Þjóðviljinn - 05.09.1984, Blaðsíða 11
Vörusýningin
Sovéskir bílar, bækur og frímerki
MUIi Sovétríkjanna og íslands
hafa verið traust og góð við-
skiptatengsl um árabil. í fyrra
var til að mynda þrjátíu ára af-
mæli viðskiptasambands á milli
landanna.
Þetta sagði Valentín Tarabara,
fulltrúi Iðnaðar- og Verslunar-
ráðs Sovétríkjanna, en hann er
staddur hér á landi um þessar
mundir í tengslum við vörusýn-
inguna í Laugardalshöll.
Valentín Tarabara nefndi sem
dæmi um viðskipti milli ríkjanna
að ýmis konar orkubúnaður í Sig-
öldu hefði verið keyptur frá So-
vétríkjunum og gagnast mjög vel.
Landsvirkjun hefði þannig ekki
komið fram með neinar kvartanir
yfir honum.
Á sýningunni í Laugardalshöll
mun stofnun sú sem Tarabara er
fulltrúi fyrir kynna starfsemi
tveggja sovéskra fyrirtækja,
Auto Export og International
Book. Hið fyrra fer með bílaút-
flutning frá Sovétríkjunum og
Valentín vakti af því tilefni at-
hygli á því að íslendingar hafa
tekið sovéskum bílum tveim
höndum síðastliðin ár og benti á
að Lada bflarnir væru afar vinsæl-
ir á fslandi.
„Vegum á íslandi og sums
staðar í Sovétríkjunum svipar
nokkuð saman“, sagði Valentín
og kímdi. „Það þurfa því að vera
sterkir og góðir bflar sem ísiend-
ingar og Sovétmenn þurfa til að
kljást við samgöngukerfið á
stundum, einkum þegar snjór og
vetrar ríkja“. Þess má geta að
nýjasta bflategundin frá Auto
Export, Lada lux, verður sýnd á
stalli Sovétmannanna. En Lada
lux hefur farið mikla sigurför um
löndin að sögn Tarabara, og hef-
ur til dæmis verið seld um sex
mánaða skeið hér á íslandi og á
fýrri helmingi þessa árs var bif-
reiðin í öðru sæti yfir söluhæstu
bflana, og munaði víst ekki nema
Valentín Tarabara frá Sovét: „Vegum á íslandi og sums staðar í Sovétríkjunum
svipar nokkuð saman (eins hjörtum mannanna í Súdan og Grímsnesinu), og
þess vegna þarf góða bíla“. Fyrir aftan glittir í Lada lux, einn vinsælasta
farkostinn á landi frosts og funa um þessar mundir, en hann er afurð samvinnu
Fíat verksmiðjanna og sósíalísku sovétlýðveldanna fimmtán. (Ljósm -eik).
hársbreidd að hún skipaði fyrsta
sætið.
Hitt fyrirtækið sem Valentín
Tarabara kynnir í Laugardals-
höllinni fæst við menningariðju.
„Það gefur út bækur eftir sígilda
sovéska höfunda, sígilda tónlist á
plötum og verslar þar að auki
með frímerki. Við verðum með
sýnishom af þessum vörum á
básnum okkar í Laugardalshöll.
Af bókum verðum við fyrst og
fremst með listaverkabækur,
mjög litskrúðugar og fallega
prentaðar", og þessu til staðfest-
ingar sýnir Valentín Tarabara
okkur mjög vandaðar bækur með
litprentuðum myndverkum,
„einnig barnabækur, upsláttarrit
af ýmsu tæi og síðast en ekki síst
þekkta rússneska höfunda á borð
við Dostojefskí, Gógol, Tolstoj
og fleiri. Við verðum líka með
bækur um skák, því það virðist
vera nokkurs konar þjóðaríþrótt
hér á íslandi einsog heima í So-
vétríkjunum. Við verðum líka
með alls konar hljómplötur og
frímerki“, sagði Valentín Tara-
bara að lokum. -ÖS
Einn fallegasti básinn á sýningunni í Laugardalshöllinni er án efa Kosta Boda básinn enda varningurinn heimsþekktur
fyrir frábæra hönnun. Sænskur kristall og hvers konar glervörur á tilboðsverði í Kosta Boda bás Heimilisins og
fjölskyldunnar og allt upp í 30% afsláttur í boði. Ljósm. eik.
DANSSKÓLINN
ans
yiunff
(Kolla) ^^
Kennsla hefst mánudaginn 10. september
Innritun er hafin í byrjendahópa.
Framhaldsnemendur hafið samband sem fyrst.
Yngst tekið 4 ára.
Kennslustaðir: Tónabær, Æfingastöðin Engihjalla 8,
Kópavogi og Mosfellssveit.
Við kennum Disco, Jazz, Lotur sem staka dansa,
Ðreak og að sjálfsögðu kennir íslandsmeistarinn
Stefán Baxter.
Dansarnir eru frábærir enda voru móttökurnar á Spáni
sem dansarnir og dansararnir okkar fengu eitt rosalega
gott dæmi.
Konur
kennt verður á daginn sem á kvöldin konubeat.
Barnapössun á staðnum.
Innritun í síma 46219 kl. 10—6 alla
daga nema sunnudaga.
Afhending
skírteina fer fram
sem hér segir:
Tónabæ:
laugard. 8. sept. kl. 3 - 5.
Æfingastöðinni
Engihjalla 8, Kóp.
sunnud. 9. sept. kl. 6 - 8.
Mosfellssveit
Félagsmiðstöðin Ból
föstud. 14. sept. kl. 11 - 1.
Verið velkomin
Kolbrún Aðal-
ctpincdðttir.
Miðvikudagur 5. september 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11