Þjóðviljinn - 19.01.1985, Side 15
MENNING
Líf og fjör í Kramhúsinu.
Kramhúsið
Kramhúsiö, sem er dans- og
leiksmiðja í bakhúsi við Berg-
staðastræti 9b, hefur nú starfað í
eitt ár og stendur starfsemin í
miklum blóma. Pessa dagana eru
27 mismunandi hópar fólks á
öllum aldri að fara í gang á nám-
skeiðum hússins með ólík verk-
efni til úrlausnar.
Auk leikfimikennslu ýmiskon-
ar býður Kramhúsið upp á kenns-
lu í jazz-dansi, Afríkudönsum
fyrir bæði börn og fullorðna og
spunadansi. Dansspuni (einnig
kallaður nýdans) er mjög vinsæll
orðinn erlendis og byggir upp á
sjálfstæðri tjáningu einstaklings-
ins í dansi í nánurn tengslum við
tónlistina. Spunahópur frá
Kramhúsinu sýndi nýverið á
veitingahúsinu Safari verk sitt
„Allt sem andardrátt hefir" sem
unnið var með hljómsveitinni Dá,
Kramhúsið býður nú í fyrsta
sinn upp á kennslu í fimleikum
fyrir börn frá 8 ára aldri undir
leiðsögn eins reyndasta fimleika-
kennara okkar, Póris Kjartans-
sonar. Fimleikarnir í Kramhús-
inu verða kenndir í tveimur
aldurshópum, 8-11 ára og 12-15
ára.
Nú er einnig að hefjast í Kram-
húsinu kennsla í leikrænni tján-
ingu og leiklist fyrir börn og ung-
linga, undir stjórn Sigríðar
Eyþórsdóttur. Kennt verður í
tveimur aldurshópum, 8-11 ára
og 12-15 ára. Sigríður er leikari
að mennt og hefur starfað með
ýmsum leikfélögum bæði sem
leikari og leikstjóri.
Kramhúsið býður einnig upp á
leiklistarnámskeið fyrir þá sem
eldri eru þar sem unnið verður að
grímugerð auk þess sem farið
verður í spuna, hreyfingu og
textameðferð. Leiðbeinandi á
því námskeiði verður Kolbrún
Halldórsdóttir leikari og leik-
stjóri frá leikhópnum Svart og
sykurlaust. Hún kemur raunar
víðar við sögu í starfsemi Kram-
hússins þar sem hún starfar sem
framkvæmdastjóri þess í vetur.
Kennarar Kramhússins eru 8
talsins. Auk þeirra Þóris, Sig-
ríðar og Kolbrúnar, sem þegar
eru talin, eru það Hafdís Arna-
dóttir, sem rekið hefur eigin
leikfimiskóla í 20 ár, Elísabet
Guðmundsdóttir, Halla Margrét
Árnadóttir, Hafdís Jónsdóttir og
Abdul Dhour.
CITROÉNA C 35
DIESEL SENDIBÍLL
með frábæra vinnuaðstöðu.
Eigum fyrirliggjandi nokkra bíla
árgerð 1984. Hagstætt verð
og areiðsluskilmálar.
Hringið eoa lítið inn í Lágmúlann.
MITSUBISHI CALANT ' 85
hlaut hina eftirsóttu viöurkenningu
„GULLNA STÝRIÐ" sem veitt er af hinu virta
vikuriti Bild Am Sonntag í vestur-Þýskalandi.
[hIhekia
Laugavegi 170-172 Sír
HF
Sími 21240
Allar tegundir bifreiöa á markaðnum í
landinu komu til álita, en dómendur,
sem eru sérfróöir á þessu sviöi, úrskuröuöu
mitsubishi galant sigurvegara í
stæröarflokknum 1501-2000 cm3.
Nokkrir bílar fyrirliggjandi.
Verö frá kr. 455.000.-
A
MITSUBISHI
MOTORS