Þjóðviljinn - 13.11.1984, Page 6
IÞROTTIR
14 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN Þriðjudagur 13. nóvember 1984
VALUR
Reykjavík
„Frammistaðan
ræðst af ýmsu“
„Mér líst vel á veturinn, það
verður gaman að takast á við
þetta, ekki síst þar sem uppistað-
an hjá okkur eru ungir menn sem
eru óskrifað blað, margir hverj-
ir,“ sagði Þorbjörn Jensson fyrir-
liði Vals og landsliðsins í samtali
við Þjóðviljann.
„Ég hef trú á því að við lendum
í efri hlutanum en það verður að
koma í ljós hversu mikið álag lið-
ið þolir. Við þessir eldri munum
aðstoða okkar efnilegu leik-
menn, sem margir eru í 21-árs
landsliði og sumir komnir í A-
landsliðið. Þá ræðst frammistað-
an af ýmsu öðru - landsliðið á t. d.
framundan mikil verkefni og
meiðsli og þreyta gætu breytt
miklu. Ég vona bara að við verð-
um heppnir í því efni. Annan
bikar við hlið Reykjavíkurbik-
arsins - því ekki?“ sagði Þorbjöm
Jensson.
-VS
Þorbjörn Jensson.
ar fimmta sæti, en í fyrra sáust
batamerki er Valsliðið sýndi tal-
sverðar framfarir og hafnaði í
þriðja sæti.
Fyrir tveimur árum urðu Vals-
menn að gera sér að góðu að leika
í fallkeppni 1. deildar eftir að
hafa hafnað í fimmta sæti for-
keppninnar. í fyrra tókst liðinu
að bæta um betur - komst í fjög-
urra liða úrslitin og annað sætið
blasti við, uns Víkingum tókst að
sigra FH í lokaleiknum og ýta Val
niður í þriðja sæti.
Valsliðið er blanda af eldri og
yngri leikmönnum. „Garnlar"
kempur á borð við Þorbjörn
Jensson, Þorbjörn Guðmunds-
son og Jón Pétur Jónsson eru enn
í fullu fjöri og unga kynslóðin í
liðinu lofar góðu - Jakob Sigurðs-
son er þegar orðinn fastamaður í
landsliðinu og Geir Sveinsson,
Valdimar Grímsson og Júlíus
Jónasson eru farnir að berja
hraustlega á dyrnar. Á milli em
svo hinn reyndi Steindór Gunn-
arsson sem enn er á besta aldri,
Einar Þorvarðarson sem er tví-
mælalaust besti markvörður
landsins í dag og Theodór Guð-
finnsson sem hefur gengið til liðs
við Valsara á ný eftir að hafa
hjálpað Breiðabliki uppí 1. deild í
fyrra. Hilmar Björnsson þjálfar
Valsmenn áfram - hann náði
góðum árangri með þá fyrir
nokkrum árum og er greinilega á
réttri leið með þá í dag.
Helsti styrkleiki Vals er góð
markvarsla, góð vörn þar sem ný
„mulningsvél" er í uppsiglingu og
góðir hornamenn. Einar Þor-
varðarson hefur sterkan múr fyrir
framan sig og hornsteinninn í
honum er landsliðsfyrirliðinn
Þorbjörn Jensson. Hornamenn-
irnir ungu, Jakob Sigurðsson og
Valdimar Grímsson, eru þegar
komnir í fremstu röð og gefa lið-
inu aukna möguleika í sóknar-
leiknum. Helsta vandamál Vals
er skytturnar. Þær eru af þyngri
gerðinni, nema Júlíus Jónasson,
og sterkar varnir geta haldið
þeim óþægilega í skefjum. Þá
eiga einstakir leikmenn erfitt
með að hemja skapið þegar á
móti blæs þó batamerkin í þeim
efnum hafi verið greinileg á síð-
asta vetri.
Ef ekkert fer úrskeiðis ættu
Valsmenn að geta tekið þátt í
baráttunni um íslandsmeistara-
titilinn í vetur. Skortur á breidd
gæti þó sett strik í reikninginn
þegar leikjafjöldinn eykst eftir
áramótin - einkum þar sem
skyttur á borð við Björn Björns-
son, Stefán Halldórsson og
Brynjar Harðarson eru horfnar á
braut. En Valsmenn selja sig
jafnan dýrt - svo mikið er víst.
- VS
Þorbjörn
Hilmar
„Von á
jafnara
móti“
„Ég á von á mikið jafnara ís-
landsmóti en í fyrra og úrslit geta
sérstaklega orðið á alla vegu fram
að áramótum. Þá eru fáir leikir
með löngu millibili og tilviljunum
háð hvernig þeir fara því liðin
verða aldrei í fullri æfingu.
Leikirnir hlaðst síðan upp eftir
jól og þá reynir á liðin og þau
„stabílistu" standa uppúr,“ sagði
Hilmar Björnsson þjálfari Vals.
Hilmar spáir hinum sjö liðun-
um í þessa röð:
1. FH
2. Víkingur
3. KR
4. Stjarnan
5. Breiðablik
6. Þróttur
7. ÞórVe.
Frá því Valur lék til úrslita um
Evrópumeistaratitilinn fyrir fjór-
um árum hefur þessi gamli risi í
íslenskum handknattleik legið í
dvala. Tvisvar þriðja sæti, tvisv-
Hilmar Björnsson.
Leikmenn Vals í 1. deild keppnistímabilið 1984-85:
Markverðir:
Einar Þorvarðarson - 27 ára - 95 leikir mATal - 80 A-landsleikir
Elías Haraldsson - 19 ára - 85 leikir m/Val - 2 U-21 landsleikir,
5 U-landsleikir
Jón Breiðfjörð - 38 ára - 384 leikir mA/al - 4 A-landsleikir,
4 U-landsleikir
Aðrir leikmenn:
Birgir Guðmundsson - 20 ára - 10 lelkir mA/al
Geir Sveinsson - 20 ára - 121 leikir mA/al - 11 U21-landsleikir,
9 U-landsleikir
Guðni Bergsson - 19 ára - 34 leikir mA/al - 5 U-landsleikir
Jakob Sigurðsson - 20 ára - 127 leikir mA/al - 31 A-landsleikur,
11 U21-landsleikir, 7 U-landsleikir
Jón Pétur Jónsson - 31 árs - 385 leikir m/Val - 20 A-landsleikir
Júlíus Jónasson - 20 ára - 112 leikir m/Val - 11 U21-landsleikir,
5 U-landsleikir
Steindór Gunnarsson - 28 ára - 348 ieikir m/Val -114 A-landsleikir,
3 U21-landsleikir, 5 U-landsleikir
Theodór Guðfinnsson - 25 ára - 73 leikir m/Val - 3 A-landsleikir,
5 U21-landsleikir, 3 U-landsleikir
Valdimar Grímsson - 19 ára - 64 leikir m/Val - 7 U21-landsleikir
Þorbjörn Guðmundsson - 30 ára - 379 leikir m/Val - 68 A-iandsleikir,
8 U-landsleikir
Þorbjörn Jensson - 31 árs - 251 ieikur m/Val - 106 A-landsieikir
Þórður Sigurðsson - 18 ára - 9 leikir m/Val.
Knattspyrnuféiagið Valur var
stofnað árið 1911. Iðkun hand-
knattleiks í félaginu hófst uppúr
1930 og þá sem liður í þjálfun
knattspyrnumanna. Út frá þessu
jókst áhugi á íþróttinni. Vals-
menn sáu um framkvæmd fyrsta
íslandsmótsins ásamt Víkingum,
árið 1940, og urðu íslandsmeist-
arar bæði í meistara- og 2. flokki.
Titil sinn í meistaraflokki varði
Valur tvö næstu árin. Sérstök
handknattleiksdeild var stofnuð
innan félagsins árið 1959.
Valur hefur 12 sinnum orðið ís-
landsmeistari, árin 1940, 1941,
1942, 1944, 1947, 1948, 1951,
1955, 1973, 1977, 1978, og 1979.
Valur sigraði í Bikarkeppni HSÍ
fýrsta árið sem hún fór fram,
1974.
Valur hefur ávallt leikið í 1. deild
ef undanskilin eru þrjú ár í 2.
deild, 1963-1965.
Valur hefur náð lengst íslenskra
félagaíEvrópukeppni. Árið 1980
komst Valur í úrslit í Evrópu-
keppni meistaraliða en tapaði
fyrir Grosswaldstadt í Munchen
21-12.
Valur státar af öflugum 1. flokki
sem tekur þátt í bikarkeppni HSÍ
í vetur. Þar eru innanborðs einir
fjórir fyrrum landsliðsfyrirliðar
Islands.
Valur hefur sex sinnum orðið ís-
landsmeistari utanhúss, árin
1951, 1955, 1970, 1972, 1976 og
1977.
Úr röðum Vals koma tveir lands-
leikjahæstu leikmenn í íslenskum
handknattleik. Bjarni Guð-
mundsson, sem nú ieikur í
V.Þýskalandi, hefur leikið 152
A-landsleiki og Ólafur H. Jóns-
son lék 138.