Þjóðviljinn - 09.02.1985, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 09.02.1985, Blaðsíða 14
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Reykjavík Spilakvöld Síðasta umferð þriggjakvölda keppninnar í félagsvist er á þriðju- dag 12. febrúar kl. 20 á Hverfisgötu 105. Þeir sem ekki komust fyrri kvöldin geta verið með og keppt um sérstök verðlaun kvöldsins. Gestur í kaffihléi er Hjörleifur Guttormsson alþingismaður. Spilahópurinn Alþýðubandalagið í Reykjavík Sósíalísk efnahagsstefna og uppbygging atvinnulífs Félagsfundur fimmtudaginn 14. febrúar. Alþýðubandalagið í Reykjavík boðar til félagsfundar fimmtudaginn 14. febrúar kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Fundarefni: Sósíalísk efnahagsstefna og uppbygging at- vinnulífs. Frummælendur: Már Guðmundsson Sigurjón Pétursson Vilborg Harðardóttir Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á fundinn, en miðstjórnar- menn Alþýðubandalgsins sem búsettir eru í Reykjavík eru sérstak- lega boðaðir til fundarins. Stjórn ABR Már Sigurjón Vilborg Reykjaneskjördæmi Fundur um atvinnumál Alþýðubandalagið í Keflavík og kjördæmisráð AB halda fund um atvinnumál í húsi Stangveiðifélagsins Suðurgötu 4 Keflavík, mánu- daginn 11. febrúar kl. 20.30. Dagskrá: Atvinnumál á Suðurnesjum. Frummælendur: Elsa Kristjánsdóttir, Jóhann Geirdal og Sig- urður St. Helgason lífeðlisfræðingur. Geir Gunnarsson alþm. mætir á fundinn. Alþýðiibandalagið Hafnarfirði Bæjarmálaráðsfundur Bæjarmálaráð ABH boöar fund í Skálanum Strandgötu 41, mánu- daginn 11. febrúar n.k. kl. 20.30. Dagskrá: Fjárhagsáætlun Hafn- arfjarðarbæjar fyrir 1985. Félagar fjölmennið. Áríðandi að allir full- trúar í nefndum og ráðum mæti. Stjórnin Finnbogi Ragnar Óttar Siglufjörður Afvinnumálaráðstefna Alþýðubandalagið efnir til ráðstefnu um atvinnumál á Siglufirði nk sunnudag 10. febrúar kl 16.00. Framsögumenn verða Finnbogi Jónsson framkvæmdastjóri Ið- þróunarfélags Eyjafjarðar, Ragnar Arnalds alþingismaðurog Ótt- ar Proppé bæjarstjóri. Ráðstefnan eröllum opin. - Alþýðubanda- lagið Bakkafjörður Almennur fundur Fundur verður haldinn í samkomuhúsinu á Bakkafirði miðviku- dagskvöldið 14. febrúar kl. 20.30. Framsögu hafa alþingismenn- irnir Steingrímur J. Sigfússon og Hjörleifur Guttormsson. Fundur- inn er öllum opinn. Alþýðubandalagið Vopnfirðingar Opinn fundur Almennur opinn fundur verður í Miklagarði Vopnafirði fimmtudaginn 15. febrúar kl. 20.30. Áfundinum hafa framsögu og svara fyrirspurnum Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalags- ins og Steingrímur J. Sigfússon og Hjörleifur Guttormsson. Fund- urinn er öllum opinn. Alþýðubandalagið MENNING Bœkur Jarðabók og dómar Sögufélagið gefur út nýtt bindi af Landsyfirréttardómum og hcestaréttardómum og einnig jarðabókina fyrir ísafjarðar- og Strandasýslur. Sögufélagið hefur gefið út nýtt bindi af Landsyfirréttardóm- um og Hæstaréttardómum í íslenskum málum 1802-1873. Hér er um að ræða 10. bindið í þessari merku heimildarút- gáfu sem hófst 1916. Þá hefur Sögufélagið ennf remur gefið út í umboði Hins íslenska fræðafélags í Kaupmanna- höfn 7. bindi af jarðabók Árna Magnússonarog Páls Vída- líns og er þetta bindi um ísafjarðar- og Strandasýslu. Landsyfirrétturinn var stofn- aður árið 1800 og var arftaki Al- þingis hins forna, sem lagt var niður sama ár, en það hafði þá um langt skeið verið nær einvörð- ungu dómstóll. Iþessu safni eru dómar Lands- yfirréttar fram til þess tíma, að farið var að gefa þá út árlega, en áður höfðu einungis verið prent- aðir kaflar úr dómum í blöðum. Auk þess eru birtir dómar Hæsta- réttar í Kaupmannahöfn í ís- lenskum málum. Sjö fyrstu bindi dómasafnsins komu út í heftum á árunum 1916- 1955. Umsjón fram í 3. bindi hafði Klemens Jónsson, ráð- herra, en síðan sá Einar Arnórs- son, hæstaréttardómari, um verkið til loka 7. bindis. Tvö næstu bindi komu út í heilu lagi: 8. bindi árið 1959 og9. bindi árið 1965, bæði í umsjón Ármanns Snævarr, hæstaréttardómara. Síðan hefur útgáfan legið niðri vegna fjárskorts. Nú hefur Sögufélag með fjár- stuðningi úr Þjóðhátíðarsjóði gefið út 10. bindi, svo að einungis lokabindið er eftir. Mun það væntanlega geta komið út, áður en á löngu líður. Ármann Snæv- arr sér um útgáfu 10. bindis. í 10. bindi eru dómar Landsyf- irréttar frá árunum 1868-1870, og Hæstaréttardómar frá 1869-1873. Jakob Benediktsson gaf út jaröa- bókina fyrir ísafjarðar- og Stranda- sýslur. Hér er m.a. að finna dóma í barnsfaðernismálum, málum, er varða eignaspjöll, fjársvik, helgi- dagabrot, hneykslanlegar sam- vistir, illa meðferð á barni, leg- orðsbrot, skjalafals, jrjófnað, ær- umeiðingar o. m. fl. -1 dómasafn- inu, sem að meginmáli er 351 bls., eru auk þess málaskrá, nafnaskrá, lagastaðir sem til er vitnað og efnisskrá á 71 bls.. Sjöunda bindið af jarðabók- inni er um ísafjarðar- og Stranda- sýslu eins og fyrr var getið. Jarða- bókin um Isafjarðarsýslu var öll tekin saman á árinu 1710 en um Strandasýslu á árunum 1706 og 1709-1710. Dr. Jakob Benedikts- son gaf þetta bindi út í Kaup- mannahöfn árið 1940 á vegum Fræðafélagsins. Bindið hefur áður verið ljós- prentað (1945) en upplag frumút- gáfu eyðilagðist að mestu við sprenigingu í prentsmiðju S.L. Möllers á stríðsárunum. Um jarðabókin hefur verið Ármann Snævarr sér um átgáfuna á 10. bindi Landsyfirréttardóma og hæstaréttardóma í íslenskum málum 1802-1873. sagt m.a. að hvergi sé að finna á einum stað jafnmikinn fróðleik um jarðir landsins sem í henni. „Hún er fyrsta rit sem hefur að geyma svo nákvæmar upplýsing- ar um kvikfénað bænda, jarðir og býli á íslandi, að fá má af henni mjög glögga vitneskju um efna- hag landsmanna og hvernig hver jörð var í byrjun 18. aldar.“ Jarðabókin hlýtur að vera undir- staða allra byggðarsögu- og stað- fræðirannsókna hér á landi. Hinni ljósprentuðu útgáfu verður haldið áfram á næstu árum og lýkur með útgáfu á ýmsu efni sem snertir jarðabókarverk- ið. Gunnar F. Guðmundsson sagnfræðingur mun sjá um þá út- gáfu og semja atriðisorðaskrá við öll bindin. Félagar Sögufélagsins og aðrir áhugamenn geta fengið ofan- greindar bækur í afgreiðslu fé- lagsins að Garðastræti 13B (gengið inn úr Fischersundi) kl. 1-5 daglega. Bœkur Stœrðfrceði Handbók fyrir kennara og nemendur eftir Kristjdn Gunnars- son komin út Út er komin hjá Erni og Örlygi handbók í stærðfræði ætluð foreldrum, kennurum og nem- endum. HöfundurerKrist- ján Guðjónsson námsstjóri í stærðfræði. Hinni nýju handbók í stærð- fræði er ætlað að leysa úr vanda- málum og svara spurningum sem upp koma t.d. á heimilum þegar foredrar vilja hjálpa börnum sín- um við heimadæmin en muna ekki reikningsaðferðir og þær finnast ekki í viðkomandi reikningsbók, sem barnið notar þá stundina. Á undanförnum árum hafa töluverðar breytingar átt sér stað á stærðfræðinámsefni grunn- skólans, bæði hvað varðar inni- hald efnis og framsetningu. Ýms- ir nýir efnisþættir hafa bæst við með nýjum hugmundum og hug- tökum og mjög víða hafa aðferðir við kennslu breyst verulega. Allt hefur þetta orðið til þess að for- eldrar veigra sér við að setjast niður með börnum sínum og að- stoða þau við námið, telja sig ekki hafa næga kunnáttu til þess að geta orðið að liði. Hinni nýju handbók er ætlað að leysa þenn- an vanda. Efni bókarinnar skiptist í þrjá meginþætti 2) Breytingatímabil - orsakir og afleiðing, 2) Stærð- fræðinám - fyrstu bekkir grunn- skólans, 3) Stærðfræðihugtök. Sœnskir styrkir í boði íslandsnefnd Letterstedtska sjóösins hefur ákveðið að veita tvo ferðastyrki á árinu 1985 handa íslenskum fræði- eðavísindamönnum, sem ferðast vilja til Svíþjóðar á því áriírannsóknaskyni. Styrkfjárhæð verður 5-10 þús- und sænskar krónur til hvors styrkþega. Tekið skal fram, að ekki er um eiginlega námsferða- styrki að ræða, heldur koma þeir einir til greina, sem lokið hafa námi en hyggja á frekari rann- sóknir á sínu sviði. Umsóknir skal senda til Is- landsnefndar Letterstedska sjóðsins, c/o Þór Magnússon, Þjóðminjasafni íslands, Pósthólf 1439,121 Reykjavík, fyrir 28. fe- brúar 1985, sem veitir nánari upplýsingar. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9. febrúar 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.