Þjóðviljinn - 18.01.1985, Page 8
GLÆTAN
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. janúar 1985
Ifmsælustu lögin
í Fellahelli
Glætan mun framvegis birta vinsældalista
vikunnar og til að byrja með ætlum við að kynna
reglulega vinsældalista Fellahellis og hlust-
enda Rásar 2 í Ríkisútvarpinu.
Listi Fellahellis er unninn af tónlistarhópnum Dé-
joð ’84 á þriðjudagskvöldum. Þeir gestir sem koma í
Fellahelli á þeim dögum fá í hendur blað sem þeir
og á Rás 2
eru beðnir um að skrifa á 5 vinsælustu lögin að sínu
mati. Upp úr þessum blöðum er svo listinn unninn.
Hlustendur Rásar 2 hringja á rásina frá kl. 4-6 á
fimmtudögum og gefa upp vinsælasta lagið að sínu
mati. Síminn er 687123. Listinn er svo spilaður á Rás
2 á fimmtudagskvöldum frá kl. 8-9 og einnig á
sunnudögum kl. 4-6. _ ar5
Tónlistarhópur Fellahellis Déjoð ’84. Frá vinstri: Pótur, Elfa, Anna, Ragnar, Kristinn, Ottó og Bjarni sem situr. Á myndina
vantar Magnús, Stefán, Heiðar, Einar og Halldór. Ljósm.: eik.
Fellahellir
(10) 1. Power ofLove- Frankie goes to Holly-
wood
( -) 2. Búkalú- Stuðmenn
( 2) 3. Forever young - Alphaville
( -) 4. Riddle - Nik Kershaw
( 1) 5. Sex crime- Eurythmics
( 6) 6. All cried out- Alison Moyet
( -) 7. Like a Virgin - Madonna
( -) 8. Everything she wants- Wham
( -) 9. Sounds like a melody- Alphaville
( 7) 9-10. Pride (in the name of love) - U2
(-) 9-10. Húsið og ég- Grafík
Rás 2
( 2) 1. Everything she wants- Wham!
( 3) 2. Sex crime- Eurythmics
( 1) 3. One night in Bangkok- Murray Head
( 4) 4. Húsið og ég- Grafík
(10)5.16- Grafík
(14) 6. Búkalú- Stuðmenn
( 9) 7. Heartbeat- Wham!
( 6) 8. Love is love - Culture Club
(5) 9. Last Christmas - Wham!
( 8) 10. The wild boys- Duran Duran
Fellahellir
Framhald af bls. 7
föstu herbergi eru stöðugt í gangi
ýmiss konar klúbbar eða hópar.
Starfssvið klúbbanna er margvís-
legt allt eftir áhuga meðlima
hvers hóps. f klúbbunum eru yfir-
leitt 7 til 8 félagar og einn starfs-
maður sem leiðbeinandi. Klúbb-
arnir fjármagna starfsemi sína
með ágóða af föstudagsdiskóteki
og balli fyrir 10-12 ára krakka
sem eru haldin á laugardögum.
Þeir periingar sem koma inn í
sjoppuna á þessum böllum renna
þá beint í vasa viðkomandi
klúbbs sem síðan notar pening-
ana til að gera eitthvað eða fara í
helgarferð. Klúbbunum var upp-
haflega ætlað að mynda tengsl
milli starfsmanna og gesta og
stofnun klúbba oft stýrt ofan frá
en nú orðið eru það oftast krakk-
arnir sjálfir sem eiga hugmyndina
að klúbbunum.
400 krakkar á dag
Fellahellir er gömul og gróin
félagsmiðstöð og hefur svo sann-
arlega sannað tilverurétt sinn.
Það nægir að líta á aðsóknina en
Fellahelli sækja milli 3 og 400
unglingar daglega. Starfsemin er
Iíka stöðugt að aukast. Þegar
Fellahellir var opnaður fyrir 10
árum var farið hægt af stað og
aðeins opið tvö kvöld í viku en nú
er opið milli 70 og 80 stundir á
viku, og þar eru nú starfandi 10 til
12 klúbbar. - aró.
Fagmannlega staðið að verki. Alltaf er nóg að gera við biljarð-
borðin í Fellahelli (nema þið viljið kalla þetta „ballskák" eins og
íslenskufræðingarnir viljal). Ljósm.: eik.
Kennarar
(hinsegin ritgerd)
„Kennarar eru lítil, Ijót, grá og bólugrafin möppudýrsem láta
sér leiðast með því að lifa og hrœrast í bókum daginn út og
daginn inn og látaþaðsíðan bitna á öðrum, þ.e.a.s. meðýmsum
aðferðum, t. d. að binda mann fastan við stól, troða síðan bómull
í eyrun á sjálfum sér og láta krít skerast hœgt við töfluna, þannig
fá þeir allt að 85% fullnægingu við það eitt að sjá nemandann
kveljast. En núna til allrar hamingju er búið að stofna samtök
gegn þessum óþverra sem nefnast K.B.R. eða Kennarabræðsla
Reykjavíkur og nágrennis og voru samtökin stofnuð í ársbyrjun
’84 undir forystu meindýraeyðirsins heimskunna „Pete the ex-
terminator“ og hyggst hann einnig stofna samtök gegn hinm
harðsnúnu nýlenduríkisstjórn landsins og á sú herferð að bera
heitið H.G.H., eða Herferð gegn harðstjórn, og megi stofnun-
inni vegna vel um ókomin ár. “
Pétur frá Holti.
Aðsent efni
Villata
taka mig
alvarlega
Spjallað við Péturfrá Holtisem
sendi Glœtunnifrumsamda ritgerð
Glætan mun framvegis
reyna að birta sögur, Ijóð,
skrýtlur og annað efni sem les-
endur vilja koma á framfæri.
Ekkert er annað að gera en láta
hugmyndaflugið taka völdin,
stinga meistaraverkinu í um-
slag merkt:
Þjóðviljinn
Glætan
Síðumúla 6
105 Reykjavík.
Sá sem fyrstur ríður á vaðið hér
að ofan er ungur maður að nafni
Pétur Sigurðsson og hefur hann
tekið sér skáldanafnið Pétur frá
Holti. í tilefni frumbirtingar á rit-
gerð hans „Kennarar" tókum við
Pétur tali og spurðum hann m.a.
hvaðan hann fengi sínar hug-
myndir.
„Mér bara dettur þetta í hug og
verð að skrifa það niður um leið.
annars gleymi ég því“, svaraði
Pétur.
Sýnirðu kennurunum rítgerð-
irnar?
„Nei, nei, ég sýni kennurum
þetta ekki, þeir yrðu bara
hneykslaðir og mundu láta taka
mig fastan hjá barnaverndar-
nefnd. Ég vil líka taka það fram
að þetta eru ritgerðir og ekki
smásögur og alls ekki neitt fjölda-
framleitt grín, þið eigið að taka
mig alvarlega", sagði Pétur að
lokum.
Pétur er í sjöunda bekk Fella-
skóla en þó hann sé ungur að
árum er hann afkastamikill rit-
gerðarhöfundur. Það er því ekki
ólíklegt að fleiri ritgerðir eftir
hann eigi eftir að birtast á prenti.
Þeir sem vilja vita hvernig Pét-
ur frá Holti lítur út skulu kíkja á
myndina hér til hliðar. Hann er sá
uppglennti (eins og hann hafi séð
Glætu) til vinstri á myndinni.