara f þann
undirbúning en ekki er alveg
ákveðið hvert verður lokaverk-
efni kórsins næsta vor.
Kór Langholtskirkju óskar
eftir nokkrum söngvurum í allar
raddir. Óskað er eftir því að þeir
hafi einhverja kunnáttu í tónlist
en það er þó ekki skilyrði. Þeir
sem áhuga hafa á að komast í kór-
inn hafi samband við Jón Stefáns-
son söngstjóra í síma 84513 eða
formann kórsins Gunnlaug V.
Snævarr í síma 26292.
Tónlistarfélagið
Eitthvað fyrir alla
Vetrarstarf að hefjast
Farfuglarnir leggja leið sína til ís-
lands þegar haustar og þeir
koma hingað jafnt og þétt allan
veturinn en þegar vorar hverfa
þeir aftur. Hér er ekki átt við
þessa venjulegu sem segja bí bí
heldur hina úr mannheimum sem
ferðast um heiminn og spila og
syngja fyrir fólk og þeir koma
hingað ekki síst fyrir atbeina
Tónlistarfélagsinssem erorðið
gamalt og virðulegtfélag. Þegar
það hefur vetrarstarfsemi sína þá
vitum við að sannleikurinn verður
ekkiöllu lengurumflúinn: það
haustar.
Tónlistarfélagið hefur einhvers
konar skrifstofu í Garðastræti, en
hún er ekki eins og aðrar skrif-
stofur með tölvum og ritvélum og
ljótum gardínum, heldur er þetta
hlýleg íbúð og þegar við litum
þarna inn í vikunni tók Rut
Magnússon á móti okkur með
pilsner og smurðu brauði. Rut
sagði okkur frá farfuglunum.
„Við reynum að hafa eitthvað
fyrir alla“ - sagði hún - „það'
verða þrír mjög ólíkir píanistar,
kammermúsikhópar og söngvar-
ar hjá okkur í vetur“. Fyrsta upp-
ákoman var í gærkvöldi (þriðju-
dagskvöld) þegar þýski píanó-
prófessorinn Edith Picht-Axenfeld
lék Mozart, Beethoven og Schu-
bert á glæsilegarí hátt við góðar
undirtektir.
Næstu tónleikar eru dálítið
flókið mál því þeir eru eiginlega í
fyrra. Rut útskýrði fyrir okkur að
þetta hafi átt að verða lokatón-
íeikar vetrarins 1983-’84 en hafi
fallið niður þá. Laugardaginn 20.
október verða því 10. tónleikar
starfsvetrar. Berwald-kvartett-
inn frá Svíþjóð spilar þá og hann
mun skipaður ungum tónlistar-
mönnum.
Önnur kammermúsík í vetur á
vegum félagsins verður þýsk
kammersveit þann 4. nóvember
sem spilar barokk, nútímamúsík
og allt þar á milli og - Empire
Brass Quintet sem spilar í apríl á
næsta ári. Þar er kominn einn
besti blásarakvintett í heiminum,
„leikur þeirra er hrein upplifun
firá upphafi til enda“, er haft eftir
kunnugum.
Einleikarar á vegum Tónlist-
arfélagsins verða fjórir í vetur:
þrír píanistar og einn fiðlari.
Fyrst er Edith Picht-Axenfeld nú
á þriðjudag, virðulegur píanisti
um sjötugt, síðan er það Edda
Erlendsdóttir sem spilar hér í j an-
úar á næsta ári og í maí kemur svo
Dag Achatz frá Svíþjóð, hann
stundar það að spila Vorblótið og
þvflík risaverk á píanóið eitt og
hefur vakið athygli.
Frá Sovétríkjunum kemur fiðl-
arinn Viktoria Mullova. Hún er
pólitískur flóttamaður og býr nú í
New York og hefur unnið fiillt af
verðlaunum gegnum tíðina. Hún
spilar í apríl.
Söngdeildin verður í góðu lagi
hjá Tónlistarfélaginu í vetur.
Fyrstan ber frægan að telja Nicol-
ai Gedda „einn stórkostlegasti
lýriski tenór okkar tíma“ eins og
hann hefur verið nefndur - hann
kemur í janúar. í nóvember kem-
ur Margareta Haverinen sópran-
söngkona sem er rússnesk-
finnsk, hlaðin alls kyns verð-
launum og Rut fullvissaði okkur
um að hér færi mikill listamaður.
Dalton Baldwin verður hér enn á
ferð í mars á næsta ári og með
honum Janice Taylor mezzó-
sópran.
Tónlistarfélagið heldur tíu tón-
leika í vetur en ekki er fullfrá-
gengið hvað verður á lokatón-
leikunum. Rut sagði okkur að
fyrirhugað væri að þeir yrðu til
minningar um Ragnar í Smára
sem var einn af máttarstólpum
félagsins meðan hans naut við.
Félagið ætlar sér að stækka og
eflast: Menn geta gerst styrkt-
arfélagar með því að útfylla þar
til gerð eyðublöð sem liggja víðs-
vegar um bæinn, m.a. í ístóni,
Freyjugötu \ og sent skrifstofu
félagsins Garðastræti 17. Þeir
sem eru ekki gefnir fyrir skrif-
finnsku af því tagi geta einfald-
lega hringt á skrifstofuna í síma
17765. Allir þeir sem eitthvert
eyra hafa fyrir tónlist ættu því að
arka um bæinn og skima eftir
eyðublöðum frá Tónlistarfé-
laginu. -®at
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 5. september 1984