Þjóðviljinn - 09.02.1985, Side 16

Þjóðviljinn - 09.02.1985, Side 16
Birgitta Heide úr ís- Haukur Gunnarsson leikstjóri, Árni Baldvinsson Ijósameistari og Svein Lund Roland frá Noregi sem gerir leikmynd og búninga Akira Kurosawa mynd, sem hann byggði á þessum tveim sög- um Akutagawas. í myndinni fléttar hann listilega saman þess- ar sögur svo úr verður ein dram- atísk heild. Þessi kvikmynd ber sama titil og leikritið, Rashomon, og hlaut fyrstu verðlaun á alþjóð- Iegu kvikmyndahátíðinni í Fen- eyjum 1951 og gerði Kurosawa þegar heimsfrægan. Myndin var sýnd hér á landi nokkrum árum síðar og minnast margir hennar enn þann dag í dag. - Síðan gerist það að tveir þekktir kvikmynda- handritahöfundar í Bandaríkjun- um, Fay og Michael Kanin, taka sig til og semja leikgerð upp úr sögunum og úr kvikmynd Kuros- awas. Og auðvitað nefndu þau leikritið Rashomon. Leikritið var frumsýnt á Broadway í New York árið 1959 og varð geysi vinsælt, enda sagan og boðskapurinn í verkinu aðgengilegur öllum al- menningi hvar sem er í heimin- um. í meðferð Kurosawas og Kanin-hjónanna er Rashomon orðið spennandi morðgáta fyrst og fremst, með tilheyrandi vopnabraki og átökum, en allt er blandað afar fínlegum mann- lýsingum, sem minna jafnvel á ljóðrænar mannlýsingarnar í verkum Tennessee Williams. Og síðast en ekki síst er þarna á ferð- inni listileg leiksviðsútfærsla á hefðbundinni sagnaskemmtan. Atburðarásin í verkinu er í rauninni afar einföld, rétt eins og í öllum góðum morðsögum. Samurai-stríðskappi er á ferð gegn um skóg ásamt konu sinni. Á vegi þeirra verður stigamaður og heillast hann gersamlega af fegurð konunnar. Áður en fundi þeirra lýkur, er búið að drepa Samurai-kappann og nauðga eiginkonunni. Þó er engan veg- inn ljóst hver drap manninn, eða í hvaða tilgangi það var gert - hafi hann þá yfirleitt verið drepinn. Réttur er settur og við heyrum fjórar gerólíkar frásagnir vitna af því sem gerðist. Allar frásagnirn- ar eru trúverðugar í hæsta máta, en hvernig má það vera að til séu fjórar mismunandi útgáfur á sannleikanum um jafn einfalda atburði? Eru öll vitnin að ljúga, eða segir eitthvert þeirra sann- leikann? Og af hverju grípa menn til lyginnar? Rashomon, titil verksins, mun merkja „Lífið er silkiþráður“, en Rashomon er einnig nafnið á einu glæsilegasta borgarhliðinu í Kyoto, hinni fornu höfuðborg Japans. Og það er við Rashom- onhliðið sem leikurinn fer fram, en nú er hliðið orðið illa farið og að hruni komið. Það er ekki lengur í alfaraleið og þar hafast flækingar við og þar eru geymd þau lík sem enginn ber kennsl á. Þrír ólíkir menn af lágum stigum hafa leitað sér skjóls í hliðinu undan rigningu og bíða þess að stytti upp. Meðan þeir bíða rekja þeir morðsöguna, en jafnframt eru atburðir sögunnar leiknir. Og þremenningarnir takast á um þær siðferðisspurningar sem upp koma og hefur hver þeirra sitt til málanna að leggja í þeim efnum. Einn þeirra er utangarðsmaður og háðfugl, annar er prestur og sá þriðji er alþýðumaður sem stund- ar viðarhögg. Hér sjást þeir Guðjón Petersen og Arnór Benónýsson í bardagaham Guðjón Petersen og Tinna Gunnlaugsdóttir Fimmtudaginn 14. febrúar nk. frumsýnir Þjóðleikhúsiö leikritið Rashomon, eftir Fay og Michael Kanin, íþýðingu Árna Ibsens. Leikstjóri er Haukur J. Gunnarsson, leik- mynd og búninga gerir Svein Lund Roland frá Noregi, lýs- ingu annast Árni Baldvinsson. Bræðurnir Haukur og Hörður Harðarsynir útfærðu bardagaatriði, enda sérfræð- ingar í bardagalist austur- landa. Leikendur í sýningunni eru Bessi Bjarnason, Hákon Waage, Gunnar Eyjólfsson, Guðjón P. Pedersen, Arnór Benónýsson, sem leikur þar með sitt fyrsta hlutverk í Þjóðleikhúsinu, Tinna Gunnlaugsdóttir, Jón S. Gunn- arsson, Þórunn Magnea Magnús- dóttir og Birgitta Heide úr ís- lenska dansflokknum. Það er all merkilegur aðdrag- andi að tilurð þessa leikrits. Upp- runi verksins er í japanskri þjóð- sögu frá 9. öld og ýmsum annál- um og króníkum frá þeim tíma. Það var síðan snemma á 20. öld- inni að japanska skáldið Ryunos- uke Ákutagawa (1892-1927) samdi tvær smásögur upp úr þess- um heimildum frá 9. öld; en Ak- utagawa var á fyrsta fjórðungi þessarar aldar álitinn einn fremsti rithöfundur Japana. Síðan gerð- ist það, að árið 1950 gerði jap- anski kvikmyndasnillingurinn Rashomon

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.