Þjóðviljinn - 17.02.1985, Síða 3
Formaður
í lúxusklassa
Nú í vikunni kom áætlunarvél
frá Kaupmannahöfn til Kefla-
víkur sem ekki er í frásögur
færandi nema vegna þess aö
um borö í vélinni voru 45 far-
þegar auk áhafnar.
44 farþeganna sátu í al-
menningsrýminu og þrjár
flugfreyjur sáu um aö þjón-
usta þar og höfðu í nógu aö
snúast.
í Saga-class voru tvær f lug-
freyjur við störf. Ekki er vitað
hversu annríkt var hjá þeim en
farþeginn í básnum var aö-
eins einn, Þorsteinn Pálsson
formaður Sjálfstæöisflokks-
ins.B
Amnesty Internafional
Pyntingar er hœgt að stöðva!
5.-9. febrúar 1980: Læknaráð ríkisins í Brasilíu sakar yfirmann
læknisfræöistofnunarinnar í Sao Paolo, dr. Shibata, um aö gefa út tvö
fölsk vottorð þess efnis aö einn fangi hafi svipt sig lífi og um að annar
hafi ekki veriö pyntaöur. Dr. Shibata var tekinn af læknaskrá í október
sama ár.
13. febrúar 1981: José Arregui Izaquirre, þritugur Baski, deyr í
einangrunarvarðhaldi lögreglunnar í Madrid á Spáni. Líkskoðun leiðir í
Ijós aö hann hafi verið illa pyntaöur. Við réttarhöld þann 29. nóv. 1983
eru tveir lögregluforingjar sýknaðir af því aö vera valdir að dauða hans.
5. febrúar 1982: Neil Aggett, sem var hvítur starfsmaður verka-
lýðsfélags blökkumanna, finnst hengdur í klefa sínum í aðalstöðvum
lögreglunnar í Jóhannesarborg í Suður-Afríku samkvæmt heimildum
öryggislögreglunnar þar. Aggett hafði sagst hafa verið pyntaður, og
styðurframburður annarra fanga sem fram kom við rannsókn málsins
þær staðhæfingar. Niðurstaða rannsóknarinnar var að Aggettt hefði
svipt sig lífi.
Spánn og Sudur-Afríka eru íhópiað minnsta kosti 98 ríkjaþar
sem pyntingar hafa verið stundaðar af stjórnvöldum eða látnar
viðgangast á síðustu árum. Nú stendur yfir alþjóðlegt átak Amn-
esty International gegn pyntingum undir kjörorðinu PYNTiNGAR
ER HÆGTAÐ STOÐVA!
íslandsdeild Amnesty International
Hafnarstræti 15, sími: 91-16940.
(Fréttatilkynning.)
Útvíkkun
leikhússins
( nýjasta Lögbirtingablaði
greinir frá því að Hitt leikhúsið
(hryllingsbúðin) hf hafi verið
stofnað og er tilgangurinn að
reka leikhús og rekstur hvers
konar sýninga: myndbanda-
og kvikmyndagerð og annan
skyldan rekstur.
Meðal stofnenda fyrirtækis-
ins eru Páll Baldvin Baldvins-
son (gagnrýnandi), Sigurjón
Sighvatsson (kvikmynda-
gerðarmaður), Sigurður Gísli
Pálmason (forstjóri í Hag-
kaupum) og Arni Möller
(Þórustöðum, Ölfusi).B
Vaxandi
umsvif
í Lögbirtingablaðinu segir frá
lögformlegri stofnun Forlags-
ins, útgáfu þeirra Jóhanns
Páls Valdimarssonar (áður í
Iðunni) og Sigurðar Ragnars-
sonar.
Þeir Jóhann Páll og Sigurð-
ur láta sér ekki nægja bókaút-
gáfu því í sama Lögbirtingi
greinir frá aðalfundi fyrirtæk-
isins Goðgá hf þar sem þeir
Jóhann Páll og Sigurður
Ragnarsson sitja báðir. Goð-
gá gefur út Helgarpóstinn.
Meðal annarra stjórnar-
manna í því fyrirtæki eru þeir
Ingólfur Margeirsson og
Hallgrímur Thorsteinsson.B
Til hvers
refirnir
voru skornir
Með skrifstofu Eimskips
í Rotterdam verður...
HÖFN HEIMS
dálítið íslensk!
Eftir að Ragnhildur Helgadótt-
ir menntamálaráðherra hafði
sent framhaldsskólakennur-
um bréf á mánudaginn var um
að skikka þá til kennslu um
þriggja mánaða skeið eftir að
uþpsagnir þeirra taka gildi brá
sjónvarpið hart við. Sigrún
Stefánsdóttir fór á stúfana og
hafði viðtal við kennara en gat
þess jafnframt að ekki hefði
náðst í menntamálaráðherra.
Strax eftir fréttirnar hringdi ný-
skipaður útvarpsstjóri, Mark-
ús Örn Antonsson, í Sigrúnu
og snupraði hana fyrir að hafa
ekki fyrst talað við mennta-
málaráðherra. Þá veit maður
til hvers refirnir voru
skornir...B
Höfnin í Rotterdam í Hollandi er sannkallaður miðpunktur flutninga í heiminum. Um hana fer meiri varningur en nokkra
aðra höfn í veröldinni - þar mætast skip frá öllum heimshornum og þaðan liggja landvegir um alla Evrópu.
Rotterdam hefur lengi verið mikilvægur viðkomustaður Eimskips og þar með íslenskra inn- og útflytjenda. Vikuleg áætlun
þangað með ekjuskipunum Álafossi og Eyrarfossi, og beinar siglingar á tíu daga fresti með 3 gámaskipum á leiðinni
Reykjavík - Rotterdam - New York - Reykjavík tryggir tíðan og öruggan flutning. Með öflugri skrifstofu í Rotterdam og
þrautþjálfuðu starfsliði þar aukum við enn þjónustu okkar við viðskiptavini.
Heimilisfang Rotterdamskrifstofunnar er:
EIMSKIP - ROTTERDAM
Albert Plesmanweg 151
3088 GC Rotterdam
Sími: 9031 10 282933
Telex: 62122 EIMSK NL
Símskeyti: EIMSKIP
P.O. Box 54034
3008 JA Rotterdam
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100
*
Sunnudagur 17. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
AUGLÝSINGAÞJÓNI