Þjóðviljinn - 18.01.1985, Blaðsíða 11
VIÐHORF
Island gegn kjamorkuvá
í dag gefst Bolvíkingum kostur
á að sjá óvenjulega sjón: Hóp
fólks sem rís upp og nennir og
þorir að taka þátt í mótmælum
gegn vígbúnaði, sóun og mis-
skiptingu jarðargæða. Fyrir þetta
sköpum við okkur sjálfsagt
andúð og aðhlátur einhverra,
sem kjósa ládeyðu og lygnan sjó,
afstöðuleysi og öryggi og frið-
semd hins óbreytta ástands.
Þeirra sem trúa því eftir lestur
Morgunblaðsins, að friði og rétt-
læti í heiminum, utan Austur-
Evrópu, sé harla vel borgið fyrir
tilstuðlan verndara okkar,
Bandaríkjamanna. Þeirra, sem
betur fellur að sjá forkólfa verka-
lýðsins klæðast kvenmannsgerv-
um, kyrjandi gamanmál og létt-
meti, fremur en heyra þá flytja
boðskap, sem eflt gæti stéttarvit-
und líflítillar og náttúrulausrar
verkalýðshreyfingar.
Nei. - Óbreytt ástand og að-
gerðaleysi styggir engan - vekur
engan til umhugsunar eða sjálf-
stæðrar stefnumörkunar. Það
verður því andlegt þrifabað að
ganga upp í Ból í golunni til að
þjappa þessum hóp saman og
brýna vopnin. Á því er ekki van-
þörf heldur, því sjálfsagt á eftir
að hvessa mikið enn, ef við lypp-
umst þá ekki niður og kyssum
götu þeirra forystumanna okkar
hér heima og syðra, sem með
leynimakki hafa kosið að setja
byggð vora að veði gegn láni og
ölmusum úr banka hervæðingar-
innar. Með framtaki okkar í dag
sýnum við alþjóðlegum friðar-
hreyfingum samstöðuvott, þótt
lítill sé. Efalaust værum við fleiri
hér, ef við nenntum að fórna
meiri tíma og atorku í þágu þessa
málefnis, andófsins gegn vígbún-
aðarkapphlaupinu. Eflaust vær-
um við fleiri, ef hér ríkti ekki
þögul kúgun hins stóra hóps, sem
um áraraðir hefur látið sér nægja
að svala fróðleiksþorsta sínum í
upplýsingabrunnum Morgun-
blaðsins og Dagblaðsvísisins. í
þeim nægjusama hópi er orðið
kommúnisti notað yfir alla þá,
sem ekki eru á sama máli og
leiðarahöfundar téðra lær-
dómsrita um utanríkis- og varn-
armál. Þetta heiti er og skammar-
yrði í hugum margra einstaklinga
hins friðelskandi og hógværa
hóps. Ekki er gott að fá á sig slík-
an stimpil, sérstaklega ekki ef
maður telur sig eiga það á hættu
að einangrast félagslega eða ef
það stefnir framavonum manns
eða öðrum hagsmunum í hættu.
Þessi athöfn okkar í dag að
ganga í hóp og kveikja bál hefur í
sér fólgna táknræna merkingu.
Um áramót kveikjum við brenn-
ur og í vetrarlok tíðka ýmsar
þjóðir á hinu germanska menn-
ingarsvæði hið sama. Með því var
áður m.a. verið að koma fyrir
kattarnef ýmsum óþverra og
drasli sem ekki var æskilegt að
dragnast með yfir á hið nýja ár
eða komandi sumar. Með brennu
undirstrikum við að tímamót séu.
Horfandi í eldinn fáum við nána
snertingu við eitt af frumöflunum
og logarnir kveikja einnig bál í
hugum okkar, efla baráttuþrek-
ið. Við brennuna losum við okk-
ur við afstöðuleysið, hugleysið,
ábyrgðarleysið og dugleysið og
heitum að berjast fyrir hinn góða
málstað á nýju ári undir kyndli
friðarbaráttunnar með lifandi
starf milljóna góðgjarnra manna
að siðferðilegum bakhjarli.
Við þessi tímamót okkar í dag
ætla ég ekki að rekja hina sögu-
legu þróun en minni á, að vegna
tortryggni sinnar og ágirndar
stendur mannkynið nú á barmi
hyldýpis tortímingarinnar. Ég
vitna til orða Olof Palme, sem
líkti risaveldunum við eiturlyfj-
asjúklinga, sem sífellt yrðu að
auka eiturskammtana sér og öðr-
eftir Pétur Pétursson
Rœða flutt í Bolungarvík
22. desember sl.
Við Vestfirðingar höfum möguleika til
að standastþá siðferðilegu prófraun sem
bygging ratsjárstöðvar á Stigahlíð er.
Erstuðningur við þessa ratsjárstöð og
þar með 35 miljón dollara hervæðingar-
útgjöld í samrœmi við kristna sið-
fræði?
um að fjörlesti. Nýlegar upplýs-
ingar um kjarnorkuvetur og fleiri
afleiðingar kjarnorkustríðs hafa
sýnt, að þar getur enginn staðið
uppi sem sigurvegari að aflokn-
um átökum. Þrátt fyrir þetta
auka eiturlyfjasjúklingarnir
skammtana og draga jafnframt úr
útgjöldum til félagslegrar þjón-
ustu. í kjölfar annars kemur
hinn. Bandaríkjamenn hafa á síð-
ustu 5 árum tekið risastökk í
kapphlaupi vígvæðingarinnar,
sem nú tekur stefnu út í geiminn.
Og á eftir fylgja Sovétmenn. Á
þessari þróun hagnast engir nema
hergagnaframleiðendur.
Eg vil í þessu sambandi minna
á nokkrar staðreyndir:
Samkvæmt skjölum banda-
ríska herráðsins eru þar vestra
uppi áform um, að ná þvílíku for-
skoti fram yfir Sovétmenn á
næstu 10 árum að eyða megi
vopnabirgðum þeirra, áður en
þeir fái rönd við reist. Áætlanir
um ratsjárstöðvar á íslandi, Fær-
eyjum og Austur-Grænlandi,
sem eiga að mynda hið svokall-
aða NADS kerfi með kjarnork-
usprengjuheldri stjórnstöð í
Keflavík er hluti af þessari
stefnu, þannig að á fyrstu stigum
átaka sé hægt að gera eyðingará-
rás á herafla Sovétmanna við
Kolaskaga. Ég legg áherslu á þátt
þessa ratsjárkerfis í stjórnun á-
rásaraðgerða og þá ögrun sem
þetta er óvininum.
Ljóst er, að tilhneiging er í þá
átt hjá vinum okkar í NATO að
færa víglínuna norðar, þannig að
minni verðmæti séu í húfi ef til
takmarkaðs kjarnorkustríðs
kæmi. Kemur þetta og heim og
saman við þá stefnu, er umræðan
um kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd hefur tekið. ísland verður
því á svæði hugsanlegs kjarnork-
uveturs.
Ég ætla forystumönnum risa-
veldanna ekki þann ásetning að
beita kjarnorkuvopnum að fyrra
bragði. Hinsvegar hefur umfang
hergagna aukist svo mjög, að
hættan á mistökum hlýtur að hafa
aukist líka. Einnig eru fleiri þjóð-
ir að eignast kjarnorkuvopn,
m.a. örvæntingarfullar þjóðir
þriðja heimsins, svo sem Pakist-
an og jafnvel Líbýa. Því sýnist
mér hættan á kjarnorkuátökum
samt sem áður vera fyrir hendi og
þörfin á afvopnun og eftirliti með
kjarorkuvopnum aldrei svo brýn
sem nú.
En sérstök ástæða er til að gera
að umtalsefni það fjármagn, sem
varið er til hermála, hvort heldur
er til árása eða varna, og þá sóun
jarðarauðs, sem þar á sér stað.
Frá stríðslokum 1945 til þessa
dags hafa jarðarbúar, eða öllu
heldur ráðamenn þeirra, eytt um
11 þúsund milljörðum bandaríkj-
adala til vígbúnaðar og hermála.
Einum fjórtánda hluta þeirrar
upphæðar eða 800 milljörðum
dala, var í lóg komið á yfirstand-
andi ári, og nemur það lVi
milljón dala á mínútu. Af þessum
800 milljörðum eyða Bandaríkja-
menn einir tæpum 30 prósentum.
Er það 70% aukning frá árinu
1980, og stefna þeir að því 1988
að verja 348 miiljörðum banda-
ríkjadala til að stemma stigu við
hinni skelfilegu farsótt, komm-
únismanum, og efa ég ekki, að
fórnarstarf þeirra og örlæti muni
ylja ýmsum áhugamönnum um
vestræna samvinnu um hjartaræt-
urnar, svo sem Arnóri greyinu
Hannibalssyni og vissum sálufé-
lögum hans og æskuvinum.
Á sama tíma eru 600 milljónir
jarðarbúa atvinnulausar, 900
milljónir ólæsar, 800 milljónir
vannærðar og á viku hverri hor-
fellur að meðaltali 1 milljón
barna og fullorðinna, án þess að
áhugamenn um varnarsamstarf,
vestrænt eða austrænt, veiti því
neitt sérstaka athygli. Fyrir and-
virði 4ra klukkustunda eyðslu
vígvæðingarinnar tókst að út-
rýma kúabólu úr heiminum.
Fyrir andvirði 3-4 daga vígbúnað-
areyðslu gætum við útrýmt mal-
aríu, einum skæðasta hitabeltis-
sjúkdómnum. Á 10 árum mætti
sigrast á hungri í heiminum fyrir
þriðjung þess fjár, sem eytt er til
hermála í heiminum á þessu ári.
Höfum við ástæðu til að vera
hreykin af þessari ráðstöfun jarð-
arauðs?
Það er hlutverk friðarhreyf-
inga að vekja almenning til um-
hugsunar og aðgerða í þessum
málum. Veita verður ráða-
mönnum þjóða aðhald, þannig
að stjórnmálamenn missi ekki
tökin á þróuninni, því nú eru
hernaðarkerfin farin að ráða
stefnunni en ekki stefnan kerfis-
uppbyggingunni. Við, þessar fáu
hræður, viljum með aðgerðum
okkar í dag lýsa á táknrænan hátt
yfir samstöðu okkar við viðleitni
hugsandi fólks um heim allan til
að stöðva þessa sóun, þetta sið-
leysi, þessa vitfirringu.
Boðskapur þessa friðarhóps í
dag er einfaldur: Við þurfum að
sýna andstöðu okkar gegn víg-
búnaði í verki og veita ráða-
mönnum aðhald í stað þess að
halda að okkur höndum og
geyma friðarviljann bara innra
með okkur. Við Vestfirðingar
höfum nú möguleika til að stand-
ast þá siðferðilegu prófraun, sem
bygging ratsjárstöðvar á Stiga-
hlíð er. Meinum við eitthvað með
fögrum játningarorðum til krist-
innar trúar? Er stuðningur við
þessa radarstöð og þar með 35
milljón dollara hervæðingarút-
gjöld í samræmi við þá siðfræði,
sem kristin kirkja hefur boðað
safnaðarfulltrúa Bolvíkinga og
bæjarráði okkar?
Hin alþjóðlega friðarhreyfing
hefur mætt mikilli andstöðu her-
gagnaframleiðenda og stríðsæs-
ingamanna um heim allan. En
jafnframt hafa margir vel
meinandi borgarar orðið til að
leggja stein í götu okkar, þar sem
þeir telja okkur leiguþý kúgara
og elliærra afturhaldsseggja í
Kreml. Okkur eru gerðar upp
skoðanir: Við séum að krefjast
einhliða afvopnunar Vesturveld-
anna. Slíkar fullyrðingar eru að
sjálfsögðu alrangar. Við erum að
krefjast stöðvunar vígbúnaðar-
kapphlaupsins og viljum knýja
fram samninga um almenna af-
vopnun. Með aukinni samvinnu
austurs og vesturs svo og batn-
andi hag þjóða, sem skynsam-
legri nýting auðæfa hefði í för
með sér, myndum við hafa áhrif
til bóta fyrir kúgaðar þjóðir og
undirokaðar. Það er fáránleg
ímyndun að halda, að hægt sé að
berja Rússa til að aflétta kúgun
sinni á andófshópum.
Ég hef nú í alllöngu máli rakið
nokkuð hættur og viðurstyggð
vígbúnaðarstefnunnar og það
gagnleysi, sem hún er heims-
friðnum, eftir að Reaganstjórnin
hefur rofið ógnarjafnvægið. Ég
hef gert að umtali þörfina á starfi
friðarhreyfinga hér heima og er-
lendis. Allt er þetta ykkur jafn
ljóst og mér. Sjálfsagt þarf ekki
að fræða ykkur um áform um
byggingu ratsjárstöðvar á Stiga.
Ég get þó ekki stillt mig um að
láta enn einu sinni í ljósi van-
þóknun mína á öllum vinnu-
brögðum við undirbúning þessa
máls; því leynimakki, sem stund-
að hefur verið og þeim meinsær-
um, sem bolvískir bæjarstjórnar-
menn hafa unnið. Þessi vinnu-
brögð vekja grunsemdir um, að
ekki sé allt sem sýnist og fleira
hangi á spýtunni en virðist við
fyrstu sýn. Það boðar illt, hversu
ófúsir bolvískir ráðamenn hafa
verið að gera grein fyrir skoðun
sinni á máli þessu á opinberum
vattvangi. Bæjarstjórnarmeiri-
hlutinn hér hefur hafnað eðlilegri
upplýsingaöflun heimamanna
um atriði málsins. Eingöngu á að
treysta á upplýsingar nokkurra
hlutdrægra NÁTO-drengja úr
varnarmáladeild, sem raunar
hafa neitað bæði Bolvíkingum og
Langnesingum um almenna
borgarafundi. Nú er loksins búið
að kynna niðurstöður ratsjár-
nefndar varnarmáladeildar, mat-
reiddar að hætti hússins. Skýrslan
virðist einna helst vera ætluð
nemendum 7. eða 8. bekkjar
vestfirsks grunnskóla eða þá
meðlimum Sjálfstæðiskvennafé-
lagsins Þuríðar Sundafyllis. Það
sýna þau atriði, sem þagað er um,
s.s. hlutverk þessa hlekks í stærri
keðju. Þar virðist m.a. vera ráð
fyrir því gert, að íslendingar einir
séu ákvörðunaraðilar um þessi
mál og geti pantað sér aukaút-
búnað til heimilisnota að eigin
vali.
Með óljósum vilyrðum um
sérstaka skiparatsjá er á lúalegan
hátt verið að höfða til margra
alda gamals ótta barna og kvenna
í íslenskum sjávarplássum um ör-
yggi og örlög aðstandenda á hafi'
úti.
Tilgangurinn er augljóslega sá
að neyða Vestfirðinga til að velja
á milli þess að efla öryggi sitt á sjó
eða sýna áframhaldandi sóun
fjármuna til hermála andstöðu.
Hvergi er vikið að þýðingu stöðv-
arinnar fyrir árásarstefnu NATO
á norðurhöfum. Hér er einmitt
okkar tækifæri til að segja „Hing-
að og ekki lengra“, og gefa öðr-
um fordæmi á þann hátt. Ratsjár-
áhugamönnum er líka mikið í
mun að flýta byggingu stöðvanna
sem mest, því fregnir herma að
eftir fáein ár verði Raunvísind-
astofnun HÍ búin að þróa tölvu-
vætt staðsetningarkerfi skipa,
sem tekur öllum ratsjám fram. Á
sama tíma er verið að hanna flug-
vélar sem sjást ekki í radar. Eftir
féin ár verður þessi ratsjá úrelt og
mun síðra aðvörunar- og stjórn-
tæki en gervihnettir úti í
geimnum. Mig grunar, að ýmis-
legt sé enn á huldu um raunveru-
legan tilgang stöðvarinnar, enda
virðist íslendingum æði margt
óljóst um hlut sinn í varnarsam-
starfinu.
Valkostir okkar eru þrír:
Hinn fyrsti er að segja já og
amen við byggingu hernaðarrat-
sjárstöðvar og þar með leggja sið-
ferðilega blessun yfir áframhald-
andi vígbúnaðarkapphlaup og
áframhaldandi hungur, sjúkleika
og eymd í þróunarlöndunum.
Þennan hóp vil ég biðja að hug-
leiða orð hins vísa Salómons:
Son mitin, þegar skálkar ginna
þig,
þá gegn þeim eigi.
Pegar þeir segja: „Kom með oss!
Leggjumst í launsátur til mann-
drápa,
sitjum án saka um saklausan
mann.
Alls konar dýra muni munum vér
eignast,
fylla hús vor rœndum fjármun-
um.
Þú skalt hafa jafnan hlut með oss,
einn sjóð skulum vér allir hafa“ -
son minn, þá haf ekki samleið við
þá,
halt fæti þínum frá stig þeirra.
Því að fœtur þeirra eru skjótir til
ills
og slíkir menn sitja um sitt eigið
Hf.
ogfíknin vtrðurþeim aðfjörlesti.
Annar kostur er sá að taka ekki
afstöðu vegna skorts á þekkingu
eða vissu um, að við getum engin
áhrif haft. Kveikja svo á videó-
tækinu eða rás 2 og gleyma sér við
glas og fánýtt stundargaman.
Þögn er sama og samþykki og þar
að auki háttur hins raga. Skiptir
þá engu, þótt reynt sé að friða
samviskuna með fullyrðingum
um gagnsemi mannvirkisins fyrir
skipaferðir landsmanna og
flugsamgöngur. Það er ekki nóg
að geyma friðarviljann einungis í
hjartanu.
Síðasti kosturinn og sá eini, er
sæmir oss, er sá að segja nei við
byggingu þessa hernaðarmann-
virkis og sýna þannig kjark og
manndóm, sem eftir yrði tekið.
Með því myndum við jafnframt
stuðla að skynsamlegri nýtingu
og réttlátari skiptingu auðæfa
jarðar.
Pétur Pétursson er héraðslæknir í
Bolungarvik.
Föstudagur 18 janúar 1985 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 11