Þjóðviljinn - 09.02.1985, Qupperneq 2
FRETTIR
Ríkisstjórnin
Gamlar tillögur
Steingrímur Hermannsson: Sömu ráðstafanir og Morgunblaðið
sagði að þingflokkar ríkisstjórnarinnar hefðu hafnað.
Almennar tillögur frá stjórninni. Albert tekinn við af Þorsteini?
Petta eru sömu tillögurnar en
þær hafa tekið eðlilegum
breytingum, sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra á
biaðamannafundi í gær, þar sem
hann tilkynnti fyrirhugaðar ráð-
stafanir ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum, þegar hann var
inntur eftir því hvort þetta væru
sömu tillögurnar í efna-
hagsmálum og Morgunblaðið
hafði áður skýrt frá að hefði verið
hafnað af þingflokkum ríkis-
stjórnarinnar í síðasta mánuði.
Steingrímur kynnti tillögurnar
ásamt Albert Guðmundssyni
fjármálaráðherra, en þegar síð-
ustu ráðstafanir og tillögur af
þessum toga voru kynntar var
Þorstein Pálsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins í föruneyti for-
sætisráðherra.
Ekkert varð úr að sérstakt
efnahagsfrumvarp yrði kynnt,
heldur voru fremur á ferðinni al-
mennar vangaveltur og lauslegar
tillögur sem ráðherrarnir kváðu
síðar verða fluttar í frumvarps-
formi. Ekkert var að finna um
innflutningsverslunina, og lítið
um sjávarútvegsvandann, sem
mjög hafa verið til opinberrar
umfjöllunar að undanförnu.
í efnispunktunum sem kynntir
voru segir að dregið verði úr áætl-
un um erlend lán að upphæð 1000
miljónum, en hins vegar er tekið
Bandalag
jafnaðarmanna
fram að „jafnframt verði einka-
aðiljum innan eðlilegra marka
heimilt að taka erlend lán, enda
komi hvorki til banka eða ríkisá-
byrgð“. Albert lýsti sig reiðubú-
inn til að heimila starfsemi er-
lendra banka á íslandi og þeir
Steingrímur báðir gáfu í skyn að
trúlega yrði bjórinn gefinn frjáls
á árinu.
Sagt er í punktunum að virðis-
aukaskattur verði tekinn upp í
stað söluskatts, sérstakar ráðstaf-
anir verði gerðar í húsnæðismál-
um svo sem að reglur um lán
verði endurskoðaðar og að eftir
helgina verði sett á laggirnar ráð-
gjafarþjónusta sem leiðbeini og
aðstoði þá sem komnir eru í
greiðsluerfiðleika.
-óg
Fjörugar umræður urðu á fundi Alþýðubandalagsins á Stokkseyri í fyrrakvöld þar sem þeir
Guðmundur J. Guðmundsson og Svavar Gestsson fluttu framsögu. Á myndinni sjást framsögu-
mennirnirog Margrét Frímannsdóttiroddviti og varaþingmaðurí Suðurlandskjördæmi. (Mynd hágé).
Efnahagstillögurnar
Þeir segja að það hafi ekki ver-
ið stór kafli um kaffibaunainn-
flutninginn t efnahagstiliögum
ríkisstjórnarinnar.
Albert
Óttast ekki
leidam
Moggans
Ég hef fengið áður á mig
leiðara frá Morgunblaðinu og á
von á fleirum, sagði Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra á
blaðamannafundi í gær þegar
hann var spurður hvort hann ótt-
aðist ekki harkaleg viðbrögð
innan Sjálfstæðisflokksins við til-
lögum um hert skattaeftirlit.
Morgunblaðið í gær réðst
harkalega að ráðherranum vegna
harkalegs eftirlits í skattsvika-
málum í Ieiðara í gær, en Albert
kvaðst ekkert óttast afleiðingarn-
ar innan flokksins við auknu eft-
irliti við skattsvikum. Hann
kvaðst hafa farið að ráðum
stjórnarandstöðunnar í þessu
efni og myndi halda því áfram
þartil hann yrði sannfærður um
að slíkar aðgerðir borguðu sig
ekki. - óg
Innan-
tómir
frasar
Skuggalegar hótanir
Svavar Gestsson um efnisatriði forsœtisráðherra: Mjög óljós pappír
„Meinið er að ríkisstjórnin er
hætt að trúa því sjálf að hún
stjórni“, segir í ályktun frá þing-
flokki BJ um ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar.
„Plaggið er yfirfullt af gömlum
og út af fyrir sig ágætum fyrirheit-
um, sem orðið hafa að innantóm-
um frösum í meðförum þessarar
ríkisstjórnar“, segir ennfremur
þar. -óg
íslandssagan
Nordölsk
kauphöll?
Þetta er mikilvægasta skrefið
frá fornöld til framtíðar, sagði
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra um fyrirheitið um
„Kaupþing Seðlabankans" í efn-
ispunktum ríkisstjórnarinnar
sem koma \ stað efnahagsfrum-
varpsins sem boðað hafði verið.
Þeir Albert og Steingrímur
kváðu Seðlabankann þegar hafa
skilað fyrstu hugmyndum um
kauphöll og vænta mætti stofnun-
ar hennar innan tveggja mánaða.
-óg
Flest er óljóst í þessum pappír
forsætisráðherra og stjórnar-
flokkanna og ber plaggið allt þess
vitni að mikil átök eigi sér stað
milli flokkanna, eins og ráðherr-
ann viðurkenndi að nokkru á
fundi með okkur fulltrúum
stjórnarandstöðuflokkanna í
dag. í yfirlýsingum ríkisstjórnar-
innar er þó að finna skuggalegar
hótanir um einstök atriði. I því
sambandi nefni ég aðeins hug-
myndir - óljósar og óskýrðar -
um breytingar á bótum almanna-
trygginga, áform um að skera
niður nýframkvæmdafé húsnæð-
islána um allt að 200 milj. kr., þe.
úr um 700 milj. kr. í 500 milj. kr.
og loks hugmyndir um að heimila
einkaaðilum hömlulausan að-
gang að erlendu lánsfé.
Þetta sagði Svavar Gestsson
eftir fund með forsætisráðherra í
gær.
Erlend lán
- Hvað um erlendar lántökur?
- Heitið er 1000 milj. kr. nið-
urskurði, en þegar að var spurt
kom í ljós að þar er allt á huldu
nema um niðurskurð þann á
fjármálaáætlunum Landsvirkj-
unar sem þegar liggja fyrir eftir
uppljóstranir Finnboga Jóns-
sonar. Að öðru leyti er allt óljóst í
þeim efnum.
Vísitölubætur
á laun?
Það er einnig athyglisvert að í
pappír forsætisráðherra er ekki
að finna ákvæði um vísitölubætur
á laun og gaf hann í skyn á fundin-
Samninganefndir Sjómanna-
sambandsins og Farmanna-
og fiskimannasambandsins komu
saman til fundar í gær og þar var
ákveðið að boða til verkfalls, sem
hefjist 17. febrúar nk. hafi samn-
ingar ekki tekist fyrir þann tíma.
um að til greina kæmi að fram-.
lengja bannað við vísitölubótum,
ennfremur að ræða það mál við
aðila vinnumarkaðarins, til dæm-
is um að bannið yrði fellt úr
lögum og það réðist því af að-
stæðum á vinnumarkaðnum
hvernig samið yrði.
Að sögn forráðamanna sjó-
mannasamtakanna er hér um
neyðarúrræði að ræða, þar sem
VSÍ fyrir hönd útgerðarmanna
hefur verið til viðtals um annað
en kauplækkun til handa sjó-
mönnum á öllum samningafund-
Tekiö undir gagnrýni
f plagginu er sumpart tekið
undir gagnrýni stjórnarandstöð-
unnar að undanförnu. Má þar
nefna að tekin er upp tillaga frá
Alþýðubandalaginu sem felld var
á síðasta þingi um ráðgjafarþjón-
ustu handa húsbyggjendum. - v
um frá áramótum.
Nýr samningafundur hefur
ekki verið boðaður fyrr en á mán-
udaginn kemur, sem er greinilegt
merki þess að engin hreyfing hef-
ur verið í kjaradeilunni til þessa.
- S.dór
Kjarasamningar
Sjómannaverkfall
Sjómannasambandið og Farmannasambandið á-
'cváðu ígœr að boða allsherjar verkfall áfiskiskipaflot-
inum 17. febrúar ef samningar hafa ekki náðst fyrir
n/tmi /7
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9. febrúar 1985