Þjóðviljinn - 09.02.1985, Side 5

Þjóðviljinn - 09.02.1985, Side 5
Menn hafa tekið eftir því að menntamálaráðherra er mikið í mun að koma í gegnum þingið nýju útvarpslagafrumvarpi. Fyrst var boðað að það yrði gert strax eftir verkfall í haust leið. Nú er haldið uppi þrýstidampi með því að gefa öðru hvoru til kynna að það sé alveg að koma úr þing- nefnd. Hjörleifur Guttormsson á sæti i menntamálanefnd Neðri deildar fyrir Alþýðubandalagið. Honum þykja þetta vond vinnubrögð. Þau komi bæði fram í útvarpslag- afrumvarpinu sjálfu eins og það er og í málsmeðferð. Málið er hrátt ennþá, segir hann. Til dæm- is hefur enginn fundur verið hald- inn í menntamálanefnd frá því að Alþýðuflokksmenn, Bandalag jafnaðarmanna og Framsóknar- menn lögðu fram sínar breyting- artillögur fyrir jól. Hjörleifur hefur í umræðu um þetta mál vísað til fordæmis Dana í útvarpsmálum, hvernig þeir hafa kosið að fara að öllu varlega, kosta miklu til að höndla þessa þróun og hafa stjórn á henni, var- ast að fjölmiðlar lendi undir of- ríki þeirra hagsmuna sem stjórna auglýsingum. Fordæmi Dana Og víkjum þá að Dönum. Þeir hafa ekkert verið að ana að nýjum útvarpslögum. Þeir samþykktu, að í apríl 1983 byrj- aði tilraunatímabil sem stæði í þrjú ár og yrði notað til að safna reynslu í frambúðarfyrirkomulag á staðbundnu útvarpi. Þeir völdu í „breiða" leyfaúthlutunarnefnd og veittu sem svarar 25 miljónum króna í styrki til ýmissa umsækj- enda (einkum vegna kaupa á tækjabúnaði). í fyrra hafði verið úthlutað alls 136 leyfum til hljóðvarps- og sjónvarpsrekstrar (eins og 6-7 leyfi væru veitt á ís- landi). Leyfishafar eru einstak- lingar, sérstaklega stofnuð félög, félög sem hafa önnur aðalmark- mið (t.d. trúfélög) og svo dag- blöð (sósíaldemókratapressan er allvirk í staðbundnu útvarpi og sjónvarpi svo dæmi sé tekið). Auglýsingar eru ekki leyfðar né heldur að dagskrár séu dulbúnar auglýsingar. Fyrirferðarmest í til- raunastarfsemi þessari er Sjón- varpsrás tvö og Helgarsjónvarp- ið, sem mikill hluti Dana sjá - tekjur þeirra koma frá áskrifend- um. Aðrar stöðvar hafa á ýmsan hátt - bæði í Noregi og Dan- mörku eru til stöðvar sem senda út skamma stund í viku og vinnan er mest gefins og ýmis kostnaður greiddur af áhugamönnum og samtökum. Þetta á ekki síst við um trúfélög. í Kaupmannahöfn er byrjað kristilegt sjónvarp sem ekki tekur áskriftargjöld - nýleg frétt hermir, að sósíaldemókratar ætli að kaupa sér kortérs frétta- þátt á dag hjá þeirri stöð. Svo mætti lengi telja. Gegn aug- lýsingum íhaldsstjórnin danska vill að rás tvö verði í framtíðinni rekin fyrir auglýsingar og að dagskrár- gerð verði sett í einskonar verk- takakerfi. En þessi hugmynd mætir mikilli andstöðu og er rétt að vekja athygli á henni hér á íslandi, þar sem menn eru furðu daufir í auglýsingamálum. Danskir sósíaldemókratar eru andvígir auglýsingum í hljóð- varpi og sjónvarpi, SF, Sósíalíski alþýðuflokkurinn líka, einnig Vinstrisósíalistar, Radíkalir og Kristilegir. Þetta er meirihluti þingsins. í Noregi er svipað uppi á teningnum - þar eru hægrimenn svotil einir um að vilja auglýs- ingasjónvarp. Röksemdir danska SF gegn auglýsingafárinu eru fullgildar mjög víða. SF segir, að auglýsing- ar muni hafa áhrif á dagskrána í þá veru að hún muni elta allt það „poppaða" en þaðan af síður auka margbreytni. Við vildum, segir SF, fá aðra sjónvarpsrás til að keppa við ríkisútvarpið, en þá með samtengingu staðbundins frumkvæðis og með leyfisveiting- um til einstakra félaga. Með því móti væri hægt bæði að efla danskt mótvægi gegn vaxandi framboði á erlendu sjónvarpsefni yfir landamærin, og það væri líka hægt í auknum mæli að ná til minni markhópa (og þegar SF talar um „minni hópa“ þá er átt við 50 þúsund til 300 þúsund manns!). SF telur svo að þessir minni hópar yrðu mjög afskiptir í poppuðu sérkennaleysi auglýs- ingasjónvarpsins. Auk þess, segir SF, munu fyrst og fremst stóru alþjóðlegu fyrir- tækin hafa ráð á að auglýsa og þar með er enn meir þjarmað að smærri fyrirtækjum en áður. Þá mundu möguleikar á að halda úti dagblöðum skerðast enn. Þá er minnt á þá einföldu stað- reynd, að hvemig sem allt veltist eru það áhorfendur sem borga fyrir meira sjónvarp. Það er bara ekki eins augljóst ef þeir gera það gegnum hærra verð á vöru og þjónustu, eins og þegar sjónvarp er rekið fyrir auglýsingar, og þeg- ar innheimt er áskriftargjald. Allt er þetta satt og rétt. INN SÝN Utvarpslagafrumvarp með fyrirgangi - Reynsla annarra - Afleit vinnubrögð - Hvað gerist nœst? Um þetta er rætt Það stjórnarfrumvarp um ný íslensk útvarpslög sem menn hafa um hríð haft milli tanna afnemur einkaleyfi Ríkisútvarpsins. Það er gert ráð fyrir því, að sjö manna þingkjörin útvarpsréttarnefnd úthluti leyfum til reksturs út- varpsstöðva til sveitarfélaga eða félaga sem til þess eru stofnuð. Leyfin séu tímabundin og varði útvarpsrekstur (hljóðvarps - og sjónvarps) á afmörkuðum svæð- um. Lagt er til að útvarpsleyfi verði háð meðmælum sveitar- stjórna. Stöðvarnar staðbundnu eiga að virða grundvallarreglur lýðræðis og tjáningarfrelsi, og má kæra þær fyrir útvarpsréttar- nefnd fyrir meint brot gegn þeim ákvæðum. Þeir sem senda um þráð hafa ekki leyfi tilað hafa tekjur af auglýsingum, en aðrir mega selja auglýsingar. Auglýs- ingamagn og verðlag á auglýsing- um skulu vera háð reglum sem taka mið af auglýsingum í Ríkis- útvarpi og hlut þeirra í dagskrá. Við þetta frumvarp hafa marg- ar breytingatillögur verið gerðar. Allir eru sammála því að aflétta einkaleyfi ríkisútvarpsins nema Kvennalistinn. En verulegur á- greiningur er um veigamikil at- riði - til dæmis auglýsingamálin. Alþýðubandalag Afstaða Alþýðubandalagsins kemur fram í breytingatillögum þeim sem Hjörleifur Guttorms- son hefur lagt fram við stjórnar- frumvarpið. Þar er hnykkt á ákvæði sem meinar útlendum að- ilum að taka þátt í eða lauma sér inn í útvarpssrekstur hér á landi. Þar er og hnykkt á ákvæði sem á að koma í veg fyrir eitt það, sem erfiðast er - að dagskrár verði einskonar dulbúnar auglýsingar fyrir hagsmunaaðila sem kaupa sig inn á rásirnar. Aðalmálið í þessum breyting- atillögum er þó það, að nýjum útvarpsstöðvum sé óheimilt að afla tekna með verslunar- og við- skiptaauglýsingum. í staðinn er gert ráð fyrir því að menn gerist áskrifendur að stöðvum og megi innheimta afnotagjöld samhliða afnotagjöldum til ríkisútvarps- ins. Hér er Alþýðubandalagið mjög á svipuðum buxum og danskir kratar, SFarar, vinstri- sósíalistar og radíkalir. í annan stað leggur Abl á það áherslu að dreifikerfi útvarps- stöðva um þráð, kapalkerfi og boðveitukerfi, séu í opinberri eigu og með því sé komið í veg fyrir einokum í skjóli einkaeignar á dreifikerfum. Alþýðubandalagið vill og að ráðgefandi starfsmannaráð starfi við Ríkisútvarpið. Einnig að út- varpsstjóri sé ráðinn til fimm ára í senn og í mesta lagi til alls tfu ára. Þetta síðasta ákvæði er mjög í samræmi við þá nauðsyn á endur- nýjun í yfirstjórn menningar- stofnanna sem menn hafa viður- kennt t.d. í lögum um Þjóð- leikhús. Alþýðuflokksmenn eru líka meðmæltir starfsmannaráði og afnámi æviráðningar útvarps- stjóra. Notendaráð og nefskattur Sigríður Dúna á Kvennalista hefur lagt fram sérstakt frumvarp í stað stjórnarfrumvarpsins. Sér- staða þess er fólgin í því að alls ekki er gert ráð fyrir því að aðrir útvarpi en Ríkisútvarpið. Þar koma og fram sérstæðar hug- myndir um stjórn Ríkisútvarps- ins: Hún sé annarsvegar í hönd- um framkvæmdaráðs, sem starfs- menn kjósa; hinsvegar leggi 14 manna notendaráð, skipað 7 körlum og 7 konum, á ráðin um hlutföll í dagskrá. Og þetta fólk sé valið með einskonar hlutkesti. Með slíkri aðferð er mælt í nafni valddreifingar. Alþýðuflokkurinn gerir í sínum breytingatillögum ráð fyrir að nýjar útvarpsstöðvar lifi á auglýs- ingum með svipuðum hætti og stjórnarfrumvarpið. Boðveiturn- ar vill hann fella undir sveitar- stjórnir. Stjórnir staðbundinna boðveitna geta leyft einstak- lingum og félögum afnot af útvarps- og sjónvarpsrásum til tímabundinna útsendinga (innan þeirra mega ekki vera auglýsing- ar) Olafur Þ. Þórðarson frá Fram- sókn flytur sínar breytingatil- lögur. Hann vill - eins og Alþýð- uflokkurinn reyndar líka, að af- notagjaldið sé nefskattur. Auglýsingamálin vill hann leysa með þeim hætti, að lagt sé 20% gjald á allar auglýsingar (utan og innan Ríkisútvarps semsagt) og það fé renni til að efla innlenda dagskrárgerð og til að greiða út- varpspartinn af rekstri Sinfóntu- hljómsveitarinnar. Hann vill líka fá það í lög, að Ríkisútvarpið sendi út frá a.m.k. fimm stöðum á landinu. Bandalag jafnaðarmanna læt- ur uppi mikla óánægju með það hve flausturslegt útvarpslaga- frumvarpið sé. Þar sé ekkert um boðveitukerfi, hlustendakannan- ir eða reglur um stjórnmálaum- ræðu í „svokölluðum frjálsum fjölmiðlum". Athygli vekur hug- mynd BJ um stjórn Ríkisútvarps- ins. Þeir vilja leggja þingkjörið útvarpsráð niður, en í staðinn koma á fót sjö manna útvarps- stjórn, sem sé skipuð útvarps- stjóra, þrem framkvæmda- stjórum, tveim fulltrúum sem menntamálaráðherra skipar og einum sem starfsmenn kjósa. Verður mönnum sem fyrr að undrast hugmyndir Bandalags jafnaðarmanna um valddreif- ingu: í stað fulltrúalýðræðis vilja þeir setja hreint og klárt embætt- ismannavald. Þess skal og getið, að útvarps- lagafrumvarpið hefur líka sætt gagnrýni frá órólegum frjáls- hyggjumönnum í Sjálfstæðis- flokki. Þeir vilja nema úr því ákvæði um leyfisveitingu frá út- varpsréttarnefnd, um tjáningar- frelsi og lýðræðislegar leikreglur og þarmeð klögunarrétt, einnig vilja þeir selja nýjum útvarps- stöðvum sjálfdæmi í auglýsing- apólitík. Með öðrum orðum: þeir vilja amerískt ástand. Magnið og frelsið Umræðan um þessi mál í blöð- um hefur mjög einkennst af því, að fylgismenn hins „frjálsa", auglýsingarekna útvarps hafa lofað ljúfu og miklu magni efnis og hamast mjög á því, að ríkisút- varp sé sama og ófrelsi. Hvað finnst Hjörleifi Gutt- ormssyni um það ? „Þetta stenst vitanlega ekki,“ sagði hann. „Ef við getum haft lýðræðislegar leikreglur í heiðri í þjóðfélaginu, þá eigum við líka að geta gert það í fjölmiðlum - og miklu frekar í ríkisfjölmiðlum þar sem miklu auðveldara er að tryggja að ólík sjónar,mið takist á en í einkarekstrarstöðvum". Sem fyrr segir: Alþýðubanda- lagið vill að fleiri sé gefinn kostur á að taka þátt í útvarpsstarfsemi en Ríkisútvarpi. En með ströng- um skilmálum. Og þá fyrst finnst þeim að peningavald auglýsenda ráði ekki ferðinni. „Við eigum að stjórna þróun- inni, ekki hún okkur“, segir Árni Björnsson útvarpsráðsmaður í grein hér í blaðinu 13. des sl. Ef að útvarpslagafrumvarpið yrði óbreytt að lögum, þá mundu vafalaust ýmsir áhugahópar fara af stað og gæti ýmislegt gott og skemmtilegt komið út úr því. En mest mundi samt fara fyrir þeim sem standa í startholum með plön um að græða á auglýsingabisness og einhverri poppaðri músík- og slúðurumgerð utan um hann. Því aðstæður eru allar þannig hjá okkur, að nokkuð víst er að meira magn mun ekki tryggja meiri fjölbreytni, fleiri raunveru- lega valkosti hlustenda og áhor- fenda. Þaðan af síður meiri gæði. Aftur á móti gæti nýskipun orðið til þess að grafa verulega undan þeim fjölmiðlum sem hafa skyldum að gegna og metnað til eflingar tjáningarfrelsis og ís- lenskrar menningar. Arni Bergmann Laugardagur 9. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.