Þjóðviljinn - 09.02.1985, Page 15

Þjóðviljinn - 09.02.1985, Page 15
Bækur Tvœr íslenskar barna- bœkur á alþjóð- legri sýningu Tvær íslenskar barnabækur hafa veriö valdar sem framlag íslands á alþjóðlega sýningu á myndabókum fyrir málhölt börn. Sýningin byrjar í Bo- logna á Ítalíu í mars á þessu ári og fer svo sem farandsýn- ing víðaumheiminn. Bækurnar eru Kátt í koti með texta eftir Sigrúnu Einarsdóttur og Húsdýrin okkar með texta eftir Stefán Aðalsteinsson. Ljós- myndir í báðar bækurnar eru eftir Kristján IngaEinarsson. Húsdýr- in okkar kom út hjá Bjöllunni árið 1982 en Kátt í koti hjá Skímu 1983. Pað er alþjóðleg stofnun, IBBY (International Board on Books for Young People), með aðsetur í Basel í Sviss sem heldur þessa sýningu í náinni samvinnu við UNESCO, Menningarstofn- un Sameinuðu þjóðanna. IBBY er félagsskapur sem var stofnaður árið 1953 í þeim til- gangi að stuðla að auknum skiln- ingi þjóða á milli með hjálp barnabóka. Samtökin gera mikl- ar kröfur til barnabóka og líta svo á að þær hafi stóru hlutverki að gegna í menntun og uppeldi barna. Á sýningunni verða 282 bækur frá 30 löndum. Dr. Björn Þrándur Björnsson, líf- eðlisfræðingur. Doktors- vörn Föstudaginn 25. janúar síð- astliðinn varði Björn Þrándur Björnsson ritgerð sína, „Calcium Balance in Teleost Fish: Views on Endocrine control“, við opin- bera athöfn við Gautaborgarhá- skóla. Aðal andmælandi var Ian W. Henderson prófessor í líf- eðlisfræði við háskólann í Sheffi- eld. Björn Prándur Björnsson, f. 1.8. 1952, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík, Náttúrufræðideild, árið 1971, og B.S.-prófi í líffræði við Háskóla íslands 1974. Hann lauk fram- haldsverkefni við Gautaborgar- háskóla 1977, og stundaði síðan doktorsnám í dýralífeðlisfræði við sama skóla frá 1978 til 1985. Að venju hefur doktorsritgerð hans verið gefin út af Gauta- borgarháskóla. Björn Þrándur Björnsson er sonur hjónanna Ásgerðar Búa- dóttur og Björns Th. Björns- sonar. Norrœna félagið Sérprentun um Fœreyjar í síðasta tbl. af „Vi i Norden", ársfjórðungsriti Norrænufél- aganna, var hluti blaðsins helgaðurFæreyjum. Sá hluti hefur nú verið gefinn út sérprentaður á góðan pappír og hefur Norræna félagið fest Nýlega kom út annað hefti tímaritsins Nyt fra Island fyrir árið 1984 sem Dansk-islandsk samfund gefur út. Ritstjóri er Bent A. Koch. kaup á hluta af því upplagi. Fjall- að er m.a. um heimastjórn Fær- eyinga, efnahags- og atvinnumál þeirra, ferðamál, sjávarútveg, menningarmál og sagt frá Nor- ræna húsinu í Þórshöfn. Þessa sérprentun má fá endur- gjaldslaust á skrifstofu Norræna Meðal efnis í þessu hefti er grein eftir Ólaf Björnsson pró- fessor er nefnist íslenska lýðveld- ið í 40 ár. Þá skrifar Morten Stender um konung íslands, félagsins í Norræna húsinu, sími 10165, á meðan birgðir endast. Morten Kyndby Holm um ís- lenska kvikmyndavorið og gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu. Að lokum er grein eftir Morten Stender um Viðeyjarstofu. Leiklist Aldrei er friður Leikdeild Ungmennafélags Stafholtstungna hyggst frum- sýna í félagsheimilinu Þing- hamri, Varmalandi, leikritið Aldrei er friður eftir Andrés Indriðason 15. febrúar nk. Leikstjóri er Emil Gunnar Guðmundsson. Leikmynd hefur leikstjóri og leikhópur gert. Æft er af kappi og sýnist mér þetta fara vel af stað undir leikstjórn hins unga leik- stjóra. Leikendur og áhugafólk í kringum sýninguna er nær 30 manns. Þetta er 5. verkefni leikdeildarinnar á 8 árum fyrir utan smærri verk. Leikdeildin var stofnuð 3. febrúar 1977. Leópold Nyt fra Island HÓPUPPSAGNIR KENNARA — HRYNUR MENNTAKERFIÐ? Fulltruar HÍK og menntamálaráðuneytisins mæta á fundinn. Tryggvagötu 22 /

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.