Þjóðviljinn - 05.09.1984, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Miðvikudagur 5. september 1984 200. tölublað 49. árgangur
MOÐVIUINN
Fjármál Fnedmanheimsóknarinnar
Háskólinn borgaði Hannesi
Þetta var ekki háskólafyrirlestur. Viðskiptadeildfékk bara að vera með gegn greiðslu, segir
framkvœmdastjóri þingflokks Sjálfstœðisflokksins
að er ekki rétt að það sé
stórhagnaður af þessum
fyrirlestri. Eg get ekki sagt til
um hver endanleg útkoma
verður. Ég veit bara að við
komumst framúr þessu, sagði
Friðrik Friðriksson fram-
kvæmdastjóri þingflokks
Sjálfstæðismanna og einn
forsvarsmanna Stofnunar
Jóns Þorlákssonar en í sjóð
þeirrar stofnunar mun ágóð-
inn renna að sögn Friðriks.
„Það var vinur minn Hann-
es Gissurarson sem nú er far-
inn úr landi sem hefur þær
tölur nákvæmar“, sagði Frið-
rik aðspurður um framlag Há-
skólans til Friedmanheim-
sóknarinnar. Hann vildi ekki
láta uppi hve mikið Stofnun
Jóns Þorlákssonar greiddi Fri-
edman fyrir fyrirlesturinn.
„Ég segi það ekki, en það var
góð summa“.
„Háskólanum var gefinn
kostur á að vera með í þessum
hádegisverði. Það var enginn
opinn fundur í Háskólanum
eins og venjan er og þeir
gengu inn á þetta gegn
ákveðnu framlagi og þeir
fengju þá að vera annar aði-
linn að þessum fundi. Eins og
ég skil þetta þá er þetta ekki
þessi hefðbundni háskólafyr-
irlestur.“
Viðskiptadeild var þá meira
óformlegur aðili að þessu og
allur undirbúningur og sam-
skipti við Friedman fór fram í
gegnum ykkur. Háskólinn
kom þar hvergi nærri?
„Nei, ekki neitt“, sagði
Friðrik Friðriksson. _ i„
Torghöllin
undir
hamarinn?
Auglýst hefur verið annað og
síðasta nauðungaruppboð á hlut
Kristjáns Knútssonar í Hafnár-
stræti 20 og fer það fram n.k.
fímmtudag. Hlutur Kristjáns er
um 30% en eigendur eru 9 talsins,
þeirra á meðal SVR sem á 6,63%.
„Það er oft að hlutunum er
bjargað á síðustu stundu til allrar
hamingju", sagði Jónas Gústafs-
son borgarfógeti í gær. „Við
erum því löngu hættir að taka
saman þessar fjárhæðir fyrr en ef
og þegar að nauðungarsölu kem-,
ur. Ég get því ekkert um fjárhæð-
irnar sagt en þetta er langur og
Ijótur listi“.
Kröfuhafar eru Gjaldheimtan í
Reykjavík, Iðnaðarbanki ís-
lands, Útvegsbanki íslands,
Landsbanki Islands og Inn-
heimtustofnun sveitarfélaga
ásamt 22 lögfræðingum. Fast-
eignamat hússins 1. desembers.l.
var 19.5 miljónir króna og nýlega
var veitt heimild til að byggja
eina hæð ofan á húsið. _ ÁI
Kvótafundur
■ ■■
Frá Finnboga Hermannssyni
fréttaritara Þjóðviljans á ísafirði:
„Einn fjölmennasti fundur sem
haldinn hefur verið hér á Vest-
fjörðum stóð hér fram á nótt í
Félagsheimilinu í Hnífsdal en þar
voru mættir um 200 íbúar alls
staðar af Vestfjörðum til að hlýða
á sjávarútvegsráðherra og for-
stjóra Hafrannsóknastofnunar
og spyr ja þá spjörum úr um stöðu
sjávarútvegsins. Er þetta fyrsti
fundur sjávarútvegsráðherra
með Vestfirðingum en ýmsar á-
kvarðanir hans hafa mætt mikilli
andstöðu heimamanna.
Jakob Jakobsson lagði m.a.
áherslu á í ræðu sinni að stórefla
yrði Hafrannsóknastofhunina og
koma upp útibúum víða um land
til að auðvelda samanburðarr-
annsóknir og stofnmælingar.
Halldór Ásgrímsson varði
kvótakefið en nafni hans Her-
mannsson sparaði ekki stóryrðin
gegn því kerfi og rannsóknarað-
ferðum Hafró.
Miklar og líflegar umræður
urðu á fundinum og ljóst að hann
myndi standa langt fram yfir
miðnætti.
Á flmmtudag hefur verlð auglýst nauðungaruppboð á rúmlega fjórðungl þessa húss, en fastelgnamat þesser rlflega 19 mlijónlr króna. Ljósm.-eik.
Landsig og skjálftar í Mývatnssveit.
Almannavarnir senda út viðvörun til fólks í sveitinni.
Þrjú ár frá síðustu eldsumbrotum.
Við urðum vör við þetta mikla
landsig og skjálftavirkni laust
uppúr klukkan níu í kvöld, sagði
Helga Pétursdóttir í stjórnstöð A-
Imannavarna Mývatnssveitar í
samtali við Þjóðviljann um mið-
nættið. Gefín var út viðvörun til
íbúa í sveitinni eftir að mikið
landris hafði komið fram á mæli-
tækjum og landið tók að skjálfa
undir fótum Mývetninga í gær-
kveldi en nú eru nær þrjú ár liðin
frá síðustu eldsumbrotum á
Kröflusvæðinu.
Síðustu eldsumbrot á Kröflu-
svæðinu voru um jólaleytið 1981.
Þá líkt og nú hófust þau með
miklu landsigi og skjálftavirkni
eftir undangengið hægfara
landris.
Sigurður Ragnarsson í Reykja-
hlíðarhverfi sagðist í gærkveldi
hafa orðið var við titringinn, en
menn þar væru öllu vanir og létu
sér hvergi bregða. Búið væri að
senda út viðvörun til íbúa sveitar-
innar og fólkið myndi vaka eftir
frekari tilkynningum. -lg
Vísindaleiðangur frá Norrænu
Eldfjallastöðinni undir forystu
Guðmundar Sigvaldasonar jarð-
fræðings brá skjótt við breyting-
unum nyrðra - og áttu Mývetn-
ingar von á vísindamönnunum
um eittleytið í nótt.
„Við getum ekki gert annað en
að fylgjast með mælunum", sagði
Helga Pétursdóttir í stjórnstöð
Almannavarna í Mývatnssveit og
bætti við að enn hefðu menn ekki
komið auga á elda - en alls var
von.
Frá síðustu eldsumbrotum vlð Kröflu í desember 1981: Líkur eru á að
eldar hafl brotist upp á yfirborðið að nýju í nótt.
Borgarskrifstofurnar:
Enginn
við!
Ekki var fundarfært í borgar-
ráði í gær, annan þriðjudaginn í
röð, þar sem allir toppar í
embættis- og pólitíkusaliðinu eru
erlendis. Búist er við að hægt
verði að halda borgarráðsfund á
föstudaginn kemur.
Þjóðviljinn reyndi í gær að fá
upplýsingar á borgarskrifstofun-
um vegna tveggja mála sem fjall-
að hefur verið um á síðum blaðs-
ins; óleyfilega útkeyrslu Hita-
veitunnar inná Suðurlandsbraut
og neitun Davíðs Oddssonar á
styrk til Skóla fatlaðra. í ljós kom
að borgarstjóri er enn í Moskvu
en þangað fór hann 23. ágúst s.l.
ásamt forseta borgarstjórnar,
Markúsi Erni Antonssyni og
borgarfulltrúunum Sigurjóni Pét-
urssyni og Kristjáni Benedikts-
syni. í þeirri för var einnig Jón G.
Tómasson borgarritari en hann
er staðgengill borgarstjóra. Þá er
Björn Friðfinnsson forstöðumað-
ur Lögfræði- og stjómsýslu-
nefndar einnig erlendis, en her-
singin verður væntanlega öll
komin á fimmtudag.
Jarðhrœringar
Kippjr i Kröflu