Þjóðviljinn - 09.02.1985, Síða 3

Þjóðviljinn - 09.02.1985, Síða 3
FRETTÍR Aldraðir Beðið eftir B-álmunni Sveinn Ragnarsson félagsmálastjóri Reykjavíkurborgar: Þetta er alvarlegt mál. Vandinn mismikill. Talsvert gert til bóta. Vantar starfsfólk til heimilisþjónustu. Það fer ekkert á milli mála að þetta er alvarlegt mál en ég tel að það sé verið að gera talsvert á þessu sviði, sagði Sveinn Ragn- arsson félagsmálastjóri Reykja- víkurborgar í gær. Eins og Þjóð- viljinn hefur skýrt frá eru nú um 1000 aldraðir einstaklingar og um 120 hjón á biðlista hjá Fé- lagsmálastofnun eftir aðstöðu og þjónustu. Þar af eru um 300 í bráðavanda á mati stofnunarinn- ar. Sveinn sagði að vandi þessa fjölda væri mjög mismikill og um- sóknir spönnuðu visst svið, hjúkrunarvist, húsnæðisaðstöðu eða heimilisaðstoð. Varðandi langleguvist sagði Sveinn að þá hlytu menn að líta til B-álmu Borgarspítalans. „Jú þær fram- kvæmdir munu tefjast en við verðum að varpa þeirri ábyrgð yfir á ríkið. Þaðan kemur nú lítið framlag, en borgin hefur greitt vel það sem henni ber. Varðandi niðurskurð á fram- kvæmdum fyrir aldraða á síðustu árum sagði Sveinn rétt vera að engin ný þjónustuíbúð fyrir aldr- aða hefði verið tekin í notkun sl. tvö ár en hann sagðist trúa því að framkvæmdir síðustu þrjú ár í þessum málaflokki hefðu ekki Hjúkrunarheimili aldraðra við Seljahlíð verður tekið í notkun síðar á þessu ári. Þar eru 70 íbúðir fyrir 80 vistmenn. Þetta verða fyrstu íbúðirnar fyrir aldraða sem teknar verða í notkun á valdatíma Davíðs Oddssonar en hans fyrsta verk sem borgarstjóra var að fresta framkvæmdum við þessa byggingu sumarið 1982. Mynd-E.ÓI. verið minni en næstu þrjú ár á undan. „Ef við skoðum fram- kvæmdir á árunum 1974-1978 og síðan síðustu ár þá hefur senni- lega verið meira framkvæmt á fyrra tímabilinu", sagði félags- málastjóri. Mikill skortur hefur verið á starfsfólki til heimilisþjónustu fyrir aldraða og hefur það komið illa við fjölmarga aldraða borgar- búa. „Þetta hefur aukið mjög á vandann að fá ekki starfsfólk til heimilishjálpar og ég held að ástæðan sé fyrst og fremst lág laun, oft á tíðum erfið vinna og einnig sú þensla sem er nú á vinn- umarkaðnum", sagði Sveinn Ragnarsson. ->g- B-álman: Alþingi Smánarlegt framlag Borgarstjóri lýsir ánœgju sinni með 1,4 miljónir frá borginni í ár. Tillaga AB um hœkkun felld af meirihlutanum Sjálfstæðismenn höfðu ekki svo mikið við að minnast einu orði á þessa tillögu okkar um hækkun á framlagi til B-álmunnar. Hún var felld án umhugsunar, sagði Adda Bára Sigfúsdóttir í gær. „Borgarstjóri lýsti aðeins óá- nægju sinni með framlag ríkisins en jafnframt ánægju sinni með framlag borgarinnar til heil- Fjármálaráðuneytið Konur orsaka lág meðallaun Skýring fjármála- ráðuneytisins fyrir kjaradómi Vörn fjármálaráðuneytisins fyrir lágum launum opinberra starfsmanna er meðal annars sú, að þar sé meira af konum en á almennum vinnumarkaði. Þetta kom fram hjá Heimi Pálssyni á blaðamannafundi HÍK í gær. Heimir upplýsti, að könn- un Hagstofunnar á kjörum há- skólamenntaðra manna hefði leitt í ljós að á hinum almenna vinnumarkaði hefðu konur lægri laun en karlar. Þetta hefði síðan fjármálaráðuneytið notað sem röksemd fyrir kjaradómi til að skýra hvers vegna opinberir starfsmenn væru með lægri laun en aðrir: meðal þeirra væri nefni- lega hlutfallslega meira af kon- um! ólg/ÖS brigðismála almennt“. „Ég er ákaflega ósammála borgarstjóra um að það sé hægt að vera ánægður með framlögin til heilbrigðismála“, sagði Adda, „því þetta er eini málaflokkurinn sem ekki nýtur neins af því góð- æri sem nú er í fjárhag borgar- innar. Framlagið til B-álmunnar er aðeins 1,6 miljón króna og ég Ein tillagna Kvennaframboðs í tengslum við fjárhagsáætlun borgarinnar á fimmtudag var um að veita 4 miljónum króna í sér- stakan sjóð í tilefni 200 ára af- mælis borgarinnar 1986. Tilgang- urinn skyldi vera að veita 10 kon- um starfsstyrki til listsköpunar eða rannsókna sem varpi Ijósi á líf og starf kvenna í Reykjavík í 200 ár. Hulda Valtýsdóttir borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins upplýsti í umræðum að Kvennaframboðið hefði leitað eftir uppáskrift get ekki verið ánægð með slíka upphæð. Það er ekki hægt að kalla þetta annað en smánarlegt framlag, einkum í ljósi þess hvernig ástandið er.“ í tillögu Alþýðubandalagsins var gert ráð fyrir að borgin legði 5 miljónir til viðbótar til byggingar- innar en sú fjárhæð hefði dugað kvenna í þeim flokki á tillöguna. Hér væri um gott málefni að ræða, en tillagan væri seint fram komin og því hefðu þær ekki treyst sér til að gerast meðflutn- ingsmenn. Hins vegar lægi fyrir vilyrði um aukafjárveitingu í þessu skyni síðar á árinu. Gerður Steinþórsdóttir borg- arfulltrúi Framsóknar sagði að Kvennaframboðið hefði einnig leitað eftir stuðningi hjá konum í minnihlutanum. Hefðu þær allar þrjár verið reiðubúnar til að ger- ast meðflutningsmenn að tillög- til að taka eina sjúkradeild í við- bót í notkun eða hluta af iðju- þjálfuninni. „Þetta er auðvitað ekki nægjanlega há upphæð,“ sagði Adda, „en okkur þótti rétt að láta reyna á vilja meirihlutans með svo hófsamri tillögu. Viljinn reyndist hins vegar enginn.“ -ÁI unni, en vildu miða hana við 5 starfsstyrki á árinu. Var á það fallist af flutningsmönnum. í ljósi þessa sagðist Gerður hafa orðið undrandi þegar Kvennaframboð- ið flytti nú tillöguna í eigin nafni eingöngu og vegna þeirra vinnu- bragða myndi hún sitja hjá við afgreiðslu hennar. Tillagan hlaut 6 atkvæði þeirra Öddu Báru Sigfúsdóttur, Guð- rúnar Ágústsdóttur, Guðmundar Þ. Jónssonar og Sigurðar E. Guð- mundssonar auk tveggja borgar- fulltrúa Kvennaframboðs. _áj Vitlaus vinnubrögð Guðrún Helgadóttir: Samhljóða tillögur fluttar afmörgum þingmönnum. Illa undirbúin mál. Guðrún Helgadóttir tók þing- menn heldur betur til bæna á Al- þingi í fyrradag fyrir óskyn- samleg og of eða illa undirbúin mál. Annarsvegar gagnrýndi hún að sömu þingmenn væru að flytja efnislega samhljóða mál á fleiri en einni þingsályktunartillögu. Nefndi hún Gunnar G. Schram, sem væri meðflutningsmaður á tillögu um samanburð á launa- kjörum á Islandi og annarsstaðar á Norðurlöndum en væri nú kom- inn á tillögu um samanburð á launa- og lífskjörum á Islandi og í norðlægum löndum. Taldi hún, að hann og aðrir flutningsmenn síðari tillögunnar hefðu sem best getað leitað eftir að tillögurnar yrðu sameinaðar þó ekki væri til annars en vinnusparnaðar. Á hinn bóginn minnti Guðrún á ákvæði þingskapa um að greinargerðir með málum ættu að vera stuttar. Nú tíðkuðu þing- menn það í æ ríkari mæli að semja mjög langar greinargerðir; létu sig ekki muna um að endurprenta heilu blaðagreinarnar og áður fluttar ræður, sem auðveldlega mætti lesa í þingtíðindum. Hvatti hún forseta til að taka í taumana og beita áhrifum sínum til hag- kvæmari vinnubragða í þinginu. hágé. Laugardagur 9. febrúar 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3 Kvennasaga: Aukafjárveiting seinna á árínu? Stuðningur minnihlutans afþakkaður 'X

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.