Þjóðviljinn - 13.11.1984, Side 5
IÞROTTIR
p i«
fcjÖÐUR
V-iahr;,
&'G0UR
-URFJ
nR&iDQUH
SipARFd
SPARSOC:
HAFHAf
\iimmwuw
*ARI5uÓ<3í
wm^
Þrlðjudagur 13. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
FH hafði fáheyrða yfirburði í
1. deildarkeppninni sl. vetur.
Strax í byrjun var ljóst að þarna
var á ferðinni lið sem var afar
Guðmundur
„Verðum
í bar-
áttunni“
„Við verðum í baráttunni en
þetta verður mun erfiðara en í
fyrra, allir vilja jú vinna íslands-
meistarana. Þetta er spurning um
heppni, meiðsli geta sett strik í
reikninginn. Ég er ekki sáttur við
fyrirkomulagið á 1. deildar-
keppninni í vetur - 6 leikir fyrir
áramót og allt hitt eftir áramót,“
sagði Guðmundur Magnússon
þjálfari FH-inga. Hann spáir hin-
um sjö liðum 1. deildarinnar
þannig:
1-2. Valur
1-2. Víkingu'r
3-4. KR
3-4. Stjarnan
5-7. Þróttur
5-7. Þór Ve.
5-7. Breiðablik.
Hafnarfirði
akeppninm yrði stigakeppni haf-
in uppá nýtt og hvað myndi þá
gerast. Þolir FH álagið - var
spurt. Öll tvímæli voru tekin af
eftir tvær fyrri umferðirnar. FH
var þá komið með 12 stig úr 6
leikjum en meistarar Víkings
voru næstir með 6 stig. FH vann
næstu fimm leiki en tapaði síðan
lokaleiknum gegn Víkingi. Út-
koman því 25 unnir leikir í röð -
eitt tap. Stórkostlegur árangur.
í ár eru FH-ingar með svipað-
an mannskap og í fyrra - með
þeirri veigamiklu undantekningu
þó að Atli Hilmarsson er horfinn
á braut og leikur nú í Vestur-
Þýskalandi. I fyrra var hann síð-
asti kubburinn í púsluspili Geirs
Hallsteinssonar og átti drjúgan
þátt í velgengni FH-inga. Þá hef-
ur Guðmundur Magnússon tekið
við þjálfun liðsins úr höndum
Geirs og þjálfar nú í fyrsta skipti í
1. deild. Guðmundur er ungur að
árum en hann er leikreyndastur
FH-inga og hefur þjálfað flesta
leikmenn liðsins i yngri flokkum
FH. En án Atla og án Geirs verð-
ur FH-liðið spurningarmerki - er
þó af flestum talið sigurstrangleg-
asta lið 1. deildar í vetur.
Lykilmenn FH eru landsliðs-
mennirnir öflugu, Kristján Ara-
son, Þorgils Óttar Mathiesen og
Hans Guðmundsson. Fleiri góðir
leikmenn standa þeim ekki langt
á baki, Pálmi Jónsson, Sveinn
Bragason, Valgarður Valgarðs-
son og fleiri, ásamt markvörðun-
um Haraldi Ragnarssyni og
Sverri Kristinssyni. Sérstaklega
getur Haraldur sýnt markvörslu í
hæsta gæðaflokki á góðum degi.
FH-ingar búa við þá sérstöðu að
allir leikmenn liðsins eru uppald-
ir hjá félaginu, hafa þekkst Iengi
og vel og leikið saman upp yngri
flokkana. Þetta er mikill styrkur
og hin sérstaka handbolta-
stemmning í Hafnarfirði hjálpar
vel til.
En spurningin í vetur er þessi:
Tekst FH að halda sínu striki eins
og í fyrra og hvað gerist ef t.d.
Kristján eða Þorgils Óttar verða
fyrir slæmum meiðslum? Verður
þá breiddin nægjanleg til að
halda liðinu uppi?
FH gekk gjörsamlega frá
norsku meisturunum Kolbotn,
heima og heiman, nú á dögunum.
Verði þeir í slíkum ham áfram
verður erfitt að veðja á annað lið
sem íslandsmeistara 1984-85.
-VS
Þorgils Óttar Mathiesen.
líklegt til að velta Víkingum af
stalli sínum og færa
Hafnfirðingum íslandsbikarinn í
fyrsta skipti í átta löng ár.
í forkeppninni vann FH alla 14
leikina. Einn með einu marki og
einn með þremur mörkum en af-
ganginn með 5-20 marka mun.
En samt efuðust menn - í úrslit-
Guðmundur Magnússon.
Leikmenn FH í 1. deild keppnistímabilið 1984-85:
Markverðir:
Haraldur Ragnarsson - 22 ára - 134 leikir m/FH - 4 U21-landsleiklr,
4 U-landsleikir.
Magnús Árnason - 20 ára - 17 leikir m/FH.
Sverrir Kristinsson - 24 ára -195 leikir m/FH -1 A-landsleikur,3 U-21
landsleikir, 11 U-landsleikir.
Aðrir leikmenn:
Finnur Árnason - 23 ára - 75 ieikir m/FH.
Guðjón Árnason - 21 árs - 90 leikir m/FH.
Guðjón Guðmundsson - 24 ára - 80 leikir m/FH.
Guðmundur Magnússon - 26 ára - 284 leikir m/FH - 8 A-landsleikir,
8 U21-landsleikir.
Gunnar Beinteinsson - 20 ára -1 leikur m/FH.
Hans Guðmundsson - 23 ára - 170 leikir m/FH - 22 A-landsleikir,
1 U21-landsleikur, 5 U-landsleikir.
Jón Erling Ragnarsson - 32 ára - 32 leikir m/FH - 3 U21-landsleikir.
Kristján Arason - 23 ára - 198 ieikir m/FH - 79 A-landsleikir,
13 U21-landsleikir, 7 U-landsleikir.
Mikael Sigþórsson - 22 ára - 8 leikir m/FH.
Óskar Ármannsson - 19 ára - 15 leikir m/FH.
Pálmi Jónsson - 25 ára - 113 leiklr m/FH.
Sigþór Jóhannesson - 21 árs - 13 leikir m/FH.
Sveinn Bragason - 23 ára - 135 leikir m/FH - 3 U-landsleikir.
Theodór Sigurðsson - 28 ára - 115 leikir m/FH.
Valgarður Valgarðsson - 24 ára - 211 leikir m/FH - 1 A-landsleikur,
6 U21-landsleikir, 9 U-landsleikir.
Þorgils Óttar Mathiesen - 22 ára -131 leikur m/FH - 65 A-landsleikir,
10 U21-landsieikir, 4 U-landsleikir.
Fimleikafclag Hafnarfjarðar
var stofnað árið 1929. Um 1940
var byrjað að æfa handknattleik i
félaginu og það tók þátt í öðru
íslandsmótinu sem haldið var,
1941. Síðan hefur FH jafnan
tekið þátt en heldur var árangur-
inn slælegur framan af. Þegar 2.
deild var stofnuð 1951 var FH
annað tveggja félaga sem felld
voru niður í hana og í raun hefur
FH aldrei beint unnið sér þátt-
tökurétt í 1. deild! 2. deild var
nefnilega lögð niður um þriggja
ára skeið og fjölgað í 1. deild.
Þetta skipti sköpum hjá FH -
eftir að hafa hafnað í 2. sæti 2.
deildar 1955 var félagið skyndi-
lega orðið 1. deildarlið 1956 og
varð tafarlaust íslandsmeistari!
Síðan hefur félagið verið í al-
fremstu röð og alltaf hafnað í ein-
um af þremur efstu sætum 1.
deildar, nema árin 1978 (5. sæti)
og 1981 (4. sæti).
FH hefur 12 sinnum orðið ís-
landsmeistari innanhúss - árin
1956, 1957, 1959, 1960, 1961,
1965, 1966, 1969, 1971, 1974,
1976 og 1984. Ekkert félag hefur
sigrað jafnoft.
FH hefur einu sinni orðið bik-
armeistari - árið 1981.
FH hefur sigrað langoftast í ís-
landsmótinu utanhúss (sem nú
heitir Sumarmót HSÍ) eða 19
sinnum. Þar af 14 ár í röð, 1956-
1969, og síðan 1971, 1973, 1974,
1983 og 1984.
Geir Hallsteinsson á flesta
landsleiki að baki allra FH-inga.
Hann lék alls 118 landsleiki og
skoraði í þeim 534 mörk sem er
Íiað langmesta í landsleikjasögu
slands. Faðir hans, Hallsteinn
Hinriksson, vann ómetanlegt
starf í þágu handknattieiksins
hjá FH og er kallaður „faðir
handknattleiksins“ í Hafnarfirði.
Porgils Óttar
„Samkeppnin
aldrei
„Það munar okkur miklu að
hafa misst Atla Hilmarsson frá
því í fyrra en samt er breiddin hjá
okkur mikil. Samkeppnin um
sæti í liðinu er geysileg og hefur
aldrei verið meiri, við erum með
þrjú lið, yfir 20 menn, á æfingum,
allt „innfædda“ FH-inga,“ sagði
Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði
FH, í samtali við Þjóðviljann.
„Mótið leggst vel í mig. Við
erum alltaf að bæta okkur, sér-
■ mrr
meiri
staklega í varnarleiknum sem var
okkar mesti hausverkur. Mikil
áhersla hefur verið lögð á hann
og þar sækjum við okkur. Þá
erum við alltaf að verða
reynslumeiri. í Evrópukeppninni
er allt hægt og þar munum við
leggja okkur alla fram um að ná
sem lengst," sagði Þorgils Óttar
Mathiesen.
-VS