Þjóðviljinn - 18.01.1985, Qupperneq 3
FRETTIR
Ríkisstjórnin
Hugmyndunum ekki hafnað
Forsœtisráðherra: Formaður Sjálfstœðisflokksins fullvissaði mig um að
efnahagstillögunum hafi ekki verið hafnað og að Sjálfstœðisflokkurinn sé íþessu af fullum
heilindum. Alrangt í Morgunblaðinu að lögð sé áhersla á skattahœkkanir
Eg hef verið fullvissaður um
það af formanni Sjálfstaeðis-
flokksins að þeim hugmyndum
sem ég hef sett fram hefur alis
ekki verið hafnað - og það er al-
rangt að megin áhersla sé lögð á
skattahækkanir, sagði Steingrím-
ur Hermannsson forsætisráð-
herra í samtaii við Þjóðviljann í
gær, um þá frétt Morgunblaðsins
í gær að Sjálfstæðismenn teldu
engum til góðs að hugmyndir for-
sætisráðherra í efnahagsmálum
spyrðust út. Margir telja að við-
brögð Sjálfstæðisflokksins við
hugmyndum Framsóknarflokks-
ins, um kjarnfóðurgjaldið,
íbúðalánasjóðinn og efnahagstil-
lögur forsætisráðherra, tákni
endalok stjórnarsamstarfsins og
að landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins hafi verið flýtt til að taka
ákvörðun um stjórnarslit.
Steingrímur Hermannsson
sagði að þvert á móti frétt Morg-
unblaðsins segði í tillögum hans
um endurskoðun á skattakerfinu,
að þær verði til þess að létta
skatta af lægri tekjum og þeim
sem eiga í húsnæðiskaupum, svo
dæmi væri tekið. „Svo veit ég
ekki hvaðan þessi frétt er komin,
hún er einsog svo oft hjá ykkur á
blöðunum á miklum brauðfót-
um“.
Forsætisráðherra var spurður
hvort hugmyndir Framsóknar-
manna um kjarnfóðurgjald,
íbúðalánasjóð og efnahagstillög-
urnar, sem Sjálfstæðisflokkurinn
tæki allar óstinnt upp, væru til
þess að slíta samstarfinu.
„Við erum ekki með siíkar
bollaleggingar, en td. um fóður-
bætisskattinn liggja frammi til-
lögur frá landbúnaðarráðherra
sem eru til afgreiðslu í ríkisstjórn-
inni og gera alls ekki ráð fyrir að
leiði til hækkunar á svínakjöti og
kjúklingakjöti, svo ég veit ekki
hvaðan þetta er komið. Og um
aðstoð við húsbyggjendur er full
samstaða, en það er ekki orðin
samstaða um það hvernig fjár-
magns verði aflað. Ég legg
áhers'u á að það verði gert þannig
að það leiði ekki til aukinnar
þenslu.“
Nú hefur Landsfundi Sjálf-
stœðisflokksins verið flýtt, sumir
telja að það sé gert til aðfá heimild
til að slíta stjórnarsamstarfi, ertu
Skriflegar hugmyndir forsætisráðhem u ía lögð kanir
Megináhersl á skattahæk
— þingflokkur sjálfstæðismanna hafnar hugmyndunum
ekkert hrœddur um að þeir verði á þessu af fullum heilindum, og ég
undan ykkur? hef enga ástæðu til að véfengja
„Ég skal nú ekkert segja um það. Hins vegar hef ég alltaf sagt
landsfund Sjálfstæðisflokksins, og segi enn að mikilvægt er að
ég vil bara segja það að formaður menn láti hendur standa fram úr
Sjálfstæðisflokksins hefur lagt á ermum“, sagði Steingrímur Her-
það ríka áherslu, eftir þeirra mannsson forsætisráðherra.
þingflokksfundi, að þeir séu í - óg.
Reykjavík
30 mMjónir
í Grafarvogs-
skolann
A ðeins 8 miljónir í ár
til Vesturbœjarskóla
sem býr við algerlega
ófullnægjandi hús-
næði
Fyrri umræða um fjárhagsá-
ætlun Reykjavíkurborgar
fyrir árið 1985 fór fram í borgar-
stjórn í gærkvöldi. Meðal þess
sem vekur athygli eru fjárveiting-
ar til nýrra skólabygginga. Ríf-
legasta fjárveitingin er til Grafar-
vogsskóla, 30 miljónir króna á
þessu ári og sama upphæð fyrir
árin 1986 og 1987. Vesturbæjar-
skólinn sem hefur búið við alger-
lega ófullnægjandi húsnæði og er
nú starfræktur að hluta í Mið-
bæjarskólanum, fær aðeins 8
miljónir til bygginga í ár, en 24
miljónir á næsta ári og 30 miljónir
á árinu 1987. Áætlaður fjár-
veitingar til 3. áfanga Seljaskóla
er 19,3 miljónir í ár, ekkert á
næsta ári en 20 miljónir 1987.
Aðrar skólabyggingar fá minni
fjárveitingar. -ólg.
sís
Skattur á
yfirmenn?
Við erum bundnir þagnar-
skyldu samkvæmt skattalögun-
um, sagði Sigurbjörn Þorbjörns-
son ríkisskattstjóri er Þjóðviljinn
bar undir hann þá frétt DV að í
kjölfar rannsóknar á bókhaldi
Sambandsins hefðu á 3. miljón
króna verið lagðar á nokkra af
framkvæmdastjórum Sambands-
ins í viðbótarskatt fyrir árin 1979-
’81.
Ég hef öðru að sinna en því að
lesa sögu í dagblöðunum, sagði
Sigurbjörn og vildi ekki tjá sig um
hvort eitthvað hefði lekið út af
upplýsingum frá embættinu.
DV hefur það eftir „heimild-
um“ að búið sé að úrskurða um
skattamál 4-5 framkvæmdastjóra
Sambandsins, en þeir eru aíls 8
auk forstjóra. -ölg.
Fisksjúkdómar
Eirwfgi í
Sigurður Helgason
fisksjúkdómafrœðingur á Keldum:
verður að stórefla alla
rannsóknaraðstöðu
nauðsynlegt að rannsaka allar
fiskeldisstöðvar landsins. Ganga
yrði úr skugga um hvort veikin
hefur breiðst út. Sagði Sigurður
að aðstaða til þessara rannsókna
væri mjög bágborin, hann starf-
aði einn að þessum málum.
„Það verður að stórefla alla að-
stöðu hér að Keldum, og sá pen-
ingur sem til þess færi er hreint
smáræði hjá því sem það myndi
kosta ef sjúkdómar í laxi bærust
til allra fiskeldisstöðva landsins
og í laxveiðiár", sagði Sigurður í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Sigurður sagði að ljóst væri að
bakterían hefði borist með
göngufiski í Kollafjarðarstöðina,
þar sem ekkert hefði enn fundist í
seyðum.
Þess má geta að hér um árið,
þegar Veiðimálastofnun gekk
hvað harðast að Skúla á Laxalóni
með niðurskurð, hélt hann því
fram opinberlega að sjúkdómar
væru í Kollafjarðarstöðinni. Því
var aldrei ansað.
- S.dór.
Ljóst er að rannsaka þarf allar
fískeldisstöðvar á landi, þar
sem nýrnasjúkdómur í laxi hefur
fundist í fískeldisstöð ríkisins í
Kollafírði. Þessi stöð er sú lang
stærsta á landinu og hafa hrogn
og seyði frá henni farið um allt
land, bæði í fiskeldisstöðvar og ár
landsins.
Sigurður Helgason fisksjúk-
dómafræðingur að Keldum, sem-
rannsakað hefur lax og seyði í
Kollafjarðarstöðinni og fundið
sjúkdóminn í klakfiski stöðvar-
innar, sagði í gær að það væri
Sigurður Helgason með sýkt seyði
fyrir framan sig. Innyfiin í seyðinu
voru alþakin hvítum bólum. Ljósm.:
E.ÓI.
Skák
Reykjavík
Göngufiskur
er smitberinn
Margeir og Agdestein efstir á svœðamótinu
Þegar ljóst varð í gærkvöldi að
Margeir Pétursson og Agdestein
frá Noregi hefðu orðið efstir og
jafnir á svæðamótinu í Gausdal í
Noregi hringdu forráðamenn
Búnaðarbankans til Noregs og
buðu að cinvígi þeirra um rétt til
að tefla á millisvæðamóti yrði
haldið i Reykjavík. Var tilboðið
samþykkt og verður fjögurra
skáka einvígi þeirra því í Reykja-
vík í byrjun næsta mánaðar.
Úrslit í síðustu umferðinni
urðu þau að Margeir vann Vest-
erinen frá Finnlandi og Agde-
stein vann Ernst frá Svíþjóð.
Urðu þeir því efstir og jafnir með
7Vi vinning. Larsen sem var efst-
ur fyrir síðustu umferðina ásamt
þeim tveimur varð að láta sér
lynda jafntefli við Jóhann Hjart-
arson. Hann varð því í þriðja sæti
með 7 vinninga en Jóhann í 4.
sæti með 6V2 vinning. Helgi gerði
jafntefli við Ostenstadt og hafn-
aði í 5.-6. sæti.
Margeir verður að fá 7\/i vinn-
ing út úr einvíginu í Reykjavík til
að komast áfram en verði jafn-
tefli kemst Norðmaðurinn áfram.
Sá sem tapar fær þó eitt tækifæri
enn til að komast á millisvæða-
mót með því að tefla einvígi við
þann sem lendir í 2. sæti á öðru
svæðamóti.
-GFr
Föstudagur 18. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
ísafjörður
Grænlendingar vilja
í vinnu
Fulltrúar bæjarstjórna ísa-
fjarðar og vinabæjarins á
Grænlandi, Nanorktalik (syðst á
Grænlandi) hafa átt ítarlegar við-
ræður um möguleika á að Græn-
lendingar komi til vinnu í fisk-
vinnslu á ísafírði. Atvinnuleysi
hefur verið afar mikið í Nan-
orktalik. Skýringin er m.a. sú að
algert fískileysi hefur verið á
nærliggjandi fískislóð.
Þuríður Pétursdóttir bæjar-
fulltrúi á ísafirði, tjáði Þjóðvilj-
anum að auk þessa hefðu menn
rætt um víðtækara samstarf milli
vinabæjanna sem aðallega yrði
fólgið í því að Grænlendingar
kæmu til ísafjarðar til að kynna
sér hvemig staðið er að veiðum
og vinnslu þar í bæ.
hágé